Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 16

Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Í þjóðsögum má f inna ó t r ú l e g a r lýsingar og frásagnir af furðu legum dýrum, ófreskjum og skrímslum. Ef sögurnar eru teknar trúanlegar er til ótölulegur fjöldi dýra sem samkvæmt skilgreiningu náttúruvísindanna teljast ekki til lífvera. Þjóðsagnadýr flokkast undir það sem má kalla rómantíska náttúrufræði og tilvera þeirra byggist á vilja fólks til að trúa. Í grískum þjóðsögum segir frá ægilegri skepnu sem heitir basilisk. Kvikindið er skriðdýr í líkingu við eðlu, það klekst úr eggi gamals hana, frosks eða nöðru. Hugmyndin að basilisk komi úr hanaeggi er upprunnin frá náttúrufræðingnum Neckham sem var uppi um 1180. Sögur herma að basilisk verði ljótara og ógeðslegra um alla framtíð uns það gleymist. Skepnan er innan við metra á lengd og er sögð vera konungur snáka og einvaldur minni skriðdýra. Þrátt fyrir smæð basilisks er eyðileggingarmáttur þess á við stærstu dreka. Kvikindið er svo eitrað að ef það er stungið með spjóti í sperrtan líkamann rennur eitrið eins og straumur upp eftir spjótinu og í hendur þess sem stingur. Búsvæði basilisks er í eyðimörkinni og það er í raun ástæðan þess að eyðimörkin er til. Andardráttur eiturnöðrunnar er svo megn að hann drepur allan gróður og kveikir í steinum. Lyktin af basilisk er banvæn og kvikindið eitrar allt vatn sem það kemur nálægt. Dýrið getur spýtt frá sér eiturgufu þannig að fuglar sem fljúga yfir drepast þegar þeir anda eitrinu að sér og skepna getur drepið með hljóðinu einu saman með því að hvæsa svo kröftuglega að allt sem heyrir hljóðið fellur dautt niður. Basilisk er með banvænt augnaráð. Allt sem það lítur augum drepst samstundis. Öruggasta leiðin til að drepa basilisk er að láta það horfa á eigin spegilmynd. Hrekkjóti refurinn og ósýnilegi hjörturinn Kínverski refurinn er ólíkur öðrum refum að því leyti að hann lifir í átta hundruð til þúsund ár. Hann er talinn boða illt og hver líkamshluti gegnir sérstöku hlutverki í því sambandi. Í Kína þarf refurinn ekki annað en að slá rófunni í jörðina til þess að kveikja eld og hann sér líka inn í framtíðina. Refurinn getur breytt sér í hvaða líki sem er en oftast birtist hann sem gamall maður, ung stúlka eða fræðimaður. Refurinn er slyngur, varkár og tortrygginn og hann hefur yndi af því að hrekkja og valda vanlíðan. Í Kína eru til mörg þúsund þjóðsögur um refinn og hrekki hans. Kínverjar eiga þjóðsögur sem segja frá ósýnilegri eða líkamalausri hjartartegund. Eins og gefur að skilja er ekki til nein lýsing á hirtinum þar sem enginn hefur séð hann. Kínverjar vita að skepnan lifir í námum neðanjarðar og þráir ekkert heitar en að sjá dagsbirtu. Hirtirnir hafa mál og reyna í sífellu að fá námumenn til að fylgja sér upp á yfirborðið með alls kyns gylliboðum. Sagan segir að ef hirtirnir komist upp á yfirborðið verði þeir að illa lyktandi vökva sem veldur dauða og tortímingu. /VH STEKKUR Rómantísk náttúrufræði Smalamennsku í Fjallgörðum á Jökuldalsheiði flýtt: Hafa varann á vegna jarðumbrota við Holuhraun og Bárðarbungu „Við flýttum göngum vegna jarðumbrota í Bárðarbungu, Holuhrauni og við Öskju,“ segir Sigvaldi H. Ragnarsson, bóndi á Hákonarstöðum í Jökuldal og gangnastjóri í Fjallgörðum á Jökuldalsheiði. Bændur þar fóru í göngur síðustu helgina í ágúst, viku fyrr en áætlað hafði verið. Vikuna á undan höfðu bændur á Brú smalað Brúardali, en þessi svæði liggja hvað næst áhættusvæði vegna hugsanlegs öskufalls. Sigvaldi segir að í stóra gosinu í Öskju 1875 hafi hluti Jökuldals og öll Jökuldalsheiði farið í eyði í nokkur ár vegna mikillar vikurgjósku sem lagðist yfir landið. Minnugir þeirrar sögu hafi Jökuldælingar haft varann á sér frá því í kringum 20. ágúst þegar óróinn hófst „og við höfum verið á vaktinni síðan“, segir hann „en þó eru allir hér í góðu andlegu jafnvægi vegna þessa og ekki ástæða til að kvíða því sem hugsanlega ekki kemur.“ Heimalandagöngur um helgina Löggöngur í heimalöndum hefjast nú um komandi helgi og í framhaldi af því verður unnið að því að ná því fé sem eftir hefur orðið, þó er búið að smala á nokkrum bæjum stóran hluta heimalanda og senda til slátrunar. Sigvaldi segir að fé hafi verið vel á sig komið er það kom af fjalli og þeir bændur sem þegar hafi slátrað nokkru af fé sínu séu ánægðir með fallþungann sem er hátt á nítjánda kíló þar sem hann er mestur. „Hann er nokkuð góður miðað við slátrun svo snemma að hausti og allt lömb beint úr heiðum, enginn tilbúningur með kálbeit, þetta gefur vísbendingu um það sem koma skal í haust,“ segir Sigvaldi. /MÞÞ Páll Benediktsson og Gréta Þórðardóttir á Hákonarstöðum, Sigvaldi Ragnarsson, Hákonarstöðum, Bragi S. Björgvinsson, Eiríksstöðum, Svanur Freyr Jóhannsson, Hákonarstöðum og þeir Vilhjálmur og Þorsteinn Snædal á Skjöldólfsstöðum. Myndir / Halla Eiríksdóttir Hákonarstöðum Áskell Einarsson, Eiðum, Agnar Benediktsson, Hvanná, Vilhjálmur á Skjöldólfsstöðum, Lilja Óladóttir, Merki, Bragi S. Björgvinsson, Eiríksstöðum, Svanur Freyr Jóhannsson, Hákonarstöðum, Guðný Halla Sóllilja Björns dóttir, Merki og Jón Viðar Einarsson, Hvanná. Ragnar Sigvaldason, Hákonarstöðum, Jón Viðar Einarsson, Hvanná og Vilhjálmur Snædal á Skjöldólfsstöðum. Vilhjálmur Pálmi Snædal á Skjöldólfsstöðum hvílir lúin bein, en þau Guðrún Ragna og Þorsteinn Snædal huga að fénu. Á myndinni eru talið frá vinstri: Guðrún Ragna Einarsdóttir, Skjöldólfsstöðum, Arnór Benediktsson, Hvanná og Ragnar Sigvaldason, Hákonarstöðum.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.