Bændablaðið - 11.09.2014, Page 20

Bændablaðið - 11.09.2014, Page 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Fréttaskýring Búfé á Íslandi samkvæmt tölum Matvælastofnunar (MAST) var samtals 881.034 á árinu 2013 samanborið við 991.258 á árinu 2012. Vekur athygli að þetta er fækkun milli ára sem nemur um 110 þúsund dýrum sem hlýtur að teljast afar sérstök niðurstaða. Þá virðist vanta ríflega 24 þúsund hross inn í tölur síðasta árs. Sveitarfélögin í landinu önnuðust um langt árabil búfjáreftirlit og forðagæslu fyrir hönd ríkisins samkvæmt lögum og ítarlegri reglugerð og í náinni samvinnu og yfirumsjón Bændasamtaka Íslands. Heimsóttu eftirlitsmenn þá bændur til að fá staðfestingu á tölum þeirra um búfjárfjölda og fóðurbirgðir. Bændasamtökin héldu síðan utan um nákvæma söfnun tölulegra upplýsinga um fjölda búfjár í landinu fyrir hönd ríkisins fram til 2010 þegar það verkefni var flutt til MAST. Hefur þetta eftirlit og öflun hagtalna sem þar hefur verið safnað á hverju ári, bæði vor og haust, verið afar mikilvæg, m.a. við framkvæmd stuðningskerfis landbúnaðarins og talnasöfnun Hagstofu Íslands. Þetta eru líka nauðsynleg gögn varðandi fjallaskil og alla áætlanagerð. Samkvæmt nýjum lögum um dýravelferð og búfjárhald var þetta eftirlitshlutverk flutt yfir til MAST og framkvæmdinni breytt. Var þetta talið nauðsynlegt til að skilja á milli starfsemi hagsmunasamtaka bænda og eftirlits. Var hugmyndin einnig að gera málsmeðferð einfaldari og skýrari, ekki hvað síst er varðaði dýravelferðarmál. Lauk þeirri yfirfærslu verkefna um síðustu áramót og búfjáreftirlit sveitarfélaganna færðist til MAST. Eftirfylgni með uppgefnum tölum bænda er þó greinilega ekki eins mikil og áður var. Þá er ljóst að þetta breytta fyrirkomulag er að skekkja tölulegar upplýsingar um búfjárstofn landsmanna verulega. Nú stendur fyrir dyrum að MAST taki yfir fleiri þætti er varða landbúnaðinn og þar með greiðslukerfið sem áður var í höndum Bændasamtaka Íslands fyrir hönd ríkisins. Tölur eru nú birtar mun seinna en áður tíðkaðist. Þá verður því miður að taka nýjustu tölum MAST með talsverðum fyrirvara þar sem þar kemur fram fækkun upp á hundrað og tíu þúsund dýr án þess að hægt sé að útskýra hvað orðið hafi um þann fjölda. Samkvæmt lögunum fer ráðherra með yfirstjórn mála en Matvælastofnun annast öflun hagtalna og eftirlit með merkingum búfjár. Með búfé er í lögum þessum átt við alifugla, geitfé, hross, kanínur, loðdýr, nautgripi, sauðfé og svín. Rísi ágreiningur um hvað skuli falla undir hugtakið búfé sker Matvælastofnun úr. MAST ber við manneklu og fjárskorti Samkvæmt upplýsingum frá MAST byggjast hagtölur land- búnaðarins fyrir árið 2013 á haustskýrslum síðasta vetrar en vorskoðanir eru þar ekki inni eins og áður tíðkaðist. Þetta var gert í framhaldi þeirra breytinga sem gerðar voru á fyrirkomulagi búfjáreftirlits um síðustu ára- mót. Við þá breytingu færðist búfjáreftirlit frá sveitarfélögunum til Matvælastofnunar en áætlað hafði verið að þeim verkum væri sinnt með 10 til 12 ársverkum í búfjáreftirliti hjá sveitarfélögum. Þeirra í stað hafa komið sex eftirlitsmenn hjá Matvælastofnun, sem starfa við dýraeftirlit, einn í hverju umdæmi stofnunarinnar, en hjá MAST starfa nú samtals um 80 manns. „Langt undir þeim starfsmannafjölda sem þarf“ „Þetta er langt undir þeim starfsmannafjölda sem þarf til að sinna hefðbundnum vorskoðunum ásamt öðrum störfum,“ segir Sverrir Þ. Sverrisson, sérfræðingur á stjórnsýslu- og lögfræðisviði MAST. „Hugmynd okkar var að ráða til viðbótar verktaka til að sinna vorskoðunum á árinu 2014 en ekki var fjármagni veitt til þess af hálfu Alþingis. Til viðbótar kemur að Alþingi breytti nýjum lögum um dýravelferð á þann veg að eftirlitið skuli byggt á áhættumati og því er ekki lengur gert ráð fyrir eftirliti eins og því sem átt hefur við í vorskoðunum.“ Samkvæmt þessu gera lögin bara ráð fyrir að teknar séu stikkprufur og að mun færri bændur séu þá heimsóttir en áður. Hvað varð um rúmlega 24 þúsund hross? Nýjar tölur um hrossaeign landsmanna vekja sérstaka athygli. Varðandi það segir Sverrir að á liðnum árum hafa búfjáreftirlitsmenn safnað tölum um hrossaeign eftir að hross hafa verið tekin á hús, þ.e.a.s á tímabilinu janúar-mars. Fjöldatölur hrossa hafa því komið fram með vorgögnum. Nú eiga menn hins vegar að skila inn gögnum að hausti, en vortalning fór ekki fram til að sannreyna uppgefnar tölur. Í það minnsta er óútskýrt hvað hefur orðið um þau 24.359 hross sem vantar inn í tölurnar miðað við árið 2012. Samkvæmt upplýsingum Bændablaðsins hefur ekki tekist að útskýra þetta með því að óvenju mörgum hrossum hafi verið slátrað á síðastliðnum vetri. Allavega bendir hrossakjötsframboð á markaði ekki til þess. Reyndar mun hrossaeigendum aldrei hafa verið sendur spurningarlisti í fyrrahaust samkvæmt heimildum blaðsins. Ef það er rétt er því eðlilega lítið hald í tölunum um hrossaeign landsmanna að þessu sinni. Er hestamennska að leggjast af á höfuðborgarsvæðinu? Í gögnum MAST sem birt eru á vefsíðu DataMarket kemur fram að hrossum á Reykjanessvæðinu hafi fækkað úr 8.978 árið 2012 í 1.145 árið 2013, eða um 7.833 hross. Á sama tíma berast fréttir um stöðuga aukningu í hestamennsku á svæðinu með stórkostlegri uppbyggingu mannvirkja því samfara. Svipaða sögu er að segja um tölur af Vesturlandi. Þar voru hross talin vera 9.954 hross árið 2012 en voru 6.395 árið 2013 samkvæmt nýjustu tölum MAST. Á Vestfjörðum hefur hrossum fækkað samkvæmt fyrirliggjandi gögnum úr 928 í 624. Á Norðurlandi vestra er hrossum sagt hafa fækkað úr 18,497 í 15.226. Á Norðurlandi eystra hefur hrossum fækkað milli ára úr 7.470 í 4.385. Á Austurlandi hefur hrossum fækkað úr 3.240 í 2.458. Í því mikla hrossaræktarhéraði, Suðurlandi, er sagt að hrossum hafi fækkað úr 28.313 í 22.788. /HKr. Búfjárstofninn á Íslandi skrapp saman um 110 þúsund dýr 2013 samkvæmt nýjustu tölum Matvælastofnunar: Hagtölusöfnun í landbúnaði gefur ekki alveg rétta mynd af stöðunni – MAST ber við fjárskorti og manneklu en óútskýrt er hvað orðið hefur um 24 þúsund hross Sveitarfélag Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr Samtals 2506 Vogar 0 150 2 0 2 0 154 8717 Ölfus 100 1.662 1.253 4 37.362 0 40.381 2504 Garður 0 52 26 0 42 0 120 3000 Akranes 0 137 0 0 0 0 137 1300 Garðabær 0 115 3 0 50 0 168 5604 Blönduós 302 3.109 408 0 0 0 3.819 6000 Akureyri 35 245 84 0 37 3 404 0000 Reykjavík 137 512 300 814 60.048 9 61.820 2300 Grindavík 0 613 64 0 28 0 705 2503 Sandgerði 2 198 30 0 87 79 396 3811 Dalabyggð 1.099 29.228 1.029 0 108 0 31.464 5611 Skagabyggð 748 6.110 553 0 74 0 7.485 6100 Norðurþing 262 16.546 336 0 170 0 17.314 8610 Ásahreppur 537 2.442 1.335 0 19.277 0 23.591 8716 Hveragerði 0 0 14 0 0 0 14 1604 Mosfellsbær 55 229 235 0 42.330 3.100 45.949 3609 Borgarbyggð 4.462 34.454 3.768 108 422 0 43.214 3714 Snæfellsbær 362 2.435 225 0 30 0 3.052 4100 Bolungarvík 59 741 50 0 0 0 850 4607 Vesturbyggð 430 5.757 15 0 51 1 6.254 5609 Skagaströnd 0 38 14 0 0 0 52 5706 Akrahreppur 1.404 7.273 1.124 0 56 0 9.857 6250 Fjallabyggð 0 1.202 101 0 26 0 1.329 6515 Hörgársveit 2.489 7.118 1.001 311 212 0 11.131 7300 Fjarðabyggð 185 4.773 223 0 79 4 5.264 8722 Flóahreppur 3.314 4.090 2.660 0 2.147 0 12.211 2000 Reykjanesbær 0 109 23 0 0 0 132 4901 Árneshreppur 0 3.055 0 0 0 0 3.055 4908 Bæjarhreppur 182 7.820 167 0 0 0 8.169 4911 Strandabyggð 0 9.296 142 0 55 0 9.493 5200 Skagafjörður 4.823 34.725 6.097 20 276 15.350 61.291 7708 Hornafjörður 1.111 19.024 743 10 5.669 29 26.586 1400 Hafnarfjörður 0 199 2 0 0 0 201 1606 Kjósarhreppur 1.045 2.343 460 0 11.588 0 15.436 3711 Stykkishólmur 0 793 29 0 0 0 822 4200 Ísafjarðarbær 687 7.318 66 0 0 0 8.071 6400 Dalvíkurbyggð 1.625 4.264 308 1 3.662 23 9.883 6709 Langanesbyggð 0 4.898 192 0 16 0 5.106 7000 Seyðisfjörður 55 1.153 6 0 180 0 1.394 8721 Bláskógabyggð 2.311 6.596 1.499 0 57 0 10.463 6611 Tjörneshreppur 157 1.813 31 0 0 0 2.001 6612 Þingeyjarsveit 3.425 17.746 565 189 217 0 22.142 8000 Vestmannaeyjar 0 157 0 0 0 0 157 8508 Mýrdalshreppur 1.000 4.226 290 0 17 0 5.533 8509 Skaftárhreppur 1.631 17.956 479 0 58 0 20.124 3710 Helgafellssveit 73 1.777 101 0 0 0 1.951 4502 Reykhólahreppur 449 8.358 112 0 22 0 8.941 5508 Húnaþing vestra 1.918 29.840 3.278 0 158 0 35.194 7620 Fljótsdalshérað 1.837 27.597 878 0 194 21 30.527 8614 Rangárþing ytra 2.667 12.257 4.590 2 136 10 19.662 3511 Hvalfjarðarsveit 1.347 5.899 619 0 134 7 8.006 4803 Súðavíkurhreppur 93 1.922 25 0 0 0 2.040 5612 Húnavatnshreppur 1.566 27.503 3.752 0 53 0 32.874 6513 Eyjafjarðarsveit 5.490 5.775 1.022 0 404 17 12.708 6706 Svalbarðshreppur 3 7.436 199 0 23 2 7.663 7613 Breiðdalshreppur 210 4.134 142 0 69 50 4.605 7617 Djúpavogshreppur 407 5.977 42 0 31 0 6.457 3506 Skorradalshreppur 47 1.051 32 0 4 0 1.134 3709 Grundarfjarðarbær 172 1.556 211 0 52 0 1.991 6602 Grýtubakkahreppur 419 3.655 255 0 10 2.044 6.383 6607 Skútustaðahreppur 357 4.382 82 0 132 0 4.953 7505 Fljótsdalshreppur 0 5.520 248 0 66 0 5.834 8613 Rangárþing eystra 8.253 14.858 5.827 0 1.561 2.382 32.881 8710 Hrunamannahreppur 2.884 4.331 1.478 0 10.030 31.700 50.423 4902 Kaldrananeshreppur 0 1.278 45 0 0 0 1.323 7502 Vopnafjarðarhreppur 413 7.256 118 0 87 3.933 11.807 4604 Tálknafjarðarhreppur 0 99 2 0 0 0 101 7509 Borgarfjarðarhreppur 17 3.451 58 0 10 0 3.536 8200 Sveitarfélagið Árborg 950 1.595 808 0 7.869 0 11.222 6601 Svalbarðsstrandarhreppur 1.254 658 209 0 6.678 0 8.799 3713 Eyja- og Miklaholtshreppur 348 1.708 381 0 20 0 2.457 8720 Skeiða- og Gnúpverjahreppur 3.190 5.120 1.969 633 6.749 6.000 23.661 8719 Grímsnes-og Grafningshreppur 368 3.721 586 439 1.593 0 6.707 Samtals: 68.766 471.434 53.021 2.531 220.518 64.764 881.034 Fjöldi búa: 850 2.486 2.129 16 351 37 © 2014 | Matvælastofnun - aðalskrifstofa | Austurvegur 64 | 800 Selfoss | Tel: +354 530 4800 | Fax: +354 530 4801 | mast@mast.is Opinberar búfjártölur 2013-2014 - Allar búgreinar (samtölur) - Hafa ber í huga að samtölur allra alifugla og loðdýra hafa að geyma allar tegundir búfjár sem skilgreindar eru undir þessum búgreinum Hörður Kristjánsson hk@bondi.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.