Bændablaðið - 11.09.2014, Page 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 201
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Dreift í 31 þúsund eintökum á 387 dreifingarstaði
Kornrakamælir
Lítið og handhægt tæki.
Auðvelt í notkun inni og útivið.
Afar hraðvirkt.
Vottað af DLG í Þýskalandi.
Mælir nákvæmlega raka í byggi með
8 - 35% rakainnihaldi.
Hægt að mæla raka í 30 tegundum
korns og fræja.
Hafið samband við sölumenn Líflands fyrir nánari upplýsingar.
Lífland söluráðgjöf
Sími: 540 1100
Brúarvogur 1-3
Lynghálsi, Reykjavík
Lónsbakka, Akureyri
Efstubraut, Blönduósi
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Æðarbændur
Tökum enn á móti dún í hreinsun og sölu.
Greiðum flutningskostnað fyrir allan dún
hvaðan sem er af landinu sem berst til okkar
land- eða sjóveg í hreinsun og sölu.
Gerum upp strax að hreinsun lokinni.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Erla Friðriksdóttir í síma 899 8369
& erla@kingeider.is
ÍSLENSKUR ÆÐARDÚNN
Dúnhreinsun Nesvegi 13 Stykkishólmi
Góð kornuppskera á
Austurlandi
„Við fengum alveg prýðilega uppskeru og erum ánægðir,“ segir
Friðjón Þórarinsson, bóndi í Flúðum við Egilsstaði, sem í félagi við
þrjá bændur stendur að kornræktun austur á Héraði. Þeir sáðu á
sumardaginn fyrsta og luku við að þreskja nú í vikunni. Alls fengu
þeir um 24 tonn af korni af 8 ha lands.
Auk Friðjóns eru þeir Einar Örn
Guðsteinsson á Teigabóli, Helgi
Bragason á Setbergi og Jóhann
Þórhallsson í Brekkugerði með í
kornræktuninni og segir Friðjón
að þetta sé fyrsta sumarið sem þeir
standi saman að slíku verkefni.
„Þetta var tilraun og hún tókst mjög
vel í sumar,“ segir hann. Áður hafi
hver og einn prófað sig áfram með
minni skika.
Gott vor og einstakt sumar
„Það voraði vel hér fyrir austan og
við byrjuðum snemma, gátum sáð á
sumardaginn fyrsta eða í lok apríl og
fengum svo þetta einstaklega góða
sumar, þannig að niðurstaðan er eins
og best verður á kosið,“ segir hann
en bætir við að vissulega hafi þeir
rennt nokkuð blint í sjóinn í vor. „En
það áraði mun betur en bjartsýnustu
menn þorðu að vona.“
Friðjón segir kornrækt enn
stundaða í litlum mæli fyrir austan,
en hún fari þó vaxandi. „Bændur
eru að byrja á þessu, æ fleiri prófa
að rækta korn. Árangurinn er góður
eftir sumarið, það gekk víðast hvar
vel,“ segir hann. Bændurnir skipta
uppskerunni með sér og nýtir hver
og einn sinn hlut heima á sínu búi,
„og það sem afgangs verður getum
við selt,“ segir Friðjón. /MÞÞ
Einar Örn Guðsteinsson á Teigabóli
skoðar uppskeruna, fínasta korn
sem kom af akri við Helgafell.
Friðjón ytur sekkinn fullan af ágætis korni.
Steinþór verktaki frá Hvannabrekku sá um að þreskja kornakurinn við Helgafell.
Myndir / MÞÞ