Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Bændur byggja haugtanka
að erlendri fyrirmynd
„Það sem er nýtt við þetta
verkefni er að nú steyptu menn
tankinn úr forsteyptum einingum
í steypustöð Ístaks að erlendri
fyrirmynd og fluttu austur. Þar
var tanknum stillt upp á steypta
plötu, steypt í samskeyti og vír
strengdur utan um til að varna
því að tankurinn spryngi undan
þeim mikla þrýstingi sem verður
þegar tankurinn fyllist af mykju.
Einnig er nýjung mér vitanlega
að yfir tankinum er dúkur til að
varna því að uppgufun verði mikil
og að rigni í tankinn. Tankurinn í
Ásgerði er 1.000 rúmmetra stór en
þar sem þessir tankar eru smíðaðir
úr forsteyptum einingum er mjög
auðvelt að steypa sambærilega
tanka stærri eða minni eftir vild
sem lækkar kostnað umtalsvert,“
segir Finnbogi Magnússon,
framkvæmdastjóri Jötun Véla á
Selfossi, spurður um nýtt verkefni
um haugtanka eða safnþrór hjá
íslenskum bændum.
Fyrsti tankurinn var settur
upp við minkabúið í Ásgerði í
Hrunamannahreppi hjá feðgunum
Sigurði Jónssyni og Þorbirni
Sigurðssyni.
„Við erum mjög hrifnir af
þessari útfærslu og tankurinn
hefur reynst einstaklega vel, þetta
er eitthvað sem við getum mælt
100% með. Við höfum einu sinni
tæmt úr honum og var það mjög
auðvelt og einfalt,“ segir Sigurður.
Haughús víða alltof lítil
„Sambærilegir geymslutankar hafa
verið steyptir oft áður hérlendis
sem geymslur bæði fyrir haug og
fiskúrgang en ekki með þessari nýju
útfærslu. Þar sem fljótlega mun
falla út undanþága frá reglugerð
um lágmarks geymslurými
búfjáráburðar, spá bændur talsvert
í hvaða lausnir séu í boði þar
sem haughús eru víða orðin allt
of lítil miðað við þær kröfur sem
reglugerðin gerir en hún krefst
sex mánaða geymslupláss. Hér
er klárlega komin mjög vænleg
lausn sem ekki er of dýr og er auk
þess steypt í vottaðri steypustöð
sem tryggir gæði eininganna. Vel
byggðir haugtankar eiga hiklaust
að geta enst í 50 ár, meðan flestar
aðrar lausnir eiga mun skemmri
líftíma,“ bætir Finnbogi við. Hann
segir að nú þegar sé búið að setja
upp þrjá tanka á Suðurlandi og tveir
eru í pöntun. Hlutverk Jötun Véla er
að selja mykjuhrærara og tengdan
búnað í haugtankana. /MHH
Forsvarsmenn verkefnisins eftir kynningarfund í Ásgerði 15. ágúst, frá vinstri: Jónas Frímannsson verkfræðing
ur, Finnbogi Magnússon frá Jötun Vélum, Þorbjörn Sigurðsson, minkabóndi, Hafsteinn Stefánsson, húsasmiður,
Þröstur Ingvarsson húsasmiður, Sigurður Jónsson minkabódi, og verkstjórarnir Björn Friðþjófsson og Pétur
Carlsson hjá Ístaki.
Jónas Frímannsson verkfræðingur fer fyrir hópnum sem kynnir og vinnur
nýju haugtankana á jörðum bænda. Verðið á hvern haugtank er um 10 millj
ónir en það er þó breytilegt eftir stærð tanksins.
Feðgarnir í Ásgerði sem voru þeir fyrstu til að láta byggja nýju útfærsluna
af haugtanki við minkabúið sitt.
Nýi haugtankurinn í Ásgerði í Hrunamannahreppi, en í þessum nýtísku
geymslum eða safnþróm bændanna eru steinsteyptar einingar notaðar sem
tunnustafir en vírar hertir með vökvatjökkum koma í stað gjarðanna. Slíkar
safnþrær eru hagkvæmar af sömu ástæðum og gömlu tunnurnar, keröldin
og sáirnir. Smíðin er efnislítil og einföld.
Gullgæsin til sölu - Minnsti stórmarkaður á Íslandi!
Af sérstökum ástæðum er til sölu vel rekinn og skuldlaus verslunarrekstur
á Reykhólum í Barðastrandasýslu. Verslunin er bland af matvöru, gjafavöru
og söluskála með kaffihorni. Einnig er verslunin með umboð fyrir N1 og er
eldsneytiskortasjálfsali fyrir utan.
Reksturinn er í 70 fm. leiguhúsnæði í eigu sveitarfélagsins. Ársvelta sl. 3 ár er
yfir 70 milljónir á ári og alltaf hagnaður. Eina verslunin á stóru svæði, hentar
mjög vel fyrir samhenta fjölskyldu eða tvær. Mikil umferð ferðamanna er
um svæðið, fuglaskoðun, ættarmót, sumarbústaðir, gæsaveiðar, rjúpnaveiðar,
norðurljós og svo þessi klassíski.
Fráfarandi eigendur til fjögurra ára gætu aðstoðað nýja í upphafi. Frábært
tækifæri til að skapa sér góðar tekjur. Allt fylgir með, laus þegar hentar, verð
kr. 13 milljónir.
Nánari uppl. gefur Eyvindur í símum 434-7890 og 863-2341 eða á
eyvimagn@simnet.is.
www.Topplausnir.is - Smiðjuvegi 40 - gul gata - 200 Kópavogi. Sími 517-7718
Humbaur vélakerrur
Stálkerra,
heit galvanhúðuð
tveggja öxla
2500-3500 kg.,
mál 3x1.6m
Verð frá 890.000.
- m./vsk. og skráningu.
Hringbraut 92, í miðbæ Keflavíkur 867-4434 & 421-8989
www.bbguesthouse.is
2 manna
herbergi
9.000
kr
iÁ leiðinni til útlanda?
Innifalið í verði er gisting, morgunverður,
keyrsla í flug, geymsla á bíl og skil á bíl
við flugstöð við heimkomu