Bændablaðið - 11.09.2014, Side 34

Bændablaðið - 11.09.2014, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Búfjárræktarsamband Evrópu fundaði í Kaupmannahöfn: Áhersla á gæði og sjálfbærni í búfjárframleiðslu Dagana 25.-28. ágúst sl. var hinn 65. ársfundur Búfjárræktarsambands Evrópu (EAAP) haldinn í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið í Tívolí Ráðstefnumiðstöðinni andspænis Íslandsbryggju, í götu sem kennd er við Árna Magnússon handritasafnara. Allur faglegur undirbúningur var á höndum Árósaháskóla í náinni samvinnu við búfjárræktarsambandið. Gæði og sjálfbærni Það var vel við hæfi að halda hina árlegu ráðstefnu búfjárræktar- sambandsins í Danmörku undir kjörorðunum „gæði og sjálfbærni í búfjárframleiðslu“ þar sem mikil áhersla er lögð þar á þá þætti í rannsóknum, kennslu og leiðbeiningum í þágu búvöruframleiðslu. Aðsóknin var mjög góð, samtals 941 þátttakandi frá 60 löndum, flutt voru 451 erindi og kynnt 333 veggspjöld, og í lokin var boðið upp á kynnisferðir. Var almenn ánægja með dagskrána sem var mjög fjölbreytt og gaf tilefni til umfjöllunar um margvísleg efni sem eru ofarlega á baugi í landbúnaði um allan heim. Yfirlit allra erinda og veggspjalda voru þátttakendum aðgengileg á vefsíðu og einnig í bókarformi fyrir þá sem vildu. Upplýsingar um frekara aðgengi að þessu ágæta efni verða tiltækar á vefsíðu Búfjárræktarsambands Evrópu, www.eaap.org, á næstunni. Nýting beitilanda Ég minnist þess ekki á fyrri ráðstefnum búfjárræktarsambandsins að fram kæmi raunhæfari og markvissari gagnrýni á nútíma búskaparhætti sem hafa stefnt mjög í átt til ósjálfbærs verksmiðjubúskapar í þeim tilgangi að framleiða „ódýr“ matvæli. Lífræna hreyfingin í heiminum (IFOAM) hefur um áratuga skeið bent á margvíslega óheillaþróun þar sem velferð búfjár hefur verið skert mjög, aukin áhersla hefur verið lögð á kornfóðrun í stað bættrar og aukinnar nýtingar grass og grasafurða, og ýmiss konar umhverfis- og lýðheilsukostnaður hefur verið sniðgenginn. Þannig eru sjónarmiðin farin að vera líkari en áður þótt einn og einn búvísindamaður og dýralæknir eigi erfitt með að horfast í augu við þann vanda sem blasir við og kallar á stefnubreytingu í matvælaframleiðslu. Eitt er víst að aukin notkun lyfja, hormóna, eiturefna og erfðabreyttra jurta leysir engan vanda, eigi í raun og veru að gera matvælaframleiðslu í heiminum sjálfbærari og tryggja bæði fæðu- og matvælaöryggi. Margir fyrirlesarar bentu á nauðsyn þess að meiri áherslu þyrfti að leggja á nýtingu beitilanda og grasafurða af ýmsu tagi. Það gæti t.d. ekki gengið til lengdar að flytja sojamjöl frá Suður-Ameríku í vaxandi mæli til Evrópu til að ala þar kjúklinga, svín og mjólkurkýr með þeim hætti sem nú er gert. Huga þurfi að öðrum próteingjöfum og hvað jórturdýrin varðaði væri grasið í sterkri stöðu. Mjólkurframleiðsla með grasi fremur en kjarnfóðri Miklar umræður spunnust út frá erindum um stór tæknivædd kúabú sem víða hafa rutt venjulegum fjölskyldubúum úr vegi. Þá er um að ræða bú með nokkur þúsund fremur en nokkur hundruð mjólkurkýr þar sem allt er hýst árið um kring og engin beit er nýtt, sannkölluð verksmiðjubú með þeim kostum og göllum sem slíkum búrekstri fylgja. Á það var bent að stækkun kúabúa hafi leitt til stóraukinnar notkunar kjarnfóðurs á kostnað grass, svo mjög, að í flestum Evrópulöndum væri meira en helmingur kúafóðursins korn og hækkaði það hlutfall nú óðum í samræmi við stækkun búa. Fram kom sú skoðun að slíka framleiðslu mjólkur ætti ekki að styrkja með fé úr opinberum sjóðum, m.a. með hliðsjón af neikvæðum umhverfisáhrifum á heimsvísu og versnandi næringargildis mjólkurinnar þegar kornhlutfallið er aukið. Þarna voru m.a. kúabændur og ráðunautar frá Bandaríkjunum sem greindu frá vaxandi áhuga neytenda og Whole Foods Market verslanakeðjunnar og fleiri slíkra á mjólk sem framleidd væri af grasi, þ.e.a.s. beit og heyi. Þá má nefna að síðan 2012 hafa kúabændur í Hollandi sem beita kúnum a.m.k. 4 mánuði á ári, minnst 6 klukkustundir daglega, átt kost á bónusgreiðslu sem nemur 50 evrusentum (um 75 kr.) á hver 100 kg af innveginni mjólk í samlag. Er þá m.a. verið að horfa til hollustuþátta á borð við hærra hlutfalls omega-3 fitusýra mjólkur af grasi („Weidemelk“). Lífræna framleiðslan blómstrar Fyrir um 20 árum þegar ég var farinn að kynna mér og sinna leiðbeiningum um lífræna búskaparhætti var mikil gjá á milli lífrænu hreyfingarinnar og búfjárræktarsambandsins hvað varðaði þau efni. Nú er öldin önnur og var lífræn búfjárframleiðsla áberandi í ýmsum erindum á ráðstefnunni, svo sem tæknileg atriði sem lúta að velferð búfjárins og framleiðsluháttum, og ekki síst þau sóknarfæri sem skapast hafa á búvörumarkaði víða um lönd, vaxandi fjölda bænda og neytenda til hagsbóta. Þar sem mikil notkun beitar og grasfóðrun kemur mjög við sögu eru jákvæð umhverfisáhrif metin að verðleikum, þar með minni notkun jarðefnaeldsneytis (olíu) og minni útblástur gróðurhúsalofttegunda. Þá kemur m.a. hærra hlutfall omega- 3 fitusýra í afurðum við sögu eins og áður var vikið að. Skýr dæmi um verðmun komu m.a. frá Bandaríkjunum. Í Wisconsin er verð á „venjulegri“ mjólk 2,22 dollarar fyrir ½ gallon (tæpir 2 l), 3,50 dollarar fyrir sama magn af lífrænt vottaðri mjólk en verðið færi á 5,95 dollara ef mjólkin væri með lífræna vottun og jafnframt með vottun um að kýrnar gangi eingöngu á sumarbeit og fái hey eða vothey sem vetrarfóður en ekkert kornfóður, sem sagt hrein „grasmjólk“. Eftir þessu að dæma gætu íslenskir, lífrænir kúabændur vel við unað ef þeir hefðu aðgang að slíkum markaði, þ.e.a.s, a.m.k. tvöfalt hærra verð en fæst fyrir „venjulega“ mjólk. Þarna er það Whole Foods Market að sinna kröfum vandlátra neytenda, fyrirtæki sem hefur keypt bæði dilkakjöt og skyr héðan um árabil. Svona nokkuð ætti að vera umhugsunarefni fyrir forráðamenn íslensks landbúnaðar og þeirra stofnana sem þjóna þessari atvinnugrein með ýmsum hætti. Horft til framtíðar Búfjárræktarsamband Evrópu horfir nú mjög til framtíðarinnar og á samvinnu við ýmsa aðila um nýsköpun í búfjárræktinni. Var þetta efni tekið sérstaklega fyrir þar sem kvaddir voru til fulltrúar bændasamtaka og nokkrum bændur með nýjungar í búrekstri var gefinn kostur á að greina frá ýmsu sem til framfara horfir. Þangað var m.a. boðið talsmönnum ráðgjafarmiðstöðva, fyrirtækja og Evrópusambandsins. Um starfsemi búfjárræktarsambandsins, svo sem um útgáfustarfsemina má fræðast á vefsíðunni www.eaap.org og einnig er velkomið að hafa samband við þann sem þetta ritar. Á aðalfundinum 27. ágúst, sem ég sat fyrir hönd Bændasamtaka Íslands, greindu þeir dr. Philippe Chemineau frá Frakklandi, forseti sambandsins, og dr. Andrea Rosati, framkvæmdastjóri á skrifstofunni í Rómarborg, frá því, að næstu ársfundir verði haldnir í Varsjá í Póllandi 2015, í Belfast á Norður-Írlandi 2016, í Tallin í Eistlandi 2017 og í Dubrovnik í Króatíu 2018, í öllum tilvikum í lok ágúst – byrjun september. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson Bændasamtökum Íslands or@bondi.is Utan úr heimi Veggspjald ráðstefnunnar. Þarna voru m.a. kúabændur og ráðunautar frá Bandaríkjunum sem greindu frá vaxandi áhuga neytenda og Whole Foods Market verslanakeðjunnar og eiri slíkra á mjólk sem framleidd væri af grasi, þ.e.a.s. beit og heyi. Sérdeild innan bresku lögreglunnar sem verið er að setja á laggirnar mun eingöngu rannsaka glæpi sem tengjast matvælaiðnaði. Svik og prettir í matvælaiðnaði komust í hámæli í Bretlandi og víðar fyrir nokkrum árum þegar kom í ljós að hrossakjöt frá Austur-Evrópu hafði verið selt sem nautakjöt víða í Evrópu. Í kjölfar rannsókna vegna hrossakjötssvindlsins kom í ljós að pottur er víða brotinn hvað varðar merkingar og innihaldslýsingar á matvælum. Er maðkur í mysunni? Matarlöggunni er meðal annars ætlað að fylgjast grannt með uppruna matvæla og tryggja að innihald þeirra sé það sem það á að vera. Stefnt er að því að koma upp n e t i tengiliða og auðvelda almenningi að koma á framfæri upplýsingum ef fólk telur að það sá maðkur í mysunni eða eitthvað annað óhreint í matvælum. Einnig er deildinni ætlað að deila upplýsingum með lögregluyfirvöldum í öðrum löndum. Ætlunin er að fylgjast með matvælaframleiðslu á öllum stigum, eldi, ræktun, notkun sýklalyfja og annarra vaxtarhvata, skordýraeiturs og örgresislyfja, slátrun, vinnslu, í verslunum og á veitingahúsum. Eitraðir drykkir Mörg alvarleg mál auk hrossakjötssvindlsins hafa komið upp í Evrópu undanfarin ár sem tengjast sviknum eða hreinlega eitruðum matvælum eða drykkjum. Ári 2012 létust til dæmis 40 manns í Tékklandi eftir að hafa drukkið vodka og romm sem hafði verið þynnt út með tréspíritus. /VH Sérdeild innan bresku lögreglunnar rannsakar matvælaglæpi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.