Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Dagana 29.–30. ágúst sl. var haldinn í Kaupmannahöfn ársfundur ERFR sem er samstarfsvettvangur Evrópuþjóða um verndun þeirra erfðaauðlinda sem felast í þeim 6000 búfjárkynjum sem til eru í álfunni. Á ERFP mikið og gott samstarf við Búfjárræktarsamband Evrópu (EAAP) og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) um þessi efni. Góð fordæmi hjá Dönum Að þessu sinni sátu ársfund ERFP samtals 48 manns en hann var haldinn í ágætu húsnæði hjá Matvæla-, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti Dana. Þótt mikið af erfðaefni hafi tapast í danskri búfjárrækt, með aukinni sérhæfingu og stækkun búa, hafa Danir sýnt góð fordæmi við verndun ýmissa kynja. Þar hefur virk þátttaka bænda í lífrænum búskap skipt miklu máli ásamt stuðningi með rannsóknum, leiðbeiningum og kennslu um áratuga skeið. Þannig er verið að nýta „gömul“ búfjárkyn á mörgum lífrænum búum. Stefnan er klár, 7% dansks lífræns landbúnaðar orðin lífræn og stefnt að tvöföldun fyrir 2020. Það segir sína sögu að 30% mjólkur í Danmörku eru með lífræna vottun. Það var ánægjulegt að bera þessar framfarir í sjálfbærri verndun búfjárkynja og matvælaframleiðslu, að kröfum markaðarins, saman við stöðuna árið 1996 þegar ég sat heimsráðstefnu lífrænu hreyfingarinnar, IFOAM, í Kaupmannahöfn. Reyndar skynjaði ég líka vel þessar ánægjulegu framfarir hjá Dönum o.fl. norrænum þjóðum á málþingi Félags norrænna búvísindamanna (NJF) um lífrænan landbúnað sem haldinn var á Jótlandi í ágúst 2013. Þótt aðstæður séu á margan hátt aðrar hér á landi getum við margt lært af Dönum um þessa þætti sjálfbærrar þróunar. Þar er greinilega litið til framtíðar með raunhæfum hætti. Genbanki Evrópu Allt frá því að til ERFP samstarfsins var stofnað upp úr 1995 hefur megináhersla verið lögð á söfnun og skráningu upplýsinga um allar erfðaauðlindir búfjár í Evrópu. Við höfum tekið virkan þátt í þessu starfi frá upphafi og erum með aðild að gagnavörslu- og upplýsingakerfunum EFABIS fyrir öll búfjárkyn og CryoWEB fyrir sæði, DNA sýni o.fl. í viðeigandi geymslum. Einnig hefur Ísland verið aðili að Norræna genbankanum (Nordgen) um áratuga skeið. Nú á að reyna að ná til allra Evrópulanda, hvort sem þau eru innan eða utan Evrópusambandsins (ESB). Töluvert vantar á það, enn er sambandið við mörg lönd Austur-Evrópu veikt þótt mikið sé reynt að treysta það. Genbanki Evrópu (EUGENA) er hugsaður sem sameiginlegur vettvangur skráningar allra erfðaauðlinda búfjár en þær verði allar varðveittar áfram í hverju aðildarlandi fyrir sig. Fullvíst þykir að FAO, EAAP og ESB muni styðja slíkt framtak með ýmsum hætti enda framfaraspor í þá þágu sjálfbærrar matvælaframleiðslu og fæðuöryggis. Ný skýrsla um stuðningsgreiðslur Flest Evrópulönd styðja verndun erfðaefnis búfjár með ýmsum hætti, gjarnan með sérstökum gripagreiðslum, líkt og tíðkast hafa í geitfjárrækt hér á landi um nær 50 ára skeið með ágætum árangri. Brýnt var orðið að taka saman greinargott yfirlit um þennan stuðning sem er mjög breytilegur og efndi ERFP til verkefnisins SUBSIBREED árið 2009 undir forystu dr. Drago Kampan frá Slóvaníu. Sem tengiliður Íslands við ERFP tók ég þátt í verkefnishópum frá upphafi, ekki síst í ljósi þess að um þær mundir var ég orðinn þátttakandi í vinnu við aðlögunarferli það sem Ríkisstjórn Íslands hóf með umsókn sinni að ESB sumarið 2009. Landnámskynin okkar geta vissulega öll fallið undir slíkt stuðningskerfi ef rétt er að málum staðið. Skemmst er frá að segja að með tölvupóstsamskiptum og fundum á nokkrum stöðum, síðast í Bled í Slóveníu í vetur, var samin mjög ýtarleg skýrsla, 246 bls. að lengd, þar sem 35 Evrópulönd koma við sögu. Í skýrslunni fæst ágætur samanburður á stuðningsgreiðslum, t.d. vegna verndunar geitfjárkynja, en stuðningur við þá búfjártegund er ofarlega á baugi hér á landi um þessar mundir. Skýrslan verður tiltæk á vef ERFP, www.rfe-europe.org á næstunni og einnig get ég útvegað hana í tölvutæku formi. Spánverjar sérmerkja afurðir innlendra verndunarkynja Margt annað var rætt á ársfundi ERFP en hér kemur fram. Athygli vakti það framtak Spánverja að koma upp sérstökum neytendamerkingum fyrir afurðir hreinræktaðra, innlendra búfjárkynja sem njóta sérstakrar verndunar. Mér var hugsað til geita, forystufjár og landnámshænsna hér á landi, jafnvel allra landnámskynjanna, sem best eru varðveitt með nýtingu. Þess má geta að frá og með 2015 flyst skrifstofuhald ERFP frá Bonn í Þýskalandi til Háskólans í Ljubljana í Slóveníu. Formaður stjórnar ERFP er Catherine Marguerat-König frá Sviss. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson Bændasamtökum Íslands ord@bondi.is ERFR er samstarfsvettvangur Evrópuþjóða um verndun þeirra erfðaauðlinda sem felast í þeim 6.000 búfjárkynjum sem til eru í álfunni. Evrópusamstarf um verndun erfðaefnis búfjár: Fjöldi kynja í útrýmingarhættu Spánverjar koma sér upp sérstökum neytendamerkingum fyrir afurðir hrein ræktaðra, innlendra búfjárkynja sem njóta sérstakrar verndunar. Þessi merki þýða að afurðir af viðkomandi hreinræktuðum innlendum búfjárkynjum er af 100% hreinleika og engu í þær blandað af öðrum kynjum. Á ungnautaspjöldum fyrir naut á númerabilinu 13001–13031 slæddist inn sú meinlega villa að Gimsteinn 13028 sé undan Birtingi 05043. Hið rétta er að hann er undan Vindli 05028 og leiðréttist það hér með um leið og beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Ætterni hans er rétt á nautaskra.net Villa á ungnautaspjöldum 13001–13031 “Bumbubanar” Ertu að rækta olíurepju? ...þá eigum við réttu pressuna handa þér! Þýskar hágæða repjupressur með mikil afköst. Pressa allt að 30 kg á klst. Einfasa rafmótor 1,5 KW 230V Afar vandað tannhjóladrif (engar reimar) Einfaldur hraðabreytir Einfaldar og fyrirferðarlitlar, aðeins 55 kg. Auðveldar í þrifum. Góð reynsla hér á landi Sölumenn okkar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu varðandi kaldpressun á repju og veita fúslega ráðleggingar. Hafið endilega samband - hringið eða sendið tölvupóst á einaro@thor.is ÞÓR HF | REKJAVÍK: Krókhálsi 16 | AKUREYRI: Lónsbakka | sími 568-1500 | www.thor.is Frestur til að skila inn umsóknum um jarðræktarstyrki framlengdur Bændasamtök Íslands auglýsa eftir umsækjendum um jarðræktarstyrki vegna framkvæmda á árinu 2014. Opið er fyrir rafrænar umsóknir í Bændatorginu. Upplýsingar um skráðar spildur og stafræn túnkort eru sóttar sjálfvirkt í JÖRÐ (www.jörð.is) og því er mikilvægt að undirbúa umsóknir með verið framlengdur til mánudagsins 22. september 2014. Bændasamtaka Íslands og þurfa þær að berast eigi síðar en við lok vinnudags 22. september. Framlög til jarðræktar fara eftir verklagsreglum 708/2013 staðfestum af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og fjalla um ráðstöfun fjármagns úr jarðræktarsjóði, skv. 5.gr. samnings um verkefni samkvæmt búnaðarlögum, nr. 70/1998 og framlög til þeirra á árunum 2013 til 2017, dags. 28. september 2012 sbr. grein 6.4 í samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu, dags. 10. maí 2004, með síðari breytingum, og grein 4.5 í samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar, dags. 25. janúar 2007, með síðari breytingum. Skilyrði þess að verkefni njóti framlags er að um sbr. verklagsreglur 707/2013 um framkvæmd úttekta. Úttektum skal að jafnaði vera lokið fyrir 15. nóvember ár nálgast frekari upplýsingar um verklagsreglur um framlög og úttektir. Nánari upplýsingar veita Jón Baldur Lorange (jbl@bondi.is) eða Guðrún S Sigurjónsdóttir (gss@bondi.is). Bændasamtök Íslands, 107 Reykjavík

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.