Bændablaðið - 11.09.2014, Page 36

Bændablaðið - 11.09.2014, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Utan úr heimi Pestin breiðist aðallega út með villisvínum og hráu kjöti sem er utt milli landa. Júgurbólga er mesti skaðvaldurinn í mjólkurframleiðslunni –fyrri hluti Í nýliðnum mánuði var haldin júgurbólguráðstefna í Gent í Belgíu en ráðstefna þessi var haldin á vegum alþjóðlega júgurbólguráðsins, NMC (National Mastitis Concil). Alþjóðlega júgurbólguráðið er frjáls og óháð samtök sem hafa það að markmiði að sameina dýralækna, ráðgjafa og vísindamenn á sviði júgurbólgu í heiminum. Í dag eru meðlimir samtakanna um 1.500 í meira en 40 löndum. Aðalstarf samtakanna er að standa að tveimur árlegum ráðstefnum og var önnur þeirra að þessu sinni haldin í Gent í Belgíu, en það er í fyrsta skipti sem fagráðstefna samtakanna er haldin utan Norður-Ameríku. Þátttaka sérfræðinga í júgurheilbrigði var einstök en rúmlega 600 manns mættu á ráðstefnuna. Þessi grein er fyrri hluti umfjöllunar Snorra Sigurðssonar um þessa ráðstefnu. Fjölbreytt dagskrá Dagskrá fundarins var einkar áhugaverð en á ráðstefnunni voru flutt 14 erindi. Fjallað var um ábyrga og rétta lyfjanotkun og um þróun nýrra lyfja og bóluefna sem eru sérvirkari en þau sem notuð eru í dag. Þá var sérstaklega fjallað um nýjungar á sviði júgurbólgu- og geldstöðumeðhöndlunar, áhrifa kynbóta á mótstöðu kúa gegn júgurbólgu auk fleiri áhugaverðra dagskrárliða. Auk þessa voru rúmlega 80 veggspjöld til sýnis á ráðstefnunni, en þau spönnuðu afar vítt svið og allt frá rannsóknum á undirburði og upp í genatækni við greiningar á gerlum svo dæmi sé tekið. Óhætt er að fullyrða að um gnægtaborð fróðleiks á sviði júgurheilbrigðis hafi verið að ræða á þessari ráðstefnu. Ávallt er það svo að ákveðið efni vekur meiri athygli en annað eins og gengur og verður hér gerð tilraun til þess að greina frá því helsta sem fram kom á ráðstefnunni. Rétt lyfjanotkun Það var afar áhugavert að hlýða á framsögur um lyfjanotkun en þrjú erindi fjölluðu um lyf og notkun þeirra. Tony Simon, starfsmaður lyfjaeftirlitsins í Belgíu, fór yfir það flókna, en um leið mikilvæga, ferli sem dýralyf fara í gegnum áður en þau eru samþykkt til almennra nota og ræddi m.a. um ábyrgð lyfjaframleiðenda á ábyrgri notkun lyfja úti á búunum. Eins og gefur að skilja er þróunarferill lyfja langur og erfiður en útlit er fyrir að það séu á leiðinni afar áhugaverð lyf gegn júgurbólgu. Nauðsynlegt er að fá ný lyf enda eru tilfelli um lyfjaónæmar bakteríur of algeng en röng lyfjanotkun, þ.e. of litlir skammtar, röng lyf og/eða lyfjagjöf er ekki lokið að fullu í lok meðhöndlunartíma, er talin valda því að til verða stofnar af bakteríum sem þola lyfin. Slík staða er auðvitað afar slæm, bæði vegna skorts á meðhöndlunarúrræðum fyrir gripina en einnig vegna hættu á að bakteríurnar geti einnig smitað fólk sem þá er heldur ekki hægt að meðhöndla eins og dæmi eru þegar til um. Margir hafa í því sambandi horft til þess hverjir sprauta gripina enda er mikill munur á milli landa með vinnubrögð við meðhöndlun lyfja. Í sumum löndum geta kúabændur sprautað sjálfir, öðrum hefja dýralæknar meðferð en kúabændur fylgja henni svo eftir með lyfjagjöf og svo eru einnig til kerfi þar sem einungis dýralæknar sjá um lyfjagjöf. Þetta er þó afar misjafnt á milli landa og virðist ekki vera skýrt samhengi á milli þess hver meðhöndlar gripina og tíðni lyfjaónæmis. Tony Simon gaf þau góðu ráð til þeirra sem eru að meðhöndla gripi með lyfjum, óháð því hverjir það eru, að „nota eins lítið af lyfjum og hægt er, en eins mikið og nauðsynlegt er“. Hollendingar hafa helmingað lyfjanotkun Tine van Werven, sem starfar í dýralyfjadeild landbúnaðarháskólans í Utrecht í Hollandi, flutti afar áhugavert erindi um stöðu Hollands í sambandi við lyfjaónæmar bakteríur og þær aðgerðir sem farið hefur verið út í þar í landi til þess að draga úr líkum á slíkum bakteríum. Árið 2010 var ákveðið að vinna markvisst að því að draga úr lyfjanotkun og breyta um vinnulag við lyfjagjafir svo unnt væri að draga úr notkuninni um 50% árið 2013 frá því sem var árið 2009 og er þar miðað við lyfjanotkun pr. kíló lífþunga búfjár. Í Hollandi vógu alífugla- og svínabændur vissulega þungt í þessu átaki hollenskra stjórnvalda en vissulega þurfti einnig að horfa til nautgriparæktarinnar. Farið var í margs konar aðgerðir í þessu sambandi en það sem mestu máli skipti fyrir nautgriparæktina var að breyta um vinnubrögð við meðhöndlun gegn júgurbólgu. Gerðar voru leiðbeiningar fyrir dýralækna landsins um „góð vinnubrögð við dýralækningar“. Þar var m.a. leiðbeint um betri greiningaraðferðir á júgurbólgu og meðhöndlun hennar í geldstöðutímabilinu í stað þess að reyna að meðhöndla á miðju mjaltaskeiði, enda eru margfalt minni líkur á því að kýr nái sér eftir slíka meðhöndlun en sé meðhöndlunin gerð í geldstöðu með langvirkum lyfjum. Niðurstaðan með lyfjanotkun í öllum hinum hollenska landbúnaði, var að notkunin árið 2013 var 57% minni en árið 2009! Hreint út sagt frábær árangur Hollendinga sem sýnir að með góðu upplýsingaflæði og áróðri má ná stórkostlegum árangri á þessu sviði. Júgurbólgulyf minna en 1% lyfja Næsta erindi í þessum hluta ráðstefnunnar fluttu þau Jordi Torren- Edo, Kari Grave og David Mackay, þrír starfsmenn frá Lyfjastofnun Evrópusambandsins. Í erindinu var gefið greinargott yfirlit yfir notkun lyfja í landbúnaði og um muninn á milli landanna í Evrópu er horft væri til lyfjanotkunar. Þó svo að erindið hafi reyndar verið í þurrara lagi, þá komu fram margar áhugaverðar tölulegar staðreyndir eins og t.d. hve lyfjanotkunin er mismikil á milli landa en framsetningin á lyfjanotkun er svolítið sérstök þar sem hún er sett fram á grunni lífdýraþunga alls búfjár í viðkomandi landi. Þannig koma þau lönd út sem hafa t.d. mikið af alífuglum og svínum, með mikla lyfjanotkun en lönd sem hafa hátt hlutfall beitardýra eins og hrossa og Frá júgurbólguráðstefnunni í Gent í Belgíu. Mynd / SS Afrísk svínapest er að brjóta sér leið úr austri til æ fleiri Evrópulanda samkvæmt því sem segir á vef Matvælastofnunar. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm í svínum, sem í flestum tilvikum veldur dauða. Sjúkdómurinn berst ekki í önnur dýr né fólk. Veiran sem veldur sjúkdómnum getur m.a. borist með sýktum svínum og sæði, hráu kjöti af sýktum dýrum, sem og farartækjum, búnaði, fatnaði o.fl. sem mengast hafa af veirunni. Smitdreifing til nýrra landa er oftast rakin til matvæla og lifandi svína. Landlæg pest í Rússlandi Sjúkdómurinn hefur verið til staðar í Rússlandi frá árinu 2007 og er nú landlægur þar. Georgía, Armenía, Azerbaídsjan, Úkraína og Hvíta- Rússland hafa jafnframt öll tilkynnt um tilfelli á undanförnum árum. Á þessu ári hafa tilfelli greinst í Lettlandi, Litháen og Póllandi, sem staðfest hefur verið að eru af völdum sama stofns veirunnar og er á ferðinni í Rússlandi og Hvíta- Rússlandi. Mest er um sjúkdóminn í villisvínum og því mjög erfitt að hafa hemil á útbreiðslu hans. Umfangsmiklar sýnatökur og varnaraðgerðir eru í þeim löndum sem sjúkdómurinn hefur greinst. Berst með hráu kjöti Mjög mikilvægt er að fólk hafi þennan sjúkdóm í huga ef það er á ferðinni í þessum löndum og taki alls ekki með sér hrátt eða illa hitameðhöndlað kjöt hingað til lands eða til annarra landa sem eru laus við sjúkdóminn. Jafnframt er rétt að minna á að bannað er að fóðra dýr sem alin eru til manneldis á dýrapróteinum, að undanskildu fiskimjöli. Þetta á m.a. við um eldhúsúrgang sem kjöt getur leynst í. Dýraeigendur bera ábyrgð á að verja dýrin sín gegn sýkingum en það er á ábyrgð okkar allra að smitefni dýrasjúkdóma berist ekki til landsins. /VH Afrísk svínapest breiðist út um Evrópu Ótti vex í Evrópu við að fasteignabólan springi Ótti við að ný fasteignabóla kunni á ný að springa í andlit Evrópumanna fer nú vaxandi. Í grein á vefsíðu euobserver fyrir skömmu er t.d. efast um að jafnvægi sé að nást. Frá Danmörku berast nú fréttir um að fasteignaverð vaxi þar af ógnarhraða. Samkvæmt því sem Danske bank hefur látið fara frá sér hafa fasteignakaupendur í Kaupmannahöfn aldrei fengið eins lítið fyrir peninginn og núna. Sama þróunin sé að eiga sér stað í Noregi og Svíþjóð. Er talað um lága húsnæðislánavexti sem eina helstu orsökina. Þá er einnig talað um að óttinn við að allt fari úr böndunum í Úkraínu sé nú að leiða til þess að þeir sem eigi peninga reyni að tryggja þá með fasteignakaupum. Byrjað var að vara við þessari þróun í Evrópu árið 2012 í skýrslu sem nefnd var „Alert Mechanism Report“. Þar var bent á að Belgía, Búlgaría, Kýpur, Danmörk, Finnland, Frakkland, Ítalía Ungverjaland, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð og Bretland þyrftu að taka betur á skuldamálum heimilanna. Noregur var þá sagður í svipuðum vanda en þar var þá að sögn brugðist við með vaxtalækkunum eins einkennilega og það hljómar. Fasteignaverð í Þýskalandi sagt vera of hátt Bundensbank í Þýskalandi varaði á síðasta ári við því að of hátt verðmat væri orðið á íbúðarhúsnæði í þýskum borgum. Taldi bankinn þá að verð á íbúðarhúsnæði væri ofmetið um 20% í kjölfar 25% verðhækkana í þrjú ár þar á undan. Á sama tíma hafi verðlag að meðaltali á húsnæði í Þýskalandi öllu hækkað um 8%. Frá því þessi varnaðarorð komu frá bankanum virðist ástandið hafa versnað. Fasteignavísitala Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (IMF) hefur hækkað í sjö ársfjórðunga í röð. Hefur fasteignaverð aukist hratt í 33 af 51 landi sem vísitalan er byggð á. IMF hefur bent á að í 50 stærstu bankakreppum í heiminum á einum mannsaldri hafi tveir þriðju þeirra stafað af því að fasteignabólur hafi sprungið. Ofurtrú á steypu og múrsteina Í leiðbeiningarskýrslu „Global Property Guide“, sem gefin var út í júní sl. kemur fram að átta af tíu veikustu fasteignamörkuðunum sé í Evrópu. Hins vegar væru teiknin skýr um hækkandi verðlag um alla Evrópu og fasteignamarkaðurinn í 19 ESB-löndum væri á hraðri uppleið. Bent er á að í einstökum löndum séu hækkanirnar mestar í Eistlandi, eða 20%, sem er fjórfalt meira en vöxturinn hefur verið í nágrannalöndunum Litháhen og Lettlandi. Þá segir í skýrslunni að trúin á steinsteypu og múrsteina hafi einnig aukist á Írlandi sem hafi þurft að fá 78 milljarða punda aðstoð 2010 til að bjarga sér út úr fyrri húsnæðisbólu sem sprakk. Þannig hafi verið 7,5% hækkun á fasteignaverði á Írlandi 2013. Mikið flug á breskum fasteignamarkaði Miklar fasteignaverðshækkanir hafa átt sér stað í Bretlandi á síðustu misserum, einkum í London og þar í kring. Hefur Evrópuráðið varað bresku ríkisstjórnina og nokkrar fleiri við og hvatt þær til að grípa til aðgerða til að kæla niður fasteignamarkaðinn.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.