Bændablaðið - 11.09.2014, Page 37

Bændablaðið - 11.09.2014, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 NÖK-ráðstefna í Steinkjer í Noregi: Fjallað um helstu mál nautgriparæktarinnar Í lok júlí (27. júlí til 30. júlí) var haldin ráðstefna á vegum Nök- samtakanna í Steinkjer í Noregi sem liggur um miðjan Noreg liðlega 160 km austur af Þrándheimi. Frá Íslandi sóttu 12 manns ráðstefnuna, þar af 6 makar. NÖK (Nordisk ökonomisk kvægavl) er félagsskapur áhugamanna um nautgriparækt á Norðurlöndunum. Samtökin voru stofnuð 1948 og hefur hvert aðildarland rétt á 40 félögum sem tengjast mjólkurframleiðslu og nautgriparækt. Annað hvert ár er haldin ráðstefna í einhverju aðildarlandanna og fjallað um það helsta sem er að gerast í nautgriparækt á Norðurlöndunum. Síðasta ráðstefna var haldin í Danmörku en næsta ráðstefna verður í Jakopssted í Finnlandi sem er 120 km suður af Vasa. Minnstu búin í Noregi Fjölmörg áhugaverð erindi voru flutt þá daga sem ráðstefnan stóð. Safnað var upplýsingum um mjólkur- og kjötframleiðslu á Norðurlöndunum. Danir framleiða nærri helmingi meira af mjólk en Svíar, fóru í fyrsta sinn yfir 5 þúsund milljónir lítra árið 2013 en Svíar framleiddu 2.860 milljónir lítra sama ár, Finnar 2.202 milljónir lítra, Norðmenn 1.542 milljónir lítra og Íslendingar 123 milljónir lítra. Danir eru með mestar afurðir eða 9.603 lítra af orkuleiðréttri mjólk, hæst prótein 3,47 % og mesta fitu 4,26 %. Í efnainnihaldi munar um Jersey-kynið sem telur 13,2 % kúa í Danmörku og er með afar efnaríka mjólk. Bústærð Dana er í algerum sérflokki eða 162 árskýr. Minnst eru búin í Noregi eða 24,2 árskýr, Finnland er með 35,1 árskýr, Ísland með 38,5 árskýr og Svíar með 78,2 árskýr. Þannig er meðal framleiðsla á bú 2013 1.365 þúsund lítrar í Danmörku, í Svíþjóð 603 þúsund lítrar, Finnlandi 237 þúsund lítrar, Íslandi 189 þúsund lítrar og í Noregi 163 þúsund lítrar. Mikilvægi mjólkurframleiðslu Hollenskur gestafyrirlesari, Toon van Hooijdonk frá háskólanum í Wageningen var með afar áhugavert erindi um mikilvægi mjólkurframleiðslu í víðu samhengi en þörfin fyrir mjólkurvörur í framtíðinni mun aukast. Hann sýndi fram á samhengi á neyslu á mjólkurfitu og lágrar tíðni á hjarta- og æðasjúkdómum, hagkvæma nýtingu á orku við fæðuframleiðslu, grasi breytt í holla fæðu og að lokum sýndi hann fram á mikilvægi mjólkurframleiðslu í fæðuöryggi. Kúabóndinn Morten Hansen sem jafnframt er kynbótafræðingur að mennt fór yfir það hvernig hann beitir „ genomisk selektion“ (úrval út frá erfðamörkum) við kynbætur á eigin búi. Allar ásetningskvígur eru DNA-greindar og bestu gripirnir út frá erfðamörkunum fundnir og teknir í fósturvísaflutninga. Lakari gripirnir gegna svo hlutverki fósturmæðra eða er fargað. Athyglisvert erindi um dýravelferð Þróunarstjóri Felleskjöbet, Gorm Sanson, flutti athyglisvert erindi um dýravelferð (Sannheter og myter om dyrevelferd hos storfe) og harða umræðu fjölmiðla um þau mál sem hingað til hefur fyrst og fremst beinst að loðdýrarækt, dýrum sem eru í búrum og meðferð gæludýra. En eigendur stórgripa þurfa að halda vöku sinni gagnvart velferð og vellíðan dýranna og að umræðan fari ekki inn á neikvæðar brautir. Mörg önnur áhugaverð erindi voru flutt á ráðstefnunni m.a. um skýrsluhald, erfðatækni, hjálpartæki við bústjórn, framtíð mjólkurframleiðslunnar og margt fleira. Að lokum voru flutt áhugaverð erindi frá hverju landi sem báru yfirskriftina „Kua 2024, min dröm“. Það fór vel á því að formaður Íslandsdeildar NÖK, Jóhannes Torfason, flutti það erindi fyrir hönd Íslands. Erindin sem flutt voru á ráðstefnunni verða aðgengileg á vefnum Noek.org innan skamms. Góðar móttökur Norðmenn tóku vel á móti ráðstefnugestum og að venju var ákveðin dagskrá fyrir maka og börn. Þá var boðið á Stiklastaðabardagann í útileikhúsi sem tekur allt að 5 þúsund manns. Leiksýningin var um miðnæturbil og fjallar um kristnitöku Norðmanna og baráttu Ólafs Helga Haraldssonar sem féll í bardaganum en var gerður að helgum manni eftir það. Á NÖK-leikunum sem er keppni milli landa í ýmsum þrautum stóð íslenska liðið sig vel að venju. Hæfileikar hjónanna frá Botni í Súgandafirði, þeirra Helgu og Björns, í stultagöngu sem og frammistaða Egils á Berustöðum í refkrók verður í minnum haft. Í lok ráðstefnunnar voru tveir menn sæmdir Wriedt-skildinum, æðsta heiðursmerki NÖK. Það voru Harold Volden, sem er yfirmaður leiðbeiningaþjónustu Tine og er Íslendingum að góðu kunnur fyrir vinnu sína við þróun Norfor- fóðuráætlanakerfisins, og Asbjorn Helland, bóndi og m.a. fyrrverandi formaður Geno. Stjórn Íslandsdeildar NÖK er skipuð Jóhannesi Torfasyni sem er formaður, gjaldkeri er Sveinn Sigurmundsson og ritari Guðmundur Jóhannesson. Þeir sem áhuga hefðu á því að ganga í samtökin er bent á að hafa samband við einhvern stjórnarmanna. Sveinn Sigurmundsson Búnaðarsambandi Suðurlands Þessi mynd var tekin í Þrándheimi af þátttakendunum. Talið frá vinstri; Jóhannes Torfason, Helga Kristjánsdóttir, Björn Birkisson, Elín Sigurðardóttir, Sveinn Sigurmundsson, Karitas Hreinsdóttir, Sveinn Jónsson, Ása Marinós- dóttir, Pétur Diðriksson, Erla Traustadóttir, Egill Sigurðsson og Guðrún Ásta Gunnarsdóttir. Jóhannes á Torfalæk utti erindi um framtíðarkúna. sauðfjár með afar litla lyfjanotkun. Lyfjanotkun á landsgrunni segi því meira um uppbyggingu landbúnaðarkerfis viðkomandi lands en margt annað en mæli einnig mun á milli dýralæknahefða varðandi skammtastærðir og lengd meðhöndlunartímabila. Þá kom fram afar áhugaverð staðreynd í erindi þremenninganna um lyfjanotkun í mjólkurframleiðslunni en tilfellið er að júgurbólgulyf, þ.e. túpur, eru ekki nema um 1% allra seldra lyfja í Evrópu og vega því alls ekki þungt þegar horft er til lyfjanotkunar. Ábyrg lyfjanotkun gegn júgurbólgu Eitt af áhugaverðari erindum ráðstefnunnar flutti Pamela L. Ruegg, prófessor við háskólann í Wisconsin í Bandaríkjunum, sem er e.t.v. einhverjum kunn hér á landi enda hefur hún gefið út bækur um júgurbólgu, skrifað ótal greinar og svo heldur hún auk þess reglulega fyrirlestra um júgurheilsu og má meðal annars finna marga fyrirlestra hennar á YouTube. Í erindi sínu gerði hún grein fyrir margs konar rannsóknaniðurstöðum á áhrifum lyfjameðhöndlunar á mismunandi gerðir júgurbólgu. Helstu niðurstöðurnar voru, og komu svo sem ekki á óvart, að allt of oft mistekst að meðhöndla grip gegn sjúkdóminum sé hann meðhöndlaður á sjálfu mjaltaskeiðinu. Skýringin sem Pamela gaf var m.a. sú að stundum eru kýrnar meðhöndlaðar allt of seint og tilgangur þess að sprauta þær oft minni en enginn. Taldi hún ekki ástæðu til þess að meðhöndla kýr með júgurbólgu, nema þær væru hreinlega veikar og þá mætti að sjálfsögðu aldrei hika við að meðhöndla þær. Í lok erindis síns kynnti hún það sem hún kallaði ábyrga lyfjanotkun gegn júgurbólgu, sem byggist á 6 aðskildum skrefum. Þessi sex skref hennar eru frekar víðtæk enda er þeim ætlað að ná yfir alla meðhöndlunaraðila lyfja, bæði bændur og dýralækna: 1. Þeir sem sjá um mjaltir á að þjálfa í því að geta greint júgurbólgu á frumstigum hennar sem og í því að taka ræktunarhæf spenasýni. Slík sýni á að setja strax í ræktun, annaðhvort á búinu sjálfu (stærri fjós) eða hjá næsta dýralækni eða rannsóknastofu, til þess að geta eins fljótt og unnt er áttað sig á því hvort og þá hvaða meðferð er heppileg. Á meðan greining fer fram á að setja viðkomandi kýr í einangrun (sjúkrastíu) svo hún geti ekki smitað aðrar kýr og að sjálfsögðu mjólka frá. Er niðurstöður liggja fyrir er svo tekin ákvörðun um framhaldið. Innskot: Víða erlendis, m.a. í Bandaríkjunum og Danmörku, sjá margir bændur sjálfir um að rækta sýni og greina. 2. Meðferðarúrræði eru mismunandi í sömu tilvikum sýkinga, allt eftir því um hvaða grip er að ræða og á alltaf að horfa til sjúkdómasögu kýrinnar, stöðu á mjaltaskeiði og fleiri þátta til þess að meta líkur á árangri meðferðar. Til dæmis eru kýr á þriðja mjaltaskeiði eða eldri og hafa áður verið meðhöndlaðar, eða hafa oft verið í hærri kantinum með frumutölu, ekki líklegar til þess að ná sér að fullu. Oft er jafn gott eða betra að hafa þær í einangrun og hreyta þær oft á dag á meðan tilvikið gengur yfir. 3. Endurtekin meðhöndlun gegn sama júgurbólgutilviki ætti einungis að framkvæma bendi ástand kýrinnar og saga hennar til þess að líkur á góðri niðurstöðu séu miklar. 4. Óháð sögu kýrinnar ætti aldrei að meðhöndla með lyfjum í þeim tilvikum sem ræktunarsýni bendi til þess að árangur sé vonlítill. Í slíkum tilvikum ber að hafa kúna í einangrun, hreyta oft á dag og sjá hvort hún nái sér. 5. Sé um vægt tilfelli E.coli júgurbólgu að ræða ætti að íhuga lyfjameðferð ef skoðun á upplýsingum um kúna bendir til þess að hún hafi króníska sýkingu. Séu sjúkdómaupplýsingar um kúna knappar eða ekki til staðar má t.d. nota frumutölu kýrsýna hennar en hafi þær verið háar (innskot: yfir 200.000/ml) í meira en 2 mánuði. Einnig ætti að íhuga lyfjameðferð ef grunur leikur á því að kýrin hafi verið undir miklu álagi og að líkur séu því á því að mótefnaviðbrögð hennar séu ekki sterk s.s. vegna þess að kýrin sé á fyrstu vikum mjaltaskeiðsins, ójafnvægis í fóðrun hennar eða hún sé í afar mikilli framleiðslu og því viðkvæmari en ella. 6. Á r a n g u r h v e r r a r lyfjameðhöndlunar á alltaf að meta og yfirfara og að lágmarki innan endurkomutíma júgurbólgu (innan 60–90 daga) sem og að horfa til lækkunar á frumutölu kýrinnar 60 dögum eftir meðhöndlun. Innskot: Í Danmörku er miðað við að frumutala kýrsýnis þurfi að vera undir 200 þúsundum/ml svo kýrin geti talist hafa náð sér. Snorri Sigurðsson sns@vfl.dk Nautgriparæktarsviði Þekkingarsetri landbúnaðarins í Danmörku

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.