Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Síðastliðinn miðvikudag og fimmtudag hittust jarðræktar- og fóðurráðunautar til skrafs og ráðagerða og undirbjuggu ráðgjafarstarfið næstu misserin. Margs konar verkefni, sem miða að því að aðstoða bændur við að ná betri árangri í búrekstrinum, eru í gangi eða eru að fara af stað. Undanfarna daga hafa t.d. fóðurráðunautarnir verið að taka heysýni en fyrstu niðurstaðna úr þeim er að vænta eftir u.þ.b. tvær vikur. Þá mun fóðuráætlanagerð fara í fullan gang, m.a. í formi ráðgjafarpakkanna Stabba og Stæðu. Jarðræktarráðunautarnir eru á sama tíma að undirbúa jarðvegssýnatöku sem er liður í því að útbúa markvissar áburðaráætlanir en oft á tíðum hefur vantað upp á að næg gögn liggi að baki áætlanagerðinni. Markviss áburðaráætlanagerð er meðal annars boðin undir nafninu „Sprotinn“. Jarðræktar- og fóðurráðunautar ásamt fagfólki á þessu sviði hjá LbhÍ hafa hist um svipað leyti árlega undanfarin ár. Fundirnir hafa verið haldnir á Hvanneyri, Möðruvöl lum í Hörgárdal, á Korpu í Reykjavík og að Löngumýri í Skagafirði en að þessu sinni var fundurinn haldinn á Suðurlandi eða nánar tiltekið í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Margt fróðlegt var að sjá og heyra í húsakynnum Landgræðs lunnar og þá einkum undir handleiðslu Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra. Einnig má nefna að í Gunnarsholti er stunduð mjög umfangsmikil kornrækt, mest af Björgvini Harðarsyni í Laxárdal sem fór með hópinn um akrana ásamt því að miðla hópnum af mikilli reynslu og þekkingu. Einnig var farið að Norðurgarði á Skeiðum þar sem Ásmundur Lárusson bóndi sagði frá og sýndi sitt myndarlega bú. Að venju var fundurinn bæði skemmtilegur og fróðlegur og munu ráðunautarnir nú margs fróðari og enn betur í stakk búnir til að veita bændum góða þjónustu. Mikilvægt að fylgjast með ástandi jarðvegs Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Síðustu ár hefur dregið verulega úr því að bændur taki jarðvegssýni til að kanna næringarástand jarðvegsins og aðstæður til vaxtar og fyrir vikið byggja menn áburðaráætlanir sínar oft á veikum grunni. Mikilvægt er að snúa þessari þróun við og efla á ný þennan mikilvæga þátt í bústjórninni. Mælt er með því að bændur láti taka jarðvegssýni úr túnum á u.þ.b. fimm ára fresti. Þannig má fylgjast með þróun í forða á helstu næringarefnum. Í þeim tilfellum þar sem leikur grunur á að næringarástandi jarðvegs sé ábótavant skal sérstaklega huga að þessum þætti og forgangsraða sýnatökunni með tilliti til þess. Ráðunautar RML eru þessa dagana að skipuleggja sýnatökuna sem framkvæmd er á haustin. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að taka sýni dýpra en áður til að auka á áreiðanleika niðurstaðnanna. Boðið er upp á að bændur sæki rafrænt um sýnatöku á heimasíðunni rml. is, en að sjálfsögðu er einnig tekið við slíkum þjónustubeiðnum sem og öðrum í síma (516- 5000). Upplýsingar um gjaldtöku Rml má sjá á heimasíðunni en efnagreiningarkostnaður hjá LbhÍ er 4.013 kr./án vsk fyrir hvert sýni. Ýmsar pakkalausnir Þess má geta að hjá RML er boðið upp á ýmsar „pakkalausnir“ og þar á meðal jarðræktarpakka sem ber heitið „Sprotinn“. Markmiðið með þeirri lausn er að veita bændum markvissa ráðgjöf í nýtingu áburðar ásamt því að veita ákveðna grunnþjónustu í jarðræktarskýrsluhaldi. Einn liðurinn þar er jarðvegssýnataka og túlkun á niðurstöðunum. Borgar Páll Bragason fagstjóri hjá RML bpb@rml.is Á myndinni má sjá áburðarskortseinkenni í byggi. Myndin er tekin 19. júní í sumar. Jarðræktar- og fóðurráðunautar funduðu í Gunnarsholti: Markviss fóður- og áburðaráætlanagerð á dagskrá Jarðræktar- og fóðurráðunautar ásamt Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra. Myndir / Borgar Páll Bragason og Unnsteinn Snorri Snorrason. Borgar Páll Bragason fagstjóri hjá RML bpb@rml.is Unnsteinn Snorri Snorrason Bútækni og aðbúnaður hjá RML uss@rml.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.