Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 44

Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 44
43Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Stærð: 3–4 (6–7) ára. Yfirvídd 66 (71) sm Sídd á bol 27 (32) sm Ermalengd 30 (33) sm Efni: Zara Chine frá Filatura brúnt nr. 31 4 dokkur. Prjónar Hringprjónn nr. 4, 60 sm Sokkaprjónar nr. 4, 15 sm Prjónafesta: 10 x 10 sm = 18 L og 29 umf Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf. Aðferð. Peysan er prjónuð í hring. Eftir stroffið er prjónað mynstur: 4 sl og 4 br í 7 umferðir, svo 2 br.umferðir. Mynstrið er endurtekið út bolinn upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring og aukið út á undirermi um 2 L, 4 sinnum. Gætið þess að útaukningin falli inn í mynstrið. Bolur og ermar sameinuð á hringprjón og axlarstykki prjónað. Úrtaka samkvæmt leiðbeiningum upp að hálsmáli. Kragi prjónaður. Bolur: Fitjið upp 144 (160) L og prjónið stroff: 2 sl, 2 br í hring, 3 (5) sm. Prjónið mynstur: *4 sl og 4 br, alls 7 umferðir, svo 2 umferðir br*. Endurtakið *-* 7 (8) sinnum eða þar til peysan passar á barnið upp að handvegi, passið að enda á 2 umf brugðið. Setjið 8 L á hjálparprjón undir höndum hvort sínum megin. Geymið og prjónið því næst ermar. Ermar: Fitjið upp 40 (48) L á sokkaprjóna. Prjónið stroff: 2 sl, 2 br, 4 (5) sm. Prjónið nú mynstur, *-*, eftir fyrsta mynstrið er aukið út á undirermi um 2 L. Á skýringarmynd sést hvernig auka skal út svo mynstrið raskist ekki. Endurtakið útaukninguna 4 sinnum þannig að komið er heilt mynstur í viðbót í umferðina, líkt og sést á skýringarmynd. Alls eiga þá að vera 48 (56) L á prjónunum. Þegar búið er að prjóna jafn mörg mynstur og á bolnum eru geymdar 8 L á miðri undirermi. Gætið þess að mynstur standist á við geymdu L á bolnum þannig að það raski ekki mynstrinu þegar ermar og bolur eru sameinuð á einn prjón. Prjónið hina ermina eins. Axlarstykki: Sameinið á einn hringprjón framstykki 64 (72) L, ermi 40 (48) L, bakstykki 64 (72) L og ermi 40 (48) L. Prjónið mynstur áfram í hring, 14 (23) umferðir. Þá er komið að úrtöku: Í næstu umferð eru teknar saman 2 L í miðjunni á brugðnu lykkjunum, samtals 26 (30) L teknar út. Prjónið áfram mynstur 5 umferðir og endið á 2 brugðnum umf, í næstu umf takið saman 2 L í miðju sl lykkjanna 4. Prjónið 4 mynsturumferðir og í þeirri fjórðu eru teknar saman 2 L í hverju mynstri, í brugðnu L. Prjónið 3 umf, í þeirri þriðju eru 2 L teknar saman í sl lykkjum í mynstrinu. Prjónið nú 2 sl umferðir og 2 br umferðir. Prjónið nú 1 umferð sl og takið saman tvær og tvær L út umferðina. Prjónið nú stroff 1 sl og 1 br yfir 6 (8) umferðir en það er hálsmálið. Nú er aukið út í hverri lykkju og prjónað stroff 2 sl og 2 br (kragi) 10 (14) umferðir. Frágangur Fellið laust af. Gangið frá endum og þvoið. Leggið slétt á handklæði til þerris. Inga Þyri Kjartansdóttir Úlfur Prjónahornið garn@garn.is Fólkið sem erFir landið Þegar ég var óviti litaði ég á veggina Álfrún Edda er fjögurra ára en er alveg að verða fimm. Ítalskur matur er í uppáhaldi en samt ekki með pepperóní eða sveppum. Nafn: Álfrún Edda Sigurðardóttir. Aldur: Fjögurra ára, alveg að verða fimm. Stjörnumerki: Sporðdreki. Búseta: Akranes. Leikskóli: Akrasel. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Leika úti og líka inni í hárgreiðsluleik. Svo finnst mér gaman að vera inni að dansa. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kettlingur. Uppáhaldsmatur: Flest er gott, nema sveppir og pepperóní. Lasagna, pitsa og spagettí er í uppáhaldi. Uppáhaldshljómsveit: Mér finnst skemmtilegasti diskurinn vera Mary Poppins. Uppáhaldskvikmynd: Krakkarnir í Ólátagarði, Emil í kattholti og Lína Langsokkur. Fyrsta minning þín? Ég man eftir því þegar ég fór með mömmu og ömmu Íbí til Þýskalands og ein frænka mín gaf mér Hello Kitty- tösku. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, æfi dans og fótbolta. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Danskennari. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég var óviti þá litaði ég á veggina í herberginu mínu. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Mér finnst leiðinlegt að gráta. Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í vetur? Drekka kakó og halda afmæli. Svo förum við í skólaheimsóknir. ÞJÁNINGA ÚTDEILDI TIGNAR- MAÐUR SKERGÁLA FIÐUR MATAR- ÍLÁT ARR FEIKNA KJAFT- ASKUR PEST HEY ÚTFALL ÁTT LÍTIÐ MÁLMUR ÞANGAÐ TIL FATAST HUGUR HEIM- SKAUT BRAK FLJÓT- FÆRNI FRAM- VEGIS SKÓLI SKEINA SVIPAÐ NASL SVEIGUR PERSÓNU- FORNAFN VEIÐI EFTIRRIT SAM- KVÆMT VÖRU- MERKI SÖNG- LEIKUR AGA FJÖRU- GRÓÐUR YNDI LASLEIKI GELT SKOT STOPPA ÚT- HLUTAÐIR SÝKJA TVEIR EINS FLÍK EYRIR ÍSHÚÐ KOMST AUGA Á HYLMING LJÚFUR SLANGA TALA MÁLA ANGAN ÆTTGÖFGI FYRIR HÖND LÍMBAND TIL SAUMA STILLA ANGRA GERVIEFNI AÐ UTAN Í RÖÐ TVEIR EINS TIL EÐAL- BORINN GÁSKI ÓSKA DUFLA SKORDÝR ÁN PÚKA 1 A lA n l e v in e ( C C B Y 2 .0 ) Krossgáta Lausn krossgátunnar verður birt í næsta blaði en þá verða sömuleiðis fjórar Sudoku-þrautir. Álfrúnu Eddu þykir tónlistin í Mary Poppins vera skemmtilegust. 1 Úlfur ermi = Slétt = Engin lykkja = Brugðið = Útaukning Frá vinstri, Aðalbjörg Guðbrands­ dóttir naglakennari, Eskifirði, Aðal­ heiður G. Halldórsdóttir, nagla­ kennari Reykjanesbæ, og Svandís Ragna Daðadóttir, alþjóðlegur nagla­ kennari, Kópavogi, við útskrift úr kennaraskóla Pronails í Belgíu. Pronails naglaskólinn: Býður nám á Eskifirði og í Reykjanesbæ Pronails naglaskólinn hefur starfað óslitið frá árinu 1999 og á því 15 ára afmæli um þessar mundir. Alls hafa átta kennarar lokið kennaraprófi frá kennaraskóla Pronails í Belgíu, sex hafa lokið almennu kennaranámi en tveir hafa lokið mastersnámi sem gefur réttindi til að verða alþjóðlegur kennari. Naglaskólinn var í upphafi til húsa við Hverfisgötu í Reykjavík en flutti starfsemi sína í Bolholt 6 og síðan í Hjallabrekku 1 í Kópavogi þar sem hann hefur haft aðsetur í húsnæði Snyrtiakademíunnar. Síðastliðið sumar luku þrír naglafræðingar prófum frá kennaraskóla Pronails.Tveir luku kennaraprófum sem almennir kennarar og einn sem alþjóðlegur kennari. Nú færir naglaskólinn út kvíarnar og auk naglaskólans í Kópavogi verða nú rekin útibú frá skólanum. Í Reykjanesbæ er Naglastudio Öllu sem nú þegar hefur tekið nemendur og styttist í útskrift fyrstu nemenda frá skólanum. Þá verður naglaskóli á Eskifirði í tengslum við Nagla og snyrtistofuna Prýði sem rekin er af Aðalbjörgu Guðbrandsdóttur sem er menntaður snyrti-, nagla- og förðunarfræðingur.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.