Vestfirska fréttablaðið - 07.06.1978, Page 2
2
Cátt er meira til umræöu manna á milliá
1 ísafirði þessa dagana, en úrslit bæjar-
stjórnarkosninganna 28. maí s.l. í kosn-
ingunum fékk A-listi Alþýöuflokks 361
atkvæöi og tvo menn kjörna, B-listi Fram-
sóknarflokks fékk 183 atkvæöi og einn
mann kjörinn, D-listi Sjálfstæöisflokks
fékk 506 atkvæöi og fjóra menn kjörna,
G- listi Alþýðubandalags fékk 246 at-
kvæöi og einn mann kjörinn og J-listi
Óháöra borgara fékk 247 atkvæði og
einn mann kjörinn.
í fráfarandi bæjarstjórn áttu sæti einn
fulltrúi Framsóknarflokks, fjórir fulltrúar
Sjálfstæðisflokks, einn fulltrúi Alþýðu-
bandalags og þrír fulltrúar af sameigin-
legum framboöslista Alþýöuflokks og Ó-
háöra borgara, sem þá buöu fram sam-
eiginlega , ásamt Samtökum frjálslyndra
og vinstri manna. Meirihlutasamstarf
Sjálfstæöisflokks, Alþýöuflokks, Samtak-
anna og Óháöra borgara um stjórn bæj-
armála á ísafirði stóö allt síöasta kjör-
tímabil. Fyrir kosningar var ekki annað aö
heyra, aö minnsta kosti á fulltrúum Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks, en aö sam-
starfið heföi veriö árangursríkt.
Nú hefur þaö gerst í kosningum, sem
oft áöur, aö fylgi hefur færst á milli flokka.
Sjálfstæðismenn misstu töluvert af fylgi
sínu, en samstarfsaöilar þeirra í meiri-
hluta bæjarstjórnar á síöasta kjörtímabili
bættu drjúgum viö sig atkæðum. Fram-
sóknarflokkurinn fékk sem næst sama
atkvæðafjölda og í kosningunum 1974,
en Alþýðubandalagiö fékk aukið fylgi.
AÐ
HLÍTA
DÓMI
KJÓSENDA
Sé litiö á úrslit kosninganna á ísafiröi,
kemur í Ijós aö þau eru mjög í sömu átt
og víðast hvar annarstaðar á landinu.
Sem sagt í stórum dráttum þau, aö and-
stæðingar ríkistjórnarinnar vinna á, en
stjórnarflokkarnir tapa fylgi. Verður því
aö telja, að breytingin á fylgi Sjálfstæöis-
flokks og Alþýðubandalags hér, stafi fyrst
og fremst af því, hverjar skoóanir manna
eru á stefnu þeirra í landsmálum. Sé
hinsvegar litið á kosningaúrslitin sem
dóm um störf bæjarstjórnar ísafjaröar,
eins og eðlilegt veröur aö telja, aö þau
séu, eru þau skýr. Þeir aöilar, sem störf-
uóu saman í meirihluta bæjarstjórnar allt
síöasta kjötímabil fengu 1114 atkvæði, en
minnihlutaflokkarnir fengu 429 atkvæði.
Þaö er því greinilegur vilji ísfiröinga aö sá
meirihluti, sem starfaði á síöasta kjör-
tímabili, starfi áfram.
Forystumaöur D-listans, Guðmundur
H. Ingólfsson, lýsti því yfir í grein í Vestur-
landi 3. júní s.l. aö fylgisaukning and-
stæöinga Sjálfstæöisflokksins leiöi aö
sjálfsögöu til meirihlutamyndunar með
þeim. Hann viröist gleyma því, aö sjálf-
stæðismenn voru ekki einir í meirihluta
bæjarstjórnar á síðasta kjörtímabili. Ein-
hverjar tilraunir munu vera í gangi til aö
útbúa málefnasamning milli fulltrúa Al-
þýöuflokks, Óháöra, Framsóknarflokks
og Alþýðubandal.um myndun meirihluta í
bæjarstjórn. Allt þetta ber óneitanlega
keim af pólitískri refskák flokkanna vegna
komandi Alþingiskosninga. Þaö er álit
Vestfirska fréttablaösins, aö um slíkt kæri
ísfiröingar sig ekki. Þeir vilji aö flokkarnir
hlíti dómi kjósenda og standi við gerðir
sínar, hvaö sem líður tilfærslu atkvæöa
milli meirihlutaaöilanna frá síöasta kjör-
tímabili.
Rækjuafli Vestfirðinga
á vetrarvertíð 1978
— Vísir Bíldudal aflahæstur
Arnarfjörður
ísafjarðardjúp
Steingrímsfjörður
520 ( 611) 6bátar(10)
2.764 (2.511) 40 bátar (42)
1.005 ( 885) 10 Bátar (13)
4.289 (4.007) 56 bátar (65)
Tölurnar innan sviga eru frá árinu áður.
Rækjuvertíð á Vestfjörð-
um lauk í endaðan apríl,
þegar veiðum var hætt í
Arnarfirði, en það var eina
veiðisvæðið, þar sem ekki
var veitt leyfilegt aflamagn.
Við ísafjarðardjúp var búið
að veiða aflamagnið 7. apríl
og 15. apríl við Steingríms-
fjörð.
í vetur stunúuðu 56 bátar
rækjuveiðar frá Vestfjörð-
um, sem er 9 bátum færra
en árið áður. Frá Bíldudal
réru 6 bátar, Súðavík 4, ísa-
firði 27, Bolungavík 9,
Hólmavík 6 og Drangsnesi
4.
I april bárust á land 362
lestir af rækju, 74 lestir á
Bíldudal, 149 lestir við ísa-
fjarðardjúp og 159 lestir við
Steingrímsfjörð. Alls hafa
þá borist á land 2.734 lestir
af rækju frá áramótum. Afl-
Haustvertíö:
Arnarfjörður
ísafjarðardjúp
Steingrímsfjörður
Vetrarvertíð:
Arnarfjörður
ísafjarðardjúp
Steingrímsfjörður
inn á haustvertíðinni var
1.555 lestir. Er rækjuaflinn
á haust og vetrarvertíðinni
því 4.229 lestir, en var 4.007
lestir á vertíðinni í fyrra.
Aflinn skiptist þannig eft-
ir veiðisvæðum:
218 ( 235)
1.120 (1.010)
217 ( 272)
1.555 (1.517)
302 ( 376)
1,644 (1.501)
788 ( 613)
2.734 (2.490)
Vertíðarafli einstakra báta á
haust- og vetrarvertíð
1977/1978:
BlLDUDALUR:
Vísir 114.692
Helgi Magnússon 104.098
Höfrungur 78.856
Pilot 77.595
Þröstur 67.760
Kópur 59.548
SÚÐAVlK:
Valur 73.314
Sigrún 71.470
Sigurborg í Dal 58.565
Hafrún 46.570
ÍSAFJÖRÐUR
O.N. Olsen h.f.
Bára 87.443
Ver 85.926
Bryndís 81.885
Tjaldur 72.437
Ragnar Ben. 67.436
Kristrún 60.342
Sólrún 44.527
Niðursuðuverksmiðjan h.f.
Eiríkur Finnsson 92.191
Pólstjarnan 76.919
Sæunn 64.579
Vilborg 60.214
Rækjustöðin h.f.
Gullfaxi 93.437
Engilráð 93.403
Örn 90.035
Gissur hvíti 85.861
Halldór Sigurðss. 83.645
Húni 72.002
Framleiðum vandaða
PANEL-miðstöðvarofna
Teiknum miöstöövarkerfi
STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR — FÖST VERÐTILBOÐ
OFNASMIÐJA VESTFJARÐA
SÍMI 3903, — l'SAFIRÐI