Vestfirska fréttablaðið - 11.10.1978, Page 2
2
(j7s
týtáMaMfuká
Utgefandi og ábyrgðarmaður:
Árni Sigurðsson
Blaðamaður: Kristján Jóhannsson.
Prentun: Prentstofan (srún hf.. I'safirði
Mér hefur stundum flogið í hug, hvort
Vestfirðingar almennt og þá einnig sveit-
arstjórnarmenn og alþingismenn hafi
gert sér Ijóst hve þróun atvinnumála í
fjórðungnum hefur verið okkur Vestfirð-
ingum í óhag, miðað við þróun sömu
mála í landinu, þegar á heildina er litið.
Hér er að vísu vaxtarbroddur útgerðar
og fiskvinnslu á íslandi, eins og svo oft
hefur verið bent á réttilega. En hvað um
annan framleiðsluiðnað. Hvað um þjón-
ustu og verslun?
Fyrir tveimur til þremur áratugum gat
vestfirskur skipasmíðaiðnaður annast
viðhald og smíðar mestalls fiskiskipaflota
fjórðungsins. Nú á því herrans ári 1978
þarf ekki einungis að senda stærstu fiski-
skipin, skuttogarana, í önnur byggðarlög
til viðgerða, heldur allan flotann. Þar með
talda rækjubátana.
Ekki skal hér fullyrt hverjum um er að
kenna, en það er staðreynd, að á meðan
tekist hefur á Akureyri, á Akranesi, í
Garðabæ og víðar, að vinna að þessum
málum svo, að fært er að annast viðhald
fiskiskipa, þá megum við sjá eftir flotan-
um héðan, til viðgerða á fyrrnefndum
stöðum.
Svo langt muna menn að hægt var að
ganga í skóm, sem smíðaðir voru á ísa-
firði. Nú er svo komið, að skósmiður er
enginn í fjórðungnum. Annaðhvort hend-
um við gömlu skónum, þegar þeir bila,
eða við sendum þá suður, með viðeig-
andi okursímtölum, og sendingarkostn-
aði. Klæðskeri er hér enginn og fataiðn-
aður, annar en vefstofa, sem framleiðir
listvefnað og vélprjónastofa, er ekki til.
Verslunin, sem áður var stolt ísfirð-
inga, og hafði skip í förum milli landa,
hefur veslast upp, og er nú varla meira en
umboðsverslun fyrir innflytjendur á öðr-
„annað hvort
aftur á bak
ellegar...”
um landshlutum. Undantekningar eru þó
veiðarfæraverslun Netagerðar Vestfjarða
og Sandfells, og ýmsar aðrar vörur, sem
Sandfell flytur hingað beint frá útlöndum.
Einnig flytja nokkrir aðilar á svæðinu inn
hráefni til byggingariðnaðar. Langmestur
hluti afurðasölunar fer fram um aðila
utan Vestfjarða.
Kaupfélag ísfirðinga, sem eitt sinn var
á meðal stærstu atvinnu og verslunarfyr-
irtækja fjórðungsins, og þótt víðar væri
leitað, hefur á undanförnum árum haldið
matvöruverslun gangandi, með því að
selja eignir frá gamalli tíð, uppí kostnað
við taprekstur, sem nemur milljónum og
milljónatugum árlega.
Sparisjóðir eru í mörgum hreppum
Vestfjarða, en enginn á ísafirði. Stærstu
peningastofnanir fjórðungsins eru útibú
ríkisbankanna. Tryggingar Vestfirðinga
fara allar um umboð stóru tryggingarfé-
laganna syðra, og svona mætti lengi
telja.
Er þetta eðlilegt? Sumum mun finnast
það. En ég spyr enn, og nú spyr ég og
ætlast til svars. Alþingismenn, sveitar-
stjórnarmenn, ráðamenn fyrirtækja, á-
hugamenn um alhliða uppbyggingu at-
vinnu og menningarlífs Vestfirðinga.
Hvar stöndum við, þegar góðæri það,
sem nú varir í útgerð og fiskvinnslu
gengur yfir, annaðhvort af náttúrunnar
hendi, eða af mannavöldum?
Við getum kannske staðið af okkur allt
það óhagræði og þann kostnað, sem því
fylgir að sækja jafnvel einföldustu og
sjálfsögðustu þjónustu til annarra lands-
hluta, á meðan hafið skilar okkur auði í
svipuðum mæli og það hefur gert undan-
farin ár. En það er nú mín skoðun, að til
þess að hægt sé að tryggja varanlega
búsetu og framfarir á Vestfjörðum, þá sé
það mál brýnast, að stuðla að traustri
uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs á
svæðinu, og jafnhliða því, örri uppbygg-
ingu íbúðarhúsnæðis. Við verðum að
veita viðnám því peningastreymi, sem nú
rennur nær óhindrað út úr byggðarlag-
inu, og beina því á hríngrás innan Vest-
fjarða.
Ég undirstrika það, að við viljum opna
umræðu um þessi mál í fjórðungsblöðun-
um, með þáttöku alþingismanna, sveitar-
stjórnarmanna og annarra áhugamanna.
Það er óþolandi að þagað sé þunnu
hljóði um framtíðar hagsmunamál vest-
firskra byggða, meðan verið er að bralla
með ráðherrastóla suður í Reykjavík, eða
rífast um vegarspotta á ísafirði.
Vetrarskoðun 1978
1. Hreinsuð geymasambönd
2. Mældur rafgeymir
3. Mæld hleðsla
4. Hreinsuð loftsía
5. Skipt um kerti
6. Skipt um platínur
7. Ath. viftureim
8. Stillt kúpling
9. Stilltir ventlar
10. Ljósastilling
11. Mótorstilling
12. Skipt um olíu
13. Smurning
14. Mældur frostlögur
INNIFALIÐ f VERÐI, KERTI, PLATÍNUR, OLÍA, SMURNING, VINNA.
4. cyl. kr. 19.400
FAST 6. cyl. kr. 20.600
VERÐ!
8. cyl. kr. 23.400
Bílaverkstæði ísafjarðar Sími 3379
Ljósaúrval í
NEISTA
Ljós í stofuna
Ljós í eldhúsið
Ljós í svefnherbergið
Ljós í ganga og geymslur
ÚTILJÓS í ÚRVALI
PERUÚRVAL
Kerta - kúlu - og kastaraperur
Flestar tegundir af öðrum Ijósaperum
LAMPAÚRVAL
Náttlampar - Borðlampar - Leslampar
Standlampar - Lampar með
stækkunargleri
VASALJÓS - BATTERÍ - PERUR
Neisti hf.
ísafirði, sími 3416