Vestfirska fréttablaðið - 18.04.1980, Qupperneq 3
í5
vBstfirska
TTADLADID
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON, FORM. ÚTVEGSMANNAFÉLAGS VESTFJARÐA:
í síðasta tbl. ..Vestfirska" er
viðtal við formann Sjómannafé-
lags fsfirðinga um verkfallsmálin.
er gefur tilefni til þess að gera
smá athugasemdir og ræða þessi
mál almennt.
I viðtalinu kvartar formaðurinn
margsinnis yfir því að útgerðar-
menn vilji ekkert ræða við fulltrúa
Sjómannafélagsins um þær kröf-
ur. er þeir hafa lagt fram. Þá telur
hann líkur á samkomulagi minni
vegna afskipta Landssambands
ísl. útvegsmanna af deilunni.
Á þeim viðræðufundum er
fram fóru milli aðila áður en aðrir
hófu þátttöku í málinu. létu út-
vegsmenn í Ijós þá skoðun að þeir
væru ekki bjartsýnir á að fram-
haldsviðræður gæfu árangur ef
haldið væri fast við þær megin-
kröfur. er fólu í sér verulega út-
gjaldaaukningu. Því var þá til
svarað af hálfu Sjómannafélags-
manna að ekki væri um það að
ræða að slá af kröfunum.
Þegar málið var þannig komið
að heita mátti í sjálfheldu, að því
er varðaði hugsanlega lausn. án
milligöngu annarra. var næsta
skrefið að vísa því til meðferðar
hjá sáttasemjara rikisins og eftir
að svo var komið var það hans
ákvörðun hvenær boðað yrði til
viðræðufunda.
Hvers vegna var óskað afskipta
L.f.Ú. að málinu? Til þess að
upplýsa hversvegna sú ákvörðun
var tekin þarf að leiða hugann að
því hver er forsaga málsins.
Þann 28. des. var Útvegs-
mannafélagi Vestfjarða tilkynnt
samþykkt aðalfundar Sjómanna-
félags fsfirðinga. þarsem Trúnað-
arráði var veitt heimild til boðun-
ar vinnustöðvunar á félagssvæð-
inu. Daginn eftir 29. des. fær
Útvegsmannafélagið í pósti tillög-
ur Sjómannafélagsins sem leggja
átti til grundvallar við gerð nýrra
samninga. Verkfallsheimiidin er
því boðuð áður en tillögurnar eru
sendar til aflestrar.
Ég veit ekki til þess að svona
hafi verið staðið að málum fyrr í
viðlíka tilfellum og verð ég að
kalla þetta næsta óvenjuleg
vinnubrögð og mátti vel ímynda
sér að fleira færi á eftir. Einhvers-
staðar stendur skrifað að nýjum
herrum fylgi nýirsiðir.
Að loknum öðrum viðræðu-
fundi óskuðu fulltrúar Útvegs-
manna eftir því að málinu yrði
vísað til Sáttasemjara rikisins.
Sjómannafélagsfulltrúarnir báðu
um frest á þeim aðgerðum og var
af hálfu útvegsmanna orðið við
þeim tilmælum.
Næstu viðbrögð af hálfu Sjó-
mannafélagsins er tilkynning um
boðun vinnustöðvunar frá 20.
mars. Þegar Útvegsmannafélaginu
hafði borist þessi ákvörðun Sjó-
mannafélagsins samþykktu þeir
einhliða að vísa málinu til Sátta-
semjara og þá var jafnframt tekin
ákvörðun um það. að óska eftir
aðild Landssambands ísl. útvegs-
manna að málinu með Útvegs-
mannafélaginu.
Þessi ákvörðun var beint fram-
háld af þeirri hörku er komin var
í málið fyrir aðgerðir Sjómanna-
félags ísfirðinga, sem við nánari
athugun virðist hafa verið ákveð-
in þegar í upphafi eftir því er
fram kemur í viðtalinu við for-
manninn. er áður er vikið að. en
þar segir hann.
„Ég vil taka það skýrt fram að
við ákváðum, að fara í þetta
verkfall fyrir áramót og sögðum
upp samningum eins og önnur
stéttarfélög á landinu." Já. það
þarf að segja upp gildandi samn-
ingum til þess að verkfallsaðgerð-
um verði komið við.
Vil selja
TILSÖLU
Datsun 180 B árg. 1978.
Upplýsingar í síma 3577
Þegar búið er að samþykkja
að fara í verkfall þarf að sjálf-
sögðu að standa við það og þá var
heppilegasti tíminn til þess að
hefja leikinn talinn vera, er
þorskveiðibönn áttu að taka gildi.
Það vekur furða að heildarsam-
tök launþega á Vestfjörðum skuli
vera orðinn þátttakandi í þessum
leik. eftir þó að hafa neitað því
fyrst í stað að vera aðili að mál-
inu. þegar það var í uppsiglingu.
Hvers eiga þeir að gjalda. sem í
landi hafa framfæri sitt af vinnslu
sjávaraflans_ Ég fæ nú ekki séð að
tilgangurinn helgi meðalið.
fiskiskip og vinnslustaðan í landi
hefir verið bætt hefir tekist að
auka atvinnuöryggið. svo sem
best verður ákosið, ef tekið er
tillit til þeirra möguleika, sem
einhæfur atvinnurekstur býður
upp á.
Þær framfarir er átt hafa sér
stað á ísafirði um allmörg ár á
sviði útgerðar og fiskvinnslu hafa
vakið verðskuldaða athygli víða
um landið og þótt til fyrirmyndar
og betur hafa til tekist en víða
annarsstaðar. Þessi árangur hefur
m.a. náðst vegna þess að allir sem
að þessu hafa unnið á sjó og landi
unarháttur að hafa áhrif á skoð-
anamyndun mann getur orðið
erfitt að ná endum saman á skyn-
samlegan hátt.
Ég er hinsvegar sannfærður um
það að í hugum ísfirðinga al-
mennt. eru stjórnendur þeirra fyr-
irtækja. sem verkfallsaðgerðir
beinast gegn. ekki álitnir neinir
eiginhagsmunamenn. Sjón er þar
sögu ríkari ef litið er til þeirrar
uppbyggingar sem staðið hefir
verið að hjá fyrirtækjunum í landi
svo varðandi útgerðina.
Það segir sig sjálft að uppbygg-
ing fyrirtækis getur ekki átt sér
Sjómannaverkfallið
Guðmundur Guðmundsson
Þegar forsvarsmenn launþega-
samtakanna taka þá ákvörðun að
beita verkfallsvopninu. hafandi í
huga þær afleiðingar. sem ávalt
leiða af vinnustöðvunum. þá
mætti ætla að slíkt væri ekki gert
nema að vel yfirveguðu ráði og
aðstæður allar væru á þann veg
að ekki væri nokkur vafi um
nauðsyn og réttmæti aðgerðanna.
Ég held að það hljóti að vera
nokkuð margir um þá skoðun að
sú launþegabarátta. sem birtist nú
í verkfallsaðgerðum Sjómannafé-
lags ísfirðinga sé víðsfjarri þeim
hugmyndum. sem almennt hafa
verið uppi um það hvenær rétt-
lætanlegt væri að láta sverfa til
stáls með þessum hætti.
Launakjör sjómanna hafa alla
tíð að verulegu leyti ákvarðast af
því hver aflinn hefir verið og
skiptahlutafllið milli útgerðar og
þeirra er hér það hagstæðasta
þeirn til handa. er gildir hér á
landi.
Hjól atvinnulífsins á ísafirði
hafa um langa tíð fengið að ganga
ótrufluð og ekki verið stöðvuð
vegna átaka heima í héraði rnill-
um aðila vinnumarkaðarins.
Þessu er vert að vekja athygli á
nú. er til tíðinda dregur á þessu
sviði. Ef allt hefði verið með
eðlilegum hætti og engin sérstök
óhöpp borið að höndum hefði
mátt vænta þess að svo yrði enn
um sinn og atvinnuöryggi yrði hér
áfram svo sem verið hefir undan-
farin ár og þá eftir því sem orðið
getur á þeim stöðum þar sem
afkoman byggist nær eingöngu á
sjávarafla.
ísfirðingar sem komnir eru vel
yfir miðjan aldur hafa lifað þá tíð
að sjávaraflinn átti það til að
bregðast og harðnaði þá í ári með
afkomuna.
Þar gat komið til stormasamt
tíðarfar og aflabrestur á heima-
miðum. Til þess að mæta þessum
erfiðleikum var það ekki óalgengt
að ..stóru bátarnir" er svo voru
kallaðir þá 30-50 rúmlestir urðu
að halda suður á Breiðafjarðar og
Faxaflóamið upp úr áramótum
og fram á vorvertíðarlok. Sem
betur fer heyrir þetta fortíðinni til
og lifir í minningunum um það
sem var og á vonandi ekki eftir að
endurtakast.
Með því að tekin hafa verið í
notkun stærri og fullkomnari
hafa sameinað krafta sína með
þau áform í huga að hér geti
menn haft góða afkomu og unað
sér vel ..í faðmi fjalla blárra".
Varðandi rekstur atvinnufyrir-
tækis er það mjög áríðandi að
gagnkvæmt traust sé ríkjandi
milli þeirra er vinna hjá fyrirtæk-
inu og stjórnenda þess. Þá er og
ekki síður mikilvægt að til forystu
i launþegasamtökunum veljist
menn. sem gera sér grein fyrir
þeirri ábyrgð er fylgir þeim trún-
aði. er þeim hefur verið falinn.
Verði á þessu misbrestur getur
það haft alvarlegar afleiðingar í
för með sér og valdið ómældum
erfiðleikuni.
Ég hefi orðið var við það að
sumir málsvarar sjómanna eru
uppfullir af því hugarfari að við-
semjendur þeirra útvegsmenn séu
þröngsýnir gróðahyggjunienn.
sem hugsi um það eitt að skara
eld að sinni köku. Nái þessi hugs-
stað nema ítrustu hagkvæmni sé
gætt og reksturinn skili einhverj-
um hagnaði. Þar sem einstakl-
ingsframtakið er allsráðandi velt-
ur á mestu að vel sé á málum
haldið og fjármagni ráðstafað
með það í huga að endar nái
saman. Þarna gildir ekki sama
lögmál og þegar ríki eða bæjarfé-
lög eru rekstraraðilinn. því þá má
alltaf jafna reikningana. ef um
taprekstur er að ræða. með því að
seilast í pyngju skattborgarans.
Góð fjárhagsafkoma fyrirtæk-
isins á og að tryggja þeim. er hjá
því vinna. betri afkomu.
Það er hörmulegt til þess að
vita að atvinnulíf okkar bæjarfé-
lags skuli nú vera lamað. með því
að fyrirtæki. sem um mörg ár
hafa verið lífæð samféiagsins.
skuli nú vera knúin til þess að
leggja niður alla starfsemi fyrir
aðgerðir. er örfáir öfgamenn hafa
verið upphafsmenn að.
FASTEIGNA
VIÐSKIPTI
Bakkavegur 23, glæsilegt,
nýlegt einbýlishús úr
timbri. 147 fm. ásamt bíl-
skúr og frágenginni lóð.
Vitastígur 8, Bolungarvík,
mjög fallegt álklætt einbýl-
ishús á tveim hæðum.
Laust fljótlega.
Mjallargata 6, norðurendi,
2x45-50 fm. Á efri hæð
eru 3 svefnherdbergi og
bað. Niðri er eldhús, stofa
og þvottaherbergi. 56 fm.
hlaðinn bílskúr fylgir. Eign-
in er laus um miöjan júní.
Holtabrún 16, Bolungarvík,
4ra herbergja íbúð í nýlegu
fjölbýlishúsi.
Traðarland 4, Bolungarvík,
byggingarframkvæmdir að
143 fm. einbýlishúsi. Sökkl-
ar eru steyptir og grunnur
uppfylltur. Talsvert af timbri
fylgir. Einnig geta allar
teikningar fylgt.
ARNAR G.
HINRIKSSON
HDL.
Aðalstræti 13 ísafirði
Sími3214
Alla mánudaga frá Reykjavík
til ísafjarðar og Akureyrar
í maí og júní 1980
M.s. Úðafoss
M.s. Urriðafoss
M.s. Tungufoss
5. maí 26. maí 16. júní
12. maí 2. júní 23. júní
19. maí 9. júní 30. júní
VÖRUMÓTTAKA í SUNDASKÁLA OG A-SKÁLA
Ath. Allar matvörur, stykkjavörur, heimilistæki, húsgögn,
innréttingar og búslóðir eru fluttar í 15 rúmmetra vörugámum, til
að tryggja sem besta vörumeðferð.
Einnig eru ferðir hálfsmánaðarlega til Siglufjarðar og Húsavíkur.
HAFÐU SAMBAND
EIMSKIP
ísafirði, sími 3126