Vestfirska fréttablaðið - 23.10.1980, Side 3
vestfirska
FRETTABLADID
ORÐIÐ ER LAUST
— Lesendadálkur
,Borgari“ ritar um höfuðatvinnugreinarnar
Fiskveiðar og
fiskvinnslu
Að undanförnu hafa fisk-
veiðar og fiskvinnsla, hagur út-
gerðar og fiskverkunar verið
mjög til umræðu í fjölmiðlum.
Ástæður þeirrar umræðu hafa
verið margvíslegar, nefna
mætti lækkun verðs á fisk-
markaði í U.S.A., gæði fram-
leiðslunnar, hvort heldur að
hún er seld fryst eða ísuð á
markaði V-Evrópu, Bretlandi
og Þýskalandi, þá má og nefna
spá Þjóðhagsstofnunar um
stórfelldan hallarekstur þess-
ara hðfuð atvinnugreina á Ifð-
andi ári. Þá má ekki gleyma
þelrri umræðu, sem fram hefur
farið um fiskverðsákvörðun, er
taka skal glldi 1. okt. s.l. og
fiskveiðistefnu rfkisvaldsins.
Þegar litið er yfir þessa upp-
talningu getur engan undrað
að aðalatvinnuvegur þjóðar-
innar hafi tekfð svo mjög hug
þeirra, er matreiða fyrir fjöl-
miðla, þrátt fyrir gómsætar
Flugleiða fréttir.
Staðreynd er að gengi ísl. krónu
(er hún reyndar til lengur, nema
sem hugtak banka og ríkisvalds?)
hefir verið fellt t.d. gagnvart
U.S.A. dollar um 35,7% frá I. jan.
þ.á. til dagsins í dag, frá kr. 395.40
í 536.70 og er enn fallandi. Gagn-
vart ensku pundi hefur krónan
fallið úr 886.30 í 1.228.25, eða um
45,5%, hér er um að ræða tvær
mestu viðskiptaþjóðir okkar. Ég
verð sjálfsagt að biðja afsökunar
á að tala hér um gengisfellingu,
því nú heitir þetta á fínu máli
„gengissig". Gengisfellingar við-
reisnarstjórnarinnar eru nú orðn-
ar fis á móti því, sem í dag gerist.
Forsætisráðherra sagði nýlega
að þjóðin væri illa farin, ef hún
gerði sér ekki grein fyrir því, að
krónan yrði að skrást rétt, gagn-
vart útflutnings framleiðslunni,
útflutningurinn yrði að fá kostn-
aðaraukningu borna uppi.
Allir sanngjarnir menn viður-
Reyniö
nýju
ísréttina
©.
HAMRABORG HF
kenna að mikið ber „að bera“ og
gera fyrir „höfuð atvinnuveg
þjóðarinnar", en getur verið að
maðkur sé í mysunni?
fólki hér í bæ væri það kvíðaefni,
þegar aflaskipin kæmu að landi,
því að óþefurinn af fiskinum væri
slíkur að fólkið þyrfti að leita til
snyrtiherbergja og æla. Á þessum
fundi munu hafa verið málsmet-
andi menn, sem í það minnsta
telja sig, standa framarlega í fisk-
vinnslu og veiðum. Þeir munu
ekki hafa séð ástæðu til að and-
mæla frásögninni um á hvern veg
hráefnið væri, sem fiskvinnslan
í upphafi þessara lína er þess
getið að gæði framleiðslunnar
hafi valdið umtali. Hefir í þeirri
umræðu borið mjög á fullyrðing-
um um að gölluð og jafnvel lítt
frambærileg vara hafi verið færð
á erl. markað. Þá hefir og verið
greint frá því, að fiskur sem kom-
ið hafi á breskan markað á liðnu
sumri hafi verið í mörgum tilfell-
um svo léleg vara að stofnað hafi
verið í hættu framtíð á sölu ís-
lensks fisks í Bretlandi. Ástæðan
til þessa mun hafa verið sú að
skipum hafi verið haldið of lengi
til veiða og fiskurinn vanísaður.
Rétt er að geta þess í þessu sam-
bandi, að ísfirsk skip hafa gert
þrjár sölur í Þýskalandi nú á
skömmum tíma. Fiskkaupendur
hafa séð ástæðu til að gefa út
vottorð um að fiskur úr þessum
skipum hafi verið með afbrigðum
góður. Þetta vottorð endurspegl-
ast í verði því er „Guðbjörg" fékk
nú nýlega í Þýskalandi. Þess skal
getið sem vel er gert, en ekki
sífellt klifað á því, er miður fer.
ömurlegt má það þó teljast, að
fiskur, sem er verið að vernda
með því að takmarka sóknina,
skuli þannig fara í veiðiskipi, að
hann þurfi að fara til fóðurmjöls-
vinnslu, þegar hann er kominn á
markaðsstað.
ER ViÐAR POTTUR BROTINN?
Nýlega héldu þingmenn Fram-
sóknarflokksins á Vestfjörðum
fund á fsafirði. Sá sem þetta ritar
hefir fengið staðfestingu á því að
sjávarútvegsráðherra Steingrímur
Hermannsson, hafi nefnt sem
dæmi um vöruvöndun, að einn
harðduglegasti sölumaður ís-
lensks fisks á erlendum markaði
hafi á miklum fundi fiskverkun-
armanna brugðið sér í frystihús
og sótt eina „fiskblokk'* og lagt á
borð fundarmanna. Hafi fundar-
mönnum þótt það „ókræsileg"
matvæli. Á sama fundi lýsti einn
ræðumaður því, að fiskvinnslu-
hér fengi til framleiðslu, þess
besta fisks, sem fengist á heims-
markaðnum, eins og íslenskur
fiskur mun auglýstur * erlendis,
heldur hafi einn ábyrgðarmaður
veiða og vinnslu gengið til ræðu-
manns að loknum fundi og sagt
að frásögn ræðumannsins hafi
verið rétt og sönn.
Getur það verið að framleiðsl-
unni, sem sífelit er verið að
bjarga, með gengisfellingum,
samkvæmt frásögn stjórnmála-
manna, sé svo komið, sem hér er
gert að umtalsefni? Undrar ein-
hverja þó spurt sé? Þeim sem
þetta ritar er alvara í huga. Ég vil
með þessum línum opna umræðu
um þessi mál og gefa viðkomandi
tækifæri til að tjá sig, og bera til
baka á opnum vettvangi sögur og
tilgátur um vinnslu og hráefni.
Það er engum til góðs þegar vandi
steðjar að, að stór mál séu höfð að
fíflskaparmálúm, eða hvað má
telja það, sem að framan er sagt,
og gr.höfundur hefur fengið ör-
ugga staðfestingu á að satt og rétt
er frá greint. Hvern einstakling í
landinu varðar meira og minna
þessi mál. Verðbreytingar þær
sem orðið hafa á íslenskum gjald-
miðli, valda stórfelldri röskun í
landinu, og aldrei slíkri sem á
áratugunum 1970 - 1980. Nefnt
sem dæmi að U.S.A. dollar kost-
aði á árinu 1970 kr. 87.90, en nú
eins og áður er sagt kr. 537.70 eða
gengið lækkað á 10 árum um
510% —fimmhundruðogtíu
prósent—. Sjávarútvegsráðherra
sagði í morgunpósti í dag „annað
ráð en gengissig er ekki til, til
bjargar fiskvinnslunni eða getur
þú bent á annað", varpaði hann
til fyrirspyrjanda.
Gengissig eða gengisfelling, er
viðurkenning á því sem er orðin
staðreynd og hefur skeð, sambr.
grein í síðasta tölublaði fsfirðings.
Svo heitir það á máli fræðing-
anna og þeirra pólitíkussa, sem
aka seglum eftir vindi, eða var
þessi staðreynd ekki ljós greinar-
höfundum fsfirðings 1967 og
1968, eða er hér hagað seglum
eftir vindi og því breytt um grein-
arhöfunda.
Sú afleiðing sífelldrar verðrýrn-
unar gjaldmiðils, sem snýr að al-
menningi, er sú að verðlag fer
stöðugt hækkandi, breytist nú
nær vikulega, verðskyn verður
ekki til, samkeppni um vöruverð
er úr sögunni. Enginn getur eltst
við að athuga vöruverð frá degi til
dags, enda er það ekki saman-
burðarhæft, þar sem mismunandi
forsendur liggja að baki verðlagn-
Framhald á bls. 4
FASTEIGNA
VIÐSKIPTI
Stórholt 11, glæsileg 4ra
herb. íbúð á 3. hæð ásamt
bílskúr.
Nú eru einungis 2 3ja herb.
íbúðir óseldar I fjölbýlis-
húsinu sem Eiríkur og Ein-
ar Valur s/f eru að byggja
við Stórholt. íbúðirnar af-
hendast tilbúnar undir tré-
verk og málningu eigi síðar
en 1.7. 1981. Húsið er nú
fokhelt.
Hafraholt 28, raðhús í
smíðum.
Mánagata 5, 4ra herbergja
íbúð á efri hæð í tvíbýlis-
húsi. Laus eftir samkomu-
lagi.
Mánagata 6, efri hæð í tví-
býlishúsi ca. 140 fm. íbúðin
er tvær samliggjandi stofur,
4 svefnherbergi, hol, eld-
hús, bað og þvottaherbergi
ásamt kyndiklefa og
geymslu í kjallara.
Hlíðarvegur 7, 3ja herb. í-
búð á 3. hæð ásamt íbúð-
arherbergi í risi og hlut-
deild í verslunarhúsnæði
og bílskúr í smíðum.
Þingeyri: Byggingarfram-
kvæmdir að 138 fm. einbýl-
ishúsi.
Vitastfgur 8, Bolungarvík,
mjög fallegt álklætt einbýl-
ishús á tveim hæðum.
Laust fljótlega.
Athugið, Hef flutt að Fjarð-
arstræti 15, (áður skattstof-
an og Bókhaldsstofa Guð-
mundar Kjartanssonar.)
Nýtt símanúmer er 4144.
ARNAR G.
HINRIKSSON
HDL.
Fjarðarstræti 15,
Sími4144
TILBODSVERÐ
Á KJÚKLINGUM:
Grillkjúklingar
Kjötkjúklingar
Kjúklingabringur
Kjúklingalæri
Kjúklingaleggir
Kjúklingavængir
Úr okkar eigin kjötvinnslu:
Forsmekkur aö jólaúrvalinu:
HANGIKJÖT:
Hangiframpartar
Hangilæri
Hangikjöt, úrbeinað
SVÍNAKJÖT:
Svínalærissneiðar
Svínakótelettur
Svínahamborgarhryggir
Svínabógar
Svínakambar
FISKHAKK
FISKFARS
FISKBORGARAR
NAUTAKJÖT:
Nautabuff
Nautagúllash
Nautafile
Nautalundir
T - bone steik
Nautahakk I. og II. flokkur
Hamborgarar
Lambahamborgarhryggir
Lambahamborgarlæri
Londonlamb
Lambasnitcel
Lambagúllash
Kindahakk
Beinlausir fuglar
SinarýUdfinnsson k (f.
Sími 7200 — Bolungarvík