Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 3
vesttirska
rRETTAELADID
Grímur Jónsson:
Allt í himnalagí — Maless, maless
FASTEIGNA-!
VIÐSKIPTI i
Þrátt fyrir fjögurra mánaöa
dvöl meðal Araba tókst mér
ekki aö nema mörg orö úr máli
þeirra. Eitt orö læröi ég þó fljót-
lega, en þaö var „maless", sem
þýöir einfaldlega, — allt í besta
lagi. — Arabar hafa einstakt lag
á að klúðra öllum hlutum og
þegar engin leiö er sjáanleg út
úr öngþveiti og róðaríi er sest
niöur, yppt öxlum, slegiö út
höndum og . .. maless, maless.
Mér flaug í hug þetta ara-
bíska oröatiltæki þegar ég las
viötal viö umdæmisstjóra pósts
og síma á ísafirði í VF frá 12.
apríl sl., en þar mátti meðal
annars lesa ,,Mjög oröum aukið
aö bilanir séu tíöar” en síðan
farið nokkrum oröum um tvær
bilanir, sem heföu orðið á stutt-
um tíma.”
Þaö mætti ætla aö umdæmis-
stjórinn hafi verið fjarverandi
Grímur Jónsson
seinustu misserin og heföi
enga hugmynd um hvað gerst
hefur í hans embættisumdæmi.
Hvað kemur manni í hans stööu
til þess aö láta hafa eftir sér
annan eins bölvaöan þvætting?
Ég kom til starfa á flugvelli
eftir fjarveru um tíma fyrir um
það bil hálfum mánuöi og get
ég fullyrt og sannaö að vart
hefur líöiö sá dagur aö ekki hafi
skapast hér vandamál vegna
truflana á símakerfi. Beina sam-
bandið viö flugstjórnarmiöstöð
hefur rofnað á hverjum degi aö
heita má í lengri eöa skemmri
tíma og í tilfellum allt sjálfvirka
langlínusambandiö og þar meö
allt fjarskiptasamband við flug-
vélar á Vestfjaröasvæöinu. Það
er fyrst og fremst aö þakka
einstakri lipurö og þolinmæöi
starfsstúlkna Lí aö ekki hafa
orðið verulegar truflanir á flugi.
Ég er ekki aö tala um truflan-
ir á innanbæjarkerfi, eöa
skammtímabilanir sem hugsan-
lega má rekja til ófyrirsjáan-
legra atvika.
Vaxtarræktaimerai eru fallegir
- segir íris GUstafsdóttir sem var með námskeið í líkamsrækt í
Félagsheimilinu Hnífsdalfyrir skömmu
Margir fussuðu og sveiuðu
yfir vaxtarræktarfólkinu sem
þátt tók f íslandsmeistaramót-
inu á Broadway fyrir
skemmstu. Þóttu kropparnir af-
myndaðir og jafnvel óhugnan-
legir.
íris Gústafsdóttir, sem var með
líkamsræktarnámskeið í Félags-
heimilinu Hnífsal á dögunum, er
á öndverðum meiði. Henni finnst
þetta vöðvabúntaða fólk margt
hvert mjög flott, eins og hún
orðar það, en viðurkennir að ekki
sé þar með sagt að allur almenn-
ingur eigi að vera svona í vextin-
um. Hún bendir líka á að vaxtar-
ræktarfólkið sé ekki alltaf jafn
vöðvabert og á mótum. það tálgi
sig niður fyrir keppnir og pumpi
upp vöðvana. Konur beri það
hversdags ekki utaná sér að þær
stundi líkamsrækt að öðru leyti
en því að þær séu óvenju spengi-
legar.
Iris kemur með erlend vaxtar-
ræktarblöð og bendir á frægt
vaxtarræktarfólk af báðum kynj-
um. Blm. kvartar undan því að
stúlkurnar séu ekki sexý. Þá flettir
fris uppá vaxtarræktarkonu sem
ekki er búin að tálga sig niður.
..Heldurðu að þú mundir ekki
snúa þér við á eftir þessum kven-
manni?” segir hún í faglegum tón.
Blm. neitar að svara spurning-
unni. íris játar að þó hún hrífist af
fris sýndi blaðamanni nokkrar æfingar í æfingasalnum f Hnífsdal.
stæltum karlmönnum, þá sé ekki
þar með sagt að hún leiti sér að
manni sem sé svona í laginu.
VAXTARRÆKTARÁHUGI
DVÍNANDI
Iris hefur undanfarin þrjú ár
unnið sem þjálfari hjá Æfinga-
stöðinni Engjahjalla í Kópavogi.
Hún byrjaði sjálf að æfa í upphafi
vaxtarræktaræðisins '81 og kom
fram á sýningu í Háskólabíói þá
um haustið. Á sýninguna mætti
alþjóðlegur sænskur meistari í
vaxtarrækt og jók mjög áhuga á
greininni hérlendis. Fyrsta fs-
landsmótið var síðan haldið vorið
eftir og tók Iris þátt. Fljótlega
fór hún svo út í þjálfun og hætti
þá æfingum að mestu. „Því mið-
ur". segir hún og grípur með
vanþóknun um lærin.
fris segir karlmenn enn sem
komið er vera iðnari við vaxtar-
ræktina. konurnar fari meira í
leikfimi. Vaxtarræktaræðið segir
hún hafa sjatnað svolítið.
GERA ÆFINGARNAR
RÉTT
íris var spurð hvað fertugur
maður sem ekki hefur stundað
íþróttir þurfi að varast þegar hann
hefur líkamsrækt með tækjum.
Þaö hlýtur aö kalla á andsvör
þegar embættismaður, sem
ætla mætti aö hefði hvað mest-
an skilning á því vandræðaá-
standi, sem ríkir og ríkt hefur í
símamálum Vestfirðinga hefur
ekkert til málanna að leggja
annaö en „allt í himnalagi”,
eöa eins og Arabarnir mundu
oröa það — maless, maless. —
Þaö getur veriö aö þessi
„allt í himnalagi”stefna um-
dæmisstjórans Erlings Sören-
sen falli yfirboöurum hans í
Reykjavík vel í geö og gefi þeim
ástæöu til þess aö ýta vanda-
málum vestfirskra símnotenda
til hliðar, en lítil reisn er yfir
þeim embættismanni, sem get-
ur lagst svo lágt aö neita opin-
berlega staöreyndum sem eru á
vitorði hvers manns.
„Það er fyrst og fremst að taka
ekki of mikið á. byrja með létt lóð
og gera æfingarnar oft frekar en
að auka þyngdirnar. Sama gildir
um þá sem vilja létta sig, þeir
ættu að gera æfingarnar 15—18
sinnum og skokka með. Mikil-
vægt er að gera æfingarnar rétt.
Og eins og allir vita þá er matar-
æðið mikilvægt".
fris var ekki einungis leiðbein-
andi í vaxtarræktarsalnum, held-
ur hélt hún námskeið í Aerobic
leikfimi. En hvað er Aerobic?
„Það eru æfingar við músík. Við
byrjum á að hita upp við rólega
músík. síðan koma hraðari lög og
þá er tekið meira á, gerðar maga-
og rassæfingar svo eitthvað sé
nefnt. Síðar kemur aftur hæg
músík og þá er teygt á".
LÍÐUR BETUR
„Fólk er alltaf að sjá betur og
betur hvað það hefur gott af því
að stunda einhverja íþrótt," segir
fris. „Það finnur að því líður vel á
meðan það stundar líkamsrækt.
Um leið og það hættir slappast
það og hættir að líða jafn vel".
Sennilega geta flestir tekið
undir þetta með fris.
Tækjasalurinn í Félagsheimil-
inu Hnífsdal er opinn alla virka
daga 16—21:30 og á laugardög-
um 14—18.
ISAFJORÐUR:
Hrannargata 10, 3ja herb. j
íbúö á efri hæö laus.
Stórholt 9, 4ra herb. íbúð á I
1. hæó.
Sundstræti 29, 2ja herb. |
íbúð á 2. hæð. íbúðin er |
laus. I
I
Strandgata 5 a, lítið ein- |
býlishús. Laust 1. júní.
Seljalandsvegur 85, lítið |
einbýlishús.
Strandgata 5, ca. 120 ferm. I
íbúð á neðri hæð í tvíbýlis- J
húsi. Laus fljótlega.
Túngata 3, 5 herb. íbúð í I
suðurenda. Allt sér.
Mjallargata 9, einbýlishús ■
úr timbri. Stór eignarlóð. I
Laust 1. mai.
Fitjateigur 6, ca. 130 ferm. ■
einbýlishús. Getur losnað J
fljótlega.
Lyngholt 11, fokhelt einbýl- I
ishús ásamt bilskúr.
Silfurgata 12, lítið einbýlis- |
hús. Laust fljótlega.
Góuholt 5, rúmlega fokhelt J
135 ferm. einbýlishús ásamt ■
bílskúr.
Stekkjargata 4, lítið einbýl-
ishús. Selst með góðum
kjörum, ef samið er strax.
BOLUNGARVÍK:
Stigahlíð 2, 2ja herb. íbúð
á jarðhæð.
Þjóðólfsvegur 14,3ja herb.
íbúð á 2. hæð.
Holtabrún 16, 4ra herb.
ibúð á 1. hæð.
Heiðarbrún 4, 138 ferm.
einbýlishús ásamt bílskúr.
Arnar Geir
Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1,
ísafirði sími 4144