Vestfirska fréttablaðið - 03.10.1985, Síða 1
39. tbl. 11. árg.
vestfirska
3. okt. 1985
FRETTABLASIS
Umboð Flugleiða á Vestfjörðum:
Patreksfjörður: Laufey Böðvarsdóttir, sími 1133
Tálknaflörður: Helga Jónasdóttir, sími 2606
Bíldudalur: Eyjólfur Þorkelsson, sími 2126
Þingeyri: Davíð Kristjánsson, simi 8117 FLUGLEIÐIR
VORUMAÐ TAKA UPP
FULLTAF
NÝJUM VÖRUM
Verslunin
ísafirði sími 3103
Strandasýsla:
Hrófbergshreppur
og Hólmavíkur-
hreppur samelnaðlr
Ákveðið hefur verið að sameina
Hrófbergshrepp og Hólmavikur-
hrepp í Strandasýslu. Að sögn
Halldórs Halldórssonar á Hófbergi
oddvita Hrófbergshrepps er reiknað
með að sameiningin gangi i gegn
fyrir næstu sveitarstjómarkosning-
ar sem em á sumri komanda.
Hann sagði að hagkvæmnisá-
stæður vægju þyngst við samein-
inguna, Hrófbergshreppur væri
það fámennur, aðeins 27 íbúar, að
vonlaust væri að hreppurinn gæti
staðið undir þeim útgjöldum sem
honum væru lagðar á herðar. Þátt-
taka í rekstri skóla og fleiri kostn-
aðarhðir væru hreppsfélaginu al-
gjörlega ofviða. Hann sagði að
viðræður hefðu farið fram milli
hreppsnefndanna í viðkomandi
sveitarfélögum og væru menn al-
gjörlega á einu máli um ágæti
sameiningar.
Stjóraskipuð nefod vinnur nú
að tillögum um það hveraig
standa beri að niðurfellingu verð-
jöfnunargjalds af raforku. Sem
kunnugt er lýsti iðnaðarráðherra
yfir þeirri stefnu sinni að gjaldið
skyldi fellt niður.
Nefndin sem fyrst tók til starfa
snemma á árinu 1984, skilaði
tillögum síðastliðið haust, en
þær náðu ekki fram að ganga. Þó
var verðjöfnunargjald þá lækkað
úr 19 prósentum i 16 prósent.
Nefndin tók svo aftur til starfa og
nú er von á tillögum. Birgir ís-
leifur Gunnarsson formaður
nefndarinnar tjáði blaðinu að al-
ger einhugur ríkti um það að
gjaldið skyldi fellt niður. Tillögur
nefndarinnar munu að líkindum
fela það í sér að óarðbærar fram-
kvæmdir Orkubús Vestfjarða og
RARIK yrðu greiddar af fjárlög-
um ríkisins, sérstakt aukaframlag
kæmi til vegna orkusölu til hús-
hitunar, og að ríkissjóður yfirtæki
verulegan hluta af langtímalán-
um fyrirtækjanna. Birgir sagði að
tillögur nefndarinnar yrðu á þann
veg að neytendur á orkuveitu-
svæði RARIK og Orkubús Vest-
fjarða, þyrf tu ekki að bera aukinn
kostnað af niðurfellingu verð-
jöfnunargjalds af raforku.
Birgir Valdimarsson, útgerðarstjóri Hafþórs:
Dómsáttin betri en veiði
tap og olíueyðsla
Eins og flestum mun kunnugt var
rækjutogarinn Hafþór tekinn í
grænlenskri landhelgi, rétt fyrir
síðustu helgi. Það var danskt varð-
skip sem stóð Hafþór að meintum
ólöglegum veiðum á Dombanka við
miðlínuna milli Grænlands og Is-
lands.
Voru skipin lögð af stað til hafn-
ar í Nuuk í Grænlandi þegar mál-
inu var lokið með dómssátt, greiddi
útgerð skipsins eina og hálfa
milljón króna og fékk Hafþór þá
frelsi sitt á ný og hélt á miðin. Áttu
skipin þá eftir 800 sjómilna sighngu
til Nuuk höfuðborgar Grænlands,
en hún er á Vesturströndinni. Birgir
Valdimarsson útgerðarstjóri Haf-
þórs sagði í samtali við Vf. að hann
væri þokkalega sáttur við niður-
stöður málsins, upphæðin sem
hann hefði greitt í dómssátt vægi
ekki svo þungt á metunum, þegar
ohukostnaður og hugsanlegt nokk-
urra daga veiðitap væri tekið inní
reikninginn. Hann sagðist í sjálfu
sér ekkert gagnrýna mælingar
danska varðskipsins, bæði það og
þyrla sem var því til aðstoðar væru
mun betur búin tækjum til stað-
setningar, heldur en Hafþór. Skipið
væri alltaf að veiðum alveg við
miðlínuna og það væri alltaf hætta
á að svona mistök kæmu upp.
Rækjutogarinn Hafþór er eign
Hafrannsóknarstofnunar, en
nokkrar rækjuverksmiðjur á ísa-
firði hafa haft hann á leigu.
Skipstjóri er Aðalbjöm Jóakims-
son.
Hafþór hefur frá áramótum
landað 604 tonnum af rækju. Afla-
verðmæti þess er um það bil 67
milljónir króna. Hann var frá veið-
um í rúman mánuð í sumar þegar
unnið var á vegum Hafrannsókn-
arstofnunar.
Skutulsfjarðarbraut:
oksins lýsing!
Orkubú Vestfjarða mun innan
skamms hefjast handa við að lýsa
upp Skutulsfjarðarbraut á þeim
köflum þar sem lýsingu hefur skort.
Er áætlað að verkinu verði lokið i
nóvember i haust samkvæmd samn-
ingi sem Orkubúið hefur gert við
Vegagerð ríkisins en það er Vega-
gerðin sem kostar framkvæmd
verksins. Áætlað er að reistir verði
34 staurar á 1700 metra kafla og á
verkið að kosta rúmar tvær milljón-
ir. Má þvi segja með noltkrum sanni
að bjartari timar séu framundan i
samgöngum innanbæjar á Isafirði.
Skutulsfjarðarbraut.
Bjartara framundan.
Jakob Jakobsson fiskifræðingur í pontu.
Fisk veiðistefna:
Fjörugur fundur
í Hnífsdal
Almennur fundur um fiskveiði-
mál var haldinn i Félagsheimilinu í
Hnffsdal mánudagskvöld sfðastlið-
ið. Á fundinn mættu til framsögu
þeir Jakob Jakobsson fiskifræðing-
ur og Halldór Ásgrimsson sjávar
útvegsráðherra. Gffurlegt fjöl-
menni var á fundinum og talið að
tæplega 400 manns hafi mætt til
hans.
Jakob Jakobsson talaði um
fiskifræði og þær forsendut sem
aflaspár Hafrannsóknarstofnunar
eru byggðar á, hann rakti hugsan-
legar ástæður fyrir sveiflum í afla
frá sjónarhóli fiskifræðinga. Hall-
dór Ásgrímsson talaði um nauðsyn
þess að hafa stjórn á fiskveiðum og
varði kvótakerfið. Að því búnu
hófust umræður og tóku margir
fundarmanna til máls. Má þar
nefna Jón Pál Halldórsson,
Kristján Jónasson, Halldór Her-
mannsson, Einar Kr. Guðfinnsson,
Einar Garðar Hjaltason og Svein-
bjöm Jónsson.
Urðu umræður fjörugar á köfl-
um og sýndist sitt hverjum, var hart
deilt á ráðherra vegna kvótakerfis-
ins og framkvæmdar á þvi. í heild
var fundurinn mjög fróðlegur og
gagnlegur.