Vestfirska fréttablaðið - 19.12.1985, Qupperneq 1
11. árg. 51. tbl.
vestfirska
19. des. 1985
FRETTABLADIS
EIMSKIP
STRAN DFLUTNINGAR
Simar:
Skrifstofa 4555
Vöruhús 4556
Óskum viðskiptavinum okkar og
starfsfólki gleðilegra jóla, árs og
friðar, með þökk fyrir viðskipti og
samstarf á líðandi ári.
-----------------q
Jólasveinamir
koma í heimsókn kl. 16.00
á laugardaginn og á
Þorláksmessu kl. 20.00.
Sinarffuð(jinnszon h.(.
£ími J200 - 1{I$ Sol iMtja’iOík
Tónlistarskólinn á Isafirði hélt sína árlegu jólatónleika um síðustu helgi. Komu þar fram allir nemendur skólans
og léku fyrir prúðbúna tónleikagesti. A myndinni sést ungur nemandi leika á flautu ásamt Jónasi Tómassyni,
tónskáldi og kennara við skólann.
Á laugardaginn síðastliðinn var kveikt á jólatré í garðinum á Austurvelli á ísafirði. Jólatréð er gjöf frá vinabae
ísafjarðar í Danmörku, Hróarskeldu. Þegar kveikt hafði verið á trénu, söng Sunnukórinn jólasálma og síðan
komu jólasveinar í heimsókn.
Isafjörður:
Hallarekstur
a
flskvinnslu
* ^
— Ishúsfélag Isfírðinga tapar
milljón á mánuði
Ishúsfélag Isfirðinga hefur á
þessu ári verið rekið með tapi sem
svarar til milljónar á mánuði, eftir
því sem Þorleifur Pálsson skrif-
stofustjóri Ishúsfélagsins lætur
hafa eftir sér I Fiskifréttum. Þetta
gerist þrátt fyrir tiltölulega litlar
skuldir á húsinu og stöðugt og gott
hráefni allt árið ef frá er talinn
hálfur mánuður I október. Húsið
vinnur afla frá tveimur togurum og
er reiknað með þvi að framleiðslu-
verðmætið verði nálægt 200 mill-
jónum króna f ár.
Forsvarsmenn fiskvinnslunnar í
landinu gengu á fund stjómvalda
fyrir skömmu til þess að greina frá
vanda fiskvinnslunnar. Fram kom
að tap á rekstri vinnslunnar næmi 8
— 9% af tekjum og hefði staðan
ekki verið verri um langan tíma.
Forráðamenn fiskvinnslunnar hafa
krafist þess að gengið verði leiðrétt.
Þetta eru vissulega athyglisverð
tíðindi þegar það er haft í huga að
útlit er fyrir nokkra aukningu í afla,
miðað við tímabilið janúar til sept-
ember á þessu ári frá í fyrra. Þetta
kemur fram í tölum sem birtast í
nýjasta tölublaði Ægis.
Alþingi:
Verð-
j öfnunar gj ald
á raforku
ekkl fellt niður
— Iðnaðarráðherra
leggur fram frumvarp
um óbreytt verðjöfnunargjald
Iðnaðarráðherra hefur nú lagt fyrir
Alþingi frumvarp þess efnis að
verðjöfnunargjald á raforku verði
óbreytt á næsta ári, eða 16 prósent
eins og það nú er. Fyrrverandi iðn-
aðarráðherra Sverrir Hermannsson
hafði áður lýst yfir þeirri stefnu að
þetta gjald skyldi fellt niður.
Ríkisstjórnin skipaði siðan nefnd
til þess að vinna að tillögum um
hvemig best yrði staðið að niður-
fellingu gjaldsins. Meirihluti
nefndarinnar lagði til að gjaldið
yrði fellt niður og rafveitunum
bættur tekjumissirinn með þvi að
ríkið yf irtæki skuldir þeirra.
Kristján Haraldsson orkubús-
stjóri sagði í stuttu samtaii við Vf.
að tekjur Orkubúsins af verðjöfn-
unargjaldi næmu um það bil 85
milljónum á ári. Hann sagði að ef
gjaldið yrði fellt niður og ríkið tæki
á sig skuldir Orkubúsins, myndi það
gera reksturinn hagkvæmari. Yrði
gjaldið hinsvegar fellt niður bóta-
laust þýddi það 25 til 30 prósenta
hækkun til neytenda.