Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1987, Blaðsíða 1
FRETTABLADIÐ
SOLOOtA
vestfirska
N;UtóÍWM.||»B
cr óháð ollum
stjórnmálaflokkum
og nýtur engra
opinberra styrkja.
„Verðum að
horfast í augu við
staðreyndiru segir
Ulfar Agústsson
formaður
Kaupmannafélags
Vestfjarða.
Hver verslun á
Vestfjörðum með
450-500 viðskipta-
vini. Þyrftu að
vera 1500 ef
verslunin ætti
að bera sig.
sjá bls 7.
80 fyrirtæki
tóku þátt í
firmakeppni
Knattspyrnuráðs.
sjá frásögn og
niyndir á bls 5.
Sýslumaður
svarar fyrir
hreppstjóra
sjá bréf á bls 3.
Gengið falsað
fyrir
höfuðborgina
sjá bls 11.
Fyrsti
símafundurinn
á Vestfjörðum?
sjá bls 6.
100 rækju
milljónir
aftur vestur?
sjá baksíðu.
Halldór Guðmundsson formaður bæjarráðs ísafjarðar:
Oeðlileg afskiptasemi
þjóðminjavarðar
— eigum að leyfa sóknarnefnd að vinna þau störf
sem söfnuðurinn fól henni, án afskipta
“Ég lít svo á að þetta sé óeðli-
leg afskiptasemi í þjóðminja-
verði. Ég tel að með þessu sé
hann kominn út fyrir sitt
verksvið. Hann var beðinn um að
segja sitt áiit á því hvort endur-
byggja ætti kirkjuna, ekki hvern-
ig ætti að gera það,“ sagði Hall-
dór Guðmundsson formaður
bæjarráðs í samtali við Vestfirska
fréttablaðið.
Eins og sagt hefur verið frá á
síðum Vestfirska mun Halldór
sitja fyrir svörum á ritstjórn
blaðsinsáþriðjudögum frá kl. 18-
19.Vestfirska fréttablaðið notaði
tækifærið á þriðjudaginn og
spurði Halldór álits á bréfi
þjóðminjavarðar, þar sem lagt er
til að ísafjarðarkirkja verði
endurbyggð og notuð áfram sem
sóknarkirkja.
„ Afstaða mín sem bæjarbúa og
bæjarfulltrúa hefur komið fram.
Það æskulýðs og safnaðarstarf
sem vinna þarf. rúmast ekki inn-
an veggja gömlu kirkjunnar. Það
þarf að gera ráð fyrir slíkri félags-
aðstöðu frá upphafi" sagði
Halldór. „ Menn skyldu átta sig
á því að umræða um nýbyggingu
kirkjunnar er ekki ný bóla. Mér
finnst að það eigi að leyfa sóknar-
nefnd og byggingarnefnd að
vinna þau störf sem þesar nefndir
hafa verið kjörnar til. Ég minnsta
kosti ber fyllsta traust til þeirra.
En í þessu máli virðist skorta
nokkuð á samstöðu bæjarbúa
eins og svo oft áður. Nú sem
endranær virðist fólki finnast að
þeir sem til forystu hafa veríð
kjörnir séu ekki til þess fallnir."
Krossholt:
Settu
óskráð
heims-
met í
snú-
snú
16 skólabörn í Krossholti á
Baröaströnd settu um helgina
óstaðfest heimsmet í snú-snú.
Þau þreyttu leikinn í 28 klukku-
stundir samfleytt. Aheitum var
safnað og hétu menn ákveðinni
upphæð fyrir hverja klukku-
stund. Alls söfnuðust tæpar 60
þúsund krónur. Féð rennur til
þess að kosta árlega skíðaferð
nemenda á ísafjörð. Haft var
samband við heimsmetabók
Guinness og er ekki skráð þar
neitt heimsmet í snú-snú. Til þess
að slíkt met fáist viðurkennt
þurfa viðurkenndir dómarar að
vera viðstaddir þannig að hér er
um óopinbert heimsmet að ræða.
Torfi Steinsson skólastjóri í
Krossholti sagði í samtali við
Vestfirska fréttablaðið að áður
hefðu nemendur aflað fjár fyrir
árlega skfðaferð sína með því að
hlaupa tiltekna vegalengd, en
þetta væri í fyrsta skipti sem svo
óvenjulegri aðferð væri beitt.
30 nemendur sitja á skólabekk
í Krossholti og er það 50% aukn-
ing frá fyrra ári.
Fjöldinn á
Magabeltið
Kabarettinn „ Úr magabeltinu“ sem Litli Leikklúbburinn á ísafirði ásamt
B.G. flokknum, hefur sýnt að Uppsölum á Isafirði undanfarnar vikur hefur
notið mikilla vinsælda. Fimm sýningar hafa verið haldnar fyrir fullu húsi
og ekkert lát virðist á vinsældum sýningarinnar.
Sýningum verður fram haldið eitthvað fram í desember eftir því sem aðsókn
leyfír. A myndinni brosa þær til Ijósmyndarans þær Vigdís Jakobsdóttir
(að ofan) og Sigríður Jakobsdóttir ( að neðan) en þær eru kvnnar sýning-
arinnar.
Allar deildir opnar laugardaginn
28. nóvember, frá kl. 13:00 - 17:00
I ilboó og kynningar Kaffi á könnunni
ÍJtnu 7200
Hegiuoundnar reroir
frá Reykjavík 6-7 sinnum í
mánuði til Vestfjarða
RÍKISSKIP
NÚTÍMA
FLUTNINGAR