Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1987, Blaðsíða 8
8
Þegar þú kemur suður, þá tekur
þú við bílnum frá okkur á
Reykjavíkurflugvelli.
Svo skilur þú hann eftir á sama
stað, þegar þú ferð.
r' T7 VQ T T? BíIa!eiga
IjTli I OTT\ Carrental
BORGARTÚNI 24 — REYKJAVÍK — SÍMI 11015
Við bjóðum frá Bandaríkjunum
á hagstæða dollaraverðinu:
HFR - 220 karfavélasamstæður.
GFM - afhreistara. Nýja og endurbyggða.
Einnig úr ryðfríu stáli.
HÖFUM KAUPANDA AÐ
BAADER 161,HAUSUNAR- OG
AÐGERÐARVÉLUM.
Getum ávallt boöiö BAADER flökunar- og
flatningsvélar. Uppgerðar eða yfirfarnar.
EFTIRTALDA FRYSTISKÁPA
OG TÆKI HÖFUM VIÐ TIL SÖLU
1 stk. Kværner Kulde, 11 stöðva 19,6m2, árgerð 1982.
2 stk. Sabroe, 11 stööva, 19,6m2, árgerð 1980, fyrir
ammoníak.
1 stk. 1100m3 Halls frystipressa, 90 kw mótor og kútar
fyrir Freon.
Hamraborg 1,
Kópavogi,
sími46070, 641607.
Fallegir aðventukransar
og kerti
Jólaskreytingar
Listmunir úr bronsi
Eigum kertastjaka
af öllum gerðum
TOPPBLÓMIÐ
Sólgötu 11
ísafirði
Rafmagnsleysi á Vestfjörðum:
t5
vestíirska
TTABLADID
Fyrirtæki verða
fyrir tjóni
„— Orkubúið er alls ekki bótaskylt“
segir Kristján Haraldsson orkubússtjóri
„Nei, Orkubú Vestfjarða er
ekki skaðabótaskylt. í 37. grein
reglugerðar um starfsemi
Orkubús Vestfjarða er tekið
fram að tjón sé ekki bótaskylt
verði rafmagnstruflanir af
völdum frosts, náttúruhamfara
eða af öðrum óviðráðanlegum
orsökum,“ sagði Kristján Har-
aldsson orkubússtjóri í samtali
við Vestfirska fréttablaðið.
Talsverðar truflanir urðu á
rafmagni fyrir skömmu af
völdum veðurs. Bilanir urðu á
línunni milli Bolungarvíkur og
Breiðadals. Lóð eru hengd á
einangrara línunnar þar sem
hún liggur yfir fjallið til þess að
koma í veg fyrir að hún sveiflist
til í vondum veðrum. ísing
hlóðst á línuna á þessum slóð-
um og slitnaði annar fasinn.
Línan slóst síðan í staurinn og
sló út rafmagninu. Veruleg
sveifla varð á spennunni við
þessar aðstæður og nokkurn
tíma tók fyrir starfsmenn Orku-
búsins að átta sig á því hvar bil-
unin væri.
Vestfirska fréttablaðinu er
kunnugt um mörg fyrirtæki sem
urðu fyrir óþægindum og tjóni
vegna spennufalls, en það hefur
afar slæm áhrif á viðkvæm tæki
á borð við tölvur og fleira.
Kristján Haraldsson orku-
bússtjóri tók hins vegar af allan
vafa um skaðabótaskyldu
Orkubúsins eins og fram kemur
hér að ofan.
Hjúkrunarfélag Yestfjarða:
Slæleg vinnubrögð
„Fjórði áfangi nýbyggingar
Fjórðungssjúkrahússins á Isafirði
er nú 7 mánuðum á eftir áætlun og
er Ijóst að ekki verður um flutning
að ræða á starfsemi gamla hússins
í það nýja fyrr en a næsta ári. Lýsir
fundurinn vanþóknun sinni á þess-
um drætti og átelur viðkomandi
ráðamenn harðlega fyrir slæleg
vinnubrögð í þessu sambandi, því
ekki er hér um að kenna fjárskorti.
Fundurinn lýsir áhyggjum sín-
um yfir viðvarandi ástandi á gamla
sjúkrahúsinu, þar sem sjúklingar
og starfsfólk þarf að gera sér að
góðu hcilsuspillandi húsnæði, lc-
legan aðbúnað og óviðunandi
vinnuaðstöðu, sem gerir markvissa
hjúkrunar- og læknismeðfcrð allt
að því ómögulega. Með hliðsjón
af því að þetta hefur viðgengist í
tugi ára án endurbóta er öll seink-
un á byggingarframkvæmdunum
óafsakanleg."
Petta kemur fram meðal annars
í ályktun sem samþykkt var á fé-
lagsfundi í Vestfjarðadeild Hjúkr-
unarfélags Vestfjarða. Fundurinn
skorar á byggingarnefnd Fjórð-
ungssjúkrahússins, alþingismenn
Vcstfirðinga, fjármálaráðherra,
heilbrigðis- og tryggingaráðherra
og sveitarstjórnir á norðanverðum
„Vissulega hefðu framkvæmdir
getað gengið betur. Því verður
ekki á móti mælt. Sú umræða og
þau skrif sem fram hafa farið um
þessi mál að undanförnu eru mál-
inu hinsvegar ekki til framdráttar
hvorki innan bæjar né utan,“ sagði
Halldór Guðmundsson formaður
bæjarráðs þegar málefni Fjórð-
ungssjúkrahússins bar á góma þeg-
ar Halldór sat fyrir svörum á rit-
stjórn á Vestfirska fréttablaðsins á
þriðjudag.
„Ég tel að þeir sem á annað borð
hafi lesið grein formanns bygg-
Vestfjörðum að leggjast nú á eitt
til að nýja sjúkrahúsið á ísafirði
verði fullgert sem allra fyrst.
ingarnefndar um þcssi mál scu
stórum fróðari um það hvernig
þessi mál hafa í rauninni gengið
fyrir sig“ sagði Halldór að lokum.
Á fundinum með Halldóri kom
einnig fram að á sameiginlegum
fundi þeirra sem að sjúkrahúss-
b.yggingunni standa sem haldinn
var í Reykjavík fyrir skemmstu,
kom fram að vonir eru bundnar
við að takist að Ijúka framkvæmd-
um snemma á næsta ári.
Halldór verður við á ritstjórn
Vestfirska fréttablaðsins á næsta
þriðjudag frá kl 18-19.
S
Isafjörður:
„Engum
tíl framdráttar hvorki
innan bæjar né utan“
„Reynum að nota
hagkvæmasta
flutningsmátann“
— segir Armann Leifsson
Vegna skrifa frá óánægðum
viðskiptavini í síðasta tbl Vest-
firska fréttablaðsins um hrakn-
ingasögu gáms á leið frá Bol-
ungarvík til Flateyrar vildi
Ármann Leifsson vöruflutn-
ingabílstjóri í Bolungarvík
koma nokkrum athugasemdum
á framfæri.
Ármann sagði að fyrir mann-
leg mistök hjá afgreiðslumanni
í Bolungarvík hefði fylgibréf
gámsins ekki farið með honum
rétta boðleið. Ármann sagði að
það væri ekkert nýtt þótt vörur
Á suðurfirðina væru sendar á
sem hagkvæmastan hátt á
áfangastað. Mun ódýrara væri
að senda nokkra pakka stystu
leið með skipi milli fjarða í stað
þess að aka yfir heiðar á tíu
hjóla trukk hálftómum. Greiðir
Ármann sjálfur flutningskostn-
að með skipi í tilfellum eins og
þeim sem um ræðir.
Ármann vildi að lokum
ntinna bréfritara á að það er
mannlegt að gera mistök.
Mannleg mistök hefðu orðið í
þessu tilfelli og hefðu viðkom-
andi beðist afsökunar á því.