Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1987, Qupperneq 4
4
t5
vestlírska
TTABLASIO
Hjá okkur
fæst ýmislegt
í jólapakkann
t.d. speglar,
snyrtitöskur,
sundpokarog
frábærar grifflur
á smáfólkið.
Hinar þekktu snyrtivörur frá
REVLON og JADE.
Einnig gjafakassar fyrir herrana.
OPNUNARTÍMI í DESEMBER
Alla daga nema sunnudaga.
Laugardag 5. des. kl. 9 - 16
Laugardag 12. des. kl. 9 - 18
Laugardag 19. des. kl. 9 - 20
Miðvikud. 23. des. kl. 9 - 20
LOKAÐ AÐFANGADAG
HÁRGREIÐSLUSTOFA
SNYRTIVÖRUVERSLUN
\/ AÐALSTRÆTI 11 ÍSAFIRÐI SÍMI 3517
BOLVÍKINGAR!
Þeim, sem ætla að setja Ijós í kirkju-
garðinn á aðventu, er vinsamlega bent
á eftirfarandi:
• Athuga að kaplar séu í góðu lagi.
• Hafa tengingar öruggar.
• Hafa jarðtengdar klær á kapalenda.
• Ekki hafa stærri perur en 25 wött.
Kirkjugarðsvörður.
FORNÁM
Tökum við nýjum nemendum í fornám eftir
áramót. Kennslugreinar eru: íslenska,
danska, enska, stærðfræði og íþróttir.
Kjörið tækifæri fyrir þá sem ekki hafa lokið
grunnskólaprófi.
Umsóknir sendist Héraðsskólanum Núpi. 471
þingeyri.
Skólastjóri.
„Eitt er að vilja, annað að gera...“
Framhald af grein Sigurðar Jóhannssonar
vegna sjúkrahússmálsins
„STÓRA BOMBAN"
Stóra bomban í sjúkrahúsmálinu í
dag er uppsögn Einars Hjaltasonar
yfirlæknis. Undirritaður tekur heils
hugar undir það að mikil eftirsjá er
að Einari. Og hvað byggingarnefnd
viðkemur hefur samstarfið við hann
verið með ágætum. Einar hefur alla
tíð lagt sig í líma við að ýta sjúkrahús-
málinu áfram. Að honum hafi þótt
ganga seint láir enginn. Enginn er
heldur undrandi á, þótt hann taki
góða stöðu er honum býðst annars
staðar. Þannig ganga málin einfald-
lega fyrir sig. Góðir menn eru eftir-
sóttir. Og síðastur allra mun for-
maður byggingarnefndar misvirða
það við Einar Hjaltason þótt hann
noti tækifærið, þegar hann segir upp
og þrýsti á um að ljúka byggingunni.
Svo sammála höfum við verið ym
nauðsyn þess og talið það forgangs-
verkefni.
Það eru hinsvegar helber ósannindi
hjá Herði Högnasyni er hann heldur
því fram að yfirlæknirinn hafi sagt
upp störfum vegna þess að hann ætli
ekki að láta hafa sig að fífli. Hörður
veit miklu betur, en hyggst notfæra
sér stöðuna sem upp kemur, við upp-
sögnina. Hann veit að málið er til-
finningamál og auðvelt að gera úr því
úlfalda.
En stöldrum við og skyggnumst ör-
lítið um. í fundargerð stjórnar FSÍ
17. mars 1987 VI. lið, er greint frá
bréfi yfirlæknis, dags. 19.des. 1986 (
hefur því legið í salti í 3 mánuði) hvar
hann „fer fram á, að læknar við stofn-
unina hafi aðgang að lykluin að rann-
sóknarstofu, röntgendeild og sónar-
herbergi.!!! (Hverjir aðrir ættu frekar
að hafa þar lyklavöld?) Já það geta
komið upp mál, þar sem menn gefast
upp og láta ekki lengur hafa sig að
„fífli", enda var framkvæmdastjóra
falið að leysa málið í samráði við yfir-
lækninn.
TRÉSMIÐURINN OG VERKTAK-
INN
Margar eru kórvillurnar í grein
Harðar. En þó er verst, ásakanir hans
um að byggingarnefnd skyldi ekki
notfæra sér crfiðlcika hjá vcrktaka til
að reka hann frá störfum. Barna-
skapnum um að byggingarnefnd hafi
verið slíkt „ í lófa lagið „ hefur verið
svarað. Hitt skal eitt fullyrt, að
vandamálin er upp komu í kjölfar erf-
iðleika verktakans, hafa verið leyst á
skynsamlegri, fljótvirkari og ódýrari
hátt, en tillaga Harðar Högnasonar
gerði ráð fyrir. Sjálfs hans vegna
hefði þessi hluti greinarinnar betur
verið óskrifaður.
FÁUM ER ALLS VARNAÐ
Það væri synd og skömm að viður-
kenna ekki að í einu tilfelli hefur
einkastríð félaganna borið umtals-
verðan árangur. Þar á ég við 20 mill-
jón króna viðbótina til tækjakaupa,
sem er ýmsum hinn æðsti og eini
draumur. En líkt og sagnfræðinga er
oft háttur, freistast Hörður til að
leggja eigið mat á aðstæður og gengur
frásögnin þar eftir.
Á fundi byggingarnefndar með
sveitarstjórnarmönnum föstudaginn
13. mars 1987 var ákveðið að leita
eftir samþykki heilbrigðisráðuneytis-
ins á tækjalista samhliða var óskað
eftir heimild til lántöku. Öll bréf
þessu að lútandi voru komin í hendur
ráðuneyta, þingmanna og banka
strax næsta mánudag. Heilbrigðis-
ráðuneytið brá skjótt við og sam-
þykkti listann. Þáverandi fjármála-
ráðherra ákvað hinsvegar að lækka
upphæðina í 35 milljónir króna. Heil-
brigðisráðuneytið staðfesti lækkun-
ina með því að biðja heimamcnn um
að leggja fram forgangsröðun á tækj-
um með hliðsjón af ákvörðun fjárm-
álaráðherra. Öllum þingmönnum var
þetta kunnugt. Það tengist hins vegar
engu „ vonleysi byggingarnefndar"
að fjármálaráðherrann ákvað að gera
það fyrir flokksmenn sfna hér vestra
( enda mun hann hafa verið minntur
á gefin loforð) sem hann var búinn að
synja byggingarnefnd um. En hví
skyldi ekki vera sama „ hvaðan gott
kemurl!"
„KVARTAÐ UNDAN ÁHUGALEYSI
OG LINKU“
Með útboði 4. áfanga töldu menn
sig sjá fyrir. að hægt yrði að flytja
starfsemi sjúkrahússins yfir í nýja
húsið, er honum lyki. Áfanganum átti
samkvæmt útboði að ljúka 1. apríl
s.l. Margar ástæður eru fyrir því að
svo varð ekki.En til að gefa lesendum
smá yfirsýn yfir hina dáðlausu bygg-
ingarnefnd, sem annað tveggja lætur
hlutina seint eða aldrei frá sér fara,
skv. sérfræðilegu mati, birti ég hér
úrdrátt úr bréfi byggingarnefndar til
Heilbrigðisráðuneytisins frá S.júní
1986. Þarsegirm.a. eftiraðgetiðhef-
ur verið dagsetningar verkloka 4.
áfanga og umfangi hins 5.:
„En til að unnt sé að nýta húsið
strax að loknum 4.áfanga þarf nú þeg-
ar að ganga frá pöntun á ýmis konar
tækjum og búnaði.lækningatækjum,
sem öðrum, svo frágangur innanhúss
tefjist ekki af þeim sökum........
..Þungamiðjan í þessu öllu er þó auð-
vitað, að nægilegt fjármagn verði
tryggt á næsta ári (1987) til kaupa á
öllum þeim tækjum og búnaði sem til
þarf, svo unnt verði að hefja starfseini
sjúkrahússins strax að loknum 4.
áfanga.
Bygging sjúkrahússins hefur tekið
langan tíma, sem ekki þýðir að fárast
um í dag. En það væri ekki aðeins,
að illa væri farið með fjármuni, held-
ur ylli það gífurlegum vonbrigðum
heimamanna, ef við að loknum 4.
áfanga stæðum uppi með tilbúið
sjúkrahús, en óstarfhæft sakir tækja-
skorts. Slíkt má ekki ske."
Síðan er áréttuð nauðsyn þess að
ljúka byggingunni að fullu. Um það
segir:
„Eftir áratugs langa byggingarsögu
sjúkrahússins er þaö Vestfirðingum
mikið kappsmál að lokið verði við
húsið. Vér leyfum oss að vænta að
svo verði um hnúta búið, að á árinu
1987 flytjist starfsemin úr gamla hús-
inu og jafnframt að tímasettur verði
lokafrágangur hússins.
Lengur má það ckki dragast að
Vestfirðingar fái sjúkrahús sem rís
undir nafni.
Til að undirstrika þýðingu málsins
höfum vér sent ýmsum aðilum afrit af
þessu bréfi og er þeirra getið ncðan-
rnáls."
Tilnefndir aðilar er fengu afrit af
bréfinu voru: Framkvæmdadeild
I.R., Fjárlaga og hagsýslustofnun,
Jes Einar arkitekt, þingmenn Vest-
fjarða, Yfirlæknir FSÍ og sveitar-
stjórnir er aðild eiga að byggingunni.
En eitt er að vilja, annað að ráða, en
hið lakasta af öllu er að kenna öðrum
um allt er miður fer.
SJALDAN ER EIN BÁRAN STÖK.
Vera má að ég hafi fallið í þá gryfju
að elta ólar við atriði er ekki voru
svaraverð og grein mín því orðin svo
löng, sem hún ber með sér. En þar
sem éggaf í skyn að „pillugjöf" Harð-
ar væri ekki einangrað fyrirbæri, þá
má almenningur vel vita, að fyrrv.
héraðslæknir taldi sér sóma að því að
væna byggingarnefndina um „ rósemi
og hæversku" vegna þess að hún „
vinnurstarf sitt í sjálfboðavinnu" eins
og hann komst að orði.
Síðan endurhæfingardeildin tók til
starfa hafa æði margir sótt þangað.
Vonandi flestir til góðs. En trúi því
hver, sem trúa vill, að einmitt þessi
deild gaf tilefni til ámæla á hendur
formanni byggingarnefndar. I bréfi til
til stjórnar FSÍ, og sem ekki var haft
fyrir að senda nefndinni afrit af,er
því andmælt að geymslur skuli hafa
verið teknar undir endurhæfingar-
deildina. Þar segir:
„Nú hefur það skeð, að endurhæf-
ingardeildinni hefur verið úthlutað
geymslunum þrem um alla framtíð (!)
Einungis þurfti samráð starfsmanna
spítalans (!!!) við formanninn og arki-
tektinn. Vitað var um afnot endur-
hæfingardeildar af rúmageymslunni
undir nuddpott og er allt gott um það
að segja. Þar er rúmt pláss fyrir
pottinn, jafnvel þó herbergið væri
tvískipt með vegg. Kæmi hinn hluti
þess að góðum notum fyrir aðra starf-
semi deildarinnar. Öðru máli gegnir
um hinar geymslurnar. Þær ætlar
deildin að nota fyrir meðferðarbekki
og skrifstofu. Þegar tillit er tekið til
þess að endurhæfingarsalurinn er
73,5 fm. þá fáum við ekki skilið að
smáhluta hans var ekki hægt að stúka
af fyrir skrifstofu og bekkina. Er
spurning hvort að 168 fm (sundlaugin
ekki meðtalin) nýtist endurhæfingar-
deildinni, miðað við fyrirsjáanlegan
fjölda meðferðarsjúklinga."
Síðan er farið fram á að stjórn FSÍ
mótmæli vinnubrögðum formanns
byggingarnefndar (hvar kjarkinn
brast?) og biðja byggingarnefnd að
reyna framvegis að leita álits ráðandi
aðila á FSÍ, áður en stórfelldar breyt-
ingar eiga sér stað í nýbygging-
unni.(Lbr. mín)
Af hógværð benti byggingarnefnd
„hinum ráðandi aðilum" á, að auðvit-
að væri það heilbrigðisráðuneytið,
sem eitt hefði vald til að hvika frá
samþykktum teikningum. Enda tók
það ákvörðunina. Hitt fór ég aldrei
dult með, að ég studdi eindregið
breytinguna og taldi húsrýminu betur
varið fyrir endurhæfingadeildina, en
til að hýsa gömul rúm og einnota
pappírsvörur o.þ.h. Fyrir það er nóg
rými f þakhæð, sem hefur fermetra-
tölu hátt í grunnflöt gamla spítalans.
Það skal svo eftirlátið þeim er notið
hafa aðstöðunnar í endurhæfingar-
deildinni um að dæma, hvort þeir
telja þar ofrausn í húsnæði og
skynsamlegra hefði verið að nota það
fyrir geymslur. Ég kvíði ekki úrslitum
skoðanakönnunar.
HÆPINN SAMANBURÐUR
Til að leggja áherslu á sleifarlagið
við sjúkrahúsið flaggar hjúkrunar-
fræðingurinn stjórnsýsluhúsinu. Og
nú fær hann til liðs við sig sjálfan rit-
stjóra „Vestfirska". Stjórnsýsluhúsið
er falleg bygging og áreiðanlega vel
að henni staðið á allan hátt. En ein-
faldur samanburður þeirra félaga er
vægast sagt hæpinn. Vegna þess að í
öðru tilfellinu er um að ræða bindandi
samning er ríkið gerir við marga að-
ila, en í hinu ræður rfkið alfarið ferð-
inni. Sanngjarnara hefði verið að
bera saman Menntaskólann og
sjúkrahúsið. En auðvitað er mér Ijóst
að það studdi ekki málstaðinn.
LOKAORÐ
Byggingarnefnd er það vel Ijóst að
margt hefði mátt á annan veg vera í
sjúkrahússbyggingunni. Öll árin
höfum við beðið um sérstakan eftir-
litsmann fyrir bygginguna, en án ár-
angurs. Þetta vita allir er þurftu að
vita, þingmenn og ráðherrar. Eftir-
litsmaðurinn hefði síðan gegnt hlut-
verki byggingarstjóra. Þá vita sömu
aðilar um óánægju byggingarnefndar
með seinagang á útboðum. En allt
hefur komið fyrir ekki. Ástæðurnar
eru margþættar og sjálfsagt hefur
hver sína útgáfu.
Umræða um málefni er oft af hinu
góða, enda sé henni þá beint í farveg
réttmætrar gagnrýni og leiðbeininga.
Sé hún aftur á móti byggð á sleggju-
dómum og vísvitandi röngum fullyrð-
ingum, er hætt við að hún skaði mál-
staðinn. Að mínu mati er grein Harð-
ar Högnasonar af hinu síðarnefnda.
Hann, sem og framkvæmdastjóri
gamla spítalans, sbr. það sem haft er
eftir þeim félögum í Alþýðublaðinu,
er auðvitað frjáls að áliti sínu á þeim
mönnum sem undanfarinn áratug
hafa reynt að leggja sjúkrahúsmálinu
lið með setu sinni í byggingarnefnd.
Til þeirra starfa buðu þeir sig ekki
fram, en voru til þess valdir af rétt-
kjörnum sveitarstjórnum. Enginn
byggingarnefndarmanna skorast
undan ábyrgð, en tilvist þeirra er ann-
ara.
Byggingarnefnd hefur frá upphafi
verið Ijós sá þröngi stakkur er henni
var sniðinn. Um hann vitnar afstaða
heilbrigðisráöherra og ráðuneytis er
greint var frá í upphafi. Þá er nefnd-
inni ljóst að það eru sveitarstjórnirn-
ar, sem taka ákvörðun og ábyrgð á
útgjöldum hcimamanna, en ekki
byggingarnefnd. Þetta hefur Alþýðu-
blaðsvinunum ekki verið Ijóst sem
skyldi. Þess vegna hafaþeirekki taliö
sig þurfa samþykki kóngs né prests.
En „ Palli" sem var einn í heiminum
var nú barasta í ævintýrinu. Veruleik-
inn er allur annar.
Sigurður Jóhannsson formaður bygg-
ingarnefndar HSÍ.