Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1987, Side 7
/ /
Ulfar Agústsson:
Yið Vestfirðingar verðum
að viðurkenna staðreyndir
Rúmlega 7000 manna byggð þarfnast ekki sextán sveitarfélaga með 80-90 sveitar-
stjórnarmönnum, 5 sveitarstjórnum og 6 bæjar- og sveitarstjóra á fullum launum
sem ekki verður barist,“ segir Úlfar
Agústsson formaður Kaupmanna-
félags Vestfjarða.
VIÐ VESTFIRÐINGAR
VERÐUM AÐ VIÐURKENNA
STAÐREYNDIR
-hættum að verja byggð á svæð-
um sem allir vita að fara urátt úr
byggð og sameinumst um sterkan
rckstur í stað fallandi smáfyrir-
tækja.
Á norðanverðum Vestfjörðum
cru 450 til 500 manns um hverja
matvöruverslun. Talið er að nauð-
synlegt sé að mcðalmatvöruversl-
un þurfi aö hafa um það bil 1500
manna viðskiptamanna hóp ef vel
eigi að vera með rekstur hennar.
Þetta kom meðal annars fram í
ræðu Úlfars Ágústssonar, kaup-
manns á Isafirði og formanns
Kaupmannafélags Vestfjarða á
ráðstefnu, sem félagið gekkst fyrir
um næstliöna helgi. Hún nefndist:
Hvað er að gerast á höfuðborgar-
svæðinu? - Hvar stöndum við?
„í þcssum efnunt scnt öörum
verðum við að viðurkenna stað-
reyndir," sagði Úlfar Ágústsson.
„Við Vestfirðingar verðunt líka að
taka frumkvæöið sjálfir og verjast.
Við eigum ckki að setja upp varnir
þar sem ckki vcrður varist. Við
eiguni hinsvegar að vera raunsæir
Vestfirðingar og viðurkennar
staðreyndir,“sagði Úlfar ennfrem-
ur.
500 MANNS UM HVERJA
MATVÖRUVERSLUN EN
ÞURFA AÐ VERA 1500
Hann tók.sem dæmi um atriði,
sem snéri að kaupmönnum, sem
voru fjölmennastir á ráðstefnunni
eins og vonlegt var, þar sem aðal-
fundur Kaupmannafélags Vest-
fjarða var haldinn sama dag.
„Kaupmenn á svæðinu frá Arn-
arfirði og í Djúp, sem sumir vilja
kalla Vesturborg eiga ekki að
fljóta sofandi að feigðarósi.
„Við eigum að sameinast undir
,eitt félag til reksturs eins öflugs
verslunarfyrirtækis. Kaupmenn í
Vesturborg eiga síðan að eiga
hlutabréf í þessu nýja fyrirtæki og
hafa af því arð ef kostur er.
Sumum kann að virðast þetta
róttækar breytingar en Úlfar sagð-
ist hinsvegar aðeins telja þetta
viðurkenningu á staðreyndum. Ef
kaupmenn á Vestfjörðum eiga að
standast samkeppni við stórmark-
aði á höfuðborgarsvæðinu, þá væri
þetta lciðin. Þctta er í það minnsta
betri kostur en að biða eftir gjald-
þrotinu," sagði Úlfar Ágústsson.
NOTUM FJÁRMAGNIÐ TIL
AÐ GERA BÆNDUM KLEIFT
AÐ SETJAST AÐ OG STUNDA
SÍNA VINNU í ÞÉTTBÝLINU
ÞVÍ LANDBÚNAÐUR VIÐ DJÚP
ER Á FALLANDI FÆTI
Og hann lét ekki þar við sitja.
Sem dæmi um staðreynd, sem
þyrfti að viðurkenna nefndi hann
byggðina í sveitahreppunum við
Djúp. Öllum væri ljóst að hefð-
bundinn landbúnaður ætti þar
mjög undir högg að sækja. Þessi
byggð mundi vafalaust leggjast af
innan einhvers árafjölda.
„Við skulum viðurkenna þessa
staðreynd strax. Við skulum ekki
þrjóskast við heldur snúast strax
til aðgerða. í stað þess að verja
peningum í tilgangslaust byggða-
stríð þá skulum við nýta þá betur.
Allir þeir fjármunir sem nú fara til
uppbóta, niðurgreiðslna á afurða-
verði, flutningsstyrkja, reksturs
djúpbáts, til reksturs og gerðar
flugvalla, skóla, heilsugæslukerfis,
vegakerfis utan aðalvega og fleira,
eiga að notast í öðrum tilgangi.
Þessa fjármuni, sem spara má
með því að hætta tilgangslausri
baráttu eigum við að nota til að
þétta byggöina á Vestfjörðum. Við
eigum að aðstoða bændur og aðra
til þess að koma sér upp húsnæði
Stjórn
verkamannabústaða
í Bolungavík
aucflýsir:
Auglýst er eftir umsóknum í íbúðir, sem eru til sölu.
Um er að ræða tvær íbúðir í Stigahlíð, tvær íbúðir á
Þjóðólfsvegi 14 - 16, eina íbúð í Holtabrún 14, og
einbýlishúsið að Traðarstíg 2.
Umsóknir gilda einnig um endursöluíbúðir, sem
koma til endursölu á þessu ári.
Réttur til kaupa á íbúð er bundinn við þá, sem upp-
fylla eftirtalin skilyrði:
a. Eiga lögheimili í Bolungavík.
b. Eiga ekki fbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru
formi.
c. Hafa haft í meðaltekjur þrjú síðustu ár (1984 -
1986) eigi hærri fjárhæð en sem svarar kr. 555.000
fyrir einhleyping eða hjón og kr. 51.000 fyrir hvert
barn á framfæri innan 16 ára aldurs.
Heimilt er að víkja frá b- og c-liðum í sérstökum tilvik-
um.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofun-
um og skrifstofu stjórnar verkamannabústaða.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 11. des-
ember 1987.
Bolungarvík, 16. nóvemher 1987
Stjórn verkamannabústaða
Bolungavík.
fyrir sitt heimafólk og jáfnframt
skapa sér atvinnutækifæri í vest-
firsku þéttbýli.
SEXTÁN SVEITARFÉLÖG MEÐ
TÆPLEGA 100 SVEITAR-
STJÓRNARMENN EN AÐEINS
RÚMA SJÖÞÚSUND ÍBÚA
Á norðurhluta Vestfjarða, það
er frá Arnarfirði og norður í Djúp
þarf einnig að sameina sveitarfé-
lög, að mati Úlfars.
„Rúmlega sjöþúsund manna
byggð þarfnast ekki sextán sveitar-
félaga með 80 - 90 mönnum í sveit-
arstjórnum og 6 bæjar- og sveitar-
stjórum á fullum launum. Við
verðum í þessum efnum sem
öðrum að viðurkenna einfaldar
staðreyndir þó leiðinlegar og Ijótar
séu.“
„Við verðum lfka að tryggja
það, að árlegar betliferðir sveitar-
félaga eða fulltrúa þeirra á hendur
fjárveitingavaldinu leggist af. I
þessum ferðum freistast menn til
þess að níða nágranna sína til þess
kannski að fá örlítið meiri fyrir-
greiðslu til hafna eða einbhvers
annars. Slíku verður að linna.“
Úlfar Ágústsson bcnti á að Vest-
firðingar þekktu til þcss, þcgar
blómlegar byggðir færu í auðn.
Bæði þéttbýli og sveitabyggðir.
DRÖGUM LÆRDÓM AF FALLI
AÐALVÍKUR, HESTEYRAR OG
GRUNNAVÍKUR
„Fyrir norðan okkur voru þorp
hér fyrr á öldinni í Aðalvík, Hcst-
eyri og Grunnavík og á þessu svæði
var einnig nokkuð blómleg sveita-
byggð. Þessi byggð fór að síga sam-
an af ýmsum orsökum. En síðan
lagðist hún skyndilega öll af, eins
og hendi væri veifað."
„Við skulum varast að þetta ger-
ist aftur hér á Vestfjörðum í mikl-
um mæli. Viðurkennum strax að
sum landssvæði cru okkur töpuð
búsetulega séð. Á öðrum stöðum
skulum við síðan búast til varnar
og verjast vel,“ sagði Úlfar.
Hann benti á að til þess þyrfti
meðal annars að stöðva atgervis-
flóttann af Vestfjörðum. Við
þyrftum að snúa honum við.
„Við skulum ávallt muna eftir
því, að Vestfirðingar sjálfir vcrða
að tryggja að til aðgerða verði
gripið. Vestfirðingar sjálfir verða
að grípa til vopna. Við verðum að
skapa fólkinu tækifæri til að nýta
kunnáttu sína, sköpunargleði og
framtakssemi," sagði Úlfar Ágúts-
son að lokum.
DAGMOÐIR ÓSKAST I
TÆPAN EINN MÁNUÐ
Til að gæta tveggja drengja
3ja og 5 ára gamalla.
Upplýsingarveitir Helga ísíma 3711
á vinnutíma og í síma 4439 á kvöldin
Vélskóli Islands
Innritun nýrra nemenda á vorönn 1988 er
hafin. Umsóknir ásamt gögnum um fyrra
nám verður að hafa borist skrifstofu skólans
fyrir 1. des. nk., pósthólf 5134,125 Reykjavík.
Kennsla fer fram eftir áfangakerfi. Nemend-
ur, sem hafa stundað nám við aðra skóla, fá
nám sitt metið að svo miklu leyti sem það
fellur að námi í Vélskólanum.
Inntökuskily rði:
Umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með
tilskildum árangri eða hlotið hliðstæða
menntun.
Vélavörður:
Samkvæmt nýjum lögum um vélstjóranám
býður skólinn upp á vélavarðarnám er tekur
eina námsönn (4 mánuði) og veitir vélavarð-
arréttindi samkvæmt ísl. lögum. Umsóknar-
eyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu skólans í Sjómannaskólahúsinu kl.
08.00 - 16.00 alla daga. Sími 19755.
Skólam eistari.