Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1987, Page 9
9
Salmar Jóhannsson formaður
s
Verslunarmannafélags Isafjarðar:
„Kaupmenn
mega
afgreiða
sjálfir66
— engin regiugerð í gödi um
lokunartíma búða en kjarasamningar
aðila ráða ferðinni
„Okkur þótti rctt aö vckja at-
hygli á samningsbundnum vinnu-
tínra verslunarfólks áður cn jóla-
törnin hcfst,“ sagði Salmar Jó-
hannsson, formaður Verslun-
armannafélags ísafjarðar í sam-
tali við Vcstfirska frcttablaðið.
Tilefnið var auglýsing í blaðinu
um hcimilaðan opnunartíma
vcrslana, samkvæmt kjarasamn-
ingi Landssambands fsl. verslun-
armanna við Vinnuveitcndasam-
band íslands.
„Afgreiðslutími verslana cr
frjáls af hálfu bæjaryfirvalda á
ísafirði cins og flcstum cr
kunnugt. Hinsvegar eru bæði
kaupmcnn og afgrciðslufólk
bundið af áðurnefndum kjara-
samningum," sagði Salmar enn-
fremur.
Hann sagði að við hefði
brugðið, að menn væru tregir til
að viðurkenna þessa staðreynd,
jafnvel þó svo þeir vissu betur.
Ætlun félaga í Verslunarmanna-
félagi ísafjarðar væri að láta
reyna á þessi ákvæði kjarasamn-
inganna nú í descmber.
Salmar Jóhannsson benti þó á,
að kaupmönnum væri sjálfum
hcimilt aö standa við afgrciðslu í
vcrslunum sínum án þcss að það
yrði talið brot á rcglum um opn-
unartíma í kjarasamningum
verslunarfólks.
UPP ER BOÐIÐ (SALAND
Einokunarverslunin og íslenskt
samfélag 1602 —1787
eftir dr. Gísla Gunnarsson
Á þeim tíma sem danskir kaup-
menn höfðu einokun á allri utanríkis-
verslun landsins, á árunum 1602—
1787, var hagur (slendinga bágborn-
ari en hann hefur verið fyrr og síðar.
Þetta var ekki danskri einokunar-
verslun einni að kenna. (slendingar
voru íhaldssamir og héldu fast í forn-
fálega og úrelta siði. Þeir óttuðust
allar nýjungar í atvinnumálum.
Með þessum orðum hefst kynning
aftan á nýrri bók frá Erni og Örlygi
eftir dr. Gísla Gunnarsson.
Bók þessi er að meginstofni þýðing
á bókinni og doktorsritgerðinni
„Monopoly Trade and Economic
Stagnation", sem kom út í Lundi í
Svíþjóð 1983. Nokkrir hlutar þessarar
bókar eru þó frumsamdir. Um bókina
„Monopoly Trade...." hefur m.a. ver-
ið skrifað: ,,( doktorsritgerð Gísla
Gunnarssonar er aö finna nýja heild-
arsýn um einokunarverslun Dan-
merkur á íslandi og um íslenskt sam-
félag á 17. og 18. öld. Þessi bók leysir
á margan hátt af hólmi bók Jóns Að-
ils, Einokunarverslun Dana á Islandi,
frá árinu 1919, sem helsta heimildar-
verk um þetta efni." Harald Gustafs-
son í bandaríska tímaritinu Scandi-
navian Studies.
„Það er einnig skoðun undirritaðs,
að ritið verðskuldi að koma út á ís-
lensku og sé það í rauninni töluvert
hagsmunamál íslenskri menningu og
þjóðlífi." Sveinbjörn Rafnsson í
Sögu, tímariti Sögufélags (slands.
Bókin er sett og prentuð hjá Prent-
stofu G. Benediktssonar en bundin í
Arnarfelli hf. Kápu gerði Sigurþór
Jakobsson
Dr. Kevin Leman
mm\
SYSTKINARÖÐIN NIÓTAR MANN-
INN
Hvar ert þú í röðinni?
Eru persónueinkenni okkar og við-
horf meðfædd eða mótast þau ef til
vill meira af fjölskyldu okkar og
uppeldi?
Með þessum orðum hefst kynning
aftan á nýrri bók frá Erni og Örlygi.
Bókin nefnist Systkinaröðin mótar
manninn og er eftir dr. Kevin Leman
og er þýdd af Guðmundi Þorsteins-
syni. Á bókarkápu segir ennfremur:
Víst er að staða okkar í röö syst-
kina(eða systkinaleysi) mótar okkur
öll með afgerandi hætti og hefur var-
anleg áhrif á allt okkar líf.
Þessi bók er brunnur upplýsinga,
sem geta hjálpað þér að bæta sam-
skipti þín við aðra, hagnýta þér styrk
systkinaraðaripnar og bæta úr veik-
leikum hennar, og njóta þeirrar sér-
stöðu sem Guð gaf þér. Systkinaröð-
in er hlýleg, fyndin, einlæg og
skemmtileg aflestrar, og hún hjálpar
þér jafnframt að þekkja sjálfan þig
betur og að sjá samskipti þín við aðra
í skýrara Ijósi.
NÝJAR ÍSLENSKAR HLJÓMLÖTUR
I seinna lagi Bergþóra Árnadóttir
Jakob og Ragnhildur Jakob Magnússon og
Ragnhildur Gísladóttir
Jón Múli Árnason
í fylgd með fullorðnum
Leyndarmál
Á þjóðlegum nótum
Dögun
Loftmynd
Ýmsir flytjendur
Bjartmar Guðlaugsson
Grafík
Ríó Tríó
Bubbi Mortens
Megas
Hljómplötur ásamt kasettum og
geisladiskum eru á 2. hæð
BÓKAVERSLUN
JÓNASAR TÓMASSONAR
Jólabók
kratanna?
Gullna llugan crcin jólabök-
anna í ár og ckki cr ólíklegt að
Suðureyri:
Villi
fískar
yel
„Kúfiskveiðar á Villa Magg
hafa gengið með ágætum að
undanförnu og nú um nokkurt
skeið hefur hann ávallt komið
með fullfermi að landi en það
eru um það bil 38 tonn,“ sagði
Arnór Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Bylgjunnar hf. á
Suðureyri í samtali við Vestfir-
ska fréttablaðið. Villi Magg
veiðir kúfisk með sérstökum
plóg til vinnslu hjá verksmiðju
Bylgjunnar hf. á Suðureyri.
„Pessi góði afli fékkst strax
eftir að endurbætur voru gerðar
á plógnum, sem plægir botninn
og safnar saman kúfiskinum.
sem síðan er dælt um borð í
Villa Magg,“ sagði Arnór enn-
fremur. Skipið fer venjulega út
um sjöleytið á morgnana og
yfirleitt er ekki kontið að landi
síðar en klukkan sex síðdegis.
Verksmiðja Bylgjunnar hf.,
sem hönnuð er og uppsett af
fyrirtækinu Traust hf. í Reykja-
vík, afkastar um það bil 4,5
tonnum af kúfiski upp út sjó. Er
þá miðað við vinnslu á kúfi-
skinum til beitu, og er nýtingin
I6 - I8%.
Kúfiskurinn hefur að sögn
Arnórs líkað ágætlega og hann
hefur það eftir sjómönnum, að
kúfiskurinn tolli mjög vel á
önglinum ef lagt er í miklum
straumi. Einnig telja sumir að
kúfiskur sé annarri beitu betri
yfir myrkasta tímann í skamm-
deginu.
margur vestfirskur kratinn
muni glugga í hana og kynna
sér frásagnir af átökum í Al-
þýðuflokknum á árunum á milli
heimsstyrjaldanna. Höfundur
bókarinnar cr ungur sagnfræð-
ingur, Þorlcifur Friðriksson.
Gullna flugan er ein þeirra
bóka, sem Gunnlaugur Jónas-
son bóksali í Bókhlöðunni á ísa-
firði nefndi, þegar við ræddum
við hann bókasöluna í ár.
Gunnlaugur sagði að nýjar
bækur hefðu verið að berast síð-
ustu vikurnar og væru enn að
berast. Salan væri ekki mikið
komin af stað en margir væru
hinsvegar farnir að skoða
bækur. Þetta væri eins og
undanfarin ár. Sjálf bóka-
kauptíðin hæfistsíðan l(). til I2.
descmber ef færi að venju.
Perestrojka nefndist nýja
bókin, scm er eftir þann fræga
mann Gorbatsjov Sovétleið-
toga. Undirtitill hennar er -ný
hugsun, ný von. Þá nefndi
Gunnlaugur Jónasson bókin
Aflakónga og athafnamenn.
Þar ræðir Hjörtur Gíslason,
blaðamaður við þekkta skip-
stjóra og sjómenn. Meðal ann-
ars Guðjón A. Kristjánsson,
skipstjóra á togaranum Páli
Pálssyni frá Hnífsdal.
„Sjálfur hef ég síðan rnikinn
áhuga á að kynna mér bókina
Æfintýramaðurinn Jón Ólafs-
son, scm samin er af Gils
Guðmundssyni.
Saltfiskverkandi
Hugsar þú um ve/ferd starfsfó/ks/ns?
Söltunarkerfi frá TRRU5T hf
skilar þár aukinni framleiÖni og hagnaÖi
og bætir um leið verulega
aðstööu starfsfólks
og léttir líkamlegt erfiöi
TRAUST HS®
Box 4413 - 124 Reykjavík - Sími 91-83655 - Tlx 3010 - Fax 687060