Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1987, Síða 11
"vestílriki I
ÍTTABLAÐIB
Vestfirska fréttablaðiö kemur út á fimmtudögum kl. 17:30. Ritstjórnar-
skrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga
kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 17:00. Síminn er 4011, svarað er allan
sólarhringinn. Blaðamaður og Ijósmyndari: Páll Ásgeirsson. Útgefandi
og ábyrgðarmaður: Ólafur Geirsson, ritstjóri. Prentun: Prentstofan ísrún
hf., (safirði. Verð í lausasölu kr. 70,00. Áskriftarverð er lausasöluverð
reiknað hálfsárslega eftirá.
I vestfirska I
FRETTABLADID
Gengid falsað fyrir
höfuðborgarsvæðið
Vegna þess að ríkisstjórnin heldur dauðahaldi í svo-
kallaða fastgengisstefnu sína, þá tapa þau svæði
landsins, þar sem höfuðatvinnugreinarnar eru fisk-
vinnsla og fiskveiðar, milljörðum króna, sem síðan
verða til þess að halda uppi fölskum og óeðlilegum lífs-
kjörum á höfuðborgarsvæðinu.
Milljarðar króna renna af landsbyggðinni þar sem
aðallega er unnið að útflutningsatvinnugreinunum, til
höfuðborgarsvæðisins þar sem verslun, viðskipti og
þjónusta blómstrar í skjóli falsks gengis, sem haldið er
uppi af ríkisstjórn, sem rígheldur í þá blekkingu, að
hægt sé að halda í fastgengisstefnu í 25%-30% verð-
bólgu.
Ef nokkrir milljarðar rynnu frá höfuðborgarsvæðinu
og út á landsbyggðina vegna rangrar gengisskráningar
krónunnar, væri allt orðið löngu vitlaust. Forsvarsmenn
kröfuhópa væru búnir að lýsa yfir vandlætingu sinni á
því óréttlæti, að höfuðborgarbúar væru látnir blæða fyrir
landsbyggðina. Flagspekingar mundu vitna í málinu og
svo framvegis. Raunar er næsta víst, að slíkt misgengi
höfuðborgarsvæðinu í óhag, yrði fljótt leiðrétt.
Nú er það hinsvegar landsbyggðin, sem tapar á rangri
gengisskráningu og höfuðborgarsvæðið græðir. Þá segir
enginn neitt. Forsvarsmenn landsbyggðarinnar láta sér
vel líka - eða ekki verður annað heyrt. Hávaðinn vegna
þessarar milljarða millifærslu frá landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins er lítill sem enginn.
Hversvegna skyldi misrétti, sem lendir á landsbyggð-
arbúum vekja minni athygli heldur en misrétti gagnvart
höfuðborgarbúum? Svarið liggur meðal annars í því, að
í áróðursstríðinu mikla, sem stöðugt geisar í nútíma-
þjóðfélagi, hefur landsbyggðin tapað. Raunar er varla
hægt að segja að hún hafi tapað, því líklega hefur lands-
byggðin aldrei barist á réttum vígstöðvum í þeirri
styrjöld.
í áratugi hefur Iandsbyggðin ekki skipt sér neitt veru-
lega af því, hvað gert er með tekjurnar, sem skapast af
framleiðslunni, sem fram fer á landsbyggðinni. Þeim
hefur verið ráðstafað í Reykjavík.
Áróðursstríðið hefur síðan valdið því, að landsbyggð-
arfólkið hefur smám saman farið að trúa því, að það sé
ómagar á framfæri höfuðborgarbúa. Síðan hafa smámol-
ar hrotið af borðum höfuðborgarsvæðisins í formi alls-
konar framlaga og styrkja sem dreift hefur verið um
landið.
Landsbyggðarfólkið hefur hinsvegar alveg látið hjá
líða að krefjast réttmæts hluta síns af tekjunum, sem
verða til hjá þeim og þeim ber með réttu. Ef sú tekju-
skipting verður rétt en ekki skekkt með gjaldeyris-
hömlum, millifærslum og gengisrangfærslum, þá þarf
landsbyggðin engu að kvíða. Fá þarf enga sérstaka
byggðasjóði, landsbyggðinni til styrktar. Pá getur hún
séð um sig sjálf.
Til þess að það megi verða, verður fólk að gera sér
grein fyrir stöðu sinni og láta ekki moldviðri áróðursins
blekkja sig. Ó G
Á í myrkri gildir að sjást. Notaðu endurskinsmerki!
M i UMFERÐAR Famrheillf\ lÍRÁD ?S!87\J
Kirkjulíf
ísafjarðarprestakall
Viðtalstímar sóknarprests-
ins eru þriðjud. -föstud. kl.
13:30-15 í safnaðarheimilinu
Sólgötu l,sími3171. Aðrirtímar
eftir samkomulagi.
ísafjarðarsókn:
Kirkjuskóli í sal Grunnskólans
á sunnudagsmorgun kl. 11.
Strætisvagninn fer sína venjulegu
leið úr Holtakerfi.
Hnífsdalskapella:
Fjölskylduguðsþjónusta
sunnud. kl. 17. Aðalsafnað-
arfundur Hnífsdalssóknar á
eftir.
Birkimelur á Barðaströnd:
Fjögur hús
í byggingu
—íbúum fjölgar og framkvæmdir mikl-
ar á þessum vaxtabroddi byggðarlagsins
Áætlað er að hefja byggingu
fjögurra húsa við Birkimel á
Barðaströnd á vori komanda.
Þá verður einnig hafist handa
um lagningu bundins slitlags á
götur byggðakjarnans sem telur
nú um 60 manns en alls eru 190
íbúar í Barðastrandahreppi og
fer þeim fjölgandi.
Mikil og trygg atvinna hefur
verið í hreppnum en helstu at-
vinnugreinar eru skelveiðar,
grásleppuveiði, þjónusta auk
þess sem rekin er saumastofa í
Krossholti. Nú er unnið að
hafnarbótum á Brjánslæk og
verið er að gera lendingarbætur
fyrir smábáta við Haukabergs-
vaðal.
„Hér er eini vaxtarbroddur-
inn á sunnanverðum Vestfjörð-
um“ sagði Torfi Steinsson
skólastjóri í Krossholti í samtali
við Vestfirska fréttablaðið um
þessi mál.
Kapella vígð í MI
Sr. Sigurður Guðmundsson settur biskup íslands vígði altari og blessaði kirkjumuni og samkomusal Mennta-
skólans á ísafirði á sunnudaginn var. Biskup predikaði við messu og var mikill fjöldi viðstaddur. Þar með hefur
ísafjarðarsöfnuður fegnið samastað um sinn. Myndirnar eru frá athöfninni á sunnudaginn.
r----------------------------- 1
j FASTEIGNA- j
i VIÐSKIPTI i
j ÍSAFJÖRÐUR:
| Einbýlishús/Raðhús: |
| Miðtún 39, Nýlegt raðhús á |
| tveimur hæðum, ásamt bílskúr. |
| Laust strax.
I Tangagata 6, ca 160 fm einbýlis- I
I hús með tveimur íbúðum. Uppi: |
I 3ja herb. ibúð, niðri: 4ra herb. |
| íbúð ásamt risi og kjallara. |
i Norðurvegur 2, álklætt hús, mik- I
I ið endurnýjað, ásamt kjallara.
J 4-6 herb. íbúðir:
J Stórholt 7,117 fm íbúð á 2. hæð J
J í fjölbýlishúsi.
■ Sundstræti 30, ca 140 fm íbúð í .
• kjallara í þríbýlishúsi.
| Stórholt 13, 110 fm íbúð á 3.h. í |
| fjölbýlishúsi, ásamt bílskúr.
I Mjallargata 6, 100 fm íbúð í þrí- I
I býlishúsi, ásamt háalofti. Skipti á I
I stærri eign möguleg. |
i 3ja herb. íbúðir:
i Sólgata 8, 70 fm íbúð á 1. hæð i I
I þríbýlishúsi. I
J Hrannargata 9, 100 fm sérbýli. J
J Skipti á stærri eign möguleg.
■ Stórholt 11, 75 fm íbúð á 3.h. í j
■ fjölbýlishúsi.
| Heimabær 5, 80 fm íbúð á e.h. í |
| fjórbýlishúsi.
I Stórholt 11, ca 85 fm íbúð á 2 I
I hæð, ásamt bílskúr. I
i Stórholt 7, 75 fm íbúð á 1. hæð i
I í fjölbýlishúsi.
J Fjarðarstræti 9, 76 fm íbúð á 3. J
J hæð í fjölbýlishúsi, ásamt sérg- J
J eymslu í kjallara og risherbergi.
■ Aðalstræti 32, 70 fm íbúð á e.h., |
■ ásamt kjallara.
| Hreggnasi 3, ca 70 fm íbúð á |
| ae.h. í tvíbýlishúsi, ásamt kjall- |
| ara. |
I 2ja herb. íbúðir:
I Sundstræti 24, 60 fm íbúð í þrí- I
I býlishúsi. I
i Sundstræti 29, íbúð á n.h. í fjór- J
i býlishúsi, sér þvottahús og i
i geymsla.
J Hlíðarvegur 27, 55 fm íbúð á J
J n.h. í tvíbýlishúsi, uppgerð að J
[ hluta.
• Fyrirtæki:
I Gosi, Mánagötu 2. Sælgæti- .
J sverslun og billjardstofa, í fullum J
[ rekstri.
j Tryggvi i
: Guðmundsson |
: hdl. j
! Hrannargötu 2, ísafirði, ■
i sími 3940.
Af fólki
Skírnir:
Hafþór Ingi Haraldsson,
Túngötu 3, f.21.10.87.
sk.7.11.
Hilmar Örn Óttarsson Eik-
land, Tangagötu 15b,
f.9.8.87. sk.8.11.
Sveinn Yngvi Valgeirsson,
Sunnuholti 4, f.7.8.87.
sk.21.11.
Ólöf Dröfn Sigurbjörns-
dóttir, Aðalstræti 12,
f.28.8.87. sk.21.11.
Ásrún Sigurjónsdóttir,
Móholti 5, f.18.9.87, sk.
21.11.
Andlát:
Sigurjón Hinriksson, Aðal-
stræti 15, f.7.6.49.
d.9.11.87. útf. 14.11.
Smá-
auglýsingar
TIL SÖLU
Til sölu Lada station árgerð
1986. Ekinn 17 þús km.
útvarp, sílsalistar, grjótgrind.
Sumar og vetrardekk fylgja.
Upplýsingar í síma 6261 eftir
kl. 17.00.