Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1987, Síða 12
Fallegar franskar leöur skjalatöskur
fyrir dömur og herra.
Verö frá 1.790.- til 7.400.-
j BOKAVERSLUN
JÓNASAR TÓMASSONAR
l Sími 3123 ísafirði
ERNIR P
Bflaleiga
Hafið samband við
markavörð
Vegna útgáfu markaskráa
árið 1988, samkvæmt lögum nr.
6/1986 um afréttamál, fjallskil
o.fl. og reglugerð nr. 224/1987
og tölvuskráningar á mörkum
hjá Búnaðarfélaginu, beina
markanefnd og Búnaðarfélag
Islands þeim tilmælum til allra
eigenda búfjármarka (annarra
en frostmerkinga), að þeir til-
kynni viðkomandi markaverði
mörk sín til birtingar í marka-
skrá sýslunnar, eigi síðar en 10.
janúar 1988.
Takið ekki áhættu í
grásleppunni
Stjórn Landssambands Smá-
bátaeigenda vill vara grásleppu-
veiðimenn við því að hefja veiðar
á vertíðinni 1988 án þess að eiga
trygga sölu á þeim hrognum
sem þeir munu afla. Stjórn L.S.
telur mjög alvarlega stöðu vera
komna upp og telur óvarlegt að
veiða meira en 8 — 10.000 tunnur
á næstu vertíð eigi viðunandi
verð að fást. Meiri veiði býður
heim hættu á verðfalli og sölu-
erfiðleikum að mati stjórnar L.S.
Stjórnin gerði könnun á stöðu
markaðsmála fyrir grásleppuhrogn
og urðu niðurstöður þær helstar að
verksmiðjur innan L.S. muni eiga í
byrjun vertíðar á lager um 8—
I0.000 tunnur. Kanadamenn eiga
800 tunnur óseldar í Danmörku og
bjóða þær til sölu á 925 mörk.
ísafjörður:
s
Asa
seld
Tögbáturinn Ása, sem verið
hefur í eigu Rækjuverksmiðju
O.N. Olsen hf.á Isafirði hefur
verið.seldur til Hafnarfjarðar.
Söluverð mun vera 25 milljónir
króna. Ásán er 22 ára gamalt
tréskip.sem byggt er Stykkis-
hólmi og telst vera 63 tonn.
Ástæður þess að skipið var
selt voru þær að sögn Theódórs
Norðquíst framkvæmdastjóra
O.N. Olsen hf., að skipið var of
lítið til að geta stundað veiðar á
úthafsrækju á vetrum og það
var hinsvegar of stórt og dýrt í
rekstri til að veiða innfjarð-
arækjuna á Djúpinu.
Bjartara framundan í rækjuvinnslunni:
100 mUljónir vestur
Hráefhi tryggt
Verðjöfnunarsjóður „eyrnamerktura og þak
sett á framleiðslu verksmiðjanna
Mikið er að birta yfir rekstrar-
horfum rækjuverksmiðja á
Vestfjörðum, samkvæmt
fregnum. sem Vestfirska frétta
blaðiðteluráreiðanlegar. Kem-
ur þar tvennt til: f íyrsta lagi
haldgóð trygging fyrir því að
núverandi verksmiðjur fái hrá-
efni til vinnslu og þá eru bundn-
ar vonir við að vérðjöfnunar-
sjóður rækju verði „eyrna-
merktur'* hverjum þeim sem í
hann greiðir og hefur greitt.
Petta mundi geta þýtt allt að
því 100 milljóna króna tilflutn-
ingfjármagns til Vestfjarða.
Fyrirhugað mun vera. að
setja einhverskonar þak á
vinnsluheimild hverrar verk-
smiðju. Munu þá þær verk-
smiðjur, sem hafa langan
rekstrártíma njöta góðs að: því
og vera með hærra vinnslumark
en nýjar rækjuvinnslur. Petta
mun sfðan eiga að stuðla áð því
að færri hefji rækjuvinnslu en
ella hefði orðið.
„Eyrnamerking“ fjármagns í
verðjörnunarsjóði rækju er tal-
in næsta vís. Bæði þing Lands-
sambands ísl. útvegsmanna og
Farmanna- og fiskimanna sám-
band íslands samþykktu til-
lögur í þá áttina. Pétta mundi
tákna að etdri rækjuvinnslur
munu hafa séraðgang að því
fjármagni. sem lner og ein
þeirra hefur greitt í verðjöfn-
unarsjóð.
Þá mun einnig ákveðið, að
Þjóðhagsstofnun geri úttekt á
rekstri fimm rækjuvérksmiðja.
Munu forráðamenn rækjuverk-
smiðja gera sér góðár vonir um
lækkaðar greiðslur í kjölfar
þcssarar úttektar. Muni þá:
koma greinilega í ljós, hve
rækjuvinnslan er rekin með
miklu tapi. Fordæmi munu fyrir
því vegna loðnuvinnsiu að
endurgreitt sé út verðjöfnunar-
sjóðí aftur í tímann, þegar í ljós
kemur að halli hefur verið á
vinnslunni.
Eyrnamerking fjármagnsins
í verðjöfnunarsjóði og hugsan-
legar endurgreiðslur aftur í tím-
ann vegna taprekstarar rækju-
verksmiðjanna er talin geta
valdið allt að 100 milljóna króna
flutningi á fjármagni til Vest-
fjarða frá höfuðborgarsvæðinu.
O.N. Olsen:
99Uppsagnir ekki
til framkvæmda,,
— segir Theódór Norðquist
„Ég á ekki von á því núna, að
til þess muni koma að uppsagn-
irnar komi til framkvæmda,“
sagði Theódór Norðquist fram-
kvæmdastjóri Rækjuverk-
smiðju O.N. Olsen hf. á ísa-
firði.Vestfirska fréttablaðið
ræddi við hann vegna fregna af
því að fyrirtækið hefði sent öllu
starfsfólki sínu, rúmlega þrjátíu
manns, uppsagnarbréf, sem
taka átti gildi frá og með næstu
áramótum.
„Mikill hallarekstur á rækju-
vinnslu, óvissa um kvótamál og
verðlagningu hráefnis og hrá-
efnisöflun voru ástæður þess að
við töldum okkur nauðbeygða
til að grípa til þessarra að-
gerða,“ sagði Theódór Norð-
quist ennfremur.
Hann taldi þó góðar líkur á
því, að horfur í rækjuvinnslu
væru ekki eins svartar eins og
menn hefðu óttast fyrir nokkr-
um dögum.
„Uppsagnir starfsfólksins
koma því varla til framkvæmda
eins og ég sagði áður,“ sagði
Theódór Norðquist að lokum.
Suðureyrarkirkja 50 ára
Við 50 ára afmæli suðureyrarkirkju s.l. sunnudags sr. Sigurður Guðmundsson. Aðrir á mjndinni eru frá vinstri:
Sr. Gunnþór Ingason sem áður fyrr þjónaði á Suðureyri, sr. Karl V. Matthíasson sem nú þjónar þar, biskup
Islands og sr. Lárus Þ. Guðmundsson á Holti, prófastur.
ísafjörður:
Siggi á veiðar
um áramót
„ Við höfum fengið ádrátt um
að skipið fái veiðileyfi um ára-
mótin“ sagði Guðmundur Sig-
urðsson útgerðarmaður Sigga
Sveins í viðtali við Vestfirska
fréttablaðið. Þá er reiknað með
því að hann fái kvóta eins og
önnur raðsmíðaskip. Um áramót
verður Siggi Sveins búinn að
liggja bundinn við bryggu tilbú-
inn til veiða í þrjá mánuði.
MYNDAVELAR
OLYMPUS - RICOH - PAlNTASOlNriC
myndaalbúm, myndavélatöskur, leifturljós,
rafhlöður og allt í myndavélar
PÓLLINN
VERSLUN
RAFÞJÓNUSTA
SÍMI3092
BILALEIGA
Nesvegi 5 • Súðavík © 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 • V/Miklatorg © 91 -25433
Afgreiðsla á ísafjarðarflugvelli © 94-4772
SENDUM BÍLINN
Opið allan sólarhringinn