Vestfirska fréttablaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 5
tVESTFlRSKA'
Fimmtudagur 7. maí 1992
5
jÉ& BÆJARFÓGETINN
'lEPf BOLUNGARVÍK
Aðalbókari
„Mikill snjór á Horn-
ströndum og leysir lítiðu
— segir Ragnar Jakobsson frá Reykjafirði í fréttaviðtali að „nordan“
Við embættið er laus til umsóknar
staða aðalbókara.
Staðan veitist til að byrja með til eins
árs.
Væntanlegur umsækjandi þarf að geta
hafið störf í byrjun júní.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir, sem hafa að geyma upplýs-
ingar um menntun og fyrri störf um-
sækjanda, sendist til skrifstofu undir-
ritaðs, sem jafnframt veitir nánari upp-
lýsingar.
Umsóknarfrestur er til 20. maí nk.
Bæjarfógetinn í Bolungarvík.
Jónas Guðmundsson.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Kaupfélags ísfirðinga verð-
ur haldinn föstudaginn 22. maí kl. 17,
að Pólgötu 2.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Stjórnin.
Ragnar Jakobsson frá
Reykjafirði á Hornströndum
dvaldi í Reykjafirði frá 15.
apríl til 1. maí sl. Var hann að
huga að eignum sínum norður
þar og ganga frá húsum fyrir
sumarið, en Ragnar dvelur í
Reykjafirði á sumrum ásamt
fjölskyldu sinni við rekaviðar-
vinnslu o.fl. I samtali við Vest-
firska sagði Ragnar að mikill
snjór væri í Reykjafirði ogenn
meiri norðar á Hornströnd-
um, t.d. Hælavík og Hornvík.
Hefði iítið leyst því vorið hefði
verið afar kalt.
„Fyrstu gestirnir komu á
vélsleðum 1. mars frá Staðar-
skála í Hrútafirði og spurðu
þeir í gestabókinni hvenær
sundlaugarvörðurinn hafi far-
ið í frí. Þeir hafa farið í bað og
þótt laugin nokkuð skítug eftir
veturinn. Eg skaut níu tófur
við bæina og í kringum sund-
laugina og missti þá tíundu.
Ég skaut á hana en hún slapp.
Ein tófan var með sérstökum
lit sem ég kannast ekki við.
Hún var mitt á milli hvítrar og
mórauðrar og ég kalla hana
gráa. Þetta er líklega búra-
tófa. Ég fékk líka tvær minka-
læður, en ég var ekki með
minkahundinn", sagði
Ragnar.
„Ég varð fyrir miklum von-
brigðum því það er mikill
snjór fyrir norðan. Það hafa
aldrei komið hlýindi í vor. Það
var oft frost á nóttinni og 2ja
stiga hiti á daginn. Þetta rynni
fljótt niður ef hlýnaði. Ég
Úr Reykjafirði.
Ljósm. Snorrí Hermannsson.
mældi snjódýptina á flugvell-
inum á föstudaginn langa og
var hún 64 sentimetrar. Snjór-
inn slaknaði um 20 cm meðan
ég var fyrir norðan. Ég var
einn seinni vikuna en þá fyrri
var Ketill sonur Guðfinns
bróðir með mér. Við fengum
gesti á páskadag, sleðafólk úr
Árneshreppi.
Grásleppukarlar fengu æð-
arblika í netin norður í Horn-
vík og hafði hann verið merkt-
ur hjá þeim Gumma og Konna
í Þcrnuvík fyrir tveimur árum.
Hann var 2ja ára, fuglinn.
Ég er að fara aftur norður,
því ég á eftir að gera svo mikið
í húsinu. Ég ætla að láta ferma
Elínu dóttur mína fyrir norð-
an í sumar. Það verður 21.
júní, ef gefur, og næsta helgi
er til vara. Það verður fcrmt á
Kirkjubóli, handan við Ósinn,
undir berum himni. Kirkjuból
hefur verið í eyði um aldir og
cr forn kirkjustaður í Reykja-
firði. Þetta fer eftir veðri og ef
ekki viðrar fermum við bara
inni í bæ í Reykjafirði.
Við byggðum búningsklefa
við sundlaugina sl. sumar og
meiningin er að setja sturturn-
ar upp í sumar fyrir heima-
mcnn og svo ferðafólkið",
sagði Ragnar að lokum.
Vestfirska óskar Ragnari
góðrar ferðar norður aftur og
vonar að veðurguðirnir verði
honum hliðhollari í vor og
snjóa fari að taka upp norður
í Reykjafirði sem annars
staðar.
-GHj.
Canon
OTRULEG TÆKNI
í fjölföldun og stækkun litmynda
Stækkanir af litskyggnum (slides)
Ljósritun á glærur í fullum lit
Eftirtökur og stækkanir á svart/hvítum ljósmyndum
Með Canon CLC 300 litljósrítunarvélinni gefst fólki
kostur á nýjum ognær óþrjótandi notkunarmöguleikum
í fjölföldun og stækkun litmynda
GJÖRIÐ SVO VEL
OG KYNNIÐ YKKUR MÖG ULEIKANA
ISPRENTHF.
PRENTSMIÐJA S 94-3223
Canon
LJÓSRITUN í LIT
Til hamingju VesiBrðingar!
CANON ljósrítun í lit
í fyrsta sinn utan höfuðborgarsvæðisins
ísprent hf. á ísafirði ryður brautina á landsbyggðinni
meðþvíað taka ínotkun Canon CLC300litljósritunarvél