Vestfirska fréttablaðið - 27.08.1992, Side 1
FIMMTUDAGUR 27. AGUST 1992
27. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
Minnkandi afli í netin í Djúpinu
og sjómenn loga af marglyttu
Sigurður Hjartarson á Húna ÍS-211 landaði 2,3 tonnum af þorski í norðaustan áhlaupinu sL
föstudag. Aflann fékk hann undir Grænuhlíð fram af Beinunum og út undir Bringurnar.
„Aflinn hefur ekki verið
nógu góður í þorskanetin. Það
var ágætt fyrstu vikuna en
veiðar voru leyfðar 15. ágúst.
Þá byrjuðu fjórir bátar. ég á
Húna, Sigurgeir Sigurðsson og
Árni Óla, allir frá Bolungar-
vík, og svo Dagný frá Isafirði.
Það var reytingur fyrstu dag-
ana en síðan hefur dregið úr
fiskiríi og verið ótíð. Mest fór
aflinn upp í tvö og hálft tonn
yfir daginn og nú er aflinn 400-
500 kg á dag. Ég ræ með fimm
trossur. Það hefur verið hel-
vítis ótíð og harðsótt og marg-
lyttan hefur verið að hrekkja
okkur. Menn hafa
alveg logað þegar þeir koma í
land.
Það var miklu meira fiskirí
í netin í fyrrahaust og miklu
meiri fiskur í Djúpinu þá. Þá
var líka mun meira af ýsu í
aflanum. Hún er eitthvað
seinna á ferðinni núna en í
fyrra.
Það er einn bátur á síldar-
netum í Djúpinu. Þjóðólfur
frá Bolungarvík, og er hann
búinn að vitja um einu sinni
og fékk tonn. Hann er að taka
í beitu fyrir sig“, sagði Sigurð-
ur Hjartarson, trillukarl og
Stapi í Bolungarvík, í samtali
við blaðið á þriðjudaginn.
-GHj.
Mjög gott atvinnuástand á Flateyri
og fólki fjölgar stöðugt
„Það hefur verið mjög gott
atvinnuástand hér á Flateyri í
sumar. Við fengum mjög mik-
ið af aðkomubátum. Þeir voru
yfir 40 þegar mest var og
skiluðu mjög miklum afla á
land. Allur þessi afli var unn-
inn hér en ekki settur á fisk-
markað. Ástandið virðist vera
mjög gott með atvinnu áfram
Sléttanesið
verður frystitogari
„Það hefur verið unnið
að þeirri hugmynd í nokk-
uð langan tíma að breyta
Sléttanesinu í frystitogara.
Ég vonast efir að hægt
verði að byrja á verkinu
eftir tvo til þrjá mánuði.
Breytingamartaka 16 til 18
vikur. Aftur á móti standa
ekki til neinar breytingar á
rekstri Framnessins og
verður hann eins og verið
hefur. Vinnslan í landi
verður minnkuð en frysti-
húsinu verður tryggt nægi-
legt hráefni", sagði
Magnús Guðjónsson,
kaupfélagsstjóri á Þingeyri
Magnús Guðjónsson
kaupfélagsstjóri á Þingeyri.
í samtali
SKA.
við VESTFIR-
-GHj.
í haust og vetur. Við höfum
ekki séð atvinnuleysi á Flat-
eyri í mörg ár og ég efast um
að ég kynni að fylla út umsókn
um atvinnuleysisbætur ef hún
kæmi inn á borð til mín. Þann-
ig að ástandið er mjög gott og
vantar alltaf fólk.
Hér var 4% fjölgun á íbúa-
skrá á milli áranna 1990 og
1991. 1. desember sl. voru 410
á íbúaskrá í Flateyrarhreppi á
móti 393 árið 1990. Það sem af
er þessu ári hefur enn fjölgað
og íbúafjöldinn í dag er kom-
inn upp undir 430 manns.
Vandamálið er hins vegar að
okkur vantar íbúðir fyrir þá
sem vilja flytja hingað", sagði
Kristján J. Jóhannesson,
sveitarstjóri á Flateyri, í sam-
Kristján J. Jóhannesson,
sveitarstjóri á Flateyri.
tali við VESTFIRSKA.
-GHj.
Aldrei meira hey
Samúel Zakaríasson, bóndi
í Djúpadal í Austur-Barð,
sagði í samtali við blaðið að
hann hefði á 75 ára ævi sinni
aldrei heyjað eins vel og í
sumar. Væri þetta í fyrsta sinn
sem hann væri alveg öruggur
á haustnóttum um að verða
ekki heylaus. „Ég lauk fyrra
slætti 26. júlí og hafði 100 rúll-
ur af þurru. Fyrir tveimur
dögum sló ég 11 rúllur af há
og fyrir hálfum mánuði 41
rúllu af há“, sagði heiðurs-
maðurinn Samúel í Djúpadal.
-GHj.
POLLINN
HF. © 3092
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki
@
SALA
Rafgeymar
Rafhlöður
Hleðslutæki
ÞJONUSTA
Viðgerðir rafkerfa og
rafbúnaðar í bátum,
bílum og vinnuvélum
IRITSTJÓRN 0G AUGLÝSINGAR:
SÍMI 944011 • FAX 94-4423
Súlu bjargað
út af Kóp
Ólafur Veturliði Þórðarson, trillukarl á Þingeyri, bjargaði
lífi hafsúlu sem var með net flækt um gogginn og gat ekki
étið.
„Ég var á skaki á Sigurvin ÍS vestur við Kóp og þá kom
til mín súla. Hún var illa haldin og réðst á fisk við borðstokk-
inn hjá mér. Ég handsamaði hana og sá þá að netadrusla
var flækt utan um gogginn á henni. Hún var alveg kefluð
og gat ekki étið og var grindboruð. Ég gat skorið netið af
goggnum og síðan flaug hún frjáls ferða sinna. Hún fór
strax að éta og hefur vonandi getað bjargað sér“, sagði
Ólafur Veturliði í samtali við VESTFIRSKA.
-GHj.
Óðinn bakari
lokar versluninni
Óðinn bakari ætlar að loka sölubúð sinni við Hafnar-
stræti á ísafirði um mánaðamótin. Að sögn Óðins reisti
hann sér hurðarás um öxl er hann festi kaup á húsinu
Hafnarstræti 4. Taprekstur hefur verið á búðinni og Öldu-
kaffi frá upphafi. Kveðst hann því verða að selja húsið til
þess að halda sjó. Óðinn mun halda áfram bakstri af
fullum krafti við Silfurgötu og selja brauð og kökur t versl-
anir á ísafirði og nágrenni svo sem verið hefur.
Hafnarstræti 4 er nú til sölu og segist Óðinn selja það í
einu lagi eða hverja hæð út af fyrir sig.
-GHj.
Óðinn bakari við ofninn.
Skemmdarverk
á Skóda
Aðfaramótt laugardags voru unnin skemmdarverk á
þessum Skóda á Kaupfélagsplaninu á ísafirði. Ung stúlka
sem á bílinn skildi hann eftir vegna þess að sprungið var
á einu hjóli. Daginn eftir, þegar að var komið, var búið
að méla framrúðuna og báðar hliðarrúðurnar vinstra
megin. Stórir steinar lágu í sætum bílsins. Tjónið er tilfinn-
anlegt fyrir stúlkuna, auk þeirra óþæginda sem þetta skap-
ar henni. Lögreglan á Isafirði lýsir eftir vitnum að þessu
skemmdarverki og biður þau að hafa samband.
-GHj.