Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Qupperneq 5
ESTFIRSK^ L
1 FRÉTTABLAÐIÐ 1
Bessi með 58
tonn
- er að fiska í siglingu
Bessin kom inn til Súðavíkur
22. desember og landaði 58
tonna afla af Vestfjarðamiðum,
uppistaðan var þorskur, eftir
átta daga veiðiferð. Skipstjóri í
túrnum var Jói Sím. Bessi fór
út aftur til veiða 27.des. og er
nú að veiðum fyrir sunnan land
í siglingu. Skipið á að selja afl-
ann í Bremerhafen í Þýskalandi
21. janúar nk. Jói Sím er með
skipið í þessum siglingatúr.
-GHj.
Guðbjartur I
löngum túr
- landaði tvisvar fyrir sunnan
Togarinn Guðbjartur fór út
frá ísafirði 1. desember sl. og
hélt suður fyrir land. Skipið
landaði tvívegis fyrir sunnan,
þann 7. í Vestmannaeyjum þar
sem settir voru á land tveir
gámar af karfa sem fóru á
Þýskaland til sölu. Skipið
landaði svo 52 tonnum í
Reykjavík
þann 14., aðallega karfa, og
var hann settur í gárna og flutt-
ur í Norðurtangann til vinnslu
til að spara stímið vestur.
Skipið landaði svo á Isafirði
22. desember 33,5 tonnum, af
ufsa og karfa. Skipið byrjaði að
veiðum fyrir sunnan og fikraði
sig svo vestur eftir. Skipstjóri í
þessurn langa túr var Grétar
Þórðarson. Að sögn Hans W.
Haraldssonar hjá Norðurtang-
anum var svo gefið frí fram yfir
áramót, aðallega til þess að
teygja úr kvótanum.
-GHj.
Dagrún með
10 tonn
Dagrún landaði 40 tonna
afla, rnest þorski, í Bolungar-
vík 20. desember sl. eftir viku
veiðiferð á Vestjarðamiðum.
Skipstjóri á skipinu í þessari
veiðiferð var
Víðir Jónsson. Skipið fór svo
út aftur ntilli jóla og nýárs og
landaði 10 tonnum 30 des.
Skipstjóri var Markús Guð-
mundsson.
-GHj.
Heiðrún land-
aði 14 tonnum
Heiðrún landaði 30 tonna
afla, mest þorski, í Bolungarvík
21. desember eftir viku veiði-
ferð á Vestfjarðamiðum. Síðan
fór skipið út aftur 27. des. og
landaði 30. des. 14 tonnuni af
blönduðum afla. Skipstjóri í
báðum veiðiferðunum var Ein-
ar Hálfdánsson.
-GHj.
Holmadrangur
landaði
um af
Frystitogarinn Hólmadrang-
ur frá Hólmavík landaði 20.
desember 65,5 tonnum af
frystum fiski á Hólmavík að
verðmæti 14,2 milljónir króna.
Uppistaða aflans var þorskur.
Skipið byrjaði túrinn 3. nóv-
ember og var því úti í rúmar sex
vikur. Upp úr sjó eru þetta um
66 tonn-
frosnu
120 tonn. Skipið var að veiðum
í Smugunni í Barentshafi fyrstu
vikuna og hélt síðan heim á Is-
landsmið og kláraði túrinn á
Vestfjarðamiðum. Skipstjóri á
Hólmadrangi er Sigurður
Brynjólfsson.
-GHj.
Vel steiktur jóla-
morgunverður á Hernum
Litlu munaði að illa færi
fyrir íbúum á Hernum í Mána-
götunni á Isafirði að morgni
aðfangadags. íbúar í kjallara
ásamt gestum höfðu kvöldið
áður og unt nóttina verið með
gleðskap og trúlega verið að
fagna komu jólanna. Undir
morgun hafði hungur verið
farið að segja til sín og var þá
drifið í eldamennsku. Pönnu
skellt á helluna með dýrindis
steik. Eitthvað hefur pönnu-
vaktin klikkað, því þegar einn
íbúi hússins sem verið hafði
fjarverandi opnaði útidyrnar að
morgni aðfangadags, gaus á
móti honum þykkur reykjar-
mökkur. Sá hann strax hvaðan
reykurinn var upprunnin og
gerði íbúum og gestum viðvart.
Var þá húsráðandi að ranka við
sér og farinn að þreifa sig áfrant
í reykmekkinum fram í eldhús.
Þá voru aðrir gestir enn í
draumalandinu.
Tókst þarna á síðustu stundu
að slökkva undir steikinni áður
en allt fór í bál og brand. Eitt-
hvað hefur félögunum litist illa
á kræsingarnar sem búið var að
hafa fyrir að steikja svo ræki-
lega, því daginn eftir mátti sjá
svarta þúst frantan við dyrnar
sem einna helst minnti á kola-
mola, en var í raun fyrrverandi
jólamorgunverður.
-hk.
Fimmtudagur 6. janúar 1994
Tilkynning til
skipstjórnarmanna frá
Tilkynningaskyldu
íslenskra skipa
Frá og með áramótum verða öll skip að tilkynna reit og undirreit þegar skyldan er send til
strandstöðvar, samkvæmt þeim kortum sem gefin voru út seinasta vor. Kortin eiga að vera komin
í flest skip, þeir sem ekki hafa fengið kortin geta nálgast þau á hafnarvogum, strandstöðvum, hjá
flestum sjókortasölum eða fengið þau send í pósti.
Skyldutímar eru sem fyrr klukkan 10.00 - 13.30 á daginn, en á kvöldin klukkan 20.00 - 22.00.
Skipstjórnarmenn eru sem fyrr minntir á að senda tilkynningar sínar í upphafi skyldutímanna,
til að flýta fyrir úrvinnslu. Ennfremur að senda tilkynningar um brottför og komu ( höfn.
Starfsmenn tilkynningaskyldunnar óska öllum sjómönnum og ástvinum þeirra gleðilegs nýs árs,
og þakkar gott samstarf á liðnu ári.
Slysavarnarfélag íslands
Frekar friði Að sögn lögreglunnar á ísafirði voru ára- mótin frekar friðsæl á ísafirði. Eins og alltaf á nýársnótt var erill hjá lögreglunni, mikið af fólki var á ferli og þurfti lögregla að veita mikla þjónustu. T.d. var fylgst með sprengingum, flugeldaskotum, hættu á íkveikjum og er sinnt öllum kvörtunum og ábendingum sem berast. Dansleikir voru í hverju samkomuhúsi sem til er á svæðinu og þarf af þeim sökum talsvert »æl áramót marga lögreglumenn á vakt. Alltaf er talsverð ölvun á nýársnótt og talsvert mikið af ung- mennum á ferðinni. Að sögn lögreglu virðast ungmennin hafa nóg af áfengi til að drekka. Hafði lögregla afskipti af fjórtán ára unglingi sem lá mikið ölvaður utandyra á Eyrinni. Haft var samband við föður hans sem kom sam- stundis og sinnti unglingnum og tók hann með sér heim. -GHj.
Ær í sjálfheldu Að sögn Guðmundar á Munaðarnesi á Ströndum eru tvær kindur í sjálfheldu í svo- nefndum Urðarklettum, sem er klettabelti milli Fells og Munaðarness, og hafa þær ekki náðst þrátt fyrir að margar tilraunir hafi verið gerðar til í Urðarklettum þess. Sagði Guðmundur orðið hart og svellað og erfitt að komast upp til kindanna. Hins vegar tókst fyrir skömmu að ná tveimur lömbum, sem voru með kindunum, úr klettunum. Ekki ertalið að kindurnar séu í svelti. -GHj.
Innbrot í Annan dag jóla fékk lögreglan á ísafirði til- kynningu um að brotist hefði verið inn í veit- ingastaðinn Vagninn á Flateyri. Var rúða í úti- Vagninn hurð á bakhlið hússins brotin til þess að kom- ast inn. Stolið var einhverju af áfengi af barnum og skiptimynt. Málið er í rannsókn. -GHj.
Ekki staðiö \ snjómoksti - þrátt fyrir sa Lesandi hafði samband við blaðið og vildi gagnrýna snjómokstur Vegagerðarinnar á Botns- og Breiðadalsheiðum um jólin og einnig upplýsingar sem stofnunin gefur um færð á vegum á símsvara. „Auglýstur hafði verið snjó- mokstur á heiðunum yfir hátíðarnar og sagt að veginurh yrði haldið opnum til kl 19 alla mokst- ursdagana nema aðfangadag jóla og gamlárs- dag yrði haldið opnu til hádegis“, sagði lesand- inn. „Ungt par ætlaði yfir heiði annan dag jóla, eða 26. des., og hringdi það í símsvarann um hádegið til að kanna færðina. Skilaboðin á sím- rið auglýstan ur um jólin smilegt veöur svaranum voru þá frá kl 9:30 og þess efnis að ekki yrði mokað vegna skafrennings og ó- færðar. Upp úr hádegi var komið blíðu veður og voru enn sömu skilaboð á símsvaranum. Þrátt fyrir gott veður og að auglýst hefði verið að haldið yrði opnu til kl 19 þennan dag var ekki hreyft við moksturstækjum." Lesandinn spyr þvf: „Hvers vegna er verið að auglýsa snjómokstur sem ekki er staðið við þrátt fyrir að veður hafi verið gott seinni hluta dagsins en einhver skafrenningur að morgni?" -GHj.
Gaskútur Á nýársdag var tilkynnt til lögreglu á ísafirði að gaskútur væri inni í garði við Túngötuna. Fór lögregla og sótti kútinn sem hafði verið settur í I óskilum garðinn einhvern tíma á nýársnótt. Er hann geymdur hjá lögreglu og geta eigendur hans vitjað hans á lögreglustöðinni. -GHj.
Innbrot í
Grunnskólann
Annan dag jóla var tilkynnt til
lögreglu um innbrot í Grunn-
skólann á ísafirði. Hafði verið
farið inn á kennarastofu og
stolið peningum úr peninga-
kassa og einnig teknir varalykl-
ar að stofnuninni sem þar voru.
Litlar skemmdir voru unnar. Að
sögn lögreglu er greinilega
þarna um einhvern/einhverja
kunnuga að ræða. Málið er í
rannsókn. -GHj.
Orðsending frá
Litla Leikklúbbnum
Æfingar á leikritinu Dýrheimar sem byggt er á sögum
Rudyard Kipling um ævintýri úlfadrengsins Mowgli er um það
bil að hefjast.
Fyrsti lestur fer fram föstudagskvöldið 7. janúar klukkan
20.00 í húsakynnum Framhaldsskóla Vestfjarða.
Allir þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í sýningunni eru
hvattir til að mæta. Hlutverk eru fjöldamörg og allir fá að taka
þátt sem vilja, og það er ekki skilyrði að vera meðlimur í LL.
5
VIDE0
RELENTLESS 3
í þessari þriðju útgáfu
af Hinum vægðarlausu
er lögreglan í Los Angel-
es að fást við enn einn
fjöldamorðingajann. í
þetta skiptið hafa þeir þó
enga vísbendingu. Fórn-
arlömbin eru kyrkt og
siðan er þeim misþyrmt
kynferðislega. Líkunum
er kastað á afskektum
stöðum, þakin í efni sem
flýtir fyrir rotnun þeirra
Wesley Snipes
is PASSENGER 57
Þeir hafa loksins
handsamað heimsins
hættulegasta flugræn-
ingja. Þeir eru á leiðinni
með hann f fiugvél til að
leiða hann fyrir rétt. Enn
einu sinni er Charles
Rane (Bruce Payne) með
alla hluti á sínu valdi, en
það er bara eitt sem hann
flaskaði á, - farþegi
númer 57.
Líkt og Rane, er John
Cutter (Wesley Snipes)
óttalaus og greindur.
Ólíkt Rane, þá er hann
líka einn besti and-
skæruliðasérfræðingur
heimsins.
- Líf 200 manna er í
hættu þegar þessir tveir
mjög svo líku, en samt
svo ólíku menn takast á,
en aðeins annar þeirra á
von til að komast af.
VIDE0
s
4299