Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Page 7

Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Page 7
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ 7 „Nei það er ekki til. Hins- vegar erum við að fljúga t.d. með gerfitungl sem lent er með á Canaveral höfða og fara síðan út í geim með geimskutlunni. Svo fluttum við Volkswagen verksmiðjurnar frá Þýskalandi til Mexikó í fyrra. Þetta voru nokkrar ferðir. Þetta var fram- leiðslulína fyrir Volkswagen bjölluna. Um daginn fór ég í flug niður til Afríku með heil- mikið af bílum og dóti fyrir Rauðakrossinn. Þetta voru Landcruserjeppar, sendiferða- bílar, vörubílar og aðrar vörur. Síðan tókum við 100 tonn af blómum til baka. Þannig að það er ýmislegt sem verið er að flytja“. Með hundrað tonn af fragt og hundrað tonn af eldsneyti og eyðslan tólf tonn á klukkutíma - Hvað takið þið mikið í hverri ferð? „Það er algengt að það sé um hundrað tonn af fragt, en það fer allt eftir þvf hvað við erum að fljúga langt. Á svona sex tíma legg, þá erum við að taka al veg um eða yfir hundrað tonn af fragt. Heildarþunginn á flugvélinni er 378 tonn þegar hún fer í loftið fullhlaðin af vörum og eldsneyti. Oft á tíðum erum við með um eða yfir 100 tonn af eldsneyti í heildina. Við förum með um 12 tonn af eldsneyti á klukku- tíma þegar við erum komnir í eðlilega flughæð, þannig að það er fljótt að puðast út þegar við erum að fara sex og átta tíma leggi“. Alveg ótrúlegt! - Og þessi flykki tolla skammlaust uppi í loftinu? „Já, já, það er alveg ótrúlegt“, sagði Guðmundur og hló við. Full vél af farþegum er aðeins helmingur burðargetunnar - Og nú er verið að spá í enn stœrri vélar? „Já nú er verið að spá í það. Annars geta þessar vélar í dag borið mikið meira en fulla vél af farþegum. Fimmhundruð farþegar með öllum farangri vega ekki nema svona um 60 tonn og það er ekki nema um hálfur farmur miðað við burð- argetu vélanna sem bera ríf- lega hundrað tonn. Meðal- þungi farþega er kannski 85 kíló og 500 slíkir eru ekki nema 42,5 tonn“. Þúsund manna flugvéiar í framtíðinni - Sérðu fyrir þér á ncestu árum þúsund manna vélar? „Það kæmi mér ekkert á óvart. Þetta er búið að liggja á teikniborðinu hjá þeim lengi og við verðum bara að bíða og sjá hvað gerist í framtíðinni. Það eru geysilegar framfarir og þróun á tækjum og tækni síðastliðin þrjú, fjögur ár. Tölvumar em víða að taka yfir og margt á döfinni". - Að svo mæltu lukum við okkar samtali og óskum við Guðmundi góðrar ferðar um loftin blá. - hk. Á neöra dekki voru bílar í rööum á leiö til Afríku fyrir Rauðakrossinn. Úrslit á Jólamóti Vestra 1993 Undanfarin 10 ár hefur það verið hefð, að haldið er sundmót um áramótin þar sem sundfólkið reynir að bæta stöðu sína áður en þau ganga upp á milli aldursflokka og til að reyna að bæta Vestfjarða og (safjarðarmetin í sundi. Þetta ár var engin undantekning og nú var mótinu skipt í fjóra hluta sem fóru fram á tímabilinu 19.-31. des. 1. hluti 19.des. Þá voru synt lengri sundin og bætti sundfólkið sig í öllum þeim greinum sem þau syntu þann daginn. 2. hluti 28.des. Þennan dag voru þau í stuði og sett voru tvö Vestfjarðamet og tvö ísafjarðarmet. Aðalheiður Yr Gestsdóttir bætti eigið met í 400 m. fjórsundi telpna og synti á tímanum 5.47.17, (5.47.59) og var það bæði ísafjarðar og Vestfjarðamet. Aðalheiður Ýr var svo aftur á ferðinni þegar hún synti 100 m. baksund á 1.14.70 og bætti gamla metið um 1.1 sek (1.15.83) og var það einnig Vestfjarða og (safjarðarmet telpna. Guðbjörg Björnsdóttir synti svo sama sund í næsta riðli og gerði enn betur og bætti fjögra mín- útna gamalt met Aðalheiðar um þrjá hundruðustu úr sek. og synti á 1.14.67 3. hluti 30.des. Enn voru það stelpurnar sem héldu uppi merkinu og enn var það Aðalheiður Ýr, sem synti nú 200 m. fjórsund á tímanum 2.41.53 og jafnaði ísafjarðarmet Önnu S. Halldórsdóttur. Guðbjörg Björnsdóttir gerði sér svo lítið fyrir og bætti ársgamalt met Önnu S. í 200 m. baksundi um rúmar tvær sek og synti á tímanum 2.41.58 sem er Vestfjarða og ísafjarðarmet telpna 4. hluti 31,des. Ekkert met féll þennan dag en í nokkrum sundum voru þau alveg við metin. T.d. synti Aðal- heiður Ýr 50 m. baksund á tímanum 34.37 en metið er 34.36 og Pálína Björnsdóttir hjó einnig nálægt eigin metum í 100 og 50 m. baksundum. Annars voru bætingar hjá sundfólkinu mjög góðar og árið sem fer í hönd lítur vel út. Sundfólkið og aðstandendur þess vill svo senda öllum þeim sem stutt hafa starfið, kærar þakkir fyrir liðið ár og bestu óskir um gott samstarf á því sem nú er nýhafið. Með sundkveðju Óli Þór. Hvað var helst í fréttum síðastliðins árs? - Stiklað á stóru í umfjöllun Vestfirska fréttablaðsins um það sem efst var á baugi á liðnu ári í samantekt Harðar Kristjánssonar Gyllir (Stefnir) viö bryggju á Flateyri. í baksýn er fjalliö Þorfinnur sem núverandi útgeröarfélag heitir eftir. Gyllir til nýrra eigenda Þann 6. janúar var skuttoga- rinn Gyllir á Flateyri afhentur nýjum eigendum í kjölfar en- duskipulagningar á starfsemi Hjálms hf. á Flateyri. Nýtt hlutafélag var stofnað um kau- pin á Gylli, en það er hluta- félagið Þorfinnur sem skrásett er á Flateyri, en er í meirihluta- eigu íshúsfélags Isfirðinga hf. Togarinn fékk nokkru síðar nýtt nafn og heitir í dag Stefnir. Hjálmur hætti rekstri Áframhaldandi samdráttur varð á rekstri Hjálms hf. á árinu og í nóvember var ákveðið að segja upp öllu starfsfólki fyrir- tækisins og hætta rekstri. Vangaveltur um hafnarstjóra embættið I janúarbyrjun voru uppi vang- aveltur um það hver hreppa myndi stöðu hafnarstjóra á Isa- firði sem gert var að sérstöku embætti eftir að Sturla Hall- dórsson hafnarvörður lét af störfum sökum aldurs. Alls bárust nítján umsóknir um starfið og óskuðu fimm nafn- leyndar. Á hafnarstjórnarfundi 4. janúar lagði Tryggvi Tryggvason til að Frímann Sturluson yrði ráðinn, en Einar Hreinsson lagði til að Hermann Skúlason hlyti embættið. Við atkvæðagreiðslu hlaut Frímann tvö atkvæði hafnarstjómarman- na og Hermann hlaut einnig tvö, en einn sat hjá. I ljós kom að Frímann hafði fengið atkvæði I-lista manna og A-lista manna, en Hermann fékk stuðning D- lista og B-lista. Hinsvegar mun einn fulltrúi I-lista hafa setið hjá við atkvæðagreiðsluna. Mikill titringur var um málið í bæj- arstjórn, þar sem talið var að sjálfstæðismenn hafi ætlað að ráða Hermann í stöðuna, en að hjásetuatkvæði I-lista mannsins hefði tilheyrt Frímanni. Því hefði sú staða geta komið upp að bæjarstjórn réði Hermann í trássi við meirihluta hafnar- stjórnar. Á næsta bæjarstjór- narfundi var svo gengið frá ráðningu Hermanns Skúlasonar og lét Pétur Sigurðsson af A- lista hafa eftir sér að um póli- tísk hrossakaup væri að ræða og að ekkert faglegt mat hafi farið fram á hæfni umsækjenda og hæfari manninum verið hafnað. Mikill snjór á fjallvegum I janúarlok var greint frá mikl- um snjóalögunm á fjallvegum og haft eftir Sveinbimi Vetur- liðasyni að svo mikinn snjó væri venjulega ekki að sjá fyrr en í mars. Sérstaklega var minnst á Steingrímsfjarðarhei- ði, en þar var stuttur kafli á móts við sæluhúsið sem erfiður var. Á seinni hluta ársins var svo hafist handa við að endur- bæta þennan vegarkafla og hækka hann upp. Verkinu lauk þó ekki á árinu sökum óhags- tæðs tíðarfars og verða verk- lokin að bíða næsta sumars. Ekki fjölda- uppsagnir í Bolungarvík Á fundi bæjarstjórnar Bolung- arvíkur þann 21. janúar lá fyrir tillaga bæjarráðs um að segja upp öllu starfsfólki kaupstað- arins nema bæjarstjóranum, alls 30 - 40 manns. Bæjarstjórn féllst hinsvegar ekki á tillögu bæjarráðs og vísaði henni til baka. Miklar umræður urðu á fundi bæjarstjórnar um þetta mál og vildu sumir bæjarfull- trúar fara mildari leið en að beita slíkum fjöldauppsögnum, sem væru alltof harkalegar og grófar aðgerðir. Stórbruni á Flateyri I lok janúar brann fiskverk- unarhús Önfirðings hf. á Flat- eyri til kaldra kola. ítarleg rannsókn var sett í gang vegna gmns um íkveikju. Aukinn straumþungi í Sundunum á ísafirði Á forsíðu Vf. þann 11. febrúar var greint frá því að innsigling- in til ísafjarðar væri að öllum líkindum að breyta sér. Sam- kvæmt upplýsingum Sturla Halldórssonar fráfarandi hafn- arvarðar, þá væri straumurinn kominn upp í 6 sjm/klst, en var aðeins 2,7 sjm/klst fyrir 29 árum. Látravík seld til ísafjarðar Þann 11. febrúar kom fram að Látravíkin á Patreksfirði hafi verið seld til Isafjarðar án kvóta. Á ísafirði fékk skipið nýtt nafn og heitir í dag Guð- mundur Péturs og hefur verið gerður út á rækju. Vatnið í Hnífsdal ónothæft vegna kólí- og saurgerla Þessa fyrirsögn gat að líta á forsíðu Vf. þann 18. febrúar og var þar um að ræða niðurstöðu könnunar heilbrigðisfulltrúa Vestfjarða. Orsökin fyrir svo slæmu vatni voru talin vera vegna þess að allt neysluvatn væri yfirborðsvatn. Vatn á Isa- firði reyndist vera litlu skárra, en ástandið ekki óþekkt þvf svo hefur það verið áratugum saman og vatnið yfirleytt talið óhæft til neyslu vegna gerla- mengunar.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.