Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Qupperneq 8

Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Qupperneq 8
Þessi tvö hús voru rifin á síoðastliðnu ári. Að ofan hús sem stóð neðst í Aðalstræti og var eitt sinn í eigu O.N. Olsen, en á neðri myndinni er verið að rífa gamla safnaðarheimilið í Sólgötunni. Óveðurá ísafirði Föstudaginn 12. febrúar gekk á með sunnan roki á Isa- fírði. Var almannavamarnefnd kölluð saman og björgunar- sveitir kallaðar út. Fólk lenti í basli á bílum sínum á Botns- heiði og tókst eftir mikið streð að koma fólkinu klakklaust til byggða á Suðureyri. Þá fuku járnplötur af húsum í Hnífsdal og eins fauk ruslagámur við sorpeyðingastöðina og lenti hann niður í fjöru. Tveir ungir piltar sem verið höfðu í útilegu í Armannsskálanum í Dag- verðardal voru sóttir af Hjálp- arsveit skáta og var mikill erill hjá lögreglu við að koma fólki til síns heima. Gamla Fagranesið selt til Hafnarfjarðar Gengið var frá sölu gamla Fagranessins suður til Hafnar- fjarðar um miðjan febrúar. Var söluverð skipsins 5,7 milljónir króna. I Hafnarfirði fékk skipið nýtt hlutverk sem fljótandi veitingahús. Óvissu ástand I kjölfar gjaldþrots E.G. i Bolungarvík Mikið atvinnuleysi varð í Bol- ungarvík við gjaldþrot Einars Guðfinnssonar hf. og mikið óvissuástand í bænum. Ein- hverjir fengu þó vinnu á Isa- firði, en ekki fór þó að lyftast brúnin á Bolvíkingum fyrr en ákveðið var að stofna útgerðar- félagið Osvör í marsbyrjun. Gengið var frá stofnun félags- ins að kvöldi 10. mars og voru stofnfélagar hátt í tvö hundruð. markmið félagsins var í fyrstu að taka á leigu eignir þrotabús E.G., skipin tvö Dagrúnu og Heiðrúnu, kvótann og fisk- vinnsluna. Annað hlutafélag var líka stofnað sem tók rækju- verksmiðjuna í Bolungarvfk á leigu af þrotabúi E.G. Það er hlutaféiagið Þuríður hf. Helstu forsvarsmenn þar á bæ eru þeir Jón Guðbjartsson og Valdimar Lúðvík Gíslason. Mikil tog- streita kom upp á milli þessarar félaga þegar tekist var á um kaup á frystihúsinu og lyktaði þeim darraðadansi með því að Þuríðarmenn höfðu betur. Gengið var frá kaupsamningi á milli Fiskveiðisjóðs og Þuríðar hf. um kaup Þuríðar á rækju- vinnslu og frystihúsi E.G. þann 13. ágúst. Voru nú allaráætlanir Osvararmanna dæmdar til að endurskoðast, því þeir höfðu stefnt að því að yfirtaka bæði útgerð og vinnslu E.G. í sínum áætlunum. Skapaði þessi tog- streyta mikla úlfúð og svifting- ar í bæjarlífi Bolungarvíkur og var mikið um málið fjallað í fjölmiðlum landsmanna. Skiptar skoðanir um fyrirhugaða sorpbrennslu Miklar deilur voru á milli fyrrverandi framkvæmdarstjóra FSÍ / HSÍ og starfsfólks á síöastliðnu ári. VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ í Suðurtanga Sorpsamlag Vestfjarða sótti um starfsleyfi fyrir sorpbrenn- slustöð í Suðurtanganum á Isa- firði. Fullyrt var að stöðin yrði mengunarlaus og með þessari staðsetningu mætti nota varmaorkuna til hitaveitu. Jón Páll Halldórsson var ómyrkur í máli varðandi þetta staðarval og taldi sorpbrennslu á þessum stað rnikið áfall fyrir fiskvinn- sluna á Isafirði. Hans Georg Bæringson formaður bæjarráðs hafði uppi varnir vegna staðar- valsins og sagði að tekið yrði á málum samkvæmt ströngustu kröfum helstu viðskiptalanda okkar. Miklar umræður fylgdu í kjölfar þessa í bænum og í Vf. 25. mars kom fram að meiri- hluti bæjarstjórnar væri í raun klofinn í þessu máli. Þar sæti formaður bæjarráðs öðru megin við borðið, en forseti bæjarstjórnar og samflokksma- ður formannsins hinu megin og á öndverðri skoðun. 12. júni fór svo fram skoð- anakönnun meðal bæjarbúa eftir hörð skoðanaskipti bæjar- fulltrúa um málið. Urslit skoð- anakönnunarinnar voru þau að Isfirðingar hunsuðu atkvæða- greiðsluna og var kjörsókn aðeins 13% og þar af var þriðjungur kjörseðla ógildur. I könnuninni stóð valið á milli tveggja staða, Suðurtanga og Dagverðardals. I skoðana- könnuninni kusu þó fleiri Seljadal en Suðurtanga, enda þótt Seljadalur væri alls ekki í boði. Niðurstaðan varð svo sú að enginn áðurnefndra staða var valinn, heldur var ákveðið að byggja stöðina í landi Kirkjubóls í Engidal og hófust framkvæmdir þar um haustið. Vandræða- gangur í kerfinu varðandi byggingu íþrótta- hússins á Torfnesi Mikill vandræðagangur kom upp varðandi þilplötur í nýja íþróttahúsinu á Isafirði í mars. Talið var að þær stæðust ekki Islenska brunaþolsstaðla og var málið lengi að veltast í kerfinu. Að lokum samþykkti Bruna- málastofnun að gefa undanþá- gu fyrir notkun á þessunr plöt- um, þar sem brunaþolsmunur á þeim og fyrirliggjandi staðli væri mjög óverulegur. Deilur á FSÍ ogHSÍ í Vf. 25. mars gat að líta frétt um miklar og hatrammar deilur á milli Guðmundar Marinós- sonar framkvæmdarstjóra FSI og HSI og Guðna Marinós Guðnasonar fulltrúa hans, einkum út af vinnutilhögun, yfirvinnu og fleiru og lagði sá síðarnefndi fram skriflega kvörtun til stjórnar sjúkrahús- sins. Upp úr sauð þegar fram- kvæmdarstjórinn lét þess getið á lokuðum stjórnarfundi, að fulltrúanum hafi orðið á mistök í færslu tékkhefti og því hefði komið fram misræmi á hlaupa- reikningi upp á fjórar milljónir króna. Taldi Guðni að þarna væri verið að saka sig urn fjárdrátt og bar jafnfram fram ýmsar kvartanir um fram- kvæmdarstjórann. Stjórn sjúkra- hússins fékk þá endurskoðanda til að koma þessu máli á hreint og óskaði jafnframt eftir því við málsaðila að þeir kæmu ekki til vinnu í nokkra daga á meðan sú athugun færi fram. Þessi deilu- mál urðu aftur á móti til þess að vekja upp umræður um fleira. Efnt var til starfsmannafundar sem lýsti yfir vantrausti á framk væmdarstjórann. Lyktaði deilum þessum svo með því að framkvæmdarstjóri lét af störfum við sjúkrahúsið og var staða hans auglýst laus til umsóknar og í september tók síðan Guðjón Brjánsson við stjórninni sem nýr framkvæm- darstjóri, en Kristján Sigurðs- son hafði starfað sem fram- kvæmdarstjóri til þess tíma frá þvf Guðmunur fór frá. Bjartsýni um Vestfjarða- göng í mars Þriðjudaginn 23. mars gengu Mikið var rætt og ritað um ferjubryggjur við Isafjarðar- djúp á árinu og sýndist sitt hverjum. Skorað var á þing- menn Vestfjarða að beita sér fyrir ferjubryggjumálinu, en greinilegt að Vegagerð ríkisins var því ósammála. Mikil rök voru lögð fram á báða bóga og er enn óvíst um endanlega af- greiðslu málsins. Málaði skrattann á vegg Hjalti kálfur Guðröðsson fékk mág sinn Omar Smára Kristinsson frá Gíslholti í Holtum til að mála skrattann með púkum sínum á bílskúrs- vegginn hjá sér að Stakkanesi 14 á Isafirði einn dag í ágúst- mánuði. Pirraði myndin mjög Risavaxinn blóðmörs- keppur? Þessi spurning var borinn fram yfir mynd af einkenni- legu hrúgaldi á forsfðu Vf. þann 15. júlí. Ekki var þó um slátur í þeim skilningi að ræða heldur var þarna dauður hnúfubakur sem rekið hafði upp á Selárdalsfjöru. Hvítabjörn drepinn norður af Horni I blaðinu sem kom út 1. júlí var sagt frá hvítabjamardrápi skipverja á Guðnýju ÍS á Af gatnamótum í Vestfjaróagöngum. Líkur benda nú til aö göngin gefi bæði af sér vatn til neyslu fyrir ísfirðinga og til orkuframleiðslu fyrir Orkubú Vestfjarða. Vegagerð ríkisins og Vesturís frá samkomulagi um að jarð- göngin undir Breiðadals- og Botnsheiðar yrðu tekin í nokun haustið 1994 og fullnaðarfrá- gangi lokið sumarið 1995. Unnu þá 18 menn á vöktum allan sólarhringinn og boruðu að jafnaði 17 metra á dag. Samgönguráðherra Halldór Blöndal kom vestur af þessu tilefni til að staðfesta sam- komulagið. Þessi mikla bjartsýni átti þó eftir að breytast í martröð nokkrum mánuðum seinna. A hádegi fimmtudagsins 1. júli, á sama tíma og verið var að prenta Vf. sem greindi frá góðu gengi borana með myndum í opnu, þá lentu bormenn á gríðarlegri vatnsæð í Breiða- dalsleggnum. Urðu menn að flýja göngin með allt sitt hafurtask, enda vatnsflaumur- inn hvorki meira né minna en 2000 sekúndulítrar. Þegar menn fóru að átta sig á ástand- inu var ákveðið að flytja bor- gengið yfir í Botnsdal og halda borunum áfram þaðan. Þá var fljótlega hafist handa við að ræsa fram vatn úr göngunum og breikka legginn inn að vatns- æðinni miklu. I desember var svo allt orðið klárt til að hetja framkvædir að nýju frá Tungu- dal. Flest bendir þó til þess í dag að þetta óhapp verði hið mesta happ fyrir Vatnsveitu ísatjarðar og Orkubú Vesttjarða, en lík- legt er að báðir þessir aðilar geti á tiltölulega auðveldan hátt virkjað vatnið til neyslu og raforkuframleiðslu sem talinn er mjög hagkvæmur kostur. Ferjubryggjur fyrir Fagranesið viðkvæmar sálir, kannski ekki síst fyrir það að djöfsi þótti fremur fáklæddur, í raun með allt úti og vel vaxinn niður. Fór svo að innan skamms var búið að mála yfir listaverkið sem valdið hafði mikilli umferð forvitinna listunnenda framhjá húsi Hjalta. Skutull gerði það gott Þrátt fyrir ýmis vandamál í sjávarútvegi. þá gerði rækjuto- garinn Skutull frá ísafirði það gott á árinu í júlí bárust fréttir af togaranum þar sem hann var staddur við Nýfundaland á miðum sem nefnast Flæmski hatturinn (Flemish Cap). Þar var hann að veiðum innan um fjölda annarra skipa, þar á meðal stærstu og fullkomnustu rækjutogara heimsins, og var á nokkrum dögum kominn með 60 tonn af rækju, en alls fiskaði togarinn fyrir um 300 milljónir króna á árinu. fimmtudeginum í vikunni á undan. Olli þetta mál miklu tjaðrafoki dýraverndunarman- na bæði hér á landi og erlendis. Krafist var harðra dóma yfir skipverjunum og var lögre- glurannsókn sett í gang. Ekki voru þó nein lög í landinu sem bönnuðu dráp á hvítabjömum og fór því svo að lokum að héraðsdómari á Isafirði sýknaði mennina. Þrír verktakar vinna við stórfram- kvæmdir á veginum yfir Hálfdán I júlí voru framkvæmdir við nýja veginn yfir Hálfdán á milli Bíldudals og Tálkna- fjarðar komnar í fullan gang. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Kristjánssyni um- Mikið flóð varð í Vestfjarðagöngunum í sumar og ollu töfum á meðan menn voru að átta sig á breyttum aðstæðum.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.