Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Qupperneq 12
í ''fi |f "i nT í | Skiptibókamarkaðurinn t er ifullum gangi
1 w 1 ííilE j finiy m [3
1 li —. — — f BÓKAVERSLUN - JÓNASAR TÓMASSONAR Sími 3123, ísafirði
j FRÉTTABLAÐIÐ
RITSTJÓRN OGAUGLÝSINGAR:
SÍMI94-4011 • FAX 94-4423
Aðför að
lögreglu á
nýársnótt
- táragasi beitt á óróseggina
Á sjötta tímanum á nýársnótt heyrðu lögreglumenn á lög-
reglustöðinni á Isafirði mikinn hávaða á bifreiðastæði við
Hamraborg sem er skammt frá stöðinni. Pegar þeir komu út var
fjöldi fólks umhverfis bifreið sem var á stæðinu og var ekki
annað sjáanlegt en að menn væru í átökum við menn í bif-
reiðinni. Nokkrir menn báru það að ökumaður bifreiðarinnar
hefði sýnt tilburði í þá átt að aka þá niður og voru þeir að berja
á honum fyrir það. Þegar rætt var við ökumannin kom í Ijós að
hann var ölvaður og þegar reynt var að færa hann á stöðina þá
brugðust menn hinir verstu við og vildu fá að berja fangann.
Þegar lögregiumenn, sem voru tveir, reyndu að hindra það
töldu menn freklega á rétt sinn gengið og fjórir menn réðust þá
að lögreglumönnunum. Létu menn sér ekkert segjast og réðust
meðal annars að fótum iögreglumannanna og reyndu að fella
þá í götuna. Eftir að annar lögreglumannanna hafði fallið í
götuna og meiðst á öxl, sennilega skroþþiðð úr axlarlið og í
hann aftur, sáu lögreglumenn sér ekki annað fært en beita þeim
brögðum sem unnt væri og sþrautuðu táragasi á slagsmála-
hundana. Við það dró úr þeim allan mátt. Þegar svo verið var
að handtaka mennina kom sá fimmti út úr hóþnum og réðist á
annan lögreglumanninn aftanfrá og felldi hann í götuna. Síðan
sgarkaði hann í höfuðið á liggjandi manninum. Lögreglan náði
þó fljótlega yfirhöndinni í þesum róstum. Ökumanninum sem
grunaður var um ölvun var skiþað að fara af vettvangi og inn
á lögreglustöð og hlýddi hann því. Fær mál hans venjulega
meðferð. Tveir slagsmálahundanna voru síðan vistaðir í
fangaklefum til morguns. Málið er í rannsókn og verður þetta
mál skoðað gaumgæfilega af lögreglu. Þarna var um pilta á
aldrinum 18 til 21 árs að ræða. Lögreglumaðurinn sem meiddist
á öxl var frá vinnu í tvo daga.
-GHj.
Breytingar á
snjómokstri á
Vestfjöröum
Snjómokstursdagar Vegagerðarinnar breytast talsvert í
næstu viku. Breiðadals- og Botnsheiðar verða framvegis mok-
aðar á mánudögum og fimmtudögum og alla leið til Þingeyrar.
Að vísu er oftar mokað frá Flateyri og inn á flugvöllinn í Holti í
Önundarfirði. Frá Bolungarvík til Súðavíkur er mokað alla daga
vikunnar. Frá Súðavík til Hólmavíkur verður mokað á þriðju-
dögum og föstudögum.
Mokað er frá Hólmavík að Brú í Hrútafirði mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga og er þar engin breyting á. Rutt er frá
Hólmavík að Drangsnesi um Selströnd mánudaga og föstu-
daga. Rutt er í Bjarnarfjörð á þriðjudögum og var sá mokstur á
miðvikudögum áður.
Hætt er að moka Dynjandisheiði og Klettsháls í Barða-
strandarsýslum. Mokað er frá Patreksfirði um Tálknafjörð til
Bíldudals á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Mok-
að er á sömu dögum frá Patreksfirði að Brjánslæk. Frá Búðar-
dal að Reykhólum er mokað tvo daga í viku, mánudaga og
föstudaga, heimilt er að opna á miðvikudögum meðan snjólétt
er. Mokað er í Gufudalssveit einu sinni í hálfum mánuði en
heimilt að moka vikulega meðan snjólétt er.
-GHj.
Rússar út
af við Ósá
Aðfaranótt þriðja dags jóla tilkynnti leigubílstjóri til lögregl-
unnar á ísafirði að bíll fullur af Rússum væri utan vegar við
brúna á Ósá í Bolungarvík. Var skilaboðum þessum komið til
lögreglu í Víkinni og fór hún á vettvang. Rússarnir höfðu verið
að prufukeyra númerslausan bíl sem þeir höfðu keypt og lent
út af í hálkunni. Voru Rússarnir skammaðir ærlega og fengu
síðan að skipa bílnum um borð í sitt skip.
-GHj.
Rusl af öskuhaugum á ísafirði í fjörunni við flugbrautina gegnt flugstöðvarbyggingunni.
Plastpokaregn af
öskuhaugunum yfir
á flugbrautina
- skapar stórhættu fyrir flugvélar
Plastpokar á girðingu fyrir ofan flugbrautina.
Starfsmenn á ísafjarðarflug-
velli höfðu samband við blaðið
í gær og bentu Vestfirska á að
gríðarlegt magn af stórurn
plastpokum utan af rækju hefði
fokið undanfarið yfir á flug-
brautina af ruslahaugum Isa-
fjarðarkaupstaðar í Suðurtang-
anum og sætu fastir á
brautarljósum, girðingum og
byggingum, enda hefur verið
bálhvasst á norðaustan undan-
farið. Sögðust þeir varla hafa
undan við að tína upp pokana.
„Við erum margbúnir að tala
við bæjaryfirvöld unr þessi mál
og við getum alveg eins talað
hér við vegginn", sagði einn
starfsmannanna í samtali við
blaðið. „Það er jafnvel hætta á
að þetta plastdrasl fjúki á flug-
vélar í flugtaki og það þarf ekki
að spyrja um afleiðingarnar ef
svona poki lendir í hreyfli þegar
vél fer í loftið. Bærinn ber á-
byrgð á þessu." Blaðamaður ók
Ibúi á ísafirði hafði samband
við blaðið og var að velta fyrir
sér lagningu vatnsleiðslu frá
Holtahverfi í Skutulsfirði að
hinni nýju sorpbrennslustöð
sem verið er að reisa í landi
Kirkjubóls í Engidal. Fannst í-
búanum vinnubrögð bæjaryfir-
valda minna sig á þau vinnu-
brögð að sækja vatnið yfir
lækinn. Rétt við stöðina rennur
Langá til sjávar og fjallalækir
með starfsmanni ísafjarðar-
flugvallar eftir endilangri flug-
brautinni og gat að líta hauga af
ofnum plastpokum utan af
og lindir eru allt í kring. Þrátt
fyrir það þurfi að leggja rán-
dýra vatnsleiðslu um 3ja km
leið að stöðinni. Sagði íbúinn
að ódýarari kostur hlyti að hafa
verið fyrir hendi en þessi.
Talið er að stöðin, sem ísa-
fjarðarkaupstaður stendur einn
að, muni kosta um 200 millj-
ónir króna og er það nálægt því
að vera 60 þúsund krónur á
hvert mannsbarn í bænum. Allt
rækju í kanti brautarinnar við
sjóinn. Einnig skoðaði blm.
girðingar sem voru stoppaðar
af pokum. -GHj.
þetta fé verður tekið að láni.
Miðað við opinberar fram-
kvæmdir undanfarinna ára má
hins vegar búast við að stöðin
kosti, þegar upp verður staðið,
250 milljónir króna. Það verða
rúmlega 71 þúsund krónur á
íbúa. Skyldi verða um miklar
aðrar framkvæmdir að ræða á
vegum bæjarins hin næstu ár?
-GHj.
Hávaða-
samt
partý
Aðfaranótt gamlársdags
var lögreglan á (safirði
margkölluð í sama húsið á
ísafirði vegna hávaða hús-
ráðanda. Var þarna um tví-
býlishús að ræða og hafði
húsráðandi í annari íbúðinni
staðið fyrir samkvæmi. Var
spiluð hávær tónlist í sam-
kvæminu og hafði fólk með
börn í hinni íbúð hússins
ekki svefnfrið af þeim sök-
um. Þverskallaðist húsráð-
andi við tilmælum lögreglu
um að lækka í tækjunum og
hækkaði þau uþp úr öllu
valdi þegar þeir sneru frá
dyrunum. Síðast þurfti lög-
reglan að hafa afskipti af
samkvæminu klukkan fimm
um morguninn. Að sögn
lögreglu eru mál sem þessi
afar erfið viðureignar og
verður að kæra þau til lög-
reglu. Mál þetta er til með-
ferðar hjá lögreglunni.
-GHj.
Verið
að
hleypa
til
- segir
Guðmundur á
Munaðarnesi
„Það er allt tíðindalaust
hér hjá okkur“, sagði Guð-
mundur hreppstjóri á Mun-
aðarnesi í samtali við blaðið.
„Við erum bara að hleypa til
núna. Maður drakk út ára-
mótin eins og gengur. Ung-
lingarnir í hreppnum komu
saman í verbúðinni í Norð-
urfirði og héldu knall. Við
komum svo saman nokkrir
fuglar og gerðum gaman úr
áramótunum líka.“
-GHj.
POKI
En sniðugt, nú þarf ekki
einu sinna að keyra
rusiinu í nýju sorþ-
eyðingarstöðina, það
bara fýkur þangað.
Var farið yfir lækinn
eftir vatni?
- þegar sótt var vatn í sorpbrennsluna á Kirkjubóli
©leðílcgt ✓ ✓ 1 j f) ÍSPRENTHF.
nytt arl y fc/ PRENTSMIÐJA S 94-3223