Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 1

Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. J Ú L Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  172. tölublað  103. árgangur  TEKUR EINN DAG Í EINU OG EITT LAG Í SENN KARATE ALLTAF ÁSTIN Í LÍFI MÍNU LEIKKONUR VERÐA ALDREI OF GAMLAR HEILLAÐIST AF SALSA 10 KRISTÍN G. MAGNÚS 14PRINS PÓLÓ GEFUR ÚT PLÖTU 38 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Unnið er að stækkun þriggja hótela við Laugaveginn í Reykjavík og eru tvö til viðbótar í byggingu. Þá er stórt hótel í undirbúningi í nágrenn- inu sem ekki hefur verið sagt frá í fjölmiðlum. Fjárfestar munu greina frá því verkefni í haust. Hótelin þrjú sem verða stækkuð eru Hótel Alda, CenterHótel Skjald- breiður og CenterHotel Miðgarður. Fjallað er um stækkun Hótels Öldu í Morgunblaðinu í dag en alls fjölgar herbergjum á hótelunum þremur um rúmlega 150. Til samanburðar eru 209 herbergi á Hótel Sögu. Nýtt 60 herbergja hótel við Laugaveg 34a-36 er í byggingu en það verður opnað næsta sumar. Þá mun hótelkeðjan Hilton Inter- national hefja rekstur 115 herbergja hótels á svokölluðum Hljómalindar- reit við Laugaveg sumarið 2016. Samanlagt munu bætast við 325 herbergi hjá hótelunum fimm, eða svipað mörg og á stærsta hóteli landsins við Höfðatorg, skammt frá. Mikil ásókn er í fasteignir í mið- bænum. Dæmi um það er að verktaki seldi fjárfestum allar íbúðirnar í nýju fjölbýli á Hverfisgötu 57 og líka réttinn til að byggja annað fjölbýli á Hverfisgötu 61. Verktakinn var ekki búinn að steypa grunn að Hverfis- götu 61 þegar verkefnið var selt. Ásókn í Laugaveginn  325 hótelherbergi munu á næstunni bætast við á Laugaveginum í Reykjavík  Þrjú hótel verða stækkuð og tvö ný byggð  Fjárfestar kaupa óbyggð hús MHótel stækkað »4 Á teikniborðinu » Fyrirhuguð stækkun Center- Hotel Skjaldbreiðar, Laugavegi 16, og CenterHotel Miðgarðs, við Hlemm, er á borði skipulagsyfirvalda í Reykjavík. » Hótel Alda verður tengt við tvö nálæg hús á Laugavegi. Erlendur maður var í héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæslu- varðhald til 20. ágúst í gær að kröfu lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Er það gert á grund- velli rannsóknarhagsmuna, síbrota og hættusjónarmiða. Maðurinn er grunaður um að hafa smitað ung- ar konur hérlendis af HIV- veirunni. Rannsókn lögreglunnar snýr meðal annars að því að skoða hvort fleiri konur kunni að hafa verið í samneyti við manninn og hvort þær séu smitaðar. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa tvær konur greinst með HIV og á annan tug kvenna farið í greiningu. Haraldur Briem sóttvarnar- læknir sagði í samtali við mbl.is í gær, að unnið sé að því að finna hversu umfangsmikið málið er, en það er gert með svokallaðri smit- rakningu. Segir hann slíka vinnu gerða daglega hjá embættinu. Málið kom upp fyrir skömmu, þegar fyrsta tilvikið var greint og í kjölfarið hófst rakning smitsins sem leiddi til mannsins sem nú er í gæsluvarðhaldi. »2 Tvær konur smitaðar Pressphotos.biz Hulinn Erlendur maður var úr- skurðaður í gæsluvarðhald í gær.  Maður dæmdur í gæsluvarðhald Við Heklurætur á landi Landgræðslunnar við Gunnarsholt gefur á að líta þennan fagra sumarnepjuakur sem er um 18 hektarar að stærð. Um er að ræða svokallað Cordelia-afbrigði sumarnepjunnar sem er náskyld repju en heldur fljótsprottnari. Björgvin Harðarson bóndi í Laxárdal hefur ræktað akurinn frá því 2007. Hann býst við því að sumarnepjuakurinn verði enn gulari eftir því sem líður á sumar, en í haust verður hann sleginn og nepjan notuð sem svínafóður. Björgvin segir að á undanförnum árum hafi hann prófað að rækta ýmislegt á svæðinu, meðal annars hveiti og rúg. Gul sumarnepjan teygir sig að Heklurótum Morgunblaðið/Árni Sæberg  Það er mat Minjastofnunar Íslands að ekki sé ástæða til að varðveita rústir fornbæjarins sem óvænt komu í ljós við uppgröft á lóð Íslandsbanka við Lækjargötu í Reykjavík. Þetta segir Adolf Friðriksson, forstöðumaður Fornleifastofnunar Íslands. Hann segir að þó rústirnar verði ekki varðveittar þá muni sú þekking sem þær hafa leitt í ljós skila sér. Aldursgreiningar eiga eftir að leiða í ljós aldur rústanna, en hann telur þær vera frá fyrstu tveimur öldum Íslandsbyggðar. »22 Ekki ástæða til að varðveita rústirnar Uppgröfturinn við Lækjargötu.  Seint í gærkvöldi veiddist 75 þúsundasti laxinn hjá Laxárfélag- inu sem í ár fagnar 75 ára af- mæli. Orri Vigfússon formaður félagsins er himinlifandi yfir áfanganum og segir að verið sé að skipuleggja hvernig eigi að fagna afmælinu. Sá 75 þúsundasti var einnig maríulax og gerir það atburðinn enn merkilegri fyrir vikið. Orra, sem er einnig formaður Laxverndunarsjóðsins, bárust gleðifréttir frá Skotlandi í gær en þar var ákveðið að banna laxveiði í net. Hann segir það mikinn áfangasigur fyrir sjóðinn en hann hefur barist fyrir því í 26 ár að banna slíka veiði beggja vegna Atlantshafsins. Orri vonast til að laxastofninn sjái nú fram á bjart- ari tíma. »7 75 þúsundasti laxinn á 75 ára afmælinu Laxá Veiðimaður við Laxá, en þar hafa veiðst 75.000 laxar undanfarin 75 ár.  Í ársskýrslu CERT-ÍS fyrir árið 2014 kemur fram að vefveiðar (e. phishing) hafa færst í aukana hér á landi. Í vefveiðum felast tölvupóst- sendingar sem látnar eru líta út fyrir að vera frá fyrirtækjum, til að blekkja viðskiptavini þeirra og hafa af þeim fjármuni. Að sögn Guðbjörns Sverris Hreinssonar, öryggisstjóra Símans, varð fyrirtækið fyrir slíkri árás ný- lega. „Það var sett upp vefsíða með merki Símans, að vísu á lélegri ís- lensku. Þessir aðilar sendu síðan fjöldapóst á fjölda einstaklinga, ekki bara viðskiptavini Símans, þar sem fólk var beðið að fara inn á vef- síðuna til að fá einhvers konar end- urgreiðslu,“ sagði hann, en fljótt tókst að loka á árásina. 12 Tölvuþrjótar gerðu eftirlíkingu af vefsíðu Símans í þeim tilgangi að hafa fé af fólki Morgunblaðið/Kristinn Netógn Með vefveiðum er reynt að fá fólk til að gefa upp kortaupplýsingar sínar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.