Morgunblaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
en hann segist láta henni eftir að sjá
um peninga. Hann helgar sig al-
gjörlega býflugnaræktinni á móti.
Árlega framleiðir hann um sjö tonn
af hunangi, en hann lætur flugunum
eftir álíka magn. Hann býður upp á
fjölbreytt úrval lífrænt ræktaðs hun-
angs en bragðið af hunanginu breyt-
ist eftir árstíðum og fæði flugnanna.
Vopnaður matskeið og vinkli
Blaðamaður og ljósmyndari heim-
sóttu Eyvind í gær í Gróðrarstöðina
Lambhaga þar sem hann er gest-
komandi í sumar líkt og mörg önnur
sumur. Eyvind sýndi okkur bý-
flugnabúin sem hann er með þar,
vopnaður öllu sem til þarf í bý-
flugnarækt: Hvítum samfestingi
með hettu, matskeið af óræðum upp-
runa og n.k. vinkli sem er notaður
þegar þarf að eiga við búin.
Á leiðinni að búinu beindi Eyvind
til okkar varnaðarorðum: „Sykur er
óhollur. Passið ykkur á því.“ Ey-
vind étur engan sykur en hann fær
sér hunang í hvert mál, sem hann
segir gera hann yngri með hverju
árinu.
Rækt á Íslandi möguleg
Eyvind segir um hundrað áhuga-
menn á Íslandi hafa komið sér upp
búum, en afraksturinn hefur verið
misjafn. Hunangsflugurnar loðnu
sem eru Íslendingum betur kunnar
segir Eyvind þó óræktanlegar.
Hann býður öllum sem hafa
áhuga að koma til sín í Lambhaga
og fræðast um búskapinn auk þess
sem hann heldur úti myndböndum
um efnið. Eitt slíkt má nálgast á
vefnum Vimeo.com undir nafninu
„The Worlds Finest Food.“
Stelur hunangi sér til lífsviðurværis
Eyvind Pedersen ferðast um heiminn og kynnir fólki býflugnarækt Segir að einlægur áhugi
sé eina ástæðan fyrir því að hefja býflugnarækt „Býflugurnar hata mig, en ég elska þær“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bóndi Eyvind sést hér við bústörf en við gróðrarstöðina heldur hann tvö bú. Nokkur þúsund flugur búa þar í góðu yfirlæti, enda gnótt gróðurs.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Býflugur Býflugurnar eru ólíkar hunangsflugunum loðnu sem eru Íslend-
ingum betur kunnar. Þeim skal þó ekki rugla saman við geitunga.
VIÐTAL
Bjarni St. Ottósson
bso@mbl.is
Hann gefur sig ekki út fyrir að vita
neitt um býflugur, þótt hann hafi
ræktað þær í áratugi. „Býflugur vita
það best sjálfar, hvað er best fyrir
býflugur. Ég hélt fyrir svona tíu ár-
um að ég vissi allt um býflugur en nú
er ég ekki viss. Ég veit kannski ekki
neitt. Ég uppgötva nýja hluti á
hverjum degi. Til dæmis að ævi bý-
flugna er ekki mæld í vikum, heldur
metrum. Þær fljúga eins langt og
þær geta og deyja svo.“
Eyvind Pedersen er danskur að
uppruna, fæddur 1933 en hefur
lengst af búið á Nýja Sjálandi. Þar í
landi kalla þeir hann reyndar Ivan.
Hann er kominn á eftirlaun en
hann eyðir nú tíma sínum í það að
stunda býflugnarækt og kenna öðr-
um hvernig á að nálgast fagið. Hann
segir alla velkomna til sín sem hafa
áhuga á býflugum, en hann heldur til
í Gróðrarstöðinni Lambhaga nú í
sumar.
Enginn venjulegur maður
Eyvind gefur sig alls ekki út fyrir
það að vera eins og flestir aðrir. „Ég
er ekki venjulegur maður. Það þarf
óvenjulegan mann til þess að standa
í því sem ég geri.“ Hann kvæntist
konunni sinni, Ninu Pedersen, í bý-
flugnagallanum og útskýrir það svo:
„Við vorum að drífa okkur. Það er
hægt að gifta sig hvenær sem er en
við þurftum að sinna býflugunum.
Það er ekki hægt að rækta býflugur
hvenær sem er.“
Um ræktina segir Eyvind: „Þetta
er ekki vinna, áhugamál eða trúar-
brögð. Býflugnarækt er göfug iðn og
hana ber að stunda sem slíka. Það
eru tvær leiðir til þess að stunda
hana og sú fyrri er röng. Í fyrsta lagi
fyrir peninga og í öðru lagi fyrir bý-
flugurnar sjálfar.“
Nýlendubóndi
Eyvind kynntist býflugnarækt
ungur að árum á bæ fjölskyldu sinn-
ar og hafa þær átt hug hans allan
síðan. „Býflugurnar hata mig, en ég
elska þær. Ég lifi á því að ræna af
þeim.“
Heima á Nýja Sjálandi sér konan
hans um búið á meðan hann er frá,
Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður
Einarsson sem báðir voru sakfelldir í
Al-Thani málinu svokallaða hafa ósk-
að eftir endurupptöku málsins í
Hæstarétti, en Ólafur Ólafsson sem
einnig var sakfelldur hafði áður óskað
eftir endurupptöku.
Í endurupptökubeiðni Hreiðars
Más, þar sem færðar eru fram sömu
röksemdir og í beiðni Sigurðar, kem-
ur fram að Hreiðar telji Árna Kol-
beinsson hæstaréttardómara hafa
verið vanhæfan til að dæma í málinu.
Af þeim sökum hafi verið verulegir
ágallar á meðferð málsins sem hafi
getað haft áhrif á niðurstöðuna. Son-
ur Árna, Kolbeinn Árnason, starfaði
sem forstöðumaður lögfræðisviðs
slitastjórnar Kaupþings frá 2008-
2013. Telur Hreiðar að hagsmunir
slitastjórnar Kaupþings af sakfell-
ingu í málinu séu augljósir. Þá telur
Hreiðar einnig að líklegt sé að Kol-
beinn muni fá greidda háa upphæð í
kaupauka verði gengið frá nauða-
samningum við kröfuhafa.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, vildi ekki tjá sig efnislega
um endurupptökubeiðni Hreiðars og
Sigurðar, þar sem möguleiki er á að
endurupptökunefnd biðji um álit
embættisins á beiðninni. „Það er vert
að benda á það að það er ekki í mörg-
um tilvikum sem fallist er á endur-
upptöku mála samkvæmt svona
beiðnum. Ég held að nefndin hafi ver-
ið að samþykkja beiðni í annað skiptið
nú bara á dögunum þegar það var
verið að samþykkja endurupptöku
vegna snjóflóðsins á Patreksfirði.“
Ekki náðist í lögmann Heiðars Más
við gerð fréttarinnar og lögmaður
Sigurðar vildi ekki tjá sig um málið.
isb@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Beiðnin Hreiðar og Sigurður telja
að brotið hafi verið á sér í málinu.
Telja hæstaréttar-
dómara vanhæfan
Kaupþingsmenn vilja endurupptöku
Isavia hefur ákveðið fyrir þessa
verslunarmannahelgi að aðeins átta
flughreyfingar, þ.e.a.s. flugtak eða
lending, verði leyfilegar á hverjum
hálftíma á Vestmannaeyjaflugvelli.
Þetta er gert í kjölfar áhættumats
sem Isavia vann eftir síðustu versl-
unarmannahelgi og var samþykkt af
Samgöngustofu.
Alls eru 896 flughreyfingar í boði
yfir helgina, en Isavia mun úthluta
þeim til umsækjenda og munu áætl-
anaferðir í fólksflutningum njóta for-
gangs. Isavia metur það svo að sam-
kvæmt áætlunum flugfélaganna
muni þau nýta 25-30% flughreyfinga.
Flughreyfingar á flugvellinum síð-
ustu verslunarmannahelgi voru 566
skv. upplýsingum frá Isavia. Heild-
arfjöldi flughreyfinga allt árið 2014 á
flugvellinum var 4.900.
Fyrirkomulagið gagnrýnt
Formaður Félags flugmanna og
flugvélaeigenda, Valur Stefánsson,
hefur gagnrýnt fyrirkomulagið harð-
lega, m.a. í aðsendri grein í Morgun-
blaðinu á þriðjudaginn. og segir
Isavia með því útiloka einkaflug-
menn frá Eyjum yfir helgina.
Standist mat Isavia á notkun flug-
félaganna ætti þó talsverður fjöldi
flughreyfinga að standa eftir fyrir
einkaflugmenn, þar sem úthlutuð
tímapláss verða 58% fleiri en heild-
arfjöldi hreyfinga í fyrra.
Isavia segir það ekki forsvaran-
legan kostnað að þjálfa þann fjölda
flugumferðarstjóra sem þyrfti til
þess að manna vaktir yfir eina helgi
á ári, ætti að setja flugumferðar-
stjórn á flugvöllinn í Vestmannaeyj-
um. Reynslan af helginni í fyrra kall-
aði þó á aðgerðir skv. áhættumati.
Flug til Eyja kvótasett
Átta lendingar eða flugtök leyfð á hverjum hálftíma yfir
verslunarmannahelgi á Vestmannaeyjaflugvelli
Wikipedia/Vestman
Flug Flugturninn í Vestmannaeyjum sinnir ekki flugumferðarstjórn sem
slíkri en magnstýringu verður beitt um verslunarmannahelgina.