Morgunblaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Núna… rekur Edda
salsaskólann Salsa Iceland auk þess
að starfa sem sjúkraþjálfari hjá
Gáska. Hún hefur unnið þar frá
árinu 2008 en hún útskrifaðist sem
sjúkraþjálfari árið 2004. Edda stofn-
aði Salsa Iceland árið 2003 eftir að
hafa kynnst dansinum í Svíþjóð og
hefur síðan þá unnið að því að kynna
salsa fyrir Íslendingum og að upp-
byggingu salsasamfélags á Íslandi.
Hún er einmitt á leiðinni til Berlínar
á eina stærstu salsasamkomu sem til
er en hún er að sýna salsa út um all-
an heim. Hún kveðst efast um að
hún muni nokkurn tíma lifa „eðlilegu
lífi“.
„Ég mun aldrei hætta í karate og
verð alltaf karatemanneskja í hjarta
mínu, þó svo að ég hafi þurft að for-
gangsraða öðrum verkefnum undan-
farin ár. Ég bíð eftir að vegurinn
sveigi aftur inn í dojo-inn því að kar-
ate er lífstíll en ekki íþrótt. Karate
verður alltaf ástin í lífi mínu,“ segir
Edda en hún hætti að keppa í karate
fyrir um áratug, þó svo að hún kenni
ennþá og æfi óreglulega.
Tvö ár í Stokkhólmi
Hún bjó í Stokkhólmi á árunum
2004-2006 þar sem henni bauðst að
æfa með norrænum landsliðum. „Á
þessum tíma var Daninn Alan Busk
landsliðsþjálfari íslenska liðsins og
því var mun þéttara samstarf á milli
skandinavísku landsliðanna. Í gegn-
um hann æfðum við mikið með
norska landsliðinu. Ég fór meira að
segja með þeim í æfingaferð til
Bandaríkjanna þar sem ég keppti á
Bíður þess að vegur-
inn sveigi inn í dojo
2004 Edda Lúvísa Blöndal varð árið 2004 Íslandsmeistari í kumite, þ.e.
frjálsum bardaga í karate í opnum flokki kvenna 12. árið í röð. Hún
hafði þá verið sigursælasta karatekona Íslands í rúman áratug og
unnið til fjölda verðlauna innanlands sem utan. Enginn íslenskur
karatemaður hefur leikið það eftir og því á Edda ennþá metið í að
vinna flest mót í röð. En hvað svo? Hvar er hún nú?
Höfuðspark Edda tekur hér mawashi-geri, eða hringspark, í höfuðhæð.
Netið er stútfullt af afþreyingar-
síðum með myndum, greinarstúfum
og teiknimyndum sem eiga ýmist að
vera fyndnar, furðulegar eða vekja
mann til umhugsunar.
Ein þeirra er heimasíðan Bored
Panda, sem inniheldur safn greina
um ferðalög, ljósmyndun, teikni-
myndir, föndur, matreiðslu, brandara,
list og margt fleira.
Hvort sem maður er í leit að mynd-
um af viðbrögðum kattar sem vakn-
aði án eistna, hundum í fötum, grís
með kórónu, manndómsvígslum
eþópísks ættbálks, indónesískum
fornleifum neðanjarðar, vatnsmelónu
sem búið er að skera út eins og
dreka, málverkum á laufblöðum,
brauðhleif sem lítur út eins og köttur
eða að einhverju öðru álíka furðu-
legu, ættu allir að finna einhverja
tímaeyðslu við hæfi. Ekki skortir úr-
valið á síðunni.
Vefsíðan www.boredpanda.com
Ljósmynd/www.boredpanda.com
Dreki Vatnsmelóna sem búið er að skera út eins og dreka.
Alls konar tímaeyðsla í boði
Jógakennarinn Arnbjörg Kristín Kon-
ráðsdóttir stendur fyrir svokallaðri
gong-slökun í Nauthólsvík kl. 15.00 á
morgun, laugardag. Gong-slökun er
sögð endurnærandi og hjálpa við að
öðlast meiri hugarró. Gongið og gít-
arinn eru iðulega hluti af jógakennslu
Arnbjargar enda rík hljóðheilunar- og
möntrutónlistarhefð í Kundalini-jóga
eftir forskrift Yogi Bhajan. Hún hefur
líka kennt jóga í vatni um árabil.
Þess má geta að Arnbjörg er höf-
undur hugleiðslubókarinnar Hin
sanna náttúra. Tilvalið að kíkja í
Nauthólsvík á morgun til að hvíla lík-
ama, huga og sál við hafið.
Afslöppun
Gong-slökun í
Nauthólsvík
Gong Arnbjörg jógakennari við
gongið góða á ströndinni.
Druslugangan verður haldin hátíð-
leg í fimmta sinn á morgun, laug-
ardag, 25. júlí. Gangan verður farin
frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00 á
morgun, niður Skólavörðustíg,
Bankastræti og mun enda á Aust-
urvelli þar sem við taka fundarhöld
og tónleikar.
Allir eru hvattir til að mæta og
færa skömmina þangað sem hún á
heima, hjá gerendum kynferðisof-
beldis en ekki hjá þolendum þess.
Skipuleggjendur göngunnar
benda á, að allt of oft sé einblínt á
klæðnað, hegðun eða fas þolenda
sem afsökun fyrir kynferðis-
glæpum. Hins vegar sé ekki til nein
afsökun fyrir að beita kynferðisof-
beldi.
Druslugangan er orðin að föstum
punkti í íslensku samfélagi þar sem
samfélagið rís upp gegn kynferðis-
ofbeldi og stendur með þolendum
en gangan hefur orðið fjölmennari
með hverju árinu sem líður. Myllu-
merki viðburðarins eru #þöggun
#freethenipple #konurtala
#Drusluganga #6dagsleikinn.
Druslugangan
Gengið gegn kynferðisofbeldi
Morgunblaðið/Ernir
Fjölmenni Druslugangan er almennt haldin í bongóblíðu og fjölmargir mæta.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.