Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 11

Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 11
Ljósmyndir/Úr einkasafni Leiðtogi Hér er Edda fremst í flokki glæsilegra salsakvenna á sýningu. U.S. Open í Las Vegas,“ greinir Edda frá. Árið 2006 fann Edda að ástríðan fyrir keppniskarate minnkaði. „Ég hélt að það yrði auðveldara að æfa með erlendu liði en það var það ekki. Ég hafði alltaf unnið mikið sjálfstætt í minni þjálfun þar sem erlendir þjálfarar komu mjög sjaldan til Ís- lands. Það sama gilti um æfinga- félaga mína, þá Jón Inga Þorvalds- son, Ingólf Snorrason og Halldór Svavarson, en við fengum ekki sér- lega mikinn stuðning í þjálfuninni. Þessi vinnubrögð fylgdu mér til Stokkhólms. Ég þurfti, rétt eins og heima, að keyra á milli staða öll kvöld til að geta æft með þeim sem voru á sama getustigi og ég. Þetta var lýjandi auk þess sem ég meiddist á ökkla. Þegar ég fann ástríðuna minnka ákvað ég að hætta og sjá hvort hún kæmi aftur. Þá tók annað við sem hefur stækkað svo mikið í höndunum á mér síðan að mér hefur ekki tekist ennþá að sveigja mér aft- ur inn í dojo-inn.“ Þarna vísar Edda til salsadansins, sem hefur heldur betur vaxið og dafnað frá því að hún hóf að vinna honum brautargengi. „Þegar félagi minn í sænska landsliðinu hætti í karate til að dansa salsa, fannst mér það svo afkáraleg skipti að ég hrein- lega varð að prófa. Hann fór því með mig á salsaklúbb. Þar féll ég fyrir tónlistinni og þótti dansinn bæði framandi og spennandi. Þar sá ég einnig parið Ibi og Marina dansa og það hafði varanleg áhrif á mig en þau hafa keppt og kennt út um allan heim. Rétt eins og á fyrstu karate- æfingunni minni, varð ég ástfangin af salsa og ákvað að læra dansinn,“ segir Edda en hún byrjaði strax upp frá þessu að stunda salsadans sam- hliða karate. Vildi byggja upp salsasamfélag Á meðan Edda bjó úti kynntist hún ungum salsakennara sem hún flutti inn til Íslands til að kenna nokkur helgarnámskeið. Eftir heim- komuna ákvað hún svo að fara að kenna dansinn sjálf og byggja upp salsasamfélag og -skóla. „Þá þorði ég loksins að hafa samband við Ibi og Marinu. Þau komu í fyrsta sinn til Íslands árið 2006 til að kenna salsa á vegum Salsa Iceland. Þau deildu með mér þessari sýn um að stofna salsasamfélag hér á landi og við urð- um strax mjög góðir vinir,“ segir Edda og bætir við að kennsla hafi alltaf verið henni í blóð borin en hún hafði þá kennt karate frá sextán ára aldri. En hvers vegna varð salsa fyrir valinu? „Mér hafa alltaf líkað áskor- anir og það var mjög skemmtilegt fyrir mig að fara öfganna á milli, úr hörkunni í mýktina. Auk þess hef ég alltaf haft unun af tónlist og salsa- tónlistin heillaði mig. Loks er salsa frábær leið til að kynnast nýju fólki. Ég fór fljótlega að bjóða upp á ókeypis prufutíma og salsakvöld, sem er nú þungamiðjan í starfsemi Salsa Iceland. Á þessi salsakvöld kemur fjöldi fólks og alltaf ein- hverjir nýir.“ 80 manns að meðaltali að dansa Starfsemi Salsa Iceland hefur blásið út á undanförnum árum. Á haustin þegar starfsemin stendur sem hæst, koma að meðaltali 80 manns á vikuleg salsakvöld á vegum skólans. „Frá því að við fórum að bjóða upp á prufutíma, hefur tíminn aldrei verið mannlaus. Alltaf kemur einhver,“ segir Edda og bætir við að á síðastliðnum tíu árum hafi líklega um þúsund manns tekið námskeið á vegum skólans. „Mitt starf hefur falist í að kynna salsa sem félagslíf, byggja upp skóla og kenna á námskeiðum. Ég hef allt- af haft mikinn metnað fyrir að byggja upp námskeið og getustig sem skilar nemendum sem geta dansað salsa getu sem uppfyllir al- þjóðlega staðla. Salsa er stéttlaust umhverfi í þeim skilningi að fólk úr öllum stéttum og hvaðanæva úr heiminum geti komið saman og dansað. Ég vil að nemendur mínir geti gert einmitt þetta, dansað við hvern sem er, hvar sem er. Salsa og karate er lífsstíll Salsa er spunadans, hann er ekki fyrirfram ákveðinn og maður þarf ekki að dansa við einhvern ákveðinn til að hann gangi upp,“ útskýrir Edda en hún lítur á samstarfsfélaga sína í dansinum sem fjölskyldu sína. „Stór hluti af Salsa Iceland er byggður upp á sjálfboðaliðastarfi. Þetta er félag áhugafólks um salsa- dans á Íslandi og í teyminu eru hátt í 20 manns sem kenna dansinn. Þau hjálpa okkur að halda vikulegu salsakvöldin, sem eru hjartað í starf- seminni. Ég gæti aldrei gert þetta ein heldur vinn ég þetta ásamt salsa- fjölskyldunni minni sem elskar að dansa. Við teljum starfsemina auðga borgina, félagslíf okkar og líf.“ Hún segir salsa, rétt eins og karate, vera lífsstíl. „Maðurinn minn er líka með í þessu, sem betur fer. Ætli ég sé ekki öfgakenndur persónuleiki sem fer alla leið með hlutina.“ Edda og Páll, maðurinn hennar, eiga saman þriggja ára son og sex ára dóttur en Edda fékk eina fimmtán ára fóstur- dóttur „í bónus“ eins og hún orðar það. „Ég er að reyna að leyfa þeim að velja íþróttina sína sjálf. Svo lengi sem það verður salsa, karate eða körfubolti erum við sátt,“ segir Edda og hlær. Aðspurð hvort hún sé íþróttafrík, svarar Edda: „Ég hef alltaf fundið mig vel í hreyfingu og íþróttum. Ég átti fleiri strákavini en stelpuvini sem barn þar sem ég átti auðveldara með að tjá mig með líkamlegri hreyfingu og í strákaleikjum. Ég var og er mjög kappsöm og þurfti alltaf að vera fyrst, efst og fremst. Það er gott upp að ákveðnu marki en kapp- söm börn þurfa að læra að tapa.“ Nýtur leiðarinnar í ríkara mæli Hún kveðst vera í því lífsverkefni að læra að njóta leiðarinnar í stað þess að einblína aðeins á mark- miðið. „Öllum er hollt að kunna að vinna eftir markmiðum en sá árang- ur í lífinu sem ég er hvað ánægðust með er sú verðmæta vitneskja að ég get sett mér markmið, lagt mig fram og náð þeim. Það er gríð- arlegur styrkur og gott veganesti sem getur átt við um hvað sem er en á sérstaklega vel við í karate. Kar- ate er einstaklingsíþrótt þar sem mikið er horft inn á við. Þetta er líka gömul heimspeki sem er nyt- samleg í nútímasamfélagi en hún fjallar um fegurð einfaldleikans sem og þolinmæði, þolgæði og virð- ingu í erfiðum aðstæðum, eins og í bardaga. Þessir þættir eru ekki efst á baugi í nútímasamfélagi. Karate hefur alltaf verið jaðargrein þar sem hún er stunduð og hún verður það líklegast áfram. Hún er ekki allra, enda erfið og það hentar ekki öllum að stunda fá tæknibrögð og slípa þau til allt sitt líf,“ útskýrir Edda. Hún bendir á að þessi gamla heimspeki sé ekki íþróttatengd held- ur lífsstílstengd. „Þegar ég lít til- baka yfir farinn veg, er þetta feg- urðin í því sem við gerðum. Það er ástæða þess að langflestir sem hafa stundað karate á annan hátt en sem tómstundagaman segja að maður hætti aldrei og sé alltaf á leiðinni inn í dojo-inn. Karate hefur varanleg áhrif á persónuleika manns.“ Undirbúningur Hér gerir Edda sig klára fyrir salsasýningu. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm • Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Í augum Maya-indían- anna er morgundagurinn, laugardaginn 25. júlí, heilagur dagur. Af því til- efni stendur hópur fólks fyrir hátíð í Grasagarð- inum í Laugardal í Reykjavík. Að sögn Jónínu Bjarg- ar Yngvadóttur, jóga- kennara, heilara og blómadropaþerapista, er um að ræða dag sam- kenndar og friðar, þar sem fólk kemur saman sem bræður og systur. ,,Þar er tíminn í raun ekki til í þeim skilningi sem við höfum í dag. Þá er tíminn list og sköpun sem flæðir með takti náttúrunnar,“ útskýrir Jónína, sem einnig er kölluð Nína Wolf Feat- her eða Ox Lamat sem er Maya- nafnið hennar. Hún bætir við að dagur utan tím- ans sé hátíð alheimsfriðar í gegnum listir. ,,Dagur utan tímans er mikilvægur dagur fyrir mannkynið. Mayarnir, hin fornu menningarsamfélög indíána, héldu þennan dag hátíðlegan ár hvert, þegar sólin er í samstöðu við stjörnuna Siríus, en þetta er í sam- ræmi við Tzolkin-fræðin. Tzolkin þýð- ir í raun „gengið í gegnum dagana“ og Mayarnir fylgdu hinu rökrétta þrettán tungla dagatali,“ segir hún. Allir eru velkomnir á hátíðina og að deila hæfileikum sínum með um- heiminum, hvort sem það er á sviði lista, jóga, heilsu, dans, tónlistar, ljóða, handavinnu eða annars. Dagskráin stendur yfir frá klukkan 9 til 18 en hún er hefst með klukku- stundar jóga, svo hálftíma taek- wondo undir leiðsögn. Klukkan 10:30 býður Allan Cooper Coffman upp á Ho’opono’pono, klukkan 11.11 er boð- ið upp á hugleiðslu til heilunar á vatni fyrir heiminn og mannkynið en klukk- an tólf hefst „Tíðni og töfrar – upp- lifun með olíum“. Klukkan 13:20 hefst svo hátíðleg athöfn sem nefnist „Day out of Time Ceremony to the 7 Galactic Direc- tions“ en boðið verður upp á fjöl- breytta tónlist í eftirmiðdag. Dagur utan tíma Heilagur dagur Maya-indíána Skipuleggjandinn Jónína Björg eða Ox Lamat. Ljósmynd/www.jogakennari.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.