Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Sendum hvert
á land sem er
Tölvur og fylgihlutir
ICYBOX hleðslutæki í bíl
ICYBOX tvöfalt hleðslutæki
• Styður tvö USB tæki samtímis
• Virkar á Samsung, iPhone, iPad o.fl.
• Ræður við mikið álag, allt að 24 wött
• Sterkbyggt, má nota sem neyðarhamar í bíl
3.990 kr.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Ég veit ekki hvort vonbrigði er orðið
yfir það, ég er eiginlega gáttaður á
framkomu stjórnarmanna og þeirra
sem ráða innan
Golfsambands Ís-
lands. Mér finnst
þetta vera íþrótt-
inni til skammar
hvernig þeir koma
fram,“ sagði
Björgvin Þor-
steinsson, sexfald-
ur Íslandsmeistari
í golfi, í samtali við
mbl.is. Björgvin er
í lyfjameðferð
vegna krabbameins og bað um að fá
að nota golfbíl á mótinu sem var hans
52. í röð en þeirri beiðni var hafnað af
Golfsambandi Íslands þar sem reglur
leyfa það ekki. Björgvin hætti leik
eftir sex holur í gær.
Fordæmi eru fyrir því að kylfingar
fái afnot af golfbílum í neðri deildum
Íslandsmótsins.
Óeðlilegt forskot
Hörður Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Golfsambands Íslands,
segir að ákveðið hafi verið að veita
ekki þessa sömu undanþágu í meist-
araflokki. ,,Það hefur verið talið að í
keppni þeirra bestu sé óeðlilegt að
keppandi hafi forskot umfram ann-
an,“ segir Hörður. Spurður hvort for-
skotið sé ekki fyrir bí sökum heilsu-
fars Björgvins, svarar Hörður að það
sé ekki hlutverk mótsstjórna að meta
heilsufar manna. ,,Menn geta komið
með vottorð af ýmsum ástæðum,
t.a.m. þegar menn eiga erfitt með
gang. Niðurstaðan hefur verið sú að
veita ekki undanþágu vegna heilsu-
brests,“ segir Hörður. Spurður hvort
ekki sé eðlisólíkt að bera saman þá
sem eiga erfitt með gang og þá sem
glíma við illvígan sjúkdóm, þá telur
hann ekki svo vera. „Svona spurning
myndi ekki koma upp í öðrum íþrótt-
um og það er mat okkar að golfíþrótt-
in samanstandi af meiru en því að
hitta bolta,“ segir Hörður. Aðspurður
viðurkennir Hörður að ákveðin mót-
sögn felist í því að mönnum sé leyft að
notast við golfbíl í neðri deildum. „Við
höfum veitt þær undanþágur og telj-
um að það hafi minna vægi þar en í
flokki þeirra bestu. Það er eðlis-
munur á því þegar verið er að velja
besta kylfing landsins og öðrum
keppnum,“ segir Hörður. Hann segir
að um sé að ræða alþjóðlegar reglur.
Þrátt fyrir það fékk atvinnukylfing-
urinn Casey Martin, sem þjáist af
erfðagalla sem gerir honum erfitt um
gang, að keppa á golfbíl á PGA-
mótaröðinni í Bandaríkjunum eftir að
hafa unnið mál gegn hæstarétti
Bandaríkjanna. Hörður segir ekki
útilokað að undanþágur verði veittar í
framtíðinni ef samkomulag náist um
það innan golfhreyfingarinnar.
Gagnrýni kemur á óvart
Hann segir að hörð gagnrýni
Björgvins komi honum á óvart. „Það
kemur á óvart að maður sem náð hef-
ur svona góðum árangri í golfíþrótt-
inni taki svo sterkt til orða. Ég hefði
haldið að hann liti á golfíþróttina
þeim augum að hann taki ekki svona
sterkt til orða. En hann hefur sína af-
stöðu og hver getur túlkað þetta fyrir
sig,“ segir Hörður. » Íþróttir
Illvígur sjúkdómur breytir engu
Margfaldur Íslandsmeistari, Björgvin Þorsteinsson, sem glímir við krabbamein fékk ekki að vera
á golfbíl á Íslandsmótinu Undanþágur áður verið veittar „Íþróttinni til skammar“
Morgunblaðið/Arnaldur
Margfaldur Íslandsmeistari Björgvin Þorsteinsson fékk ekki undanþágu
um notkun á golfbíl á Íslandsmótinu þrátt fyrir að glíma við krabbamein.
Hörður
Þorsteinsson
Alfons Finnsson
Ólafsvík
Nýr bátur sem Kristinn J. Frið-
þjófsson ehf. á Rifi lét smíða fyrir sig
hjá Siglufjarðar Seig kom til heima-
hafnar í gær
Báturinn fékk nafnið Stakkhamar
SH 220. Hann verður gerður út á
línuveiðar og í honum er beitning-
arvél. Stakkhamar er 14,9 metrar að
lengd, 29 brúttótonn að stærð og er
mjög vel útbúinn að öllu leyti að
sögn eiganda.
Halldór Kristinson var skipstjóri
frá Siglufirði á Rif. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Halldór að bát-
urinn hefði reynst mjög vel á heim-
leiðinni.
Fjölmenni tók á móti Stakkhamri
þegar hann kom til Rifs seinni part-
inn, til þess að skoða bátinn og
þiggja glæsilegar veitingar um borð.
Stakkhamar til heimahafnar
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Nýr bátur Stakkhamar SH220 verður gerður út á línuveiðar frá Rifi.
Mikið var um að vera í Bakkafjarð-
arhöfn í gær. Þegar blaðamaður
ræddi við Óla Þór Jakobsson, hafn-
arvörð Bakkafjarðarhafnar, í gær-
kvöldi, höfðu átján bátar landað í
höfninni.
„Það hafa aldrei verið svona
margir bátar hérna. Það voru mun
færri bátar í fyrra. Þetta eru mest
allt aðkomubátar hérna,“ sagði Óli
Þór. „Dagurinn var svolítið stremb-
inn. Þegar þeir koma margir í einu
er mikið að gera,“ sagði hann og
bætti við að mikið af fiskinum fari á
markað á Þórshöfn.
Þrátt fyrir talsverðan fjölda báta í
höfninni þá sagði Óli ekki miklu hafa
verið landað, en af því sem landað
var hafi mest verið af þorski.
Bakkafjarðarhöfn er smábátahöfn
og er einungis ætluð fyrir fiskibáta
og aðra smærri báta. Í höfninni er
einn viðlegukantur úr timbri og ein
flotbryggja. Þá er einnig löndunar-
kantur og tveir kranar til uppskip-
unar afla og veiðarfæra á honum.
Einnig er aðstaða fyrir smábáta til
að taka hráolíu. Stærsta verkun
Bakkafjarðar er Toppfiskur, en þar
starfa um 10-15 manns. isb@mbl.is
Ljósmynd/Sigurður Aðalsteinsson
Bakkafjarðarhöfn Þar var annasamt í gær og nokkru landað af þorski.
„Aldrei verið svona
margir bátar hérna“
18 bátar lönduðu í Bakkafjarðarhöfn
Vallarfoxgras skríður hægar í ár
heldur en meðaltal 25 áranna á
undan en í ár skreið það hinn 9. júlí
en skrið er þegar axið á plöntunni
er komið upp úr stráinu. Meðaltal
áranna 1979 til 2014 er 5. júlí en í
fyrra skreið það 25. júní. Eru þetta
afleiðingar kaldara veðurfars í ár
en undanfarinna ára en heitt tíma-
bil hefur ríkt hér á landi frá því ár-
ið 2000 og til ársins 2014 en þá
skreið vallarfoxgras öll árin í júní
að undanskildum þremur árum.
Jónatan Hermannsson lektor við
Landbúnaðarháskólann sem mælt
hefur skriðið við Korpu segir að
niðurstöðurnar séu í samræmi við
veðurfarsþróun á Íslandi. Hann
hefur einnig mælt skrið byggs, en í
ár skreið það 20. júlí en meðaltal
frá 1981-2014 er 23. júlí. Ekki hafi
verið frost í jörðu í ár sem geri það
að verkum að byggi var plantað
fyrr en ella, eða 1. maí. Fyrsta dag-
setning sem bygg hefur skriðið frá
árinu 1981 var 8. júlí árin 2010 og
2012. isak@mbl.is
Vallarfoxgras skríður
tiltölulega seint í ár
Korpa Grasið var mælt við Korpu.