Morgunblaðið - 24.07.2015, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Leiðandi framleiðandi lítilla
heimilistækja fyrir hjarta heimilisins
60 ára reynsla á Íslandi
Hinn svokallaði brunareitur á horni
Lækjargötu og Austurstrætis hefur
verið auglýstur til sölu hjá borg-
inni, sem keypti reitinn eftir bruna
árið 2009.
Fasteignasalan Eignamiðlun sér
um söluna og segir Kjartan Hall-
geirsson fasteignasali töluverðan
áhuga til staðar. Fasteignafélög,
fjárfestingasjóðir sem og smærri
fjárfestar sækist yfirleitt eftir eign-
um eins og þessum reit.
Á milli átta og tíu tilboð segir
Kjartan hafa borist í Torfuna á sín-
um tíma og hann á von á a.m.k.
öðru eins nú. Ekki hefur enn verið
opnað fyrir tilboð. Það verður gert
í ágúst.
Samkvæmt upplýsingum frá
borginni kostaði uppbyggingin á
reitnum samtals 1.198 milljónir
króna. Þrjú hús, endurbyggð í
sögulegum stíl, standa á reitnum og
eru samtengd með sameiginlegum
kjallara. Brunabótamat eignar-
innar er um 1,6 milljarðar kr.
Talsverður
áhugi á
brunareit
Opnað fyrir tilboð
í húsin í ágúst
Eignamiðlun
Brunareitur Austurstræti 22 og
Lækjargata 2 eru til sölu.
Nýr kjarasamningur var undirrit-
aður hjá Alcoa Fjarðaáli 17. júlí sl.
milli AFLs starfsgreinafélags, Raf-
iðnaðarsambands Íslands og Alcoa
Fjarðaáls. Samningurinn gildir til
fimm ára, frá 1. mars 2015 til 29.
febrúar 2020.
Helstu breytingar í nýjum samn-
ingi felast í breyttu vinnutímafyr-
irkomulagi, segir í frétt frá Alcoa
Fjarðaáli. Þannig mun t.d. vinnu-
stundum vaktavinnufólks á mánuði
fækka, tekinn verður upp fæðing-
arstyrkur til starfsmanna í fæð-
ingar- og foreldraorlofi og grunn-
laun munu hækka. Einnig er í
samningnum kveðið á um viðbætur
og hækkanir á launatöflum, árlega
hækkun desember- og orlofs-
uppbótar á samningstímanum og
samið er um eingreiðslu til starfs-
manna.
Magnús Þór Ásmundsson, for-
stjóri Alcoa Fjarðaáls, kveðst
ánægður með að búið sé að landa
nýjum kjarasamningi og telur að
hann feli í sér mikla kjarabót fyrir
starfsfólk Fjarðaáls. Hann segir að
þótt samningaferlið hafi verið langt
hafi það engu að síður gengið vel
og gott samstarf hafi verið milli að-
ila. Kynning og atkvæðagreiðsla
um samninginn fer fram síðar.
Í fremstu röð sitja f.v. Kristján
Þórður Snæbjarnarson, formaður
RSÍ, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður AFLs, Guðný Björg
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
mannauðsmála hjá Alcoa Fjarðaáli,
og Magnús Þór Ásmundsson, for-
stjóri Alcoa Fjarðaáls. Samninga-
nefndin stendur á bak við þau.
Samningur til fimm ára
Ljósmynd/Alcoa Fjarðaál
Samningur í höfn Undirritun samningsins fór fram í matsal Fjarðaáls.
Breytt vinnutímafyrirkomulag Launatöflur hækka
Héraðsdómur
Reykjaness
dæmdi í fyrradag
grænlenskan
karlmann í tíu
mánaða fangelsi
fyrir að hafa flutt
yfir fimm kíló af
hassi hingað til
lands.
Maðurinn, sem
er fæddur árið 1994, flutti fíkniefnin
til landsins frá Kaupmannahöfn, en
þau fundust í farangri hans við kom-
una til landsins, pökkuð í 54 pakkn-
ingar.
Hann játaði skýlaust brot sitt.
Hann hefur ekki sætt refsingu hér á
landi.
Í dómnum segir að ekkert hafi
komið fram í málinu um að efnin hafi
verið ætluð til sölu eða dreifingar
hér á landi. Að þessu virtu þótti refs-
ing hans hæfilega ákveðin fangelsi í
tíu mánuði.
Dæmdur fyrir
að flytja inn
5 kíló af hassi
Dómur Maðurinn
flutti inn hass.