Morgunblaðið - 24.07.2015, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Hjarta úr hvítagulli
25 punkta demantur
99.000,-
Gullhálsmen
Handsmíðað 14K, 2 iscon
26.000,-
Demantssnúra
30 punkta demantur, 14K
157.000,-
Demantssnúra
9 punkta demantur, 14K
57.000,-
Gullhringur
Handsmíðaður 14K, 2 iscon
45.700,-
Morgungjafir í miklu úrvali
Kerry. Erfiðar spurningar munu dynja á ráðherranum
á meðan þingið fer yfir samkomulagið á komandi vik-
um. Repúblíkanar telja of mikið komið til móts við Ír-
ani. Á Times Square í New York hafa staðið yfir mót-
mæli gegn kjarnorkusamkomulaginu.
John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, stendur
í ströngu fyrir utanríkismálanefnd þingsins þar sem
hann ver kjarnorkusamkomulagið við Íran. „Við lögð-
um upp með að eyðileggja möguleika Írans á því að búa
til kjarnorkuvopn og okkur hefur tekist það,“ sagði
Bandaríska þingið fer yfir kjarnorkusamkomulagið við Írani
AFP
Kerry kveðst hafa náð markmiðinu
Aftökur í Íran gætu orðið fleiri en
1.000 talsins á þessu ári, að sögn
mannréttindasamtakanna Amnesty
International. Þau segja að 694 af-
tökur hafi þegar farið fram það sem
af er árinu en það er nánast sami
fjöldi aftaka og fyrir allt síðasta ár.
Írönsk yfirvöld hafa þó eingöngu
staðfest opinberlega 246 aftökur.
Samtökin byggja tölurnar á „áreið-
anlegum heimildum,“ en 694 aftökur
frá 1. janúar til 15. júlí jafngilda því
að þrír hafi verið teknir af lífi á dag.
„Þessi gífurlegi fjöldi aftaka fyrri
hluta ársins 2015 dregur upp
ískyggilega mynd af drápsvél
stjórnvalda sem viðhaldið er af
dómskerfi landsins,“ sagði Said
Boumedouha, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Amnesty Internation-
al í Mið-Austurlöndum og Norður-
Afríku. Hann bætti við að dauða-
refsingar væru alltaf andstyggilegar
en sérstakt áhyggjuefni í löndum
eins og Íran þar sem sakborning-
arnir fengju ekki sanngjarna máls-
meðferð.
Eiturlyfjabrot og framhjáhald
Ahmed Shaheed, sérstakur sendi-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hefur
kallað eftir frestun á öllum dauða-
refsingum og bent á að oftast er um
að ræða refsingar fyrir eiturlyfja-
brot, framhjáhald, samkynhneigð og
óskýrar ásakanir um brot gegn
þjóðaröryggi. Í skýrslu hans um
ástandið kom fram að að minnsta
kosti 753 voru teknir af lífi í landinu
á síðasta ári.
AFP
Aftökur Amnesty International segir 694 aftökur þegar hafa farið fram í Ír-
an það sem af er ári en það er nánast sami fjöldi og fyrir allt síðasta ár.
Stefnir í þúsund
aftökur í Íran í ár
Aftökum á vegum stjórnvalda fjölgar
Vladimír Pútín,
forseti Rúss-
lands, vill ekki
bara veita Silvio
Berlusconi rúss-
neskan ríkisborg-
ararétt heldur
einnig gera hann
að fjármálaráð-
herra. „Mér hef-
ur verið ýtt til
hliðar á Ítalíu, en
Pútín hefur sagt við mig að hann
hafi áhuga á að veita mér ríkisborg-
ararétt og treysta mér fyrir fjár-
málaráðuneytinu þar í landi,“ er haft
eftir Berlusconi í blaðinu La
Stampa, að því er fram kemur á
fréttaveitunni AFP.
Leggst þessi hugmynd vel í hinn
78 ára Berlusconi sem segir að hann
sjái það fyrir sér að hann verði ráð-
herra í Rússlandi.
Pútín og Berlusconi eru miklir
vinir og þegar Pútín heimsótti Róm í
júní sagði Berlusconi að Forza
Italia, stjórnmálahreyfingin sem
hann tilheyrir, myndi beita sér gegn
þvingunaraðgerðum Evrópusam-
bandsins gegn Rússlandi, en þær
eru til komnar vegna deilunnar um
Krímskaga. Berlusconi hefur verið
áberandi í fjölmiðlum undanfarið
vegna dómsmála á Ítalíu.
Berlusconi verði nýr
rússneskur ráðherra
Silvio
Berlusconi
Sér framtíðina fyrir sér í Rússlandi
Þingmaður í
Simbabve hélt á
notuðum kven-
manns-
nærbuxum á
þingfundi sem
var sjónvarpað
um landið. Vildi
hún með því
vekja athygli á
bágum aðstæðum fátækra kvenna
sem hafa ekki ráð á að kaupa sér
ný klæði.
Pricilla Misihairabwi-Mus-
honga, þingmaður stjórnarand-
stöðuflokksins MDC þar í landi,
veifaði buxunum sem hún hafði
meðferðis á meðan á fyrirspurna-
tíma ráðherra stóð. „Ég vil spyrja
fjármálaráðherra, hver stefna
stjórnvalda er í innflutningi á not-
uðum undirfatnaði sem getur haft
slæmar afleiðingar fyrir heilsu
kvenna til langs tíma litið, þrátt
fyrir að það sé ódýrara?“
Notaðar kvenmannsnærbuxur
kosta einn dollara, tvær saman í
pakka á meðan eitt stykki af
hreinum nærbuxum kostar tvo
dollara. Svaraði ráðherrann því
til að hann myndi kanna málið en
ávítti engu að síður þingmanninn
fyrir hegðun sína, sem þótti óboð-
leg.
Veifaði notuðum
nærbuxum í þinginu
Vakti athygli ráðherra á heilsuvá