Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 21
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Framboð hans er eins og krabba-
mein á íhaldsstefnunni, og það þarf
að greina það, fjarlægja og henda
því,“ sagði fyrrverandi ríkisstjóri
Texas, Rick Perry, um keppinaut
sinn í forkosningum Repúblikana-
flokksins, Donald Trump, sem heim-
sótti Texas í gær og ferðaðist um
svæði við landamærin að Mexíkó.
Þar fór hann um Laredo, sem ligg-
ur við landamærin, ásamt því að
heimsækja landamærin sjálf og lög-
regluliðið á svæðinu. Stuttu fyrir
komu hans á staðinn sendi félag
landamæravarða frá sér tilkynningu
þess efnis að þeir hygðust ekki taka
þátt í heimsókn hans.
Lýðskrum og vitleysa
Mótframbjóðendur Trumps
bregðast við umdeildri kosningabar-
áttu hans og ummælum með mis-
munandi hætti en Perry hefur vænt
hann um lýðskrum. „Hann er eitruð
blanda af lýðskrumi, illkvittni og vit-
leysu sem færir Repúlikanaflokkinn
fjandans til ef ekki verður gripið inn
í strax.“ Með því virðist hann flokka
Trump í vafasaman hóp fyrrverandi
stjórnmálamanna sem hafa sett blett
á bandaríska sögu, að mati Stephens
Collinson hjá CNN. „Slíkir fram-
bjóðendur höfða til þeirra sem telja
sig ekki eiga annan kost. Þeir höfða
til verstu kennda kjósenda, efna-
hags- og kynþáttamál… eða þeir
stíga inn í tómarúm sem hvorugur
flokkurinn tekur á,“ hafði Collinson
eftir Julian Zelizer, prófessor í
Princeton-háskóla.
Jeb Bush, mótframbjóðandi
Trumps, hefur þó reynt að halda
stuðningsmönnum hans góðum og
kallað þá „gott fólk“ með „réttmætar
áhyggjur,“ en á sama tíma kallað
orðræðu Trump „ljóta og illa inn-
rætta“.
Sjálfstætt framboð
Trump vegnar vel í könnunum,
miðað við mótframbjóðendur sína,
en í vikunni mældist hann með 24% í
könnun ABC/Washington Post. Get-
ur hann því ekki enn talist hafa fang-
að hjarta kjósenda að mati Stephens
Collinson.
Trump hefur nú rennt sterkari
stoðum en áður undir þann mögu-
leika að hann bjóði sig fram sem
sjálfstæður frambjóðandi, óháður
stóru flokkunum tveimur, hljóti
hann ekki tilnefningu Repúblikana.
Fram kemur í umfjöllun fréttaveit-
unnar The Hill að Trump segi lík-
urnar aukast „verulega“ ef yfirstjórn
Repúblíkanaflokksins verður ósann-
gjörn á meðan á forvali flokksins
stendur.
„Þeir hafa ekki stutt mig. Þeir
studdu mig alltaf á meðan ég styrkti
þá fjárhagslega. Þeir hafa verið
mjög kjánalegir,“ sagði Trump í við-
tali við The Hill og bætti við, þegar
gengið var á hann varðandi sjálf-
stætt framboð, að allavega væri mik-
ill fjöldi fólks sem vildi það.
„Eitruð blanda af
lýðskrumi og illkvittni“
AFP
Trump Íhugar að bjóða sig fram á eigin vegum, óháður öllum stjórn-
málaflokkum, ef hann hlýtur ekki tilnefningu Repúblíkanaflokksins.
Donald Trump
heimsótti landa-
mærin að Mexíkó
Tæknirisinn
Google hefur
löngum boðið
upp á þjón-
ustuna Google
Street View,
sem gerir fólki
kleift að fá götu-
sýn í öllum
helstu borgum
og bæjum heims.
Nú hafa þeir
hafist handa við að kortleggja
Mongólíu sem er afar stórt,
hrjóstrugt og strjálbýlt land í As-
íu. Til þess nota þeir sleða sem
dreginn er áfram af hestum þar
sem landslagið býður ekki upp á
hefðbundna fararskjóta.
Vonast fyrirtækið til þess að
þetta muni vekja athygli á landinu
sem vænlegum áfangastað fyrir
gesti hvaðanæva úr heiminum, var
haft eftir fulltrúa Google.
MONGÓLÍA
Götusýn Google
kortleggur Mongólíu
Göngumaður á
vegum Google.
Bandaríska
geimvísinda-
stofnunin NASA
tilkynnti í gær að
fundist hefði ný
reikistjarna, sem
þykir búa yfir
svipuðum eigin-
leikum og jörðin.
Reikistjarnan
hefur ekki hlotið
nafn ennþá, og er
því kölluð Kepler 452B enn sem
komið er, í höfuðið á stjörnusjón-
aukanum sem fann hana.
„Þetta er eins nálægt því og við
komumst að finna aðra Jörð,“ sagði
John Grunsfeld, yfirmaður vís-
indasviðs NASA, á blaðamanna-
fundi. „Þetta er Jörð 2.0,“ bætti
hann við.
GEIMVÍSINDI
Vísindamenn
finna „nýja Jörð“
Teikning NASA af
Kepler 452B
Gríska þingið samþykkti í gær um-
bótatillögur sem voru skilyrði fyrir
því að gengið yrði til samninga um
þriðja björgunarpakkann til handa
gríska ríkinu. Af 298 þingmönnum
greiddu 230 atkvæði með frumvarp-
inu en 63 á móti. Á meðal þeirra
síðarnefndu var 31 þingmaður Syr-
iza, flokks forsætisráðherrans Alex-
is Tsipras. Meira en 30 þingmenn
Syriza lögðust einnig gegn lánaskil-
yrðunum í fyrstu atkvæðagreiðsl-
unni um þau fyrir viku.
Í umræðunum á þinginu fyrir at-
kvæðagreiðsluna í gær sagði Tsip-
ras við þingheim að hann væri í
raun ekki samþykkur þessum til-
lögum sem hann mælti nú fyrir og
leiðtogar annarra evruríkja hefðu
þröngvað þeim upp á hann. Á sama
tíma lagði hann þó áherslu á að
þetta væri eina leiðin til að halda
evrunni, að því er fram kemur á
fréttavef BBC.
Fela umbótatillögurnar meðal
annars í sér innleiðingu evróputil-
skipunar sem kveður á um inni-
stæðutryggingu á bankainnstæðum
undir 100 þúsund evrum og innleið-
ingu reglna sem gera hluthöfum og
lánardrottnum bankastofnunar
skylt að greiða fyrir gjaldþrot bank-
ans.
Snemmbúnar kosningar?
Nú hefjast samningaviðræður um
þriðja björgunarpakkann og er gert
ráð fyrir, samkvæmt upplýsingum
frá gríska fjármálaráðuneytinu, að
fulltrúar lánardrottna ríkisins, þ.e.
Evrópusambandsins, Seðlabanka
Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, komi til Grikklands í dag í þeim
erindagjörðum. Stefnt er að því að
ljúka viðræðum en ekki er víst að
það takist vegna efasemda báðum
megin borðs.
Persónulegar vinsældir Alexis
Tsipras eru enn miklar í Grikklandi
og því ástæða til þess að hann meti
fljótt hvort hann boði strax til kosn-
inga í kjölfar samningaviðræðn-
anna, að mati Chris Morris hjá
BBC. Hann gæti komið sterkari út
úr þeim kosningum í ljósi þess að
stjórnarandstaðan er í upplausn og
margir Grikkir kunna vel að meta
framgöngu hans. laufey@mbl.is
AFP
Ósátt Þúsundir mótmæltu fyrir utan þinghúsið á meðan á atkvæðagreiðsl-
unni stóð. Mótmælendur köstuðu á tímabili bensínsprengjum að lögreglu.
Mikill meirihluti
samþykkti umbætur
Viðræðum ljúki fyrir miðjan ágúst
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
HANDBÆKUR / FRÆÐIBÆKUR / ÆVISÖGUR
VIKAN 15.07.15 - 21.07.15
1 2
5 6
7 8
109
43 Kortabók MM - 2015-2016Örn Sigurðsson ritstýrði
Volcano Sudoku
Ýmsir höfundar
Breyttur heimur
Jón Ormur Halldórsson
25 gönguleiðir á Þingvallasvæðinu
Reynir Ingibjartsson
Núvitund- leitin inn á við
Chade Meng Tan
Allt á hreinu
Margrét Sigfúsdóttir
Vegahandbókin
Steindór Steindórsson
Vegvísir um jarðfræði Íslands
Snæbjörn Guðmundsson
109 Sudoku - bók 11
Ýmsir höfundar
Íslenskar Mandölur
Kunsang Tsering