Morgunblaðið - 24.07.2015, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.07.2015, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 ✝ Bára Péturs-dóttir fæddist 10. október 1937 í Minni-Brekku í Fljótum í Skaga- firði. Hún lést á heimili sínu 13. júlí 2015. Foreldrar henn- ar voru Pétur Jón Stefánsson, f. 22.4. 1909, d. 6.8. 2000 og Guðrún Jónsdóttir, f. 5.5. 1920, d. 22.9. 2011. Hún ólst upp í Minni-Brekku og á Hofi í Vesturdal til 7 ára aldurs. En fluttist svo alfarin í Hof og var þar elst í stórum systkinahópi. Þau eru: Margrét Stefanía, f. 1.4. 1939, Jón Sævin, f. 9.12. 1940, Gunnar Stefán, f. 6.5. 1947, Pét- ur Axel, f. 13.12. 1952, Svanhild- ur Hrönn, f. 25.10. 1955, Skarp- héðinn Rúnar, f. 22.8. 1957, Hrafnhildur Sæunn, f. 1.1. 1962. Á Akureyri kynntist hún sam- býlismanni sínum Núma Svein- birni Adolfssyni, f. 12.5. 1938. Foreldrar hans voru Adolf Dav- íðsson, f. 26.8. 1908, d. 1.9. 1999 og Kristín Pétursdóttir, f. 9.9. 1914, d. 3.8. 2002. Eignuðust þau saman 4 börn: Margrét Petra, f. 14.3. 1960, maki Jóhannes Ott- ósson, f. 11.1. 1954. Fyrrv. maki 2004. Gunnar Smári, f. 1.10. 1977, maki Ingibjörg H. Reykja- lín, f. 4.4. 1980, eiga þau saman Ragnar Núma Reykjalín, f. 16.11. 2009 og Elísu Helgu Reykjalín, f. 27.9. 2011. Elmar Andri, f. 19.8. 1979, maki Hildur Lind Sævars- dóttir, f. 8.10. 1983, eiga þau saman Sævar Þór, f. 29.4. 2010, Andra Berg, f. 13.12. 2012, Arn- ar Frey, f. 15.4. 2015 og Sölva Stein, f. 15.4. 2015. Bára og Númi Sveinbjörn bjuggu saman á Akureyri og slitu síðan samvistum 1996. Bára bjó í torfbæ fram á unglingsárin og ólst upp við venjuleg sveita- störf en 16 ára fór hún í vist í Glaumbæ hjá prestshjónum, var þar einn vetur, og fór síðan suð- ur til Kristins föðurbróður síns og var þar einn vetur. Umönn- unarstörf voru henni hugleikin og 18 ára flyst hún til Akureyrar og vann þar á sjúkrahúsinu ásamt því að vinna á Sam- bandsverkssmiðjunum á sauma- og prjónastofunni Heklu, og skó- verksmiðjunni Iðunni. Bára vann á Sjúkrahúsinu á Akureyri til margra ára. Hún útskrifaðist sem sjúkraliði árið 1971 og vann lengst af á barnadeildinni og svo á Kristnesi. Bára vann í mörg ár í sjálfboðastarfi hjá Slysavarna- félagi Íslands. Útför Báru fer fram í Graf- arvogskirkju í dag, 24. júlí, kl. 13. Sigursteinn Þórs- son, f. 7.11. 1954, eignuðust þau 3 syni. Hrannar Örn, f. 23.3. 1979, á hann einn son, Hrannar Orra, f. 18.3. 2001, móðir Vala Hauks- dóttir, f. 14.3. 1981. Arnar Þór, f. 6.8. 1980, maki Arna Arnardóttir, f. 12.4. 1983, eiga þau sam- an tvo syni, Örn Kató, f. 14.12. 2005 og Þór Leví, f. 22.7. 2011. Sigursteinn Unnar, f. 21.8. 1986, maki Hafdís Alma Einarsdóttir, f. 6.10. 1988, eiga þau saman El- ísu Arneyju, f. 29.1. 2015. Fyrir á Jóhannes 2 börn. Kristján Geir, f. 29.9. 1973, maki Helena Breið- fjörð, f. 19.7. 1968, hans börn Steinar Eiríkur, f. 6.7. 1996 og Gunnar Ingi, f. 13.4. 1998, móðir Rakel Ragnarsdóttir, f. 18.6. 1966. Jóhanna Erla, f. 11.1. 1976, maki Halldór B. Bergþórsson, f. 21.7. 1974, eiga þau saman Nóel Hrafn, f. 1.10. 2010, og Hrafn- hildi Myrru, f. 6.11. 2012. Krist- inn Viðar, f. 25.4. 1966, maki Steinunn Þorkelsdóttir, f. 8.6. 1969 eiga þau saman Ásu Hrund, f. 5.8. 1994, maki Andri Jamil, f. 3.6. 1994. Tristan Snær, f. 16.7. Elsku mamma. Okkur langar að kveðja þig með örfáum orð- um. Það er erfitt að lýsa því hvern- ig okkur hefur liðið undanfarna daga, allar góðu minningarnar og söknuðurinn er sár. Umhyggja og ást eru orð sem koma sterk fram hjá okkur syst- kinunum þegar við minnumst þín, alltaf boðin og búin að að- stoða þegar mikið stóð til. Það fer vel á því að gera að lokaorðum okkar ljóðið sem langafi Pétur Jónasson í Minni- Brekku orti til þín þegar þú varst lítil stúlka. Bára mín er ilmandi alltaf hýr og brosandi. Liggur vel á ljómandi lambinu mínu skínandi. Fríða stúlkan fallega flestum ber af lýðum. Senn kemur hún Soffía sunnan að á skíðum. Takk fyrir allt og allt. Hvíl í Guðs friði. Margrét (Gréta) og Viðar. Hún Bára stóra systir mín er látin. Á svona stundum reikar hugurinn og margs er að minnast. Bára vann nánast allan sinn starfsaldur við hjúkrunarstörf, lengst á Sjúkrahúsinu á Akureyri og síðan á Kristnesi. Hin seinni ár dvaldi Bára hjá mér nokkrum sinnum og vann ýmis garðyrkju- störf hér á Flúðum. Kynntist nýju fólki og spurði ævinlega eftir gömlu vinnufélögunum þegar við hittumst. Sem barn fór ég með þeim Báru og Núma í ferðalög og var farið víða um Norðausturland á „Willys“. Síðar ferðuðumst við talsvert saman um Suðurland og skoðuðum margar náttúruperlur. Ég man hve ég hlakkaði alltaf til þegar von var á Báru og fjöl- skyldu í heimsókn, þá var oft glatt á hjalla á Hofi, en á barnsárum mínum var heimilið mannmargt. Einnig var gaman að heimsækja þau til Akureyrar, þá var arkað inn í Hafnarstræti þar sem allar flottu búðirnar voru. Að fara í búðir með Báru var alveg sérstök upplifun, hún gekk svo hratt að maður hljóp við fót við hliðina á henni, svo var skutlast inn í Am- aro, sem var ævintýraveröld fyrir mig, sveitabarnið. Síðan lá leiðin í KEA og til Sigga Gumm og jafn- vel í JMJ. Þetta tók ekki langan tíma því það var ekkert verið að drolla. Bára hafði ákveðnar skoð- anir og hin seinni ár ræddum við iðulega heimsmálin og vorum kannski ekki alltaf alveg sammála um lausnir hinna ýmsu mála. Bára reyndist mér alla tíð sem önnur móðir en hún var orðin 18 ára þeg- ar ég fæddist, og þegar ég fer aust- ur í skóla og vinnu voru ófáar ferð- irnar, sem þau Bára og Númi keyrðu mig og ófáar helgarnar sem ég dvaldi hjá þeim í fríum. Það er gott að rifja upp góðar minn- ingar við leiðarlok. Samúðarkveðj- ur til barna hennar og fjölskyldna, systkina og annarra ættingja. Hvíl í friði, kæra systir. Svanhildur Hrönn Pétursdóttir. Þegar ég frétti af andláti Báru móðursystur minnar var eins og tíminn stoppaði í smástund. Það var ótrúlega óraunverulegt að sitja í sjóðandi hita á sólarströnd og fá þessar fréttir. Mér leið eins og ég væri örlítið sandkorn á ströndinni sem háð er duttlungum hafsins um hvert það fer og hvað um það verð- ur og mér varð ískalt í hjartanu þrátt fyrir hitann. Bára hafði alltaf verið hluti af mínu lífi og svo ótal, ótal margar minningar sem tengj- ast henni. Hún og mamma höfðu alltaf mikil samskipti og voru mjög nánar. Allar minningar um veislur sem haldnar voru heima þegar ég var krakki tengjast þeim systrum að baka, þeyta rjóma, skreyta tert- ur og hita súkkulaði. Þær fóru nú létt með það. Í minningunni var Bára frænka alltaf falleg og fín og hún ilmaði svo vel. Ég man ég laumaðist stundum inn í herbergið sem hún gisti í bara til að finna lyktina af ilmvatninu hennar. Seinni árin þegar hún kom til mömmu í sumarhúsið í Vesturhlíð og þær fóru að stússa í garðinum eða í gönguferðir, þá grínuðumst við Guðrún systir og Arnar frændi með að þarna væru nú „gömlurn- ar“ okkar í essinu sínu. Þær var alltaf gott að hafa í kringum sig. Bára hafði gaman af vísum og hún hvatti mig til að yrkja þegar öðrum fannst það vitleysa. Mér finnst því við hæfi að kveðja hana með ljóði. Þó of fljótt sé komið að kveðjustund þá minningar góðar létta mér lund; um frænkuna ljúfu sem alltaf var þar falleg og dugleg, hún flestum af bar hún var ekki hávær en markaði spor með háttvísi, elju, dugnað og þor þungt er um hjarta en minningin er ljós nú er fallin í valinn ein dalanna rós. Elsku Bára frænka, ég á eftir að sakna þín en minningar um gleði og góðar stundir geymi ég í hjarta mínu og þar glatast þær ekki. Innilegar samúðarkveðjur til barna, barnabarna og systkina og allra sem í dag syrgja og sakna. Sigrún Jónína Baldursdóttir. Mánudagskvöldið 13. júlí hringdi Arnar í mig og sagði mér að amma hans hefði orðið bráð- kvödd. Bára frænka dáin. Hugur- inn fór á fulla ferð, allskonar minningar tóku að streyma fram. Ég á Akureyri 8 ára að passa Gunnar, Elmar og Hrannar. Gréta kasólétt að Arnari. Flotta barbídótið mitt sem ég fékk að launum. Mörgum árum seinna ég sjálf ófrísk að tvíburunum mínum og varð að fara til Akureyrar mán- uð fyrir áætlaðan fæðingardag og að sjálfsögðu bauð Bára frænku sinni að koma og vera hjá sér. Þar var dekrað við mig, passað að ég fengi alveg örugglega nóg að borða og væri aldrei ein. Þegar Bára var að vinna þá var ég hjá Grétu. Þegar stelpurnar mínar fæddust þá passaði hún upp á að það væri hugsað vel um mig á fæðingardeildinni, kom hlaupandi af barnadeildinni þar sem hún var að vinna til að kíkja á okkur mæðgur. Held að eftir þennan tíma hafi myndast sérstakt sam- band á milli okkar, hún var dugleg að hringja í mig og koma í heim- sókn, eins fórum við oft í kaffi til hennar þegar við fórum til Akur- eyrar. Eftir að Bára hætti að vinna kom hún í nokkur vor til að hjálpa okkur í sauðburði. Krakkarnir biðu úti við glugga eftir að sjá gula bílinn koma, svo var hlaupið út til að knúsa frænku sína. Hún og mamma (Gömlurnar mínar) tóku að sér að gefa á morgnana í fjárhúsunum. Þar gátu þær dundað sér saman og efast ég ekki um að margt hef- ur nú verið rætt þar. Oft voru fjörugar umræður við eldhús- borðið hjá okkur þar sem Boggi var duglegur að kasta fram ein- hverju sem hann vissi að Bára var alls ekki sammála honum um og varð hávaðinn ógurlegur en allt var þetta í vinsemd og ég veit að þeim þótti báðum mjög vænt hvoru um annað. Alla sokka sem göt voru komin á tíndi hún saman og stoppaði svo í götin. Enda þeg- ar kom gat á sokkana hjá krökk- unum þá var yfirleitt spurt hvort Bára frænka færi ekki að koma. Margrét, Rósa og Símon voru svo glöð að hafa frænku sína í heim- sókn, alltaf var herbergið þeirra ofsa fínt, búið að búa um og taka til þegar þau komu heim úr skól- anum og fékk frænka stórt knús að launum. Þegar Rósa Björk var 5 ára þá hljóp hún á kerru og fékk skurð undir auganu. Að sjálf- sögðu átti Bára plástur sem hún gat límt yfir skurðinn og tókst þetta svo vel að ekki er hægt að sjá örið nema að skoða vel. Síð- asta ár var heilsan ekki alveg nógu góð og treystir þú þér ekki til að koma í heimsókn. Okkar síðasta samtal var í símanum og mikið þykir mér gott að hugsa til þess sem við ræddum. Elsku Bára frænka, takk fyrir allt, minning þín lifir. Gréta, Viðar, Gunnar, Elmar, Arnar, Hrannar, Sigursteinn og fjölskyldur, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar allra. Guðrún Björk Baldurs- dóttir og fjölskylda. Meðan veðrið er stætt, berðu höfuð hátt og hræðstu eigi skugga á leið. Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans ljóð upp um ljóshvolfin björt og heið. Þó steypist í gegn þér stormur og regn og þó byrðin sé þung sem þú berð, þá stattu fast og vit fyrir víst, þú ert aldrei einn á ferð. (Þýð. Óskar Ingimarsson) Kæra vinkona, þá er komið að leiðarlokum. Upp í hugann streyma ótal minningar, allar svo ljúfar og bjartar. Vinátta okkar var mér mikils virði. Það var gam- an að vinna með þér sem sjúkra- liði, bæði á barnadeildinni og á Kristnesi og við skemmtum okkur líka vel saman á gömlu dönsunum. Ferðin okkar uppá Mælifells- hnjúk í björtu og fallegu veðri er ógleymanleg þar sem við gengum saman uppá topp og horfuðum yf- ir fallegu sveitina þína. Ég sendi fjölskyldunni mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Guðrún Elísabet Aradóttir. Bára Pétursdóttir ✝ Helena G.Gunnlaugs- dóttir fæddist á Hjalteyri 21. októ- ber 1950. Hún lést á heimili sínu í Lundi í Svíþjóð 28. júní 2015. Foreldrar Hel- enu voru hjónin Hulda Vilhjálms- dóttir, húsmóðir frá Hjalteyri, f. 31. júlí 1932, d. 19. maí 1993, og Gunnlaugur Fr. Jóhannsson, rafvélavirki frá Akureyri, f. 22. nóvember 1929, d. 27. desem- ber 2014. Systkini Helenu eru Gunnhildur H. Gunnlaugsdóttir 1982. Eiginmaður hennar er Fredrik Åkesson og börn þeirra eru Þór Åke, f. 2012, og Selma, f. 2014. Þau eru búsett í Malmö í Svíþjóð. 3. Anna Hild- ur Guðmundsdóttir, listhönn- unarnemi, f. 6. júní 1987. Sam- býlismaður Önnu er Gustav Nilsson og eru þau búsett í Malmö í Svíþjóð. Helena lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri og prófi sem meina- tæknir frá Tækniskóla Íslands árið 1977. Hún vann á Sjúkra- húsinu á Akureyri og á Land- spítalanum í Reykjavík uns þau hjónin fluttust búferlum til Sví- þjóðar árið 1982. Þar lauk Hel- ena framhaldsnámi í líf- eindafræði. Hún vann lengst af á rannsóknarstofum á Sjúkra- húsinu í Malmö. Útför Helenu fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 24. júlí 2015, klukkan 13.30. á Akureyri, f. 1962, Sigurður S. Gunnlaugsson á Sauðárkróki, f. 1963, og Þorsteinn E. Gunnlaugsson í Reykjavík, f. 1964. Eftirlifandi eig- inmaður Helenu er Guðmundur Örn Gunnarsson, lækn- ir, f. 2. apríl 1952, búsettur í Svíþjóð. Dætur Helenu og Guðmundar eru: 1. Lilja Guðmundsdóttir, f. 15. febrúar 1979, búsett í Lundi í Svíþjóð. 2. Hulda Edda Guðmundsdóttir, skurðhjúkr- unarfræðingur, f. 30. desember Helena Gunnlaugsdóttir, mág- kona mín, var skemmtileg kona. Ég þekkti hana í yfir þrjátíu ár og það tókst með okkur vinátta. Fjölskyldurnar bjuggu hvor í sínu landinu. Mest voru tengslin þau ár sem við bjuggum í Kaup- mannahöfn og þau á Skáni. Eftir að við fluttum til Íslands urðu tengslin stopulli en eftir því sem tæknin og samgöngur urðu betri jukust samskiptin aftur. Gott var að heimsækja þau hjónin til Sví- þjóðar og þau héldu okkur eins konar langtímanámskeið í sænskri matarmenningu. Helena var glaðvær, hafði áhuga á þjóð- málum og á Íslandi fyrr og nú. Hún hafði góða frásagnargáfu sem við hin fengum að njóta. Hún var handlagin og á síðari ár- um bjó hún til varning einkum úr ull og skinnum af ýmsu tagi. Hráefnið fékk hún mikið til frá Íslandi, vann gripina á verkstæði sem hún var með heima í Banka- götu í Lundi og seldi varninginn síðan á markaðinum þar í borg. Helena hafði viðskiptavit og það hefði verið meira vit að fá henni milljarða í hendur að höndla með en sumum öðrum er trúað var fyrir slíku. Við Helena vorum góðir vinir og hennar verður saknað þess vegna. Við gátum rætt saman á alvarlegum nótum og á léttum nótum. Við gátum rætt meira og minna öll mál, álitamál og fram- tíðaráform. Það er ef til vill ekki auðvelt að rækta vináttu og fjöl- skyldutengsl yfir hafið en þeim mun meira gefandi þegar fundir urðu. Samband systranna, Gunn- hildar konu minnar og Helenu, var gott þrátt fyrir aldursmun og styrktist með hverju árinu. Helena átti góða fjölskyldu og þykist ég vita að hún hafi gefið fjölskyldu sinni allt það er hún mátti fyrr og síðar. Barnabörnin færðu henni mikla gleði nú síð- ustu árin. Æðruleysi Helenu gagnvart erfiðum veikindum á undanförnum árum vakti að- dáun. Öll munum við sakna Hel- enu sem hana þekktum. Saman eigum við minningar um vilja- sterka og heilsteypta konu sem reyndist öllum vel. Vil ég koma á framfæri samúðarkveðjum til Guðmundar, dætranna og fjöl- skyldna þeirra frá mér og mínu fólki. Þorlákur Axel. Mín góða vinkona Helena er fallin frá eftir langa baráttu við krabbamein. Leiðir okkar tveggja lágu saman fyrir mörg- um árum, þegar við hittumst í enskuskóla á suðurströnd Eng- lands. Við vorum þar þrjár stöll- ur sem reyndum að verða full- orðnar, og prófuðum saman að reykja og drekka bjór með mis- jöfnum árangri. Síðar giftumst við Helena skólafélögum frá Akureyri og myndaðist þá góður vinahópur sem naut saman góðra ánægju- stunda, meðal annars á Gamla Garði þar sem Helena og Guð- mundur bjuggu. Helena flutti síðan til Svíþjóðar og ég til Nor- egs um skeið en alltaf héldum við góðu sambandi og hittumst þeg- ar tækifæri gáfust, og deildum þá bæði gleði og sorgum. Helena var hæglát og virkaði stundum örlítið feimin, en hún var heimskona á margan hátt með góða kímnigáfu og oft var stutt í stríðnina. Helena var lif- andi persóna með mörg áhuga- mál sem hún sinnti af alúð. Hún var smekkleg eins og heimili þeirra Guðmundar ber gott vitni um, hún hafði áhuga fyrir hönn- un og antikmunum og gerði sjálf upp húsgögn í tómstundum. Hel- ena sinnti félagsmálum þroska- heftra af miklum áhuga hin síðari ár, enda voru þau málefni henni afar hugleikin. Ég hitti Helenu fyrir um það bil ári síðan í Svíþjóð og var hún þá orðin ansi veik, en þrátt fyrir það var hún full af krafti og lífi, talaði um stelpurnar sínar og barnabörn, og þótti mér hún taka veikindum sínum af aðdáunar- verðri ró og æðruleysi. Það var siður hjá Helenu á hverju ári að vekja mig á afmæl- isdaginn 24. desember og óska mér til hamingju með daginn. Ég mun sakna þess. Já, ég á eftir að sakna vinkonu minnar með dill- andi hláturinn og stríðnisglamp- ann í augunum. Ég votta Guðmundi, Huldu, Önnu og Lilju samúð mína, sem og öðrum ættingjum og vinum. Steinunn Kristinsdóttir Helenu G. Gunnlaugsdóttur, mágkonu okkar sem lést um ald- ur fram, verður sárt saknað. Við minnumst hennar fyrst þegar hún og stóri bróðir okkar byrj- uðu að draga sig saman í byrjun áttunda áratugarins. Okkur fannst hún glæsileg í brúnu leð- urdragtinni með flottu, rauðlökk- uðu neglurnar og svörtu slöngu- lokkana. Í okkar augum var hún mikil skvísa og fannst okkur Guðmundur bróðir heppinn að ná í hana. Við fengum fljótt að kynnast fjölskyldu hennar og hafa þau góðu kynni haldist til dagsins í dag. Það var gaman að fylgjast með þeim stofna heimili og klára framhaldsnám. Eftirvæntingin var mikil í fjölskyldunni þegar von var á fyrsta barninu. Í heim- inn kom Liljan okkar, fallegust allra, og bræddi hjörtu okkar frá fyrstu tíð. Síðar komu Hulda Edda og Anna Hildur, yndislegu systurnar tvær. Helena og Guðmundur fluttu til Svíþjóðar og settust að í Staffanstorp á Skáni en fluttu síðar til Lundar. Það var ánægju- legt að heimsækja þau og í seinni tíð vorum við systur tíðir gestir hjá þeim í Bankgatan í Lundi. Helena hafði mikinn áhuga á antikmunum og sótti námskeið í lagfæringu þeirra. Það fórst henni vel úr hendi, enda einkar handlagin. Hún fór oft á útimark- að „loppis“ á laugardagsmorgn- um, rétt hjá heimili þeirra. Gam- an var að fara með og njóta þar sérfræðiráðgjafar Helenu. Helena var fljót að eignast vini hvar sem hún var. Hún var ósér- hlífin og örlát á tíma sinn og orku. Hún er okkur ómetanleg fyrirmynd í því hvernig hún tókst á við þau áföll sem dundu yfir síðustu misserin. Hún vann úr þeim öllum af undraverðu æðruleysi og yfirvegun. Hún kvartaði aldrei, þó við vitum að barátta hennar við ýmsa kvilla til viðbótar við banameinið hafi ver- ið erfið. Þessir kvillar hefðu verið ýmsum um megn, einir og sér. Mannleg reisn er hugtakið sem kemur í hugann þegar við hugs- um um Helenu í veikindum henn- ar. Hún ákvað sjálf útgöngulagið við útför sína og okkur finnst það lýsa lífssýn hennar afar vel: „Always Look on the Bright Side of Life“. Jóhanna Arnleif Gunnarsdóttir, Erna Hildur Gunnarsdóttir. Helena G. Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.