Morgunblaðið - 24.07.2015, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
✝ Edda Óskarsdóttir fædd-
ist 5. júlí 1931 í
Reykjavík. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 11. júlí 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Óskar Jóns-
son, f. 25.4. 1900, d.
26.3. 1936, og Ásta
Halldórsdóttir, f.
24.3. 1907, d. 5.7.
1997. Systir Eddu var Eva, f.
12.4. 1934, d. 22.1. 2015. Edda
giftist Guðjóni Jónssyni yf-
irsímritara, 29. mars 1952, f.
31.5. 1930, d. 24.6. 1994. For-
eldrar Guðjóns voru Jón Jóns-
son, f. 29.10. 1900, d. 13.4. 1973,
og Þjóðbjörg Þórðardóttir, f.
18.11. 1891, d. 27.1. 1984. Börn
Eddu og Guðjóns eru: 1) Óskar,
f. 10.6. 1952, maki Konný R.
Hjaltadóttir, f. 26.10. 1953. Börn
þeirra eru Sigurður Heiðar, f.
20.6. 1976, í sambúð með Mette
R. Holm, þeirra barn er Oliver,
f. 2007, drengur Óskarsson, f.
15.7. 1985, d. 4.10. 1985, og
2000, og Eva Björg, f. 28.7. 2007.
Edda útskrifaðist frá Gagn-
fræðaskóla Vesturbæjar og
stundaði m.a. nám við Mennta-
skólann á Akureyri. Hún sinnti
fjölbreytilegum störfum bæði
innan heimilis og utan, m.a. sem
prófarkalesari hjá Morgun-
blaðinu, sölumaður í heildsölu,
starfsmaður á Kleppi til margra
ára, iðnverkamaður hjá Stál-
umbúðum, leiðbeinandi í leik-
skóla, stuðningsfulltrúi með ein-
hverfum og síðustu starfsárin
sem starfsmaður á sambýli.
Edda var mikil félagsvera og
á yngri árum starfaði hún lengi
og sat m.a. í stjórn Kvenfélags-
ins Bylgjunnar, sem hafði að
markmiði að efla samúð og vin-
áttu meðal loftskeytamanna og
fjölskyldna þeirra. Eftir að
Edda fluttist í Kópavog tók hún
virkan þátt í félagsstarfi aldr-
aðra í Gjábakka og í Sunnuhlíð
og beitti sér í ýmsum baráttu-
málum f.h. Íbúasamtaka Sunnu-
hlíðar. Edda var lengi virkur fé-
lagi í bókmenntaklúbbi
Bókasafns Kópavogs og félagi í
Sögufélagi Kópavogs.
Útför Eddu fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 24. júlí
2015, kl. 15.
Edda Ósk, f. 26.11.
1986, í sambúð með
Jóhanni B. Björns-
syni. 2) Jón Steinar,
f. 25.11. 1957, maki
Anna Þórdís Guð-
mundsdóttir, f.
3.10. 1959. Dætur
þeirra eru Hugrún,
f. 5.8. 1988, maki
Sævar L. Við-
arsson, f. 7.2. 1988,
Berglind, f. 15.5.
1991, og Sigrún Edda, f. 7.6.
1995. 3) Guðlaugur Halldór, f.
3.10. 1961, maki Guðrún S. Jóns-
dóttir, f. 26.3. 1963. Dætur
þeirra eru Ása Björg, f. 14.4.
1984, maki Guðmundur Stein-
bach, f. 17.11. 1979. Dætur
þeirra eru Guðrún Lilja, f. 2011,
og Katrín Harpa, f. 2014, Sigrún
María, f. 1.12. 1987, maki Axel
Freysson, f. 25.1. 1986. Dætur
þeirra eru Steinunn Embla, f.
2011, og Freydís Edda, f. 2014,
Ásta Vigdís, f. 26.4. 1996. 4) Elín
Björg, f. 17.8. 1970, í sambúð
með Ólafi J. Stefánssyni. Börn
hennar eru Guðjón Ari, f. 6.7.
Elsku amma er dáin. Mér
finnst það svo undarlegt. Það
passar ekki því mér hefur alltaf
fundist hún vera eilíf.
Fyrstu alvöru minningarnar
sem ég á um ömmu eru frá
þeim tíma sem hún var nýflutt
á Langholtsveginn. Þar var
alltaf skemmtilegt að vera,
næturgistingar, pitsuveislur og
stigagangurinn sem var ævin-
týraheimur í leikjum okkar
frænkna. Með árunum breytt-
ist samband okkar ömmu frá
því að vera samband ömmu og
barnabarns yfir í að vera sam-
band vinkvenna. Samband okk-
ar var mjög gott og var amma
vinkona mín. Ég fór oft til
ömmu að spjalla yfir kaffibolla,
seinustu fjögur árin með dætur
mínar í för sem fannst æð-
islega gaman að vera hjá lang-
ömmu. Alltaf náði amma að
galdra fram dýrindisveislu á
örskotsstund út úr frystinum.
Hún var alltaf tilbúin með nóg
af gúmmelaði ef gest bar að
garði. Umræður okkar ömmu
áttu sér engin takmörk og töl-
uðum við um allt á milli himins
og jarðar. Mér fannst einstak-
lega gaman að heyra ömmu
segja frá gamla tímanum, upp-
eldi barnanna, ferðalögum sín-
um og sögur frá þeim tíma sem
hún vann á Kleppi. Það líf sem
hún lifði var stórbrotið og fjöl-
breytt. Hún lét nánast ekkert
stoppa sig og voru aldrei mikil
rólegheit í kringum hana.
Amma var hjartahlý, glað-
lynd, hjálpsöm, dugleg og góð
manneskja með mikla réttlæt-
iskennd. Hún mátti ekkert aumt
sjá og var alltaf tilbúin með op-
inn faðminn. Það var gott að
tala við hana, maður fann að
hún hlustaði mjög vel og tók
undir það sem maður var að
segja. Ég sagði henni allt og var
hún ein af þeim fyrstu í bæði
skiptin sem fékk að vita þegar
ég varð ólétt.
Amma skilur mikið eftir sig.
Hún á stóran hóp af frábærum
afkomendum. Fjölskyldan henn-
ar skipti hana gríðarlega miklu
máli og þótti henni skemmtileg-
ast að hafa fólkið sitt í kringum
sig. Hún var límið sem hélt okk-
ur saman. Vona að við munum
heiðra minningu hennar með
því að halda hópinn í framtíð-
inni.
Allt verður sinn enda að taka
og er enginn eilífur, ekki einu
sinni amma. Amma var hvíldinni
fegin þar sem seinustu mánuði
hrakaði heilsu hennar mjög
hratt. Það var erfitt að horfa
upp á þessa sjálfstæðu, sterku
og duglegu konu missa allan
mátt og styrk. Núna líður ömmu
vel og er sameinuð Evu systur
sinni aftur. Ég veit vel að þær
eru örugglega farnar að hlæja
og skemmta sér aftur saman. Er
nú þegar farin að heyra hlát-
urinn í þeim í huganum.
Þú í langferð farin ert, næsta
ævintýri er framundan. Skap-
arann þinn muntu hitta og þína
ástvini sem bíða eftir þér. Nú er
komið að kveðjustund þó erfið
sé. Mun ég alltaf sakna þín,
elsku amma, minning þín mun
lifa í hjörtum okkar. Elska þig,
ávallt. Þín,
Sigrún María.
Það að missa þig skilur eftir
mikið tómarúm í lífi okkar
systra, en við getum huggað
okkur við allar þær dýrmætu og
líflegu minningar sem við eigum
um þig. Takk fyrir allt, elsku
amma okkar, þú varst einstök í
alla staði.
Þú áttir söngva og sól í hjarta
er signdi og fágaði viljans stál.
Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta,
er kynni höfðu af þinni sál.
(Grétar Fells)
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
(Hugrún skáldkona)
Blessuð sé minning þín.
Þínar,
Hugrún, Berglind
og Sigrún Edda.
Dropi í hafið, hvað er það,
ævi manns er ekki einu sinni
það. Þegar við hugsum til baka,
þá er svo stutt síðan við vorum
börn að leika okkur. Það má
segja að við hér séum komin á
línuna, það er bara spurning
hvenær við stígum yfir. Það var
þó svo, að okkur fannst Edda
ekki komin svo langt, hún var
síung. Alltaf smart, alltaf tilbúin
í glens, fannst gaman að spila
og vera innan um fólk, stóð fyr-
ir því að gera dagamun hér í
húsinu, „Bónuskaffi“ var eitt af
því, þegar búið var að fara í
búðina var slegið upp kaffi með
meðlæti og glensi, kannski úti á
stétt ef vel viðraði, annars í
setustofu. Við þurfum að end-
urvekja það og þá í anda Eddu.
Það var tekið eftir því hvað hún
var alltaf flott, vel tilhöfð, kunni
að klæðast og var ófeimin að
prufa nýtt.
Ég kynntist Eddu þegar ég
flutti í húsið fyrir fimm árum.
Hún kom fljótt til að bjóða mig
velkomna, mér fannst það ljúft,
ég þekkti engan hér, en þá
strax fannst mér ég vera komin
heim. Edda átti óneitanlega þátt
í því. Um tíma fórum við saman
í leikhús, keyptum okkur kort á
haustin og fórum að sjá það sem
okkur fannst standa upp úr.
Edda var alltaf jafn flott og
yndisleg. Það var gaman þá.
Ég á eftir að sakna þess að
sjá ekki Eddu sitjandi úti á
svölum að prjóna í góða veðr-
inu, ásamt mörgu öðru sem á
eftir að koma í hugann.
Ég þakka Eddu fyrir okkar
góða tíma og alla þá vinsemd
sem hún sýndi mér.
Ég minnist þín, er ég sé sjóinn glitra
við sólarhvel.
Og þegar mánans mildu geislar titra,
ég man þig vel.
(NN)
Ég vil fyrir mína hönd, spila-
félaganna og íbúa A-blokkar
senda innilegar samúðarkveðjur
til aðstandenda.
Svava.
Edda Óskarsdóttir
✝ Högni Felixsonfæddist á Hell-
issandi 29. október
1931. Hann lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 11.
júlí 2015.
Foreldrar hans
voru Felix Eð-
varðsson, f. 27.
október 1898, d. 22.
nóvember 1975, og
Guðrún Hildur
Lárusdóttir, f. 29. október 1912,
d. 22. september 1999. Systkini
Högna eru Lárus, f. 1935, d.
2011, Eðvarð, f. 1937, Katrín
Hlíf, f. 1940, d. 2009, Fríða Guð-
rún, f. 1943, og Gylfi, f. 1954.
Árið 1955 kynntist Högni eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Þyri
Ragnheiði Svanholt Björgvins-
dóttur, f. 15. janúar 1932. For-
eldrar hennar voru Björgvin
Þórarinsson, f. 1. júní 1890, d. 3.
janúar 1979, og Kristmunda
Þorbjörg Guðmundsdóttir, f. 12.
ágúst 1892, d. 27. júní 1972.
Högni og Þyri hófu búskap í
Hafnarfirði árið 1958. Árið 1966
fluttu þau til Keflavíkur þar
sem þau bjuggu í 34 ár, en
fluttu síðan aftur til Hafn-
arfjarðar. Börn þeirra eru: 1)
Alma, f. 30. september 1957,
börn hennar og Guðmundar
1985. 3c) Lovísa, f. 1989. 3d)
Högni Þór, f. 1993. Barn Írisar
og Helga Harryssonar er 3e)
Vera, f. 1999. Börn Sveins af
fyrra hjónabandi eru Magnús
Björn Sveinsson og Jón Páll
Sveinsson. 4) Björgvin, f. 7.
ágúst 1962, maki Gauja Sigríður
Karlsdóttir. Börn Björgvins og
Sigurlínar Sigurðardóttur (skil-
in) eru 4a) Þyri Ragnheiður, f.
1989, sambýlismaður Jón Þór
Sigurleifsson. 4b) Sindri Freyr,
f. 1994. Börn Gauju af fyrra
hjónabandi eru Snjólaug Dís
Lúðvíksdóttir, Karl Óli Lúðvíks-
son og Bára Dís Lúðvíksdóttir.
Högni ólst upp hjá foreldrum
sínum í Stykkishólmi. Hann hóf
sjómennsku árið 1946, fyrst frá
Stykkishólmi og síðan frá Akra-
nesi. Árið 1958 lauk hann hinu
minna fiskimannaprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík. Sama ár flutti hann til
Hafnarfjarðar og starfaði þar
sem stýrimaður og síðar skip-
stjóri. Í Keflavík starfaði hann
sem skipstjóri á ýmsum bátum.
Hann hætti skipstjórn árið 1982.
Eftir það vann hann sem afleys-
ingastýrimaður og háseti þar til
hann hætti sjómennsku alfarið
árið 1986. Hann vann síðan sem
verkamaður, beitingamaður og
landformaður þar til hann sett-
ist í helgan stein.
Útför Högna fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 24.
júlí 2015, kl. 13.
Björgvinssonar
(skilin) eru 1a)
Björgvin, f. 1977,
maki Flóra Hlín
Ólafsdóttir, barn
þeirra 1aa) Almar
Elí, f. 2008. 1b)
Hildur Björg, f.
1981, maki Tor
Anders Andresen,
börn þeirra 1ba)
Tristan Torsson, f.
2003, 1bb) Nataly
Marita, f. 2008. Fyrir á Tor
Anders dótturina Juliu. Börn
Ölmu og Benti Arvesen (skilin)
eru 1c) Christina Helen, f. 1987,
maki Lars Christian Eia Gutt-
ormsen, börn þeirra 1ca) Ada
Lavendel, f. 2010, og 1cb) Jon
Iiro, f. 2012. 1d) Irene, f. 1991,
sambýlismaður Martin Köber.
2) Felix, f. 6. apríl 1960, sam-
býliskona Bára Denný Ívars-
dóttir, börn þeirra eru 2a) Bríet,
f. 1999, og 2b) Þyrí Stella, f.
2001. 3) Íris Högnadóttir, f. 14.
júní 1961, maki Sveinn Jónsson.
Börn Írisar og Jóns Halldórs
Jónssonar (skilin) eru 3a) Jón
Halldór, f. 1981, unnusta Ragn-
hildur Gyða Magnúsdóttir, barn
hans og Ólafar Maríu
Vilmundardóttir (slitu sam-
vistum) er 3aa) Alexander Vilm-
ar, f. 2004. 3b) Elvar Örn, f.
Kveikt er ljós við ljós,
burt er sortans svið.
Angar rós við rós,
opnast himins hlið.
Niður stjörnum stráð,
engill fram hjá fer.
Drottins nægð og náð
boðin alþjóð er.
(Stefán frá Hvítadal)
Takk fyrir allt.
Kveðja frá eiginkonu.
Þyri Ragnheiður Svanholt
Björgvinsdóttir.
Árið 2002 var mikið gæfu- og
hamingjuár hjá mér þegar leiðir
okkar Bjögga míns lágu saman.
Bjöggi, Björgvin Högnason, er
yngsti sonur Högna og Þyri og
þegar við erum að kynnast bjuggu
þau öll í sama húsi, hann á neðri
hæðinni og þau á efri hæðinni. Svo
ég kynnist þessum góðu hjónum
snemma í okkar sambandi. Þau
tóku mér og mínum börnum opn-
um örmum frá fyrsta degi og fyrir
það er ég afskaplega þakklát.
Tengdapabbi var kannski ekki
maður margra orða eða hafði sig
ekki mikið í frammi í fjölmenni en
það þýddi ekki að hann hefði ekki
skoðanir á þjóðfélags- og dægur-
málum. Lestur var eitt af hans
áhugamálum, alls kyns bækur,
skáldsögur, fræðirit, ævisögur,
sjófarabækur að ógleymdum
stríðsheimildarbókum og þar var
ekki komið að tómum kofunum.
Krossavík, æskuheimili Þyri í
Þistilfirði, var þeirra sumardvöl í
mörg ár. Hún var komin í eyði yfir
vetrartímann þegar ég kynnist
þeim, Kalli, bróðir Þyri, síðasti
ábúandinn, var kominn á elliheim-
ili á Þórshöfn. Hann var sóttur
þangað og var með þeim þar sum-
arpart meðan hann hafði heilsu til.
Natni þeirra hjóna og ástríða fyrir
Krossavíkinni er aðdáunarverð,
mörg handtökin sem þurfti að
gera eftir veturinn, hörkupúl
myndi þetta nú vera kallað í dag,
en þau töldu það ekki eftir sér og
þar leið þeim vel. Margar góðar
minningar þaðan með þeim hjón-
um skjótast uppí kollinn og er það
dýrmæt minning að hafa farið
með honum síðustu ferðina hans
þangað í fyrrasumar. Síðasta árið
hrakaði heilsu Högna ört og var
það honum þungbært og erfitt.
Eftir stutta sjúkrahúslegu andað-
ist hann á Landspítalanum 11. júlí
síðastliðinn.
Þessi litla kveðja mín til Högna
er skrifuð á Madeira þar sem við
fengum fréttirnar að hann væri
látinn. Það er erfitt að fá slíkar
fréttir langt frá ástvinum, en kvöl-
um hans er lokið og það er komið
að kveðjustund í bili.
Takk elsku Högni, fyrir hlýjuna
og umhyggjuna sem þú sýndir
mér og mínum börnum frá fyrsta
degi.
Hvíl í friði, elsku tengdapabbi.
Gauja S. Karlsdóttir.
Ég kom fyrst á heimili þeirra
sómahjóna Högna og Þyri fyrir 25
árum þegar þau bjuggu í Keflavík.
Þá eins og ávallt síðan var tekið
hlýlega á móti mér, kræsingar
reiddar fram og spjallað lengi yfir
kaffibollum. Fjölskyldan var oft
samankomin á heimili þeirra og
þaðan eigum við margar góðar
minningar. Á Þorláksmessu þótti
Högna ómissandi að fá sér skötu
og þau Þyri buðu í skötuveislu í
mörg ár. Þar smökkuðu dætur
mínar skötu í fyrsta sinn hjá afa
sínum og ömmu og þótti mikil
upplifun. Okkar ljúfustu minning-
ar um Högna eru úr Krossavík en
þar naut hann þess að vera á
sumrin. Hann undi sér við veiðar í
vötnunum og fór á bát út á víkina.
Högni átti sinn stað við eldhús-
borðið þar sem hann gat horft út
um gluggann á fuglana í víkinni og
fylgst með sjólagi. Mörg handtök-
in fóru í húsið í Krossavík og það
stæði ekki í dag ef þau hjónin
hefðu ekki haldið því við með elju-
semi í gegnum árin og fyrir það
erum við óendanlega þakklát.
Dætur mínar eiga óteljandi minn-
ingar um afa sinn í Krossavík sem
var einstaklega ljúfur maður og
hlýr við okkur alla tíð. Ég kveð
tengdaföður minn með virðingu
og þakklæti fyrir allt sem hann
var okkur og bið þess að hann hvíli
í friði.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Bára Denný.
Högni Felixson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞORGERÐUR EGILSDÓTTIR,
Strikinu 4, Garðabæ,
lést á Landspítalanum Fossvogi
miðvikudaginn 22. júlí.
Útför verður auglýst síðar.
.
Brynhildur I. Einarsdóttir, Sigurbjörn Ásgeirsson,
Sigurlaug S. Einarsdóttir, Skúli K. Skúlason,
Anna G. Einarsdóttir, Atli Norðdahl,
Egill Ö. Egilsson, Hanna Stefánsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
EMIL GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
sjómaður og bóndi,
lést á dvalarheimilinu Seljahlíð 22. júlí.
Jarðarför auglýst síðar.
.
Pálína Guðný Emilsdóttir, Guðlaugur Fr. Sigmundsson,
Kristín Aðalh. Emilsdóttir, Ólafur Vilhjálmsson,
Margrét Sigríðardóttir, Helgi Pétur Guðjónsson,
Guðm. Jóhann Emilsson, Mária Kamál Gordonsdóttir,
Sigurður Freyr Emilsson, Hanna Rut Jónasdóttir,
Magnúsína Ósk Eggertsdóttir
og barnabörn.
HANNES PÁLSSON
bankamaður,
Sólheimum 42, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 23. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
.
Guðrún Hannesdóttir, Þorbjörn Broddason,
Kristín Hannesdóttir, Nicholas Groves-Raines,
Halla Hannesdóttir, Vífill Magnússon,
Páll H. Hannesson, Liv Jorunn Seljevoll,
Pétur H. Hannesson, Erla Dís Axelsdóttir
og fjölskyldur.