Morgunblaðið - 24.07.2015, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 24.07.2015, Qupperneq 29
BSRB en þar sat ég með hléi þar til ég tók við formennsku samtak- anna árið 1988. Þar var þá fyrir í forystusveitinni Margrét Björns- dóttir. Kynni okkar urðu því langvinn og á ég henni margt að þakka á langri sameiginlegri veg- ferð. Hún gegndi jafnan lykilhlut- verki í kjarasamningum starfs- manna sveitarfélaganna, auk þess sem á hennar herðar voru sett ýmis önnur ábyrgðarstörf og þá iðulega fyrir heildarsamtökin. Margrét sat þannig um tíma í stjórn Styrktarsjóðs BSRB svo dæmi sé tekið. Margrét Björnsdóttir var traust og yfirveguð. Á fundum tal- aði hún ekki að óþörfu en þegar hún tók til máls þá var á hana hlustað. Þótt hún væri mild mann- eskja þá var hún ákveðin og föst fyrir ef því var að skipta og ekki auðveldlega hnikað þegar hún taldi um grundvallarmál að ræða. Alltaf kom hún hreint til dyranna og þurfti því enginn að fara í graf- götur um hvar hún stóð. Með okkur tókst góður vin- skapur og á það einnig við um eiginmann hennar, Má Sveins- son. Hann stóð henni jafnan sem traustur bakhjarl en sjálfur gegndi hann einnig trúnaðar- störfum fyrir hreyfinguna. Hef ég grun um að aldrei hafi Már orðið til að draga úr baráttuand- anum á heimilinu því hann var og er róttækur og baráttuglaður maður. Ég átti þess kost að njóta gest- risni þeirra hjóna og fékk því að kynnast því hve hlýlega og af hve mikilli velvild og rausn þau tóku á móti gestum sínum. Það er mikil eftirsjá að Mar- gréti Björnsdóttur. Hún skilur eftir góðar minningar. Megi að- standendur hennar og ástvinir vita að hún lét gott af sér leiða á sinni vegferð. Fyrir það leyfi ég mér að þakka fyrir hönd félaga hennar í BSRB um leið og ég votta eiginmanni og fjölskyldu samúð. Ögmundur Jónasson, fyrrverandi formaður BSRB. Sumarið 2004 aðstoðaði ég Margréti við að flytja Bókasafnið í Neskaupstað úr Egilsbúð í nýj- ar vistverur í nýbyggingu Nes- skóla. Á meðan á þessum flutn- ingum stóð ræddum við heima og geima og þar á meðal dauðann og útfarir. Hún sagði mér að hún væri ekki viss um að hún mundi vilja láta jarða sig frá kirkju. Ég, sem alltaf hef verið mikill fylg- ismaður hefða, átti dálítið erfitt með að átta mig á því hvernig jarðarförin ætti þá að vera. Hún útlistaði það í stuttu máli en sagði að lokum „svo segir þú kannski eitthvað fallegt um mig“. Þessu hef ég aldrei gleymt og nú er komið að mér að segja eitthvað fallegt um Margréti. Margrét var forstöðumaður al- menningsbókasafnsins heima á Norðfirði í allmörg ár. Ég var ákaflega bókhneigt barn og af því leiddi náttúrulega að ferðir mínar á bókasafnið voru margar. En ég get ekki sagt að ég hafi kynnst Margréti þá. Satt best að segja var ég logandi hræddur við þessa þöglu og alvörugefnu forstöðu- konu. Ég vissi að hún gekk hart fram í innheimtu sekta og bóka í vanskilum. Ég passaði mig alltaf á að vera búinn að skila innan þeirra tveggja vikna, sem þá var útlánstíminn, því ég ætlaði ekki fyrir mitt litla líf að kalla reiði Margrétar í bókasafninu yfir mig. Svona var samband okkar framan af. Ég kom inn á bóka- safnið, skilaði bókum, tók nýjar og fór. Þetta var gert með eins fáum orðum og mögulegt var Svo var það einn daginn, þegar ég var 14 ára, að pabbi segir mér að Margrét á bókasafninu sé í sím- anum og hafi spurt eftir mér. Ég fékk vægt áfall, hafði ég gleymt að skila bókum? Það gat ekki ver- ið. En ég er vel upp alinn og fór því í símann. Það var þá sem að Margrét bauð mér að leysa hana af á bókasafninu, vegna þess að hún hafði tekið eftir því að ég læsi mikið. Ég tók starfinu og það var þá sem ég kynntist Margréti. Og viti menn, hún var bara óskap- lega vingjarnleg og eðlileg. Ég var á bókasafninu með Margréti frá fermingu þangað til að ég fór suður í háskóla um tvítugt. Það er skammt frá því að segja að Margrét hafði mikil áhrif á mig, ungl inginn, og án þess að ætla mér að vera væminn, hef ég alltaf litið á Margréti sem lærimeist- ara. Það mikilvægasta sem hún reyndi að innræta mér var yfir- vegun og að fella ekki sleggju- dóma. Hún gerði bara kaldhæðn- islegt grín að manni ef maður kom með einhverjar yfirlýsingar um menn og málefni. Núna á síðari árum hefur Mar- grét glímt við illvígan sjúkdóm sem nú hefur sigrað. En þó að hún væri fárveik var hún ekki hætt að sýna gott fordæmi. Það var aðdáunarvert að sjá hvernig hún nálgaðist sjúkdóminn af skynsemi og lifði hvern dag fyrir sig. Einu sinni hitti ég hana í búð- inni og þegar ég spurði hvernig hún hefði það, svaraði hún „það er góður dagur í dag“. Það var eitt sem Margrét reyndi mikið að kenna mér, en tókst þó aldrei. Það var að inn- heimta sektir. Ég var forstöðu- maður bókasafnsins heima í rúm fjögur ár og innheimtumál safns- ins á þeim tíma hefðu vægast sagt ekki verið Margréti að skapi. Blessuð sé minning hennar. Óskar Ágúst Þorsteinsson. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 Vogurinn gárað- ist í norðanáttinni og laufkrónur trjánna liðuðust í vindinum þegar við áttum okkar síðustu kveðjustund á líknardeildinni í Kópavogi. Þó að líknardeildin sé staður sem enginn vill þurfa að leita til var hún okkur báðum mjög kær og þaðan áttum við sameiginlegar og góðar endurminningar frá uppbyggingu deildarinnar. Snorri sagði líka að það hefði ver- ið eins og að koma heim, svo vel var honum tekið af starfsfólkinu sem margt þekkti hann vel. Ótímabært fráfall góðs vinar er alltaf sárt. Hann greindist með sjúkdóminn um síðustu áramót og með dugnaðinn og bjartsýnina að vopni var hann ákveðinn í að sigra. Hver heimsókn til hans var glaðvær og svo gefandi að það bætti manns innri mann. Snorri var framúrskarandi heilsteyptur og vel gerður per- sónuleiki. Hann átti auðvelt með að greina hismið frá kjarnanum þegar álitamál komu upp um hvort eða hvernig taka ætti á hlutunum. Skoðunum sínum lá hann ekki á og átti það gjarnan til að segja að allt annað væri bara vitleysa. Með jákvæðnina að vopni nálgaðist hann óragur öll verkefni til lausna. Hann var framfarasinnaður jafnaðarmaður af gamla skólan- um og átti góðar endurminningar frá yngri árum úr starfi með Al- þýðuflokknum og síðar Vilmundi Gylfasyni. Með árunum dró hann Snorri Guðmundsson ✝ Snorri Guð-mundsson fæddist 2. sept- ember 1951. Hann lést 14. júlí 2015. Útför Snorra fór fram 23. júlí 2015. úr pólitísku starfi til að sinna fjölskyld- unni betur. En hug- sjón eldhugans lifði. Pólitískar skoðanir okkar fóru sjaldnast saman og oft var tekist á en alltaf sameinast í vinskap og hugsjón fyrir framförum landi og þjóð til góðs. Á sól- veröndinni við líkn- ardeildina hafði hann áhyggjur af byggingakrana í þéttri byggðinni í Arnarnesi. Hann óttaðist að til- vera kranans á þessum stað væri merki þess að vitleysan væri aft- ur að fara á fullt. Ég á eftir að fara og skoða hvort svo sé. Okkar kynni hófust fyrir tæp- um 30 árum þegar Snorri gekk til liðs við Oddfellowregluna. Þar sem annars staðar gekk hann heill fram af dugnaði og áhuga. Hann var skarpgreindur og átti létt með að tileinka sér hugsjónir Reglunnar. Í stúkunni gegndi hann öllum helstu trúnaðarstörf- um og nú um nokkurn tíma hafði honum verið falið æðsta embætti stúkunnar. Stúkubræðurnir munu sakna góðs vinar og félaga. Við Þóra eigum góðar minning- ar frá Flórídaferð með Lilju og Snorra ásamt öðrum vinahjónum. Ljúfar minningar um grænar flat- ir fjarlægra golfvalla fá aukið vægi hafi félagskapurinn verið góður. Svo var að þessu sinni. Máltækið segir: „Vinur er sá sem til vamms segir.“ Þannig var Snorri, hann var ekkert að skafa utan af hlutunum. Sagði mein- ingu sína en var jafnframt með- vitaður um mismunandi skoðanir annarra. Ég tel að honum hafi tekist það sem einna eftirsóknar- verðast er í lífinu, að vera góður og einlægur vinur eiginkonu sinnar og barna. Þrátt fyrir góð- an vilja þar um er ekki sjálfgefið að það sé öllum gefið. Ég færi Lilju, börnum þeirra og fjölskyldum innilegar samúð- arkveðjur frá okkur Þóru. Missir þeirra er mikill en minningin um góðan eiginmann, föður og afa mun ylja þeim um ókomin ár. Sjálfur mun ég sakna góðs vinar. Ingjaldur Ásvaldsson. Það er dýrmætt að eiga góða vini. Í dag kveð ég góðan vin minn, Snorra Guðmundsson, sem var giftur Lilju æskuvin- konu minni og voru þau í farsælu hjónabandi í tæp fjörutíu ár. Ég á margar góðar minningar um þau Snorra og Lilju, eins og allar sumarbústaðaferðirnar í Selvík með börnin okkar þar sem fótbolti var mikið spilaður, farið var í bátsferðir og svo grillað á eftir en þar var Snorri á heima- velli. Snorri var glaðlyndur maður, hreinn og beinn við alla, háa sem lága, og lá ekki á skoðunum sín- um. Sjaldan féll honum verk úr hendi – ef hann var ekki að dytta að húsinu þeirra að utan, þá var hann að mála inni eða annað, enda ber heimili þeirra fagurt vitni þess. Fjölskyldumaður var hann mikill og naut sín best inn- an um börn sín og barnabörn. Í veikindum sínum kom vel fram hvern mann Snorri hafði að geyma, þvílíkt æðruleysi sem hann sýndi, og húmorinn var ekki langt undan. Oft hef ég í lífsins ólgusjó þurft á vinum að halda og þá lágu Snorri og Lilja ekki á liði sínu, alltaf var til pláss fyrir mig hjá þeim. Elsku Snorri, þú sem ert búinn að vera hluti af mínu lífi í öll þessi ár, vinátta ykkar Lilju, sem aldrei bar skugga á, er nú huggun harmi gegn. Að lokum viljum við Eyjólfur votta Lilju vinkonu okkar, Jóni Þór, Guðmundi, Elsu Dísu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Megi algóður Guð styrkja þau í sorg sinni. Snorri á góða heimkomu vísa. Vertu sæll að sinni. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Helga. Snorri Guðmundsson var mað- ur sem lét verkin tala. Kom til dyranna eins og hann var klædd- ur; hreinn og beinn, heill og sann- ur. Það var gott að eiga hann Snorra að vini. Okkar leiðir lágu saman fyrir margt löngu á vett- vangi Sambands ungra jafnaðar- manna, þar sem Snorri var kall- aður til forystu. Síðar varð Snorri virkur og kraftmikill í starfi jafn- aðarmanna innan Alþýðuflokks- ins. Á þeim vettvangi sem öðrum var hann farsæll og vel látinn af samferðafólki. Við náðum vel saman í starfi hinna ungu sem eldri jafnaðar- manna, urðum vinir til lífstíðar. Stundum varð langt á milli end- urfunda, en þegar við hittumst var allt eins og áður hafði verið; spjallað um daginn og veginn, rifjaðar upp gamlar og góðar sögur af samferðafólki og auð- vitað var pólitíkin rædd í hörg- ul. Það var gott að eiga samskipti við Snorra Guðmundsson. Og líka skemmtilegt, enda alltaf stutt í brosið hjá mínum góða vini. Hann var ljúfur og með þægilega nær- veru, en um leið fastur fyrir og ákveðinn. Var gefandi og upp- byggilegur. Maður fór einfald- lega betri maður af fundi með honum. Í pólitíkinni var hann jafnað- armaður af gamla skólanum. Vildi jafna möguleika allra til lífsins gæða og að net velferð- arkerfisins tryggði að enginn félli milli skips og bryggju. En að sama skapi þyrfti samfélagið að skapa verðmæti til að standa undir traustu velferðarkerfi. At- vinna fyrir allar vinnufærar hendur væri grundvöllur vel- ferðar. Annað gæti ekki án hins verið. Snorri var fjölskyldumaður góður og hann vakti yfir sínu fólki með hlýju og festu. Ég kveð góðan vin minn með eftirsjá og þakklæti og sendi Lilju eiginkonu hans, börnum, barnabörnum, ættingjum hans og vinum innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu mann- kostamannsins Snorra Guð- mundssonar. Guðmundur Árni Stefánsson. Kveðja frá Verkstjóra- sambandi Íslands Snorri Guðmundsson var kjör- inn í stjórn Verkstjórasambands Íslands á sambandsþingi sem haldið var að Hótel Örk í júní 1995. Snorri gegndi í mörg ár ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Verkstjórasamband Íslands. Hann var kjörinn varaforseti VSSÍ árið 2001 og gegndi því embætti til 2005. Á landsfundi Verkstjórasambands Íslands í maí 2008 var Snorri heiðraður fyrir vel unnin störf og gerður að heiðursfélaga Sambandsins. Verkstjórasamband Íslands vott- ar aðstandendum sína dýpstu samúð og vill koma á framfæri þökkum til Snorra fyrir þau óeig- ingjörnu störf sem hann vann fyrir Sambandið. Fyrir hönd VSSÍ, Skúli S. Sigurðsson, forseti Verkstjórasambands Íslands. Alltaf harkaðir þú af þér með kærleikann að leiðarljósi. Ef ein- hver spurði hvernig þú hefðir það, þá sagðir þú iðulega að ekk- ert amaði að þér og að margir hefðu það verra. Á sama tíma var þér umhugað um velferð fólks og tókst nærri þér veikindi ann- arra. Um miðbik ævi þinnar skiptir þú um lífsstíl sem var frá- bært afrek. Þín lífsbraut varð mjög fjölbreytt þroskasaga og síðustu árin voru ótrúlega falleg og gefandi, þú varst beinlínis að breytast í engil. Þér tókst stöðugt að bæta þig og bæta lífi við árin. Minnisstætt er þegar þú fórst í dagvistina á Múlabæ. Þar lékstu á als oddi og heillaðir marga með þínum hressa og gefandi persónuleika. Þakklát er ég fyrir hvatningu og stolt frá þér varðandi námið og íþróttaiðkun mína. Hjartans þökk fyrir virðinguna og hressi- leikann í matarboðunum okkar, þar sem þú varst hrókur alls fagnaðar, frasinn frá þér, „þetta er eins og á fimm stjörnu hóteli elskurnar“, mun ávallt hljóma í hjörtum okkar. Alltaf varstu góð- ur afi, barnabörnin fóru aldrei tómhent heim. Þú hrósaðir þeim og læddir aurum í vasa þeirra, þau fóru alsæl heim með gleði í hjarta. Ég kveð þig með uppá- haldsorðunum þínum: „Guð veri með þér“ og þínu fólki. Þín elskandi dóttir, Hafdís Björg Sigurðardóttir. Mig langar að minnast tengda- föður míns, Sigurðar Berg Berg- steinssonar, sem lést eftir fimm ára hetjulega baráttu við illvígt krabbamein. Hann hafði einstakt lag á að dylja veikindi sín með gamanmálum og léttleika. Hann tók alltaf á móti mér með velvild og þakklæti. Mér er mjög minn- isstætt þegar hann varð að skila inn ökuleyfi sínu og leggja bíln- um á sama árinu. Hann var 87 ára að aldri og sjónin farin að dapr- ast. Það voru erfið spor enda var líf hans samofið bílnum. Hann hafði árum saman þjónustað og ekið ættingjum og vinum um all- an bæ. Þrátt fyrir þessi þungu spor náði hann á aðdáunarverðan hátt að rífa sig upp með sínum einstaka húmor og sættast við orðinn hlut. Það var því heiður að skila einhverju til baka sem hann hafði gefið og aka honum síðustu árin. Í ferðum okkar ríkti glað- værð og var mikið hlegið. Hann gladdist mjög þegar ég útnefndi hann færasta og skemmtilegasta aftursætisbílstjóra landsins. Með þessum jákvæðu minningum kveð ég tengdaföður minn, bæði með hlýhug og þakklæti. Bílstjórinn ók farþegum bæinn breitt um berjalönd landið allt. Hjálpsamur öll þakklát kveðjum hann á leiðarenda til sumarlands. Óskar Ásgeirsson. Elsku afi minn. Þær eru svo margar síðurnar sem ég gæti skrifað til þín, með minningum, hlutum sem þú hefur kennt mér og eftirminnilegum orðum sem þú hefur látið falla. Til allrar hamingju höfðum við tíma til að rifja þetta allt upp saman áður en þú kvaddir og því er það óþarfi. Það, auk þess að fá að kveðja þig vel síðustu tvo dagana þína á þessari jörð er mér óendanlega mikils virði. Takk fyrir alla ást- ina, hjálpsemina og dugnaðinn – þótt líkaminn hafi að lokum hrun- ið gerðu húmorinn og jákvæðnin það aldrei. Ég ætla að enda þetta með orðum sem þú notaðir oftar en ekki við alla sem þú hittir en þau hafa aldrei átt jafnvel við og núna. „Guð veri með þér, ég má ekki vera að því.“ Sjáumst síðar! Þín, Heiða. Heimsóknir í Starhólmann til Jóns föðurbróður okkar eftir siglingu yfir Faxaflóann eða akstur fyr- ir Hvalfjörðinn voru fastir liðir í höfuðborgarferðum fjölskyld- unnar af Skaganum og skilja eftir sig ljúfar æskuminningar hjá okkur systkinunum. Það er erfitt að minnast Jóns án þess að í hugann komi eig- inkona hans, Didda, enda voru þau Jón og Didda alltaf nefnd í sama orðinu. Við höfum átt margar yndislegar stundirnar með þeim í gegnum árin. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til þeirra, spjalla um heima og geima og njóta sam- verunnar. Ekki var slæmt að Jón Viðar Tryggvason ✝ Jón ViðarTryggvason fæddist 18. sept- ember 1925. Hann lést 1. júlí 2015. Útför Jóns Við- ars fór fram 10. júlí 2015. Didda sá til þess að aldrei fór maður þaðan svangur, sérstaklega mun- um við eftir fínu pönnukökunum, vöfflunum og grá- fíkjukökunni sem alltaf virtist vera nóg til af. Jón var mikill jafnaðarmaður og mátti ekkert slæmt segja um þá. Oft urðu heitar umræður sem var skemmtilegt fyrir okkur systkinin að fylgj- ast með. Hann var samvisku- samur og gerði allt vel, sem hann tók sér fyrir hendur. Rausnarleiki og umhyggja Jóns og Diddu áttu sér engan enda. Þau hikuðu ekki við að hýsa og fæða mig (Jón Tryggva) í Star- hólmanum fyrstu tvö árin sem ég stundaði nám við Háskóla Íslands. Það var yndislegt að búa hjá þeim og mér fannst eins og ég væri fimmti son- urinn þeirra. Á hverjum morgni var gaman að vakna og spjalla við Jón um pólitík og önnur efni, fylgjast með Diddu leysa krossgátuna á meðan við átum dásamlegan morgunmat. Kvöldin voru jafn skemmtileg því Didda spillti okkur Jónum oft með pönnukökum eða vöffl- um. Þetta voru yndisleg tvö ár í mínu lífi sem ég mun aldrei gleyma og hjálpuðu mér svo sannarlega að koma námi mínu og framtíð á gott skrið. Eftir að faðir okkar, bróðir Jóns, lést var Jón mikill styrkur fyrir okkur. Þó hann ætti orðið erfitt með gang lét hann sig ekki muna um að ganga upp á þriðju hæð í skírnarveislu dóttur minnar (Hróðný) og gladdi það okkur mjög mikið. Þótt heilsan væri tekin að slappast undir það síðasta kom hann alltaf fram í stofu þegar við komum í heimsókn og spjallaði. Hann var farinn að hrista hausinn yf- ir pólitíkinni og leist ekkert á hvert hlutirnir stefndu. Það var gaman að heyra hann segja sögur frá Akureyri þar sem hann ólst upp og af þeim systk- inum. Jón var dugnaðarforkur, vildi öllum vel og að allir hefðu það gott. Við kveðjum Jón með söknuði og sendum elsku Diddu, sonum og sonarbörnum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Jón Tryggvi og Hróðný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.