Morgunblaðið - 24.07.2015, Page 33

Morgunblaðið - 24.07.2015, Page 33
Flateyjardalnum, Brettingsstöð- um og Jökulsá. Þetta eru æskustöðvar Tryggva og föður míns en þeir voru frændur, fóstbræður og systkinabörn í báðar ættir. Í nærri 50 ár hafa afkomendur fyrrverandi ábúenda þessara jarða dvalið ytra hluta úr sumri og haldið við húsunum og notið náttúrunnar. Til að komast út á Dal þarf að fara yfir Flateyjar- dalsheiðina sem er einungis fær jeppum frá Dalsmynni. Tryggvi frændi og Heiða konan hans fóru þetta á hverju sumri og dvöldu oft sumarlangt. Hann undi hag sínum vel á bernskuslóðunum og vildi hvergi annars staðar vera. Það er ólýsanleg tilfinning að koma út á Dal og dvelja í kyrrð og ró og njóta þess að fara í fjall- göngu, veiða í vatninu, tína steina í fjörunni, tína ber eða bara hlusta á kyrrðina. Ég skil vel að þeir fóstbræður hafi viljað vera þar í sumarfríum sínum. Tryggvi frændi var meðal- maður á hæð, þrekvaxinn, fas- mikill, hárprúður með skarpar augnabrúnir og dimma rödd. Hann var félagslyndur en skap- mikill, fróðleiksfús og ættfróður maður. Hann var umhyggjusam- ur frændi og ljúfur við okkur krakkana. Hann hafði gaman af að segja frá ýmsum fróðleik og miðla um menn og málefni og gat oft séð spaugilegar hliðar á hlutunum. Það voru ófáar stundir sem við krakkarnir sátum með full- orðna fólkinu í eldhúsinu á Brettingsstöðum, Tryggvi frændi í sínu horni með kaffiboll- ann og kominn í frásagnargírinn. Það var ógleymanlegt. Alltaf var Heiða konan hans nálæg og leið- rétti það sem þurfti og bætti við það sem á vantaði í frásögnina. Það er sjónarsviptir við fráfall Tryggva frænda og á ég eftir að sakna þess að sjá hann í hlaðinu á Brettingsstöðum að taka á móti gestum. Takk fyrir sam- fylgdina, kæri frændi, og fyrir allt sem þú kenndir mér. Ég mun aldrei gleyma uppruna mín- um eins og þú minntir mig á fyr- ir mörgum árum, þegar þú varst að kenna mér örnefnin á Daln- um. Kæra fjölskylda, Heiða, Þor- gerður, Hulda, Gunnar Björn, Emma, tengdabörn, barnabörn, systkini og aðrir ættingjar. Ég, fjölskylda mín, móðir mín og systkini vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að veita ykkur styrk. Megi sál þín ná áfangastað. Gríma Huld Blængsdóttir. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður kl. 8.30-16. Garðabær Opið í Jónshúsi, Strikinu 6, Garðabæ, kl. 9.30-16, alla virka daga, hádegismatur kl. 12, panta með dags fyrirvara í s. 617- 1503, meðlæti með síðdegiskaffi selt kl.14-16, opnar saumavinnu- stofur alla virka daga, Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 14.45 á þriðjudög- um, brids á miðvikudögum kl. 13, handavinnuhorn á fimmtudögum í Jónshúsi. Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-15.30. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10, ganga um hverfið kl. 10.30. Heitt á könnunni. Gjábakki Handavinnustofan opin, hádegisverður kl. 11.40, félagsvist kl. 20. Gullsmári Vefnaður og tiffanýgler kl. 9, ganga kl. 10 og handavinnu- stofan opin. Hádegisverður kl. 11.40. Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16. Boðið upp á kaffi kl. 8.30-10.30. Litað með Ingibjörgu kl. 9. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Blöðin, taflið og púslin liggja frammi. Opið inn í handavinnustofu. Þrektækin og púttið á sínum stað. Minnum á netið og spjaldtölvuna. Hádegisverður seld- ur kl. 11.30-12.30. Slökun kl. 13. Kaffi og meðlæti selt kl. 14.30-15.30. Norðurbrún 1 Í dag engin dagskrá. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl. 13.30. Vesturgata 7 Félagsmiðstöðin Vesturgötu 7 verður lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá og með mánudeginum 22. júní. Opnum aftur mánudaginn 27. júlí. Hárgreiðslustofan og fótaaðgerðarstofan verða opnar. Smáauglýsingar Bækur Bókaveisla Hin landsfræga og margrómaða júlíútsala stendur yfir. 50% afsláttur. Við erum í Kolaportinu, hafnarmegin í húsinu. Opið um helgina kl. 11-17. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Íþróttir Verðlaunagripir - gjafavara -áletranir Bikarar, verðlaunapeningar, barm- merki, póstkassaplötur, plötur á leiði, gæludýramerki - starfsgreinastyttur Fannar Smiðjuvegi 6, Rauð gata Kópavogi, sími 5516488 Til sölu Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 KRISTALSLJÓSAKRÓNUR Ný sending af glæsilegum kristals- ljósakrónum, veggljósum, matarstell- um, kristals glösum til sölu. BOHEMIA KRISTALL, Grensásvegi 8, Sími 7730273. Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Bílar Suzuki Grand Vitara Premium 2013 Til sölu Suzuki Grand Vitara Premium árg. 2013. Ekinn 61.000 km. Beinskiptur. Einn eigandi frá upphafi. Litur dökk brúnn. Verð kr. 3.900.000. Upplýsingar í símum 5616521 og 8921938 Jesseníus Faculty of Medicine, Martin Slóvakíu - Læknisfræði www.jfmed.uniba.sk Palavcký University Olomouc, Tékklandi – Tannlæknisfræði www.medicineinolomouc.com Veteriary Medicne Kosice Slóvakíu - Dýralæknisfræði www.vulf.sk Upplýsingar um námið og inntöku- próf í s. 5444333 og fs. 8201071 kaldasel@islandia.is Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Kíktu á heimasíðuna lifstykkjabudin.is Mikið úrval Útsalan í fullum gangi Póstsendum Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 Elsku Bubba. Þá er viðburða- ríkri vakt þinni hér í þessu lífi lokið. Eftir stöndum við, klumsa yfir því að þú hafir farið í slíkum hvelli. En þannig varst þú. Óútreiknanleg og ekki fyrir neins konar lognmollu gefin. Þú vildir hrista upp í hlut- unum, stundum algjörlega óháð því hvort þess þurfti eða ekki. Þú varst frábær frænka og vildir alltaf allt fyrir okkur syst- kinin gera. Ég minnist þess þegar ég, óharðnaður unglingurinn, vildi halda 17 ára afmælið mitt með til- heyrandi ólátum og fjölölvun. Auðvitað leitaði ég strax til þín og að sjálfsögðu gafstu mér fúslega leyfi til að bjóða fleiri tugum af vinum og kunningjum inn á þitt heimili. Þú skelltir þér bara til Siggu frænku í heimsókn meðan á gleðskapnum stóð og þegar allt fór úr böndunum og húsið fylltist af ókunnugum Grafarvogssudd- um þá fannst þér það bara snið- ugt, keyrðir heim í rólegheitun- um, helltir upp á kaffi, fékkst þér eina sígó, vísaðir öllum kurteis- lega og hálfhlæjandi út og skutl- aðir mér svo í bæinn. Það var alltaf stutt í hláturinn hjá þér, jafnvel þegar erfiðleikar steðjuðu að þá gastu að lokum fundið leið til að hlæja að hlutun- um. Þessu fengum við systkinin að kynnast mjög vel þegar þú fluttir til okkar á Rauðalækinn fyrir rétt tæpum tveimur árum. Takk fyrir allt, elsku Bubba. Við eigum eftir að sakna þín ótæpi- lega, elsku Bubba, þú skilur eftir tómarúm sem erfitt verður að fylla. Þín, Kári og Véný. Elsku hjartans Guðbjörg. Ég bjóst aldrei við þeirri sorg sem hellist yfir mig núna þegar þú ert farin frá okkur og þessu jarð- Guðbjörg Gylfadóttir ✝ GuðbjörgGylfadóttir fæddist í Reykjavík 25. maí 1954. Hún lést 2. júlí 2015. Útför Guðbjarg- ar fór fram 16. júlí 2015. neska lífi. Við kynnt- umst á „hressingar- hælinu okkar“ fyrir nokkrum árum. Per- sónuleiki þinn var eins og segull, fólk hreinlega hópaðist að þér og vildi fá að vera með. Við tvær urðum fljótt góðar vinkonur og studd- um við bakið hvor á annarri með því að gera létt grín að aðstæðum og ástæðum. Það fóru ófáir klukku- tímarnir í málaralist og föndur. Við tvær náðum að fela okkur saman og dunda okkur til þess að drepa tímann. Þú varst gull af manni, hugs- aðir meira um aðra en sjálfa þig – jafnvel þegar tímarnir voru erfið- ir. Þegar við kvöddumst eftir dvölina á hressingarhælinu settir þú blómvönd á borðið mitt og gafst mér málverk sem þú hafðir búið til. Aftan á málverkið hafðir þú skrifað hvatningarorð til mín. Ég hef aldrei kynnst annarri eins góðmennsku og náungakær- leik og frá þér, Gugga mín. Þú varst ljósið í myrkrinu fyrir mig og svo marga – og ég þakka þér frá mínum dýpstu hjartarótum fyrir að taka mig að þér og hlúa að mér sem ég þurfti svo sannarlega á að halda. Seinna skrifaðirðu mér skila- boð þar sem við ræddum einmitt um þessa tíma okkar – hvað það var gaman að „hanga“ saman og spjalla. Okkur þótti svo vænt um þessar stundir. Þú varst sannkallað ljós í myrkri – persónuleiki þinn var svo vandaður. Þú talaðir mikið um Eyrúnu, Ásgeir og barnabörnin þín, sem þér þótti svo afar vænt um. Þau voru þitt stolt í lífinu. Ég vildi að ég hefði fengið að kveðja þig, en lífið býður ekki allt- af upp á það sem maður óskar sér. Ég vona að þér líði vel á himnum hátt og þú lítir af og til niður á okkur sem þykir svo endalaust vænt um þig. Elsku Guðbjörg – mér þykir vænt um þig og ég mun sakna þín og tíma okkar sárt. Þín vinkona, Lára Kristín Brynjólfsdóttir. leysti hún óaðfinnanlega og oft kom það sér vel að Anna gat á svipstundu þýtt íslenska texta á erlend tungumál án vandkvæða. Ljúfmennska og hlýhugur voru hennar einkunnarorð og sú framkoma skapaði henni miklar vinsældir í starfsmannahópnum. Hennar var því sárt saknað þeg- ar hún lét af störfum árið 2013. Í dag er komið að kveðjustund. Við þökkum Önnu ánægjulega samfylgd og sendum fjölskyldu hennar samúðarkveðjur. Linda Kristmundsdóttir og Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir. HINSTA KVEÐJA Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Innilegar samúðarkveðj- ur til ykkar allra sem áttuð hina dásamlegu perlu að. Vinátta og væntumþykja sem aldrei gleymist. Anna Jónsdóttir og fjölskylda. Elskulega frænka mín, Guðný María Hreiðars- dóttir, er látin, 56 ára gömul. Guðný María var alveg frábær kona, alltaf jákvæð og elskuleg við alla. Hún trúði á lífið til síðasta dags. Vönduð og karftmikil og sinnti sínu starfi til fyrirmyndar. Þau skipti sem ég átti þess kosta að mæta henni var hún alltaf ljóm- Guðný María Hreiðarsdóttir ✝ Guðný MaríaHreiðarsdóttir fæddist 20. mars 1958. Hún lést 8. júlí 2015. Útför hennar fór fram 16. júlí 2015. andi af lífsgleði. Hún söng í kór og hafði áætlað ferð til Stokkhólms í söng- ferð. Hún trúði allt- af að hún læknaðist af þessum hræði- lega krabba, sem svo stöðvaði hennar líf. Allt of oft er það stókostlegt ungt fók eins og Guðný María með mikla líf- gleði sem verður krabbanum að að bráð. Guð veri með börnunum þremur sem Guðný átti og Guð hjálpi þeim í sorginni. Móðir og faðir syrgja frábæra dóttur sem var öllum til fyrirmyndar. Árni Björn Guðjónsson. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.