Morgunblaðið - 24.07.2015, Page 35

Morgunblaðið - 24.07.2015, Page 35
heimili mínu og ég byrjaði að spila golf þegar ég var 12 ára og hef haldið því áfram með hléum. Barn- eignir settu svolítið strik í reikning- inn með golfið og önnur áhugamál en ég eignaðist þrjú börn á tæpum tveimur árum. Ég stefni hins vegar að því að dusta rykið af golfsettinu fljótlega og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.“ Þorgerður lærði á þverflautu við Tónlistarskólann á Húsavík: „Ég stundaði þverflautunám í tíu ár og var bara orðin nokkuð góð. Nú í seinni tíð gríp ég einstaka sinnum í flautuna og blæs í hana þegar aðrir heyra ekki til.“ Þorgerður var í Barnaskóla Húsavíkur, fór sem skiptinemi til Ítalíu þegar hún var 16 ára, stund- aði nám við Framhaldsskólann á Húsavík og lauk þaðan stúdents- prófi 1995. Þorgerður var au pair í Madríd á Spáni eftir stúdentspróf, hóf nám í sálfræði við HÍ haustið 1996, lauk BA-prófi í sálfræði árið 2000 og Cand.Psych.-gráðu frá HÍ 2003. Síðan hefur hún sótt ýmis starfs- tengd námskeið og lauk m.a. PMD- námi frá Opna Háskólanum árið 2013. Þorgerður starfaði í eldhúsinu á Sjúkrahúsinu á Húsavík á sumrin á framhaldsskólaárunum og var sund- þjálfari hjá sunddeild Völsungs. Hún kenndi auk þess á þverflautu við Tónlistarskólann á Húsavík. Þorgerður var flugfreyja hjá Atl- anta á sumrin með háskólanámi og hefur auk þess starfað sem aðstoð- armaður og stundakennari við sál- fræðiskor HÍ og Endurmenntun HÍ. Hún starfaði við ráðgjöf hjá IBM Consulting Services eftir útskrift úr HÍ og tók síðan við starfi starfs- mannastjóra Lyfju hf. í lok árs 2003. Árið 2009 færði hún sig um set innan Lyfju hf. og varð for- stöðumaður verslana- og markaðs- sviðs til loka árs 2014. Hún var ráð- in framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli í október 2014: „Í Fríhöfninni er úr- vals starfsfólk sem gaman er að vinna með. Þróun og breytingar á áherslum er afar mikilvægur þáttur í starfsemi verslunarinnar þar sem erlendum ferðamönnum hefur fjölg- að gífurlega á síðustu árum.“ Þorgerður hefur margt á sinni könnu og segir mikilvægt að nýta og skipuleggja tímann vel. Hún fer í líkamsrækt klukkan sex á morgn- ana meðan börnin sofa. Þegar hún fer út að hlaupa fylgja börnin henni eftir á hjólunum sínum: „Allar frí- stundir með fjölskyldunni eru mér kærkomnar og eru raunar afar mikilvægar. Nú í vikunni vorum við að koma úr tveggja vikna fríi frá Bandaríkjunum þar sem við höfðum húsaskipti við bandaríska fjöl- skyldu. Við vorum í Hyannis á Cape Code í Massachusetts en þar eyddi Kennedy frístundunum á sínum tíma. Við stefnum svo á að fara til Húsavíkur seinna í sumar. Fjöl- skyldunni finnst afar notalegt að komast í rólegheitin fyrir norðan og við förum þangað tvisvar til þrisvar á ári. Ég hef alltaf haft gaman af að elda, fylgist vel með matarbloggum á netinu og mér finnst spennandi að prófa nýja rétti og bjóða góðum vin- um í mat eða skella í eina góða köku.“ Fjölskylda Eiginmaður Þorgerðar er Ingvar Jóhann Kristjánsson, f. 25.11. 1969, viðskiptafræðingur. Hann er sonur Kristjáns Jóhannssonar, f. 24.5. 1948, óperusöngvara og Áslaugar Kristjánsdóttur, f. 3.2. 1948, sjúkra- liða. Börn Þorgerðar og Ingvars eru Þórey, f. 31.8. 2007 og tvíburarnir Kristján og Vala, f. 4.7. 2009. Bræður Þorgerðar eru Jón Skúli Fjeldsted, f. 20.4. 1982, kerfisfræð- ingur hjá Svari, búsettur í Reykja- vík, og Ásmundur Ýmir Þráinsson, f. 11.8. 1988, verslunarmaður í Reykjavík og á Húsavík. Foreldrar Þorgerðar eru Þráinn Guðni Gunnarsson, f. 4.12. 1950, stöðvarstjóri á Húsavík og Ingi- björg Jónsdóttir, f. 25.4. 1956, verslunarmaður í Garðabæ. Úr frændgarði Þorgerðar Þráinsdóttur Þorgerður Þráinsdóttir Elínborg Hannesdóttir húsfr. í Nípukoti í Víðidal Ásmundur Jón Sveinsson b. í Nípukoti í Víðidal Soffía Jónsdóttir húsfr. á Siglufirði Jón Guðmundur Þórðarson vitavörður á Siglunesi Ingibjörg Jónsdóttir verslunarm. í Garðabæ Margrét Jónsdóttir húsfr. á Siglunesi Þórður Þórðarson vitavörður á Reykjanesi og síðar á Siglunesi Sturlaugur Lárusson Fjeldsted verslunarm. í Rvík Sigríður Gunnarsdóttir húsfr. í Rvík Gunnar Sturlaugsson Fjeldsted sjóm. og kokkur í Rvík Þorgerður Gunnarsdóttir verkak. á Húsavík Þráinn Guðni Gunnarsson stöðvarstj. á Húsavík Gunnar Guðnason sjóm. í Flatey á Skjálfanda Kristín Gísladóttir húsfr. í Flatey á Skjálfanda ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 90 ára Gunnlaugur Reimarsson Jóhanna Arnórsdóttir 85 ára Guðrún Erna Sæmundsdóttir 80 ára Fríða Klara Guðmundsdóttir Ragnhildur Ísaksdóttir 75 ára Gréta Ágústsdóttir Helene Marie Baatz Jóna Kristín Sigurðardóttir Leví Konráðsson 70 ára Guðríður Stefánsdóttir Jóna Sigurbjörg Harðardóttir Karl Magnús Karlsson Kristín Björg Jónsdóttir Nils Hafsteinn Zimsen Sigþór Pálsson Þorvaldur Valgarðsson 60 ára Anna Jóhannsdóttir Guðný Hrefna Einarsdóttir Halla Hjartardóttir Sigrún Eygló Sigurðardóttir 50 ára Anna María Ásgrímsdóttir Brynja Björk Gunnarsdóttir Eiður Björn Ingólfsson Hjörtur Haraldsson Jerzy Andrzej Gorski Maria Emma Ceniza Canete Ragnar Hlöðversson Ragnheiður Sverrisdóttir Sigríður Halla Lýðsdóttir Sunna Sturludóttir 40 ára Ástmundur Sigmarsson Bennie May Wright Ernijus Baskys Friðgeir Örn Gunnarsson Gíslína Dögg Bjarkadóttir Héðinn Rafn Rafnsson Ingólfur Áki Þorleifsson Jelena Suspanova Lovísa Jónsdóttir Margeir Aðalsteinn Guðmundsson Sigtryggur Arnar Árnason Silja Huld Árnadóttir Sólrún Óladóttir Ægir Örn Leifsson 30 ára Anna Margrét Sigurðardóttir Baldur Þórólfsson Berglind Harpa Ástþórsdóttir Dóra María Lárusdóttir Eldur Ólafsson Haraldur Sigurðsson Jóhann Davíð Barðason Jónas Ingason Kristín Eva Kristjánsdóttir Sverrir Bergvin Kárason Tinna Davíðsdóttir Þóra Kristín Hauksdóttir Þórður Andri McKinstry Til hamingju með daginn 30 ára Rasmus ólst upp í Nisiborg á Norður-Jót- landi, lauk MSc-prófi í tölvunarfræði við háskól- ann í Álaborg og er nú sérfræðingur hjá Plain Vanilla. Kærasta: María Björk Guðbrandsdóttir, f. 1987, nemi í stjórnmálafræði og lögfræði við HÍ. Foreldrar: Ella Kristen- sen, fyrrv. matráður, og Toni Kristensen, rafvirki og lagningasérfræðingur. Rasmus Kristensen 30 ára Máni býr á Akra- nesi, stundar nám í raf- virkjun og starfar hjá VHE. Maki: Unnur Snorradóttir, f. 1985, nemi í hjúkr- unarfræði við HÍ. Synir: Björgvin Svan, f. 2008; Ragnar Már, f. 2010, og Patrekur Smári, f. 2013. Foreldrar: Ragnheiður Sigurðardóttir, f. 1961, starfar á Höfða, og Björg- vin Þorvaldsson, f. 1959, deildarstjóri hjá OR. Máni Björgvinsson 30 ára Margrét býr á Sauðárkróki, lauk BA- prófi í félagsráðgjöf og stundar nám í náms- og starfsráðgjöf. Maki: Helgi Freyr Mar- geirsson, f. 1982, við- skiptastjóri fyrirtækja við Landsbankann. Börn: Hallur Atli, f. 2009, og María Hrönn, f. 2012. Foreldrar: Sigíður Svav- arsdóttir, f. 1958, og Hall- ur Sigurðsson, f. 1953, d. 2001. Margrét Helga Hallsdóttir  Björg Guðmundsdóttir hefur varið doktorsritgerð sína í líffræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Ís- lands. Heiti ritgerðarinnar er: Hlutverk sinkfingurpróteinsins Pogz við blóð- myndun í lifur músa á fósturstigi og skilgreining á markgenum þess (The Role of the Zinc Finger Protein Pogz in Mouse Fetal Hematopoiesis and Identification of Pogz Downstream Target Genes). Borin var saman genatjáning í blóð- myndandi forverafrumum og dóttur- frumum þeirra í leit að áður óþekktum umritunarþáttum með hlutverk í blóð- myndun. Niðurstöðurnar sýndu að sinkfingurpróteinið POGZ (Pogo transposable element with zinc finger domain) er hátt tjáð í blóðmyndandi stofn- og forverafrumum manna og músa. Það gefur til kynna að POGZ hafi hlutverki að gegna í þessum frumum. Pogz genið var slegið út í músamódeli og kom í ljós að próteinið er nauðsynlegt fyrir eðlilegan fóstur- þroska. Skortur á Pogz veldur fækkun á blóðmyndandi forverafrumum og röskun á sérhæfingu rauðfrumna og T- frumna. Einnig var tjáning á fóstur- hemóglóbíni hækkuð í Pogz-/- fósturlifrum, að hluta til vegna áhrifa Pogz á tján- ingu Bcl11a. Notuð var bacterial one- hybrid aðferð til að sýna fram á, að sinkfingursvæði Pogz binst sértækt ákveðinni DNA röð. Þessi uppgötvun gerði það kleift að skilgreina gen sem Pogz gæti haft beina stjórn á. Samanburður á gena- tjáningu í Pogz+/+ og Pogz-/- fóstur- lifrarfrumum sýndi að u.þ.b. 82% af þeim genum, sem sýndu breytingar í tjáningu, voru hækkuð í Pogz-/- fóst- urlifrarfrumum. Það gefur til kynna, að Pogz sé fyrst og fremst umrit- unarþáttur sem bælir genatjáningu. Stjórnun Pogz á tjáningu fóstur- hemóglóbín gena gerir Pogz hugs- anlega að markgeni í meðferð á sigð- frumusjúkdómi (Sickle cell disease) og dvergkornablóðleysi (Thalas- semia). Björg Guðmundsdóttir Björg Guðmundsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1966. Hún lauk BS gráðu í líf- fræði frá Háskóla Íslands 1993 og MBA gráðu frá Heriot-Watt University í Ed- inborg í Skotlandi 2004. Hún vann að doktorsverkefninu hjá dr. Jonathan R. Kell- er hjá National Institute of Health (NIH) í Bandaríkjunum í samstarfi við Guðmund H. Guðmundsson prófessor og Háskóla Íslands. Björg starfar nú hjá dr. John F. Tisdale hjá NIH. Rannsóknir hennar hafa gengið út að skilgreina hlutverk zinkfingurpróteinsins Pogz í blóðmyndun. Björg er gift dr. Kristbirni Orra Guð- mundssyni og eiga þau þrjár dætur, Eddu Lind, Karen Ösp og Regínu Eik. Doktor Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 VERSLAÐU Á WWW.GÁP.IS SKOÐAÐUÚRVALIÐOGVERÐINÁGAP.ISEÐAKÍKTU ÍHEIMSÓKN ÍFAXAFEN7! 40%AFSLÁTTUR! ÆFINGAFATNAÐUR & SKÓR FRÁREEBOK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.