Morgunblaðið - 24.07.2015, Side 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
Rauðage
rði 25 · 108 Rey
kjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Verslunarkælar í miklu úrvali
• Hillukælar
• Tunnukælar
• Kæli- & frystikistur
• Afgreiðslukælar
• Kæli- & frystiskápar
• Hitaskápar ofl.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hugmyndir þínar eru jafn frjóar og
skemmtilegar og góður skemmtiþáttur. Við-
brögðin sem þú færð eru tilfinningaríkari en
endranær.
20. apríl - 20. maí
Naut Breyttu um mynstur í samskiptum við
erfiðan ástvin. Reyndu að líta upp úr heimi
smáatriðanna og fá yfirsýn yfir verkið í heild,
þannig nærðu árangri.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert eins og persóna í teikni-
myndasögu. Spenna hefur verið að byggjast
upp innra með þér og hún þarf að fá útrás
einhvers staðar. Vertu meðvitaður/meðvituð
um það og haltu rónni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að taka daginn í dag til að
klára þau verkefni sem liggja fyrir óleyst á
borði þínu. Gættu þess bara að ganga ekki
fram af sjálfum/sjálfri þér og gera ekki of
miklar kröfur til annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst eins og þú sért alltaf að gera
það sama aftur og aftur í frítíma þínum. Biðin
er vel þess virði, mundu það.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Enginn er fær um að lesa hug þinn svo
þú verður að tjá þig um það sem er að vefjast
fyrir þér. Reyndu að finna tíma til að vera
ein/n með sjálfum/sjálfri þér í dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert umvafin/n notalegu fólki núna.
Varastu að gera vandann að þínum, þú getur
ekki tekið allar heimsins áhyggjur á þínar eig-
in herðar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er vinsæl hugmynd að ástin
lifi sjálfstæðu lífi og lúti ekki vilja manns.
Vertu viss um að þú vitir í hvað tekjur þínar
fara.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú elskar að vera í sviðsljósinu en
græðir mest á því þessa dagana að láta lítið á
þér bera. Sýndu þolinmæði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Allt hefur sinn tíma. Þig langar til
að flýja á náðir dagdrauma. Mundu að allt er
gott í hófi, stundum þarf maður bara að
standa upp og takast á við hlutina.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú lendir í einhverjum deilum
heima fyrir og það er mikilvægt til sátta að
þú dragir ekkert undan. Taktu engu sem sjálf-
sögðum hlut og gaumgæfðu málin frá öllum
hliðum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að slaka á í frítíma þínum og
varastu umfram allt að taka vinnuna með þér
heim.
Út er komin ljóðabók eftir dr.Sturlu Friðriksson, „Ljóð á
langri ævi, leynifundir og afmæl-
isbragir“. Eins og heitið ber með
sér eru þetta tækifærisljóð og vís-
ur. Bókin er skemmtileg og vel
kveðin eins og við er að búast –
efnistökin frumleg og óvænt eins
og skáldið sjálft í sínum háttum.
Áður hafa komið út átta ljóðabæk-
ur eftir hann.
Fyrsti kaflinn kallast afmæl-
isbragir og lýkur með „SURTSEY
50 YEARS“ sem ávallt hefur verið
ofarlega í huga líffræðingsins:
The erupted island is cold
all set with grasses and mold,
with insects and worms
and other lifeforms.
We favor it 50 years old.
Félagar í Lionsklúbbnum Baldri
tóku upp á því að fara eitt sinn í
hverjum vetrarmánuði á „leyni-
fund“ sem felst í því að heimsækja
söfn og ýmsa sýningarsali eða
skoða heimili skálda. Sú ferð hófst
með því að sigla á skipinu Faxa út á
Faxaflóa og veiða þorsk og ýsu:
Til veiða við fórum á Faxa.
Það fært er í vísu.
Þarna við þreyttum ei laxa
aðeins þorska og ýsu.
Hér kemur ein af fjórum limrum
um Nesstofusafnið:
Og þar má sjá brjósklos í beinum
og banvæna ígerð í meinum.
Og í öskjum er geymd
næstum öll manna eymd.
Og nóg er af nýrnasteinum.
Vitaskuld voru Sturluhallir heim-
sóttar:
Þessi hús voru hönnuð með stöllum,
háreistum kubbum og pöllum.
Og bræður þar bjuggu
við búskap með huggu
í stórbrotnum Sturluhöllum.
Á leynifundi að Laxá:
Á sólbjörtum sumardegi
menn sátu hjá árfarvegi
og hlutu það hnoss
að sjá freyðandi foss
falla í einum teygi.
Einn kaflinn kallast „Vísna-
skotið“. Þar er „Á ferð um Ódáða-
hraun“:
Ofan úr Gjástykki gráu
glóandi mökkurinn steig,
en skrímslið sem andaði undir
annaðhvort reis eða hneig.
Úti í Ódáðahrauni
álfadrottningin beið
eftir að villtist ég aumur
og öfuga þræddi leið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ljóð á langri ævi
Í klípu
„SVO ÉG SÉ SKÝR, ÞÁ ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ
EINHVERJUM TIL AÐ SJÁ UM HLUTI SEM AÐ
ER ÆTLAÐ AÐ GERAST EINHVERNTÍMANN“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA ER Í ANNAÐ SKIPTIÐ SEM ÞÚ
SOFNAR Í BAÐKARINU MEÐ MUNNINN
OPINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera til staðar til
að þurrka í burtu tárin.
VÁÁ.... ÞAÐ ER ALGJÖR
GÚRKUTÍÐ.
KATTA
FRÉTT
IR
KATTA
FRÉTT
IR
KATTA
FRÉTT
IR
SJÁLFSAGT, ÉG SKAL
FARA MEÐ KÖKUNA
ÞÍNA TIL NÝJU
NÁGRANNANNA.
TRAUST-
ÞRÖSKULDURINN
ER ÓVENJU HÁR
HJÁ HELGU Í
DAG!
Velkomin til Akraness stendur ástóru skilti við Faxabraut á mót-
um Akursbrautar upp af höfninni á
Akranesi. Orðsendingin fór ekki
framhjá neinum manni þegar Akra-
borgin sigldi á milli Akraness og
Reykjavíkur og Víkverji á ekkert
nema góða minningar frá Akranesi,
en heimsóknum þangað hefur fækkað
til muna eftir að Hvalfjarðargöngin
voru tekin í notkun.
x x x
Víkverji vonar svo sannarlega aðaftur verði boðið upp á skipaferð-
ir á milli Reykjavíkur og Akraness og
rykið verði dustað af tillögum þess
efnis að þjóðvegur 1 fari í gegnum
Akranes og þaðan yfir Leirvoginn til
Borgarness, eins og rætt var um á sín-
um tíma.
x x x
Oft hefur verið sagt að einkennandifyrir Akranes séu k-in þrjú, fal-
legar konur, góðar kartöflur og frá-
bærir knattspyrnumenn. Skaginn
hefur ekki verið með í Evrópukeppni
undanfarin ár og þátttöku íslenskra
liða á þeim vettvangi á þessu ári lauk í
gærkvöldi.
x x x
Þegar Skagamenn voru nánastáskrifendur að Evrópukeppni
fóru þeir í hvern leik með því hug-
arfari að sigra og þegar það gekk ekki
eftir bitu þeir á jaxlinn og einbeittu
sér að næsta verkefni.
x x x
Ríkjandi Íslandsmeistarar ung-mennafélagsins Stjörnunnar,
sem líkt hefur verið við Englands-
meistara Chelsea og þjálfarinn nefnd-
ur Mourinho Íslands eftir einum besta
þjálfara heims, féllu á prófinu að
þessu sinni. Í fyrradag var haft eftir
þjálfaranum að það yrði vatnslaust í
Garðabæ og því yrðu Skotlandsmeist-
arar Celtic pirraðir á þurru grasinu.
x x x
Celtic slökkti á Stjörnunni og að leikloknum kvörtuðu Stjörnumenn
yfir hroka gestanna og neikvæðum
skrifum. Í stað þess að væla eins og
smábörn væri þeim nær að líta í eigin
barm. Hafi þeir ekki vökvað völlinn
fyrir leik er það grafalavarlegt mál.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Treystu Drottni af öllu hjarta en
reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
Orðskviðirnir 3:5