Morgunblaðið - 24.07.2015, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015
Reykholtshátíð hefst í kvöld með
tónleikum Karlakórsins Heimis úr
Skagafirði. Heimir hefur lengi ver-
ið í fararbroddi íslenskra karlakóra
og því sérstakt tilhlökkunarefni að
bjóða hann velkominn á Reyk-
holtshátíð. Á þessum tónleikum
mun kórinn flytja úrval íslenskra
og erlendra laga sem hafa fylgt
kórnum í gegnum tíðina. Stjórn-
andi kórsins er Stefán R. Gíslason
en sérstakur gestur á tónleikunum
verður Þóra Einarsdóttir sópran.
Þóra Einarsdóttir sópran og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir pí-
anóleikari halda síðdegistónleika á
laugardeginum undir yfirskriftinni
„Báran“. Á þessum tónleikum verð-
ur farið aftur til upphafs tónleika-
hefðar á Íslandi um aldamótin 1900.
Lágfiðlan verður í aðalhlutverki
á laugardagskvöldið í Reykholti en
sérstakur gestur hátíðarinnar í ár
er finnski lágfiðluleikarinn Atte
Kilpeläinen. Atte er einn af fremstu
lágfiðluleikurum Finnlands og hef-
ur víða komið fram. Fyrir hlé leikur
Atte verk m.a. eftir Robert Schu-
mann og Arvo Pärt en eftir hlé
hljómar hið sjaldheyrða en stór-
kostlega Divertimento í es-dúr fyr-
ir strengjatríó eftir Mozart.
Það kennir ýmissa grasa á fjöl-
breyttum lokatónleikum Reyk-
holtshátíðar. Fyrst hljóma útsetn-
ingar Herberts Ágústssonar fyrir
fiðlu og selló á íslenskum þjóð-
lögum og þar á eftir fagnar Reyk-
holtshátíð 150 ára afmæli Sibelius
með flutningi á strengjatríói hans í
g-moll. Reykholtshátíð heldur
áfram samstarfi sínu við Þórð
Magnússon tónskáld sem útsetur 3
íslensk dægurlög fyrir píanótríó og
söngrödd. Tónleikunum lýkur svo á
einni af perlum kammertón-
bókmenntanna, píanókvartettinum
í es-dúr, op. 47, eftir Schumann.
Fagrir tónar á
Reykholtshátíðinni
Lágfiðlan verður m.a. í aðalhlutverki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hátíð Reykholtshátíðin er ein
helsta tónlistarhátíð landsins.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þema plötunnar er að standa við
loforðin sín, þurfa ekki að segja
meira sorrí. Ég ákvað því að slá til
og gefa út vínylinn,“ segir Svavar
Pétur Eysteinsson, betur þekktur
sem Prins Póló, en hann hefur nú
gefið út plötu sína Sorrí á vínyl.
Platan kom út hér á landi á geisla-
diski og á netinu um mitt ár 2014
og hlaut góðar móttökur. Platan
lenti í toppsæti á
mörgum árs-
listum og var val-
in poppplata árs-
ins á Íslensku
tónlistarverðlaun-
unum þar sem
Svavar Pétur var
jafnframt valinn lagahöfundur árs-
ins.
„Platan seldist þokkalega miðað
við aðstæður á markaði. Ég fékk
margar fyrirspurnir um vínylinn,
hvort hann myndi ekki láta sjá sig.
Ég lofaði því þá, að ef fólk myndi
kaupa upp upplagið af geisla-
disknum, þá myndi ég gefa út vínyl-
inn,“ segir Svavar Pétur sem stóð
svo sannarlega við loforðið.
Skrattinn úr sauðarleggnum
Vínylútgáfa Sorrí kemur nú einn-
ig út í Evrópu og er það Morr Mus-
ic í Berlín sem sér um dreifinguna.
„Vínyllinn kom út á mánudaginn
og kom út í Evrópu við sama tæki-
færi. Það er Morr Music, það gríð-
arfína þýska indí-„leibeil“, sem sér
um að dreifa honum í helstu indí-
búðir í Evrópu. Ég kannast ágæt-
lega við Thomas Morr, sem er for-
sprakki þeirrar útgáfu, og hann er
hinn liðlegasti gaur. Þetta er engin
megaútgáfa, hann tekur í raun bara
slatta af eintökum og kemur í dreif-
ingu. Það er samt bara í rauninni
það sem þarf. Það er ekkert hægt
að vera að hugsa þetta neitt stærra.
Það er nóg til þess að stöku áhuga-
menn um íslenska popp- og ný-
bylgju geti nálgast eintak,“ segir
Svavar Pétur. Þá má þess einnig
geta að lagið „París norðursins“, tit-
illag samnefndrar kvikmyndar sem
kom út í fyrra, er aukalag á vín-
ylnum.
„Það lag hreyfði við mörgum og
ég ákvað að leyfa því að flakka með
þarna í lokin, hengja það við vínyl-
inn. Það er reyndar ákveðið lokalag
á plötunni og því kemur „París
norðursins“ svolítið eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum þarna í lokin.
Það verður bara að hafa það,“ segir
hann og bætir við að Sorrí hafi ver-
ið gefin út sem ákveðin heild á sín-
um tíma. „París norðursins“ var
valið lag ársins á tónlistar-
verðlaunum 365.
Von á nýju efni frá Prins Póló
„Við erum að fara að spila á
Bræðslunni núna um helgina og svo
erum við aðeins farin að skoða túr í
Þýskalandi. Þetta verður síðan bara
frekar tilviljunarkennt. Það er eng-
in vél sem fer í gang við þessa út-
gáfu, sú vél hefur kannski aldrei
verið til staðar. Við munum meira
bara taka því sem að höndum ber,
vinna þetta þannig,“ segir Svavar
Pétur en sveitin sem kemur fram
með honum hefur tekið þó nokkrum
stakkaskiptum í gegnum tíðina.
„Núna er það Berglind Häsler á
hljómborð, Benedikt Hermann Her-
mannsson á bassa og Kristján
Freyr Halldórsson á trommur.
Þetta er kjarninn. Þetta er þó alltaf
breytingum háð, ég hef alveg verið
að fara á svið með þeim sem eru í
húsinu hverju sinni. Þetta er ekkert
í of föstum skorðum þó svo þetta sé
svona kjarnabandið,“ segir hann.
Svavar Pétur bætir einnig við að
verið sé að vinna að nokkrum lögum
um þessar mundir.
„Ég og Axel Árnason, pródúsent-
inn okkar, byrjuðum að taka upp
nokkur lög í vor. Það liggja nú fyrir
nokkur lög til þess að vinna áfram
en ég get ekki lofað því að það sé
nein plata að koma í bráð. Það get-
ur þó verið að fljótlega verði ein-
hver lög gefin út, svona eitt og eitt í
einu. Það er líka ágætt að vinna það
þannig. Ég vann Sorrí-plötuna lag
fyrir lag og hugsaði aldrei um heild-
armyndina fyrr en í lokin. Ég held
að ég geri það bara áfram – taki
eitt lag í einu eins og ég tek einn
dag í einu,“ segir Svavar Pétur að
lokum.
Eitt lag í einu, einn dagur í einu
Prins Póló gefur út Sorrí á vínyl með París norðursins, titillag samnefndrar kvikmyndar, sem viðauka
Prinsinn kemur til með að spila á Bræðslunni auk þess sem nokkur lög bíða þess að vera gefin út
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Vínyll Vínylútgáfa Sorrí fer einnig í dreifingu um indíbúðir Evrópu í gegnum þýska útgáfufyrirtækið Morr Music.
Prins Póló mun jafnframt spila á Bræðslunni á Borgarfirði eystra um helgina auk þess sem nýtt efni er í vinnslu.
Laugavegi 34, 101 Reykjavík
Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Buxur 14.900,- stk.
Buxur frá