Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Side 4
VESTFIRSKA
4
=N
FRÉTTABLAÐIÐ |
Vestfirska fréttablaðið er vikublað, óháð stjórnmálaflokkum.
Blaðið kemur út síðdegis á miðvikudögum og fæst bæði í lausasölu og
áskrift. Verð kr. 170 m/vsk.
Ritstjórn og auglýsingar: Aðalstræti 35, ísafirði, sími 456 4011, fax
456 5225. Ef enginn er við á skrifstofunni er reynandi að hringja í síma
456 3223 (ísprent).
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon, Túngötu 17,
ísafirði, hs. 456 4446.
Útgefandi: Vestfirska útgáfufélagið hf., Fjarðarstræti 16, ísafirði.
Prentvinnsla: ísprent hf., Fjarðarstræti 16, ísafirði, sími 456 3223.
LEIÐARI
Bns og okkur
einum er lagið
Mikið fjári eru okkur íslendingum mislagðar
hendur þegar lokka á erlenda ferðamenn til
landsins og efla með því þann vaxtarbrodd
sem vænlegastur þykir um þessar mundir.
Ekki skortir neitt á góða sölumennsku, frá-
bærar ferðaskrifstofur, flugfélög, skipafélög,
rútubíla og einstæða náttúru. Enginn efast um
ágæti landsins, Bláa lónsins, tign vestfirsku
fjallanna og gestrisni landans. Fáirefast meira
að segja lengur um réttmæti þess að flytja inn
ferðafólk og stuðla að aukinni ferðamennsku,
helst allt árið um kring.
Það er aðeins einn hængur á. Sjálf kunnum
við ekki að tala saman. Við getum ekki rætt
einföldustu hluti án þess að stofna öllu upp-
byggingarstarfi í landinu í voða. Tjáskipti
virðast vera með þvílíkum tormerkjum að ekki
má einu sinni minnast á umræður um kaup og
kjör án þess að allt þurfi vitlaust að verða.
Áhrifin láta ekki á sér standa. Erlendir
ferðamenn hætta við st'nar ferðir. Erlend fyrir-
tæki forðast að hugsa um fjárfestingar hér á
landi vegna óstöðugleika á vinnumarkaði.
Meira að segja umræða íslenskra pólitíkusa
um sölu á djúpferjunni Fagranesi í vetur hefur
haft þau áhrif að Þjóðverjar telja víst að búið
sé að leggja niður hinar vinsælu Horn-
strandaferðir.
Nú á svo að bæta enn einni rós í hnappa-
gatið. Samningum um póstflug innan Vest-
fjarða hefur verið sagt upp. Fóstflug sem
auglýst hefur verið upp í tengslum við út-
sýnisflug með ferðafólk.
Bara fréttin um slíka uppsögn getur haft
meiri áhrif en marga grunar. Ef við setjum
okkur augnablik í spor ferðamannsins sem
fréttir af þessari uppsögn, þá er meira en
líklegt að hann segi sem svo: Ekkert póstflug,
er þá útsýnisfluginu hætt líka?
Þar með er hann búinn að afgreiða málið,
flettir upp á næsta ferðamöguleika og varla til
íslands, ef það er eins víst að hann verði
strandaglópur vegna innbyrðis deilna hjá ís-
lendingum.
Ef þetta heitir ekki að skjóta undan sér
lappirnar - ja, hvað er það þá?
Hörður Kristjánsson.
ISAFJARÐARLEID
VÖRUFLUTNINGAR
Aöalstræti 7 • ísafirði
S 94-4107
S 985-31830
S 985-25342
Miðvikudagur 28.júní 1995
----- --------------------- \ FRÉTTAB LAÐIÐ
Vel heppnuö Jónsmessuferð
með Fagganum
- rúmlega 150 farþegan sigldu með skipinu
Síðastliðið laugardags-
kvöld fór Djúpbáturinn
Fagranes í Jónsmessuferð,
svokallaða „Draumaferð á
Jónsmessu“. Siglt varfrá
Isafirði norður í
Jökulfjörður og síðan út
með Grœnuhlíð ogfyrirRit
uns vel sást inn í Aðalvíkina.
Snorri Grímsson var leið-
sögumaður íferðinni, lýsti
því sem fyrir augu bar og
sagði sögur úrýmsum
áttum. Var gerður góður
rómur að leiðsögn hans.
A bakaleiðinni var hins
vegar sungið og dansað við
harmonikkuleik þeirra
Asgeirs Sigurðssonar og
Haraldar Magnússonar. Var
mikið fjör á þilfarinu alla
heimleiðina og oft þröngt
setinn bekkurinn. Var
sungið alveg uns lagst var
bryggju á Isafirði.
Veður var ágœtt, nokkuð
svalt í veðri, en Jónsmessu-
sólin lét ekki sjá sig. Það
kom þó ekki að sök, fólk
klœddi af sér kultlann eða
söng sér til hita og allir voru
með sól í sinni.
Greinilegt er aðfólk kann
að meta ferðir af þessu tagi,
því rúmlega 150 manns voru
íferðinni og eins og áður
sagði mikið fjör. Þá mœtti
bjóða upp á svona ferðir
oftar yfir sumarið.
Að lokum má geta þess,
að laugardaginn ó.júlífer
Fagranesið ífjölskylduferð
til Hesteyrar og er vissulega
ástœða til að hvetjafólk til
að mœta. I fyrra urðu 60
manns af Hesteyrarferð
vegna þess að það lét ekki
skrá sig í hana tímanlega
heldur mœtti á bryggjuna
við brottfór. Þá var skipið
orðiðfullt en hafði leyfi til
að flytja 250 manns iþá
ferð. Fararstjóri og
leiðsögumaður verður
Gísli Hjartarson.
- Hjördís.
Rúmlega 150 manns fóru í Jónsmessuferðina með Fagranesinu
JJfllP
Dansað og sungið á heimleiðinni
Harmonikuleikurinn. Asgeir Sigurðsson og Haraldur Magnússon sáu um hljóöfæraleikinn
Fimmtugsafmæli
Fimmtug verður mánudaginn 3. júlí
Kristín Gísladóttir, Bakkavegi 15,
Flnífsdal. Hún og eiginmaður hennar,
Kristján S. Kristjánsson, taka á móti
gestum á heimili sínu
efiir kl. 19.00 á afmalisdaginn.
Hvítasunnukirkjan
Salem
í tilefni af 50 ára
afmæli kirkjunnar
verðum við með tjald-
samkomur á Eyrartúni
(við gamla sjúkra-
húsið) frá fimmtudegi
til sunnudags
kl. 20.30 öll kvöld.