Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Síða 8
VESTFIRSKA
8
Árleg sumardvalarferö eldrí
borgara á Vestfjörðum:
Dvalið á Eiðum
að þessu sinni
Hin árlega sumardvalarferð eldri borgara á Vest-
fjörðum á vegum Rauða kross íslands verður farin í
ágúst, nánar tiltekið 17.-23. ágúst, og verður dvalið
á Eiðum á Fljótsdalshéraði.
Undanfarin 12 ár hefur verið farin samskonar ferð
og dvalið á mismunandi stöðum á landinu. Allmörg
ár eru síðan farið var austur á Hérað og má segja að
kominn sé tími til að Vestfirðingar heimsæki Héraðs-
búa á ný.
Sigrún G. Gísladóttir á Flateyri hefur verið skipu-
leggjandi og fararstjóri í flestum ferðunum. Sigrún
dvelst nú erlendis fram á haust. Hefur Helga Jónas-
dóttir á Tálknafirði tekið við af henni og mun hún á-
samt Sigrúnu Magnúsdóttur á Flateyri sjá um ferðina
í ár.
Sigrún og Helga taka niður pantanir og veita upp-
lýsingar um ferðina nk. sunnudag, 1. júlí, milli kl. 18
og 20, og næstu daga á eftir, á meðan enn eru laus
sæti. Hringið í Sigrúnu í síma 456 7759 eða Helgu í
síma 456 2606 til að bóka í ferðina.
Golfkennari
kennirungling-
um á ísafirði
- frí nýliðakennsla öll
mánudagskvöld
Hörður Arnarsson golfkennari verður á ísafirði dag-
ana 4. og 5. júlí. Hann mun eingöngu verða með
kennslu fyrir unglinga og verður kennt báða dagana
á golfvellinum í Tungudal. Þessari kennslu verður svo
fylgt eftir með unglinganámskeiðum sem meðlimir
golfklúbbsins sjá um.
Nánari upplýsingar og tímapantarir eru í golfskál-
anum, bæði á staðnum og í síma 456 5081.
Einnig vill Golfklúbbur (safjarðar minna á fría ný-
liðakennslu sem fer fram á golfvellinum öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Árneshreppur:
Túnin handónýt
og djöfuls ástand
„Ég var að byrja að bera á túnin í dag“, sagði
Guðmundur á Munaðarnesi í samtali á mánudaginn.
„Það er nokkuð seint maður. Djöfuls ástand. Snjórinn
fór svo seint að við erum að byrja að bera á karlarnir
hérna í hreppnum. Túnin eru lengi að þornasvo hægt
sé að fara um þau með vélar. Að vísu eru túnin
handónýt. Það er óhemju kal og á sumum bæjum eru
túnin handónýt, held ég, má ég segja. Annars er þetta
mjög misjafnt eftir því hvar það er. Það er ekkí mjög
mikið kal hjá mér, en töluvert. Það er mikið í Norður-
firði, á Melum og í Víkinni. Þetta er djöfuls ástand.“
-GHj.
Miðvikudagur 28.júní 1995
| FRÉTTABLAÐIÐ
Samhugur í verki:
Úthlutun söfn-
unarfjár lokið
- Greinargerð sjóðstjórnar
Hér fer á eftir greinargerð
sjóðstjórnar söfnunarinnar
Samhugur í verki vegna snjó-
flóðanna í Súðavík í vetur:
Sjóðsstjórn söfnunarinnar
Samhugur í verki hefur nú lok-
ið úthlutun söfnunarfjár vegna
snjóflóðanna í Súðavík í janúar
sl. Söfnunarfé nam um 290
milljónum króna, en þar af eru
rúmar 25 milljónir króna frá
Færeyingum, sem verður að
þeirra ósk varið til þess að reisa
nýjan ieikskóla í Súðavík.
Sjóðstjórnin telur, að öllum
þeim, sem hlut gátu átt að máli,
hafi verið gefinn kostur á að
koma á framfæri sjónarmiðum
sínum. Hún hefur afgreitt allar
umsóknir um framlög úr
sjóðnum og aðeins í örfáum
tilvikum talið sig þurfa að synja
beiðni. Sjóðstjómin hefur út-
hlutað um það bil 189 milljón-
um króna til einstaklinga og
fjölskyldna og tæpum þremur
milljónum króna til samfélags-
legra verkefna, en ekki hefur
verið greitt vegna tjóns at-
vinnurekstrar í Súðavík eða
sveitarsjóðs. I framangreindri
úthlutun eru framlög til nokk-
urra aðila utan Súðavíkur, sem
urðu fyrir tjóni af völdum nátt-
úruhamfara vegna veðurlags
um það leyti, sem snjóflóðin
féllu í Súðavík. Nánari reikn-
ingsskil sjóðstjórnar, sem
Ólafur Nilsson löggiltur endur-
skoðandi hefur unnið, munu
verða birt í Lögbirtingablaði.
Sjóðstjórnin hefur að undan-
förnu haft til sérstakrar athug-
unar ráðstöfun eftirstöðva
söfnunarfjár, þegar úthlutun
neyðaraðstoðar til einstaklinga
og fjölskyldna er lokið. Hún
hefur fengið formlegt erindi frá
hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
um að úthluta „húseigendum í
Súðavík ákveðinni upphæð til
greiðslu á gatnagerðarkostnaði
í „nýrri Súðavík“. Upphæð út-
hlutunar fyrirhvern húseiganda
taki mið af stærð og tegund
húseignar. Úthlutun verði
lögð inn á reikning Súðavíkur-
hrepps við Sparisjóð Súðavík-
ur, sveitarstjórn til ráðstöfunar
til gatnagerðar...“ Þessi tillaga
var kynnt á borgarafundi í
Súðavík 23. maí sl. sem al-
mennur vilji Súðvíkinga og
sætti hún ekki andmælum. Þá
hafa og verið til umfjöllunar í
sjóðstjórninni hugmyndir um
stofnun sérstaks sjóðs, er veitt
gæti styrki og bætur vegna
tjóns og röskunar af völdum
náttúruhamfara á ókominni tíð.
Af hálfu sjóðstjórnar hefur
verið rætt um ráðstöfun eftir-
stöðvanna við hreppsnefnd
Súðavíkurhrepps, stjórnir
Rauða kross Islands og Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar og for-
svarsmenn þeirra aðila, sem
stóðu fyrir hinni upphaflegu
söfnun. Þá hefur forsætisráð-
herra verið kynnt staða máls-
ins.
Að vandlega athuguðu máli
hefur sjóðstjómin ákveðið að
verja eftirstöðvum söfnunar-
fjárins, um 73 milljónum
króna, til þess að styrkja þá
einstaklinga, sem bjuggu í
Súðavík fyrir snjóflóðin og
þurfa að koma sér upp þaki yfir
höfuðið í hinni fyrirhuguðu
nýju íbúðabyggð í kauptúninu.
Sjóðstjórnin telur rétt, að
byggingarstyrkir til Súðvíkinga
verði inntir af hendi í upphafi
byggingarframkvæmda, og
verði greiðslur jafnar og óháðar
stærð fyrirhugaðra fasteigna.
Gert er ráð fyrir því, að fjárhæð
byggingarstyrksins verði á-
kveðin, þegar fyrir liggur,
hversu margir einstaklingar
hyggjast hefja byggingarfram-
kvæmdir. Sjóðstjórnin telur
þessa ráðstöfun til þess fallna
að styrkja endurreisn í Súða-
vík, sem ákvörðun hefur þegar
verið tekin um, enda er hún í
samræmi við tilgang hinnar al-
mennu tjársöfnunar vegna
snjóflóðanna í janúar, sem
skóku grundvöll samfélagsins
í kauptúninu með svo afdrifa-
ríkum hætti. Er þá til þess að
líta, að einstaklingar og fjöl-
skyldur hafa nú þegar að mati
sjóðstjórnar fengið þau fram-
lög af söfnunarfé, sem frekast
er unnt að fella undir hugtakið
neyðaraðstoð. Með þessari
ráðstöfun er komið til móts við
óskir hreppsnefndar og vilja
Súðvíkinga sjálfra og enn
frekar stuðlað að uppbyggingu
samfélagsins í Súðavík.
Sjóðstjómin vill á þessum
tímamótum þakka þá miklu
velvild og skilning, sem hún
hefur notið í störfum sínum.
Hún vill jafnframt koma því á
framfæri, að hún hefur skynjað
glögglega það djúpstæða
þakklæti, sem Súðvíkingar
bera í brjósti til allra gefenda
fyrir þann einstæða samhug,
sem þeim hefur verið sýndur í
verki.
ingibjörg Jónsdóttir myndlistarmaður frá Dynjanda í Arnarfirði:
Heldur sína fyrstu einka-
sýningu 81 árs að aldri
í gistihúsinu Ársölum í Vík
í Mýrdal stendur nú í sumar yfir
myndlistarsýning vestfirsku
listakonunnar Ingibjargar Jóns-
dóttur, sem heldur nú sína
fyrstu einkasýningu, liðlega
áttræð að aldri.
Ingibjörg fæddist á Dynj-
anda í Arnarfirði árið 1914.
Foreldrar hennar voru Jón
Jónsson og Guðmunda Guð-
mundsdóttir, sem bjuggu á
Dynjanda frá aldamótum og
fram til 1942, að þau brugðu
búi og fluttust til sonar síns,
Jóns heitins Jónssonar hrepp-
stjóra á Bíldudal, sem margir
Vestfirðingar kannast við.
Nú er Ingibjörg eftir ein á lífi
tíu systkina og heldur sína
fyrstu einkasýningu 81 árs
gömul. Hún hefur alla tíð iðkað
list í einhverri mynd. Eftir að
hún fluttist til Reykjavíkur
stundaði hún saumaskap, og
víst er að margar flíkurnar sem
hún saumaði voru listaverk. Á
síðari árum hefur myndlistin átt
í henni æ sterkari ítök og óhætt
er að segja að bæði efniviður og
myndefni séu fjölbreytt og
sköpunargleðin ráði þar ríkjum.
Á sýningunni getur að líta
bæði olíu- og vatnslitamyndir,
myndir unnar úr ull og silki,
einnig blómum, grjóti og
fjörugróðri. Glöggt má sjá hin
sterku ítök náttúrunnar í lista-
manninum, sem sækir gjarnan
bæði efnivið og innblástur til
íslenskrar náttúru. Það er
reyndar ekki að undra, þar sem
Ingibjörg sleit barnsskónum í
stórbrotinni fegurð Vestfjarða,
þar sem lífsbaráttan var háð í
nánu samspili við náttúruna.
Sýning Ingibjargar í Ársöl-
um í Vík verður opin til loka
ágústmánaðar. Um þrjátíu verk
eru á sýningunni.
Ingibjörg Jónsdóttir frá Dynjanda í Arnarfiröi ásamt nokkrum
verka sinna.
HJA OKM FÆRÐU NYJUSTU MYNDBONDIN
350
Videoúrval
Hafnarstræti 11 • ísafirði Sími 3339