Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Side 12
NýjiZ vegázhttnclbókirr
er komin —
Verð kr. 2.980.—
BOKHLAflAN
sími 456 3123
| FRÉTTABLAÐIÐ |
RITSTJÓRN OGAUGLÝSINGAR:
SÍMI 456 4011 • FAX 456 5225
Flugfélagiö Ernir 25 ára: |
Opið hús á
sunnudaginn
- kaffi og kökur
og flugvélarnar til sýnis
Flugfélagið Emir hf. á ísafírði er 25 ára um þessar mundir.
Af því tilefni verður opið hús hjá félaginu inni á Isafjarðar-
flugvelli á sunnudaginn (2. júlí) frá kl. 13 til 18. Gestum
verður boðið upp á kaffi og kökur og flugvélamar verða til
sýnis.
Sjóstanga-
veiðimót
á ísafirði
- haldið um næstu helgi
Sjóstangaveiðímót Sjóstangaveiðifélags ísfirðinga (SJÓIS)
verður haldið um næstu helgi eða dagana 30. júní og 1. júlí.
Mótið er hluti af íslandsmótinu í sjóstangaveiði með þátttak-
endum frá ísafirði, Bolungarvík, Akureyri, Snæfellsbæ, Siglu-
firði, Neskaupstað og Vestmannaeyjum. Mótið verður sett á
morgun, fimmtudaginn 29. júní kl. 21.00 í Frábæ, þar sem
keppendum verður raðað niður á báta.
Róið verður frá Bolungarvík á fimm til sex bátum, allt 10-30
rúmlesta traustum trébátum með þaulvönum skipstjórum sem
gjörþekkja veiðislóðina. Veitt verður í 7 til 8 klukkustundir hvorn
daginn og látið úr höfn kl. 7 á föstudags- og laugardagsmorg-
un.
Enn er möguleiki fyrir Vestfirðinga að láta skrá sig í síma 456
4044 (Sigrún), 456 3298 (Þórir), 456 4145 (Sigríður) og 456
7547 (Ragnheiður). Þátttökugjald er kr. 10.000 og er innifalið
m.a. akstur milli ísafjarðar og Bolungarvíkur, beita, nesti
veiðidagana svo og veislumáltíð og dansleikur á lokahófi
seinni daginn.
Sjóstangaveiði er einstök upplifun fyrir alla sem reyna, jafnt
landkrabba sem og þaulvana sjómenn, í skemmtilegum fé-
lagsskap og spennandi keppni.
(Frá stjórn SJÓÍS).
Hjarta- og
fjölskylduganga
nk. laugardag
Efnt verður til hjarta- og fjölskyldugöngu um land allt á
laugardaginn, 1. júlí. Gengnir verða 4-5 km eða skemmri
vegalengd, allt eftir getu hvers og eins. Ganga þessi er fyrir
alla, unga sem aldna.
Fólk á þéttbýlisstöðum Vestfjarða er beðið um að kynna sér
götuauglýsingar um brottfararstaði og tíma.
Á ísafirði verður lagt af stað frá Sjúkrahúsinu kl. 14.00 og í
Bolungarvík frá Sundlauginni kl. 14.00.
Allir með út að ganga sér til heilsubótar!
Strandin:
Vestfirska
hefur heyrt...
...að buddan hjá ísfirsk-
um húsmæðrum og hús-
feðrum komi til með að létt-
ast mun hraðar á næstunni
en verið hefur. Nú er nefni-
lega verið að skrúfa fyrir
grautinn og þykku matar-
miklu súpuna sem veitt hefur
verið í hvert hús á ísafirði
lengur en elstu menn muna.
í staðinn hella bæjaryfirvöld
hreinu blávatni í leiðslurnar,
algjörlega næringarlausum
fjanda...
...að ættarmót séu nú
haldin á hverri þúfu á íslandi
helgi eftir helgi. Varla eru hjón
fyrr búin að koma barni á legg
en búið er að hóa saman á
ættarmót. Sum eru þó ættar-
mótin sem standa undir nafni
og þannig munu Gromsarar,
afkomendur Hálfdáns Örn-
ólfssonar hreppstjóra í Vík-
inni, fjölmenna svo hundr-
uðum skiptir í Sælingsdal í
Dalasýslu um helgina. Heyrst
hefur að þar verði skálað í
kaffi...
...að hörgull sé nú á göml-
um bílum á Isafirði. Flest er nú
uppselt sem einhverntíma
hefur talist til bíla og orðið vel
ryðgað og illa til haft. Skýringin
er sú að rússneskur togari
kom í höfn á ísafirði í síðustu
viku...
...að tíu ára gamlar Lödur
Sport séu nú metnar á fimm
hundruð dollara og tvær
flöskur af vodka. Spurningin
mun bara snúast um það undir
hvaða lið eigi að setja söluna
á skattframtalinu...
Addi á Öldunni kominn í lestina, tilbúinn aö landa.
Utafkeyrsla í
Steingrímsfirði
Bifreið ók út af þjóðveginum
í Steingrfmsfirði á laugardags-
kvöldið, við Hvalvík rétt sunn-
an við Kirkjuból, milli Kirkju-
bóls og Heydalsár. Bfllinn valt
ekki, heldur stakkst inn í barð.
Gísli Jón Kristjánsson frá
Armúla, á Öldunni IS 47, hefur
verið að gera það gott á
dragnótinni síðan um mánaða-
mótin maí-júní sl. Blaðið hafði
samband við Gísla á mánudag-
inn þar sem hann var að láta
dragnótina fara um 10 sjóm. út
af Ryt. „Það er suðvestan gola
og sólskin", sagði Gísli.
„Vestanáttin sem hefur verið
undanfarið er að ganga niður.
Þetta hefur gengið ágætlega hj á
okkur og ég er mjög ánægður.
Við höfum verið að koma inn
og landa ágætis afla af kola
eftir tvo og þrjá daga. Við höf-
um verið að fá kolann á 10
mflunum út af Rytnum. Þetta er
allt koli. Við fengum talsvert af
steinbít út af Hnífsdalnum, út
af gömlu sorpbrennslunni,
fyrstu dagana. Það er búið
núna.
Við verðum á snurvoðinni í
sumar. Við erum þrír á, Arn-
aldur Sævarsson, Hjörtur
Strákarnir á Óldunni komu inn í gær (þriöjudag) meö 6 tonn
af kola. Hér eru þeir aö undirbúa löndun, f.v. Gísli Jón, Hjörtur
og Arnaldur.
Waltersson og ég. Ég er að
kasta út af Rytnum í glaðasól-
skini og strákamir eru syngj-
andi glaðir á dekkinu. Þeir
fengu ekkert helgarfn núna
greyin, enda eru þeir óvenju
sprækir í dag“, sagði Gísli frá
Armúla á Öldunni IS 47 í sam-
tali við blaðið.
-GHj.
Sjórinn oy fiskiríið:
Þeir gera það gott
á Öldunni ÍS 47
Hátt er þama út af veginum.
Nóg að gera hjá púkunum
Púkarnir í unglingavinn-
unni á Isafirði eru þessa dag-
ana í óða önn við að merkja
götur kaupstaðarins og vinna
ýmis önnur þörf störf fyrir
samfélagið. í gær, þegar blm.
átti leið um bæinn, voru fimm
þeirra að mála gangstéttarbrún
við Hafnarstræti í gulum lit
sem táknar að þarna sé bannað
að leggja bifreiðum. Ymislegt
annað hefur verið málað í
leiðinni, t.d. má sjá stóra
málningarklessu á öxl þess
sem næstur er á myndinni.
Einnigeru buxurnar í skraut-
legra lagi.
Fimm manns voru í bflnum og
þurfti að flytja tvær stúlkur
með sjúkraflugi til Reykjavík-
ur. Reyndust þær ekki vera
mikið slasaðar. Aðrir í bifreið-
inni sluppu með skrámur.
Enginn var með öryggisbelti
nema ökumaðurinn. Bifreiðin
er mikið skemmd eða ónýt.
-GHj.
Það er auma þynnkan
sem kemur úr krananum
núna. Engír ormar,
enginn mosi, bara vatn!
-GHj.