Vestfirska fréttablaðið - 06.12.1995, Page 12
'-ev
BOKÆ UNNEND UR
Opið föstudag til kl. 22.00 í bókadeiid
— Skoðið nýjii bækurriar
L f í rólegu umhverfi
' BOKHLABAN sími 456 4123
Ifréttablaðið I
RITSTJÓRN 0G AUGLÝSINGAR:
SÍMI 456 4011 • FAX 456 5225
Nemenda-
sýning í
Slunkaríki
Sýning á myndverkum barna og unglinga, sem undanfarið
hafa veríð á námskeiði á vegum Listaskóla Rögnvaldar Ólafs-
sonar á ísafirði, hefst í Slunkaríki á ísafirði nk. laugardag kl. 16.
Sýnendur eru um 25 talsins en kennarar þeirra eru þau Guð-
björg Ringsted og Pétur Guðmundsson. Sýningin stendur í
eina viku eða fram á föstudaginn 15. des.
Kind
skotin
niður úr
sjálfheldu
Fyrir nokkru þurfti Þorvaldur Þórðarson bóndi á Stað i Súg-
andafirði að láta skjóta veturgamla kind úr sjálfheldu ofan við
Ölduhrygg við Sauðanes.
Þorvaldur vissi ekki hve lengi ærin hafði verið þarna í sjálf-
heldunni en líklega einhverjar vikur. Áður hafði hann reynt að
ná henni en þá brá hún sér á sund og var hin þráasta. Næst
þegar hún sást var hún komin í sjálfheldu uppi í miðju kletta-
belti.
Kindin var skotin af 150 metra færi og féll fram af. Ekki er ótítt
að sauðfé sé skotið úr sjálfheldu á Sauðanesi, einkum Ön-
undarfjarðar megin. Þorvaldur bóndi hefur samt ekki þurft að
láta grípa til slíkra ráðstafana fyrr.
Vestflrska hefur heyrt...
...að aðdáendur Jóns Sigurðssonar sem helsta forgöngu-
manns í sjálfstæðisbaráttu íslendinga þyki loksins hilla undir það
að maður með þessu nafni verði kjörinn forseti lýðveldisins.
Bent hefur verið á Jón Sigurðsson núverandi bankastjóra Nor-
ræna fjárfestingarbankans sem álitlegan kost í þessu sambandi.
Jón mun hafa margt með sér í þeirri umræðu. Hann er fæddur
og uppalinn Vestfirðingur. Hann er talinn með tiltölulega hreinan
skjöld af fyrrverandi pólitíkusi að vera. Hann þykir myndarlegur
og ekki líklegur til að verða þjóð sinni til skammar. Og síðan er
rúsínan í pylsuendanum sú staðreynd að hann heitir Jón Sig-
urðsson.
...að fjöldi fólks sem hugðist aka landveg frá Reykjavík til
ísafjarðar á mánudaginn hugsi Vegagerð ríkisins þegjandi
þörfina. Ferðalangar komust reyndar alla leið en ekki fyrr en eftir
hádegi í gær þriðjudag. Vegir fóru í sundur á leiðinni fyrir
Reykjanes í ísafjarðardjúpi og tilkynnti Vegagerðin að mokað
yrði yfir Eyrarfjall síðdegis á mánudag. Sá mokstur mun þó ekki
hafa orðið að veruleika fyrr en um tólf klukkustundum síðar og
þá var vegurínn í Mjóafirði farinn í sundur sem tafði för fólksins
enn um sjö klukkustundir.
Þú færð í harða pakkann hjá okkur
Þessi s/ær # gegn
SEGA leikjatölva, jolaverö aðeins kr. 10.900 stgr.
(rétt verð kr. 15.900) 20% afsláttur af fyrsta leik
Mikið úrval af leikjum
Margmiðlunarpakkar - geisladríf - hljóðkort
hátalarar - minnisstækkarar
TÖLVULEIKIR Á CEISLADISKUM
- ALDREI MEIRA URVAL
Eldri titlar á tilboði - Nýir titlar vikulega
Þetta er jólagjöfin fyrir tölvuáhugamanninn
LASER OC MACINTOSH TÖLVUR
APL VARAAFLGJAFAR
HP PRENTARAR
Á MJÖC HAGSTÆÐU VERÐI
Full verslun af heimilistækjum, stórum og smáum
Þekkt merki á fínu verði
TILBOÐ - TILBOÐ
ÝMIS BREYTILEG TILBOÐ TIL JÖLA
t.d. Aura símar - Panasonic hljómtæki - Philips ryksugur - CD tölvuleik-
ir - Tatung 28" sjónvörp - Panasonic örbylgjuofnar - Sega tölvur - Sony
útvarpstæki fyrir börn
JÓLASERÍURNAR Á HLÆCILECU VERÐI
t.d. 20 Ijósa innisería með mislitum perum kr. 265
Ýmsar gerðir af gluggaskrauti og toppum á jólatré
t.d. 49 Ijósa hringur með blikkperum kr. 1.180
Aðventuljós frá kr. 1.350
40 Ijósa útisería með spenni kr. 1.290
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-18 Sendum í póstkröfu
PÓLLINN HF.
POLLINN
SfMI 456 3092
HF.