Jökull


Jökull - 01.12.1958, Blaðsíða 10

Jökull - 01.12.1958, Blaðsíða 10
6. mynd. Á Svíahnúk vestri, séð til austurs. — View from W-Sviahnúkur towards E. — Ljósm. S. Þórarinsson, 12. septem- ber 1958. við bláberjatínslu ofarlega í Tungunum, en þar voru bláberjabreiður meiri en flestir höfðu aug- um' litið og höfðu þar engir áður tínt nema heiðagæsir. Voru berin með öllu ófrosin (það voru þau raunar fram í október). Kl. 23,25 var komið í Landmannalaugar og var þar fyrir Carl Eiríksson verkfræðingur, einn í jeppa, bún- urn sendi- og móttökutækjum og hafði Guð- mundur Jónasson haft það til dundurs þennan dag og daginn áður að fjarstýra Carli og jeppa hans gegnum talstöð sína yfir fjalllendið vestur og suðvestur af Langasjó. Mánudaginn 15. september. — Veður var enn gott og var fyrrihluta dagsins varið til að kanna Ljótapoll og róta í moldarbörðum. í gíg- barmi Ljótapolls efst er líparítmöl, sem komin er úr gígnum sjálfum. Á meðan gígbarmurinn var kannaður dró Magnús Jóhannsson á skammri stund 3 silunga úr pollinum og myndu þó fáir telja það vatn líklegt til veiði, en það hefur áður sýnt sig, að silungar eru bráðfeigir í návist Magnúsar. Ekki skal hér farið mikið út í eldfjallafræði, en þar sem sá, er þetta ritar, hefur þráfaldlega tafið mjög fyrir ferðafélögum sínum í Vatna- jökulsferðum vegna ásækni i moldarbörð, en þeir sýnt furðu mikinn skilning og áhuga á þessari sýslan, skal þess getið, að öskulagaathug- anirnar hafa þegar gefið nokkrar upplýsingar um aldur eldstöðva á þessum slóðum. Svo dæmi séu nefnd má öruggt telja, að Laugahraunið sé runnið fyrir landnámsöld, en vart er það meit en 1200—1300 ára gamalt. Námshraunið er yngra og líklegt að það sé til orðið eftir að land byggðist, en þó ekki löngu eftir það. Sama er að segja um „Stút“, gíginn reglulega, sem blasir við er kemur upp á hrygginn sunnan Frosta- staðavatns. Sprengigígurinn í Tjörvafelli er á mörkum þess að vera til orðinn eftir að land byggðist og líklega svipað að segja um Ljóta- poll, þótt ekki sé það nægilega kannað enn. Á sömu sprungulínu, eða því sem næst, og Ljótipollur og Stútur, er gígaröð sú, er klýfur suðvestanverð Ljósufjöll og sker sundur Veiði- vatnasvæðið nær að endilöngu. Þessi gígaröð, sem nefna mætti Vatnaborgir, er ein af lengstu gígaröðum landsins, um 26 km, og er þá ekki meðtalin sú sprunga, sem klýfur meginhrygg Ljósuf jalla og nær nokkuð norðaustur fyrir þau, en hún virðist geta verið mynduð samtímis hinni, þótt líklegra sé, að liún sé eldri. Hvergi hafa enn fundizt í jarðvegi á Vatnaborgum eða hrauni frá þeim öskulög, er benda til að þessi gígaröð sé eldri en landnám Islands og því lík- legt, að hún sé yngri. Eftir þennan útúrdúr er því einu við að bæta, að laust fyrir miðnætti þ. 15. september rann leiðangursbíllinn heim í Þverholtið í Reykjavlk og lauk þar með leiðöngrum Jökla- rannsóknafélags Islands á því veðursæla ári 1958. Þökk þeirn öllum, sem þar voru með í ferðum. 8

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.